Morgunblaðið - 01.12.1963, Síða 10

Morgunblaðið - 01.12.1963, Síða 10
10 MORGUNBLADIÐ i Sunnudagur 1. des. 1963 Sagt er, að Kennedy hafi tekið þessa mynd fram yfir allar aðrar myndir, sem af honum hafa verið teknar frá því hann varð forseti Bandaríkjanna. Hann er hér á göngu- f«rð í nágrenni Hyannis Port, þar sem hann dvaldist oftast sér til hvíldar. ,Þjóð innllytjenda4 !\iý bók eftir John F. Kennedy væntanleg í jan. UM ÞESSAR mundir er unnið að útgáfu nýrrar bókar eftir hinn látna Bandaríkjaforseta, John F. Kennedy. Ber bókin heitið „A Nation of Immi- grants“ og er væntanleg á inarkað í janúar næstkom- andi. Hér fer á eftir úrdráttur úr hluta bókarinnar, upp- haflega gerður í samvinnu við bókaforlagið Harper & Bow, sem gefur bókina út: Á þriðja tug nítjánda ald- ar, þegar íbúar Bandaríkja Nerður-Ameríku voru enn ung þjóð, ákvað ungur fransk ur aðalsmaður, að leggja leið slna þangað til þess að sjá það með eigin augum, sem þjij: var að gerast. Alexis de Toequeville varð furðu lostinn yfir starfsorku fólksins sem var að mynda þessa nýju þjóð. Hann dí-ðist að mörgum þáttum í st]órn- arfari þjóðarinnar, — en um fram allt hreifst hann af hin- um ríkjandi jafnræðisanda sem var svo gerólíkur hinni fast skorðuðu stéttaskiphngu evrópskra þjóðfélaga í>jóðin, sem Alexis de Tocqueville kynntist í Banda- ríkjunum, var þjóð innflytj- enda, sem allir höfðu hafið þar nýtt líf á líkum grund- velli. Þetta var leyndardóm- ur Bandaríkjanna — þau voru byggð af þjóð, sem enn var í fersku minni fornar erfða- venjur, en hafði byrjað nýtt líf, — fólki, sem hafði kom- ið þangað í ákafri löngun til þess að skapa sér nýtt líf í landi, sem veitti þvi mögu- leika til þess. Frá þessu sjónarmiði er auð veldast að skilja hið sér- stæða eðli bandarísku þióðar- innar. Við erum — eins og Eisenhower forseti hefur sagt — þjóð innflytjenda. Frá því árið 1607. þegar fyrstu landnemarnir komu til nýja heimsins, hafa um það bil fjörutíu milljónir mar.na flutzt þangað. Þetta eru mesitu þjóðflutningar, sem sagan kann frá að greina. Sérhver Bandaríkjamaður, sem uppi hefur verið frá þeirn tíma — að undanskildum einum litl- um hópi manna — hefur ann- aðhvort verið innflytjandi eða afkomandi innflytjeiida. Und antekningin? Will B.oger, sem á nokkru leyti æ"t sína að rekja til Cherokee-Indíana segir, að forfeður sínir hafi tekið á móti skipinu May- flower, er það lagði að landi. Núlifandi Bandaríkjamenn- um eru næsta óskiljanleg þau öfl, er ráku forfeður okkar fii þess að yfirgefa sitt fyrra || líf og byrja nýtt. Vanþekking hinna evrópsku bænda og iðn aðarmanna og þar af leiðandi það áfall, sem fyrsta reynsla þeirra af þessum nýja heimi varð þeim, getur aldrei orð- ið sambærileg við reynslu Bandaríkjamanna á miðri tutt ugustu öld. Ameríka hefur ekki aðeins orðið athvarf fórnarlamba trúarbragðaofsókna, hvort sem þau voru brezkir púri- tanar eða rússnesk'ir gyðing- ar, heldur einnig athvarf fórnarlamba pólitískra harð- stjórna. Og Ameríka var milljónum manna land efnahagslegra tækifæra. Sumir sáu fyrir sér möguleika til skjótfengms gróða, flestir tækifæri til betri launakjara, betri lífs- kjara fyrir þá og fjölskyldur þeirra. Hvatir sumra voru lágkúrulegar, hvatir annarra göfugar. Og í sameiningu hafa þeir skapað styrkleika og veikleika Bandaríkjanna. Innflutningur fólks og af- staða þjóðarinnar til hans hef ur alltaf vei % deiluefni í Bandaríkjunum. Eitt af því sem landnemarnir fundu brezku stjórninni til foráttu var, að hún hafði lagt nöml- ur á innflutning fólks til ný- lendna brezka kiúnunnar og þannig takmarkað þróunar- möguleika þeirra. Jafnframt því, sem Banda- ríkjamenn töldu sig hafa hag af innflutningi fóiks töldu þeir sér skvit að taka við því — það va.r hugsjón, sem á sér djúpar rætur í hugs- unarhætti Bartdarikjamanna. Thomas Jefferson spurði eitt sinn: „Eigum við að neita þessu óhamingjusama fólki, er flúið hefur eymdina, um þá gestrisni, sem jafnvel villi menn frumskóganna sýndu forfeðrum okkar, er þeir komu til þessa lands?“ Ágreiningur um innflytj- endurna var farinn að rísa þegar fyrir aldamótin 1800. Árið 1797, aðeins 21 ári eftir að lýst var yfir sjálfstæði Bandaríkja Norður-Ameríku, staðhæfði einn af þingmönn- um fulltrúadeildarinnar, að þótt fylgja bæri frjálslegri stefnu um innflutninga fólks, þegar þarfir landsins krefð- ust, þá ætti nú að taka fyrir innflutninginn, þar sem Banda ríkin væru nú fullbyggð. Röksemdirnar hafa lítið breytzt síðan. Ávallt hafa verið uppi radd ir gegn innflytjendum. Cftast hafa þetta verið raddir ein- stakra manna, en á stund- um hafa mótmæli komið frá samtökum, sumum mjög sterk lega skipulögðum. Það hug- tak, sem venjulegast er not- að um þessi mótmæli og for- sendur þeirra er „nativismi", sem hefur verið skilgreint sem ótti við, og andúð gegn nýjum innflytjendahópum. Um 1830 voru 150.000 írskir kaþólikkar í New York borg. Andúðin gegn þeim var mjög sterk og kom stund um til óeirða — kirkjur voru brenndar og blóðsúthellingar verulegar. Á stjórnmálasvið- inu komu fyrstu merki þessar ar andúðar fram í forsetakosn ingunum 1836, þegar Martin van Buren var af andstæð- ingum sínum sakaður um að játa kaþólska trú. Hatrið gegn írskum og þýzkum innflytjendum, en þó fyrst og fremst gegn kaþólsku kirkjunni leiddi til stofnunar flokksins „The Native Amer- ican“, árið 1945, sem reis skjótast og iéll fljót- ast allra meiri hátuar stjórn- málaflokka í Bandaríkjunum. Flokkúr þessi hafði sett sér stefnuskrá, er byggðist að- eins á þrem atriðum; menn skyldu ekki teljast kjörgeng- ir, nema þeir væru innfæddir; Framh. á bls. 12.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.