Morgunblaðið - 01.12.1963, Blaðsíða 3
Súnnudagur 1. des. 1963
MORGUNQi *BIÐ
§r. Eiríkur J. Eiriksson
heimsókn
Sr. Grímur Grímsson
(Asprestakall)
Sr. Jónas Gíslason
(Asprestakall)
Sr. Ólafur Skúlason
(Bústaðaprestakall)
Prestskosningarnar í dag
í DAG fara fram prestskosn-
ingar í 6 prestakölium Reykja
víkurprófastsdæmis og eru
það yfirgripsmestu prestskosn
ingar, sem farið hafa fram
hér í Reykjavík til þessa. Alls
eru á kjörskrá í kosningum
þessum rúmlega 20. þús.
manns.
I>ar sem gera má ráð fyrir,
að sóknarskipting sé nokkuð
óljós í hugum margra, sem
vilja neyta kosningarréttar
síns, þykir því rétt að benda
hér á nokkur atriði, varðandi
kosningar þesisar.
í Nesprestakalli verður kos
ið á tveimur stöðum. í Mela-
skólanum (í 4 kjördeildum)
fyrir þann hluta prestakalls-
ins, sem er í lögsagnarum-
dæmi Reykjavíkur, en í Mýr-
arhúsaskóla fyrir þann hlut-
ann, sem síðar er rásðgert
sérstakt prestakall ' (Sel-
tjarnarnesprestakall) sbr. aug
auglýsingu.dóms- og kirkju-
málaráðuney tisins d. 19.
ágúst 1963.
í Háteigsprestakalli verður
kosið í Sjómannaskólanum (6
kjördeildir). En Háteigs-
prestakall nær yfir eftirfar-
andi svæði: Rauðarárstíg að
vestan, Reykjanesbraut að
sunnan til Kringlumýrár-
brautar, síðan ræður Kringlu-
mýrarbraut, að Suðurlands-
Sr. Arngrimur Jónsson
(Hátelgsprestakall)
braut, þá Suðurlandsbraut að
Nóatúni og Nóatún í sjó. Enn
fremur fylgir Háteigspresta-
kalli væntanlegt Háaleitis-
prestakall, en takmöirk þess
eru hugsuð Háteigsprestakall
að vestan, Suðuxlandsbraut
og Miklabraut að norðan o.g
sunnan, unz þær götur sker-
ast (sbr. augl. kirkjum.r. 19.
ágúst ’63).
í LnngholtsprestakaHi verð
ur kosið í Vogaskóla (4 kjör
deildir), en sóknin takmark-
ast af Holtavegi að norðan
og Suðurlandsbraut og
Elliðaám að sunnan og aust-
an.
í Bústaðaprestakalli í Breiða
gerðisskóla (2 kjördeildir).
Prestakallið takmarkast af
hluba af Miklubraut, Suður-
landsbraut og Elliðaám, Bú-
staðavegi og Grensásvegi.
Ennfremur fylgir hluti af
væntanlegu Fossvogspiresta-
kalli, sem takmarkast af línu
frá Grensásvegi í Kópavogi
(Fossvogsdalur, Breiðholt,
Breiðholtsvegur og Blesa-
gróf).
í Ásprestakalli verður kos-
ið í Langholtsskólanum (3
kjördeildir) en auk þess verð
ur kjördeild í Hrafnistu fyr-
ir vistmenn þar.
Þar sem hér er um að ræða
nýtt prestakall þykir rétt að
telja hér upp þær götur og
(Háteigspr estakall)
hús er prestakall þetta nær yf
ir:
Ásvegur, Austurbrún, Brúna-
vegur, Dalbraut, Dragaveg-
ur, Laugarásblettur, Dyngju-
vegur, Efstasund nr. 2—64,
Engjavegur (Bræðrapartur,
Bræðrapartur A, og B, Enja
bær, Laugardalur, Lauga-
tunga), Hjallavegur, Hóls-
vegur, Holtavegur (Engjabær
Langholt, Kambsvegur, Klexf
arvegur, Kleppsvegur nr. 52
—106, Heiði, Hiíðarendi,
Frh. á bls. 31
Fyrsti sd. í aðventu.
Guðspjallið Matt. 21,1-9.
„Ætlar þú ekki að koma og
fagna þjóðhöfðingjanum?“
Menn gerðu það margir, en
ein undanteking hefur valdið
heimssögulegum harmleik.
Við fögnurri því að, að þjóð-
arleiðtoga okkar íslendinga hef-
ir verið vel fagnað" og fengið
sér samboðnar móttökur með
einni nágrannaþjóð okkar og
samskipta um flestar aldir þjóð-
arsögunnar.
Hinn 1. desember 1918 endur-
heimtum við að mestum hluta
frelsið. Enn um sinn var að vísu
þjóðhöfðingi okkar i framandi
landi, en margir voru þeir kon-
ungsjafningjar, er segja má, að
þennan dag fyrir 45 árum héldi
innreið sína í frjálst land og
gengnar kynslóðir ánauðarald-
anna, þeim verðugir þegnar.
