Morgunblaðið - 01.12.1963, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnu'dagur 1. 'des. 1963
- Bók Kennedys
Framhald atf bls. 10.
innflytjendur skylau ekki fá
ríkisborgararétt fyrr en eftir
langan reynslutíma; og and-
stöðu gegn kaþólsku kirkj-
unni. Sem stjórnmálaflokkur
var „The Native American"
úr sögunni árið 1857, en
stefnumið flokksins lifðu leng
ur. Frækornum kreddufestu,
ótta og haturs hafði verið
sáð og þau þroskuðust að nýju
í andrúmslofti anduðar gegn
öðrum þjóðum eftir heims-
styrjöldina fyrri.
Hinn illræmdi félagsskap.ir
Ku-Klux-Klcin tók upp merki
flokksins. Um 1925 héldu Ku-
Klux-Klan-menn því fram, að
félagsskapurinn teldi fimm
milljónir manna, flesta frá
Suðurríkjunum, en einnig
frá Ohio og Indiana. Stefna
félagsskaparins var að berj-
ast gegn blökkumönnum, gegn
kaþólskum mönnum, gegn
Gyðingum, gegn útlendingum
gegn stórborgum og gegn öllu
öðru en því, sem gat
samræmzt þeirra eigin sór-
stöku skilgreiningu á Ameri-
canisma. Líkt og aðrar skyld
ar hreyfingar lognaðist Ku-
Klux-Klan að mestu út af,
þegar alvarleg vandamál — þá
kreppan — beindu athygli
fólksins frá kynþáttahatri —
frá tilbúnun vandamáli, að
raunverulegu.
Við höfum enga ástæðu til
sjálfsánægju yfir því, að
þessar hreyfingar skyldu ekki
ná meiri fótfestu í Banda-
ríkjimum. Ástæðan var sú,
að hið bandaríska þjóðfélag
er of flókið til þess, að svo
þröngsýn hreyfing geti náð
þar stjórnmálalegri fótfestu.
Það, að þessar hreyfingar
skyldu yfirleitt finna nokkum
hljómgrunn, ætti að vera
okkur nægilegt tilefni til
gaumgæfilegrar siálfsíhugun-
ar. Og það, að hljómgrunnur-
inn varð stundum svo öflug-
ur, sem raun varð á, ætti að
vera ástæða til þess að við
séum á verði.
Það er þó athyglisverð stað
reynd, að þrátt fyrir allan
áróður, náðu samtökin aldrei
til stjórnarvaldanna. Þau öfl
er mæltu með frjálsum og
ótakmörkuðum innflutningi
voru ljóslega ríkjandi. Sú
hugmynd, að Bandaríkin ættu
að vera hæli fyrir kúgað fólk
og þjáð var aldrei fjarri sam
vizku Bandaríkjamanna.
Þeirri staðreynd verður þó
ekki neitað að um aldamót-
in 1900 var þeirri skoðun far-
ið að vaxa fylgi, að takmarka
skyldi innflutning manna. Og
árið 1921 samþykkti þingið
og forsetinn fyrstu lögin,
sem takmörkuðu innflutning
verulega. Samkvæmt þeim
lögum var ákveðin blutfalls-
tala innflytjenda frá hverju
landi fyrir sig. Sá fjöldi inn-
flytjenda, sem kemur frá
Englandi, írlandi og Þýzka-
landi er aðeins hluti þess,
sem heimild er fyrir í lög-
um. Á hinn bóginn er hlut-
fallstala leyfðra innflytjenda
frá Austur og Suður-Evrópu
það miklu lægri, að miklum
fjölda umsókna er aldrei unnt
að sinna.
Vegna ósveigjanleika þess-
ara laga, hefnr stjórnip orð-
ið að grípa til bráðabirgða-
ráðstafana ti1 þess að geta
brugðizt vel við, þegar brýn
nauðsyn krafði. A.ið 1948 sam
þykkti þingið t.d. lög, sem
heimiluðu innflutning_400.000
athvarfslausra manna. Árið
1953 samþyasti þingið önn-
ur lög, sem leyfðu innflutn-
ing 200.000 flóttamanna, er
flestir komu frá ríkjunum
austan járntja’dsins. Sam-
kvæmt þeim lögum fluttust
til Bandaríkjanna árið 1957
30.000 Ungverjar, eftir upp-
reisnina í okt 1956.
Þessi lög sýna, að Banda-
ríkin eru ekki alveg lokað
. land og að enn e: rúm fyrir
fólk, sem er á flótta undan
harðstjórn. A hinn bóginn eru
áhrif þessara aðgerða minni
en skyldi, bví að á þær er
•fremur litið sem undantekn-
ingu frá megiiistefi.unni en
þátt hennar.