í dag er fyrsti sunnudagur í
aðventu. „Sjá konungur þinn
kemur til þín-------,“ ætti að
vera yfirskrift daganna fram að
jólum.
En koma Krists verður , að
sama skapi staðreynd, sem við
Cand. theol. Felix Ólafsson
(Gr ensásprestakall)
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson
(Grensásprestakall)
Sr. Lárus Halldórsson
(Háteigsprestakall)
Sr. Yngvi Þórir Árnason
(Háteigsprestakall)
or. Magnus Kunolfsson
(Langholtsprestakall)
Sr. Sigurður H. Guðjonsson
(Langholtsprestakall)
Cand. theol. Frank M. Hall-
v dórsson (Nesprestakall)
Sr. Hjalti Guðmundsson
(Nesprestakall)
fögnum hinum blessaða leið-
toga af meiri alhug og móttök-
um hjartans.
Og er þá rétt, að við gerum
okkur þess nokkra grein einmitt
í dag, að þjóðarörlög okkar eru
í miklu ríkari mæli en við oft-
viljum viðurkenna háð heimsókn
og viðtökum konungsins Krists
gegnum aldirnar.
Þeir menn voru kristnir, er
fyrstir komu til landsins og til-
gangur þeirra var að gera hér
hjartans reit, ótruflaðan, að leið
toganum mikla þjóðanna yrði
hér veitt verðug viðtaka. Þeim
heilaga tilgangi vígðu þeir land
okkar.
Höfundur margra bóka var að
deyja. „Réttu mér bókina,"
mælti hann. „Hverja?“ ,.Bókin
er aðeins ein.“
Venjulega er margt fagurt
sagt í dag um bókmenntir okk-
ar. Menn tala um heiðinn anda
þeirra. En kristnin færði ckkur
bókina og kenndi okkur að rita.
Fyrsta ritmennskan var her og,
að dómi lærðra manna, kristin
fræði, klæði, er menn bneiddu
á veg Jesú Krists og hin af
trjám, er fram liðu stundir og
menn rituðu enn, einu klæðin,
sem menn áttu og einu grein-
arnar í eyddu landi elds og ísa.
Menn kalla frelsið gjöf and-
kristinna hreyfinga nýrri tíma
og að kúgun og kristni séu á-
vallt samferða.
Við eigum sögu af nokkurri
þjóðlhöfðingjaheimsókn frá 17.
öld: „Æðsk“ kona íslands, sjálf
Bessastaðafrúin kemur að Saur-
bæ á Hvalfjarðarströnd til síra
Hallgríms Péturssonar. Ekki
breiðir hann nein klæði á veg-
inn fyrir hinn „göfuga" gest.
Hann heldur áfram heyskapar-
störfum sínum með heimilis-
fólki sínu. Hins vegar tekur
hann afsíðis íslenzka stúlku, sem
er í fylgdarliði Bessas.taðadrottn
ingar og segir við hana, að efni
til: „Þú ert af góðum ættum,
stúlka mín, að vera í svona fé-
lagsskap.“
Hallgrímur og Vídalín benlu
á hinn æðsta og vildu, að hann
einn hlyti hjartanlegar móttök-
ur.
Stjómvitringur hefur sagt:
„Stjómvizka er að gera sér ljóst
hvað framkvæmanlegi sé.“ Þetta
er kenningin um hið næst bezta.
En hafa ekki beztu menn þjóð-
anna orðið það fyrir þjónustuna
við hið óframkvæmanlega á líð-
andi stund, hið allra bezta, hinn
æðsta?
„Dauðinn er síðasta vígi mitt,“
mælti norskt skáld. Dauðinn get
ur virzt sigra hugsjónamanninn
guðinnblásna í líki byssukúlu í
leikhússtúku® eða opinni bifreið,
en sigra ekki slíkir leiðtogar,
verður það ekki dásamleg þjóð-
höfðingjaheimsókn þrátt fyrir
allt, er líf ungs glæsilegs þióð-
arleiðtoga verður samfelld mót-
taka konungsins Krists? Þá verð
ur dauðinn voldugt vígi Guðs
málsstaðar, þeim er eftir )ifa og
skulu starfa að málstað Jesú
Krists og komu hans.
Megi friður eflast, farsæld og
réttlæti með þjóð okkar og
þjóðum heims og hverjum ein-
staklingi þeirra.
„Ætlar þú ekki að koma og
fagna þjóðhöfðingjanum?"
„Það skiptir svo litlu hvar ég
er í dag. Mín viðhorf valda ekki
heimssögulegum harmleik.“
En þú átt ættjörð í dag, þú
átt ríki sálar þinnar og heilan
heim hennar í sjálfum þer og
utan allrar þinnar mannlegu
stærðar, þú átt Frelsarann Jesúm
Krist. Stuðlaðu að komu hans.
Gerðu líf þitt að aðventutíma, í
þeim skilningi að þjóðhöfðingja-
móttöku.
' Amen.
Þjóðhöfðingja-