Ný og skynsamlegri stefna
í þessum efnum þyrfti ekki
að kveða á um ó+akmarkaðan
innflutning, heldur aðeins svo
mikinn, sem land okkar gæti
tekið við. Þótt núgildandi
löggjöf geri ráð fyrir tak-
mörkunum, þá er það ekki
mesti galli hennar, heldur
hitt, að forsendur þessara tak
markana eru rangar og órétt-
látar. Við -verðum að forðast
það, sem skáldið John Boyle
O’Reilly frá Massachusettes
kallaði „skipulagða góðgerða
starfsemi, framkvæmda með
kuldalegum nirfilsbrag í nafni
varkárs og hlutdrægs ICrists.“
Stefna í máli sem þessu
ætti í eðli sínu að byggjast á
örlæti, sanngirni og sveigjan
leik. Ef við hefðum slíka
stefnu gætum við horft fram
an I heiminn með óflekkaðar
hendur og hreina samvizku.
Slík stefna yrði ekki annað
en staðfesting fornra hug-
sjóna. Hún yrði tákn sam-
þykkis okkar við þeirri skoð-
un Georg Washington að,
„faðmur Ameríku er eigi að-
eins opinn velmegandi og
viðurkenndum mönnum, held
ur einnig hinum fátæku og of
sóttu, hver sem trúarbrögð
þeirra eða þjóðerni eru; —
þeim munum við bjóða hlut-
deild í öllum réttindum okk-
ar og hlunnindum, ef mann-
gildi þeirra og framkoma
sýna, að þeir séu þess verðir.“
Hrelntum
apaskinn, rússkinn
og aðrar skinnvörur
EFNALAUGIN BJÖRG
Sólvollagötu 74. Sími 13237
Bermohlið 6. Simi 23337
Benedikt Blöndal
héraðsdómslögmaður
Austurstræti 3. — Sími 10223
Skrifstofumaður
Viljum ráða ungan skrifstofumahn, helzt með
nokkra reynslu í skrifstofuvinnu. Þarf að geta
unnið sjálfstætt. Höfum aðeins áhuga á reglusöm-
um manni, sem hefur áhuga á að vinna og þrosk-
ast í starfinu þannig að hann geti í framtíðmni
tekizt á hendur ábyrgðarstarf. — Upplýsingar
sendist Mbl. merktar: „3342“ tilgreini mennt-
un, reynslu og fyrrverandi atvinnuveitendur.
uorur
Kartöflumús — Kakómalt
Kaffi — Kakó
Kjötborg Búðarvogi
R f l\l auglýsir
Scandalli harmonikkur
Ný sending af hinum heims-
þekktu Scandalli harmonik-
um. Meðal annars hinar frá-
bæru Scandalli Vedette.
ítalskir gítarar:
Gítarar frá Carmello Cat-
ania. Sérlega vandaðir gít-
arar, spönsk modeL
Þýzkir Höfner gítarar.
Höfner rafmagnsgítarar.
Höfner rafmagnsgítarkassar
Höfner magnarar.
Scandalli magnarar.
Magnarinn Amplivox 18 er'
mjög fullkominn og vand-
aður, enda notaður af fær-
ustu hljóðfæraleikurum.
Amplivox 18 er með ame-
rískum hátölurum og við
smíði þeirra er gert ráð
fyrir hinum síauknu kröfum
sem gerðar' eru til hljóm-
sveita.
Scandalli rafmagnsorgel.
Getum útvegað með stutt-
um fyrirvara margar gerðir
af Golden Voice rafmagns-
orgelum frá Scandalli verk-
smiðjunum.
BarnahljóðfærL
Mikið úrval af barnahljóð-
færum t. d. harmonikkur,
lúðrar, fiðlur, gítarar, zylo-
fónar, munnhörpur og fl.
Munið okkar hagkvæmu afborgunarskilmála.
Munið að við höfum 20 ára reynslu í hljóðfæravali.
Verzlunin RÍN
Njálsgötu 23, sími 17692.
JÓLAKORT
wj' Y í Nú þegar höfum við fengið marg- Wxdb''V&Æl£a£KN' i|SS|
■ filð ar tegundir af jólakortum, t. d. | 1 fensl
ljósmyndakort, einnig litprentuð %
þ .. og eftirprentanir málverka. { gojl
Sérstaklegaviljum við benda á iHfi
M Ut.*m litprentuð jólakort eftir teikning- lýiSI
fZ mx wÉ fk um Halldos Peturssonar. ^ ^
c'v M Bókaverzlun BÍJH
’-T v vjj Stefáns Stefánssonar
Laugavegi 8
9M| (við hliðina á Skartgripaverzlun I . |g||j
Jón Sigmundssonar). k” * ~
Bifreiðaeigendur ATHUGID!
Opið alla daga — helga sem virka — frá kl. 8.00 f.h. til kl. 23.00 e.h
Höfum fyrirliggjandi flestar stærðir af fólks og vör ubílahjólbörðum
Einnig flestar stærðir af snjóhjólbörðum. — Hagst ætt verð.
Hiólbarðaviðgerðin
Múla v/Suðurlandsbraut — Sími 32960.