Morgunblaðið - 01.12.1963, Síða 31

Morgunblaðið - 01.12.1963, Síða 31
Sunnuðagur 1. des. lbS3 MORCUNBLAÐIÐ 31 JForsíða hins nýja hindis af ævisögu Hannesar Hafsteins, Sjúkrobxll með látinn íslending lenti í árekstri í Kanpmnnnnköfn KAUPMANNAHOFN, 29. nóv. — Farþegi á Gullfossi, Jón Dags- son, maður um sertuigt, brúar- smiður og netagerðarmaður frá Djúpavogi, varð skyndilega veik- ur kl. 7 í morgun og dó senni- lega aá hjartalömun. Sjúkrabíll var kallaður kl. 7.30 að Asiatisk Plads. Var í fyrstu talið að maðurinn væri meðvit- undarlaus og átti að flytja hann í sjúkrahús, en hann mun þá hafa verið látinn. Sjúkrabíllinn ók með sírennuna í gangi til Sundiby sjúkrahússins, en á stór um gatnamótum, þar se<m hann ÍC V u ----- 2. bindi ævisögu Hannes- ar Hafstein að koma út ók yfir á rauðu ljósi, ók sjúkra bíllinn á vörutbifreið, sem var á leið yfir á grænu ljósi, en hafði ekki séð og heyrt í sjúkrabíln- um. Hvorki sjúkrabílstjórinn né vöruibílstjórinn meiddus't, en ann ar stýrimaður á Gullfossi, Guð- mundur Ingimarsson, sem sat í framsætinu, fékk skrámur á enni og eitt rifbein varð fyrir hnjaski en brotnaði ekki. Einnig fékk maður frá Falks-hjálparsveit- inni, sem var einnig með í sjúkra bílnum, mar á fætur. Læknarnir á Sundby sjúkra- húsinu sögðu að Jón Dagsson hefði verið látinn fyriir árekst- urinn. Frá Gullfossi hefi ég þær upplýsingar að Jón Dagsson hafi orðið alvarlega veikur á leiðinni út. — Rytgaard. Mbl. fregnaði í gær, að 2. bindi af ævisögu Hannesar Hafsteins eftir Kristján Albertsson væri væntanlegt nú einhvern næstu daga. Skv. upplýsingum, sem blaðið fékk hjá Almenna bóka- félaginu, verður ævisagan alls þrjár bækur og er það 2. bindi — fyrri hluti, sem nú birtist. Er það bindi svipað að stærð og 1. bindi ævisögunnar, sem út kom á aldarafmæli Hannesar Hafsteins fyrir tveimur árum. Eins og menn minnast vakti útkoma þess mikla athygli og hefur framlhald ævisögunnar ver- ið beðið með talsverðri eftirvænt ingu af þeim ótalmörgu sem bók ina lásu. í hinu nýja bindi hefst írásögnin þegar Hannes Haf- stein tekur við ráðherraemfoætti fyrstur íslenzkra manna hinn 1. febrúar 1904. Sagt er frá mikils- verðum atburðum næstu ára, bar áttu Hannesar fyrir símanum, þingmannaförinni til Danmerk- ur 1906, komu Friðriks 8. til íslands árið eftir, deilunum um — Presfskosningar Framhald af bls. 3 Hrafnista, Kleppur- Prófhús, Kleppur-Víðihlíð, Melstaður, Nafta, Sólvellir, Ægissíða-braggar 5, 6, 7, 8, 9 og 11), Langholtsvegur (stök nr. 1—69 og jöfn nr. 2-84), Laugarásvegur Lauga- mýrarblettur, Múlavegur, (Hafrafell, Laugarás, Reykjaborg), Sel- vogsgrunn, Skipasund (stök nr. 1—51 og jöfn nr. 2—56), Sporðagrunn, Suðurlands- braut (Álfabrekka) Sund- laugavegur (Breiðablik) Efstahlíð (Holt), _ Jaðar (Mold), Reykir (Úthlíð), Braggi við Norðurhlíð, Braggi 12, 13, 16 og 18) Sunnuvegur, Vesturbrún. í Grensásprestakalli verður lcosið í Breiðagerðisskóla (2 kjörd.). Þar sem hér er einn ig um nýtt prestakall að ræða, verða hér taldar upp þær göt ur og hús, sem teljast til þessa presakalls. Brekkugerði, Bú staðavegur, Sogamýrarblett- ur, Grensásvegur (jöfn nr. 26 __60, Fagrahlíð) Háaleitisveg ur (Sólheimar) Kringlumýr arblettur 23 og 24, Háaleitis vegur, Sogamýrarblettur 32, 34, 36, 38, 39, 41 og 59), Heið argerði, Hvammsgerði, Hvassa leiti, Mjóumýrarvegur, Kringlumýrarblettur 12, 14, 15 og 17, Skálagerði, Stóra- gerði, Bústaðavegur, Foss- vogsblettur 30, 31, 39, 42, 42A (47), 49, 50, 51, 54 og 55, Bú- staðablettur 3, 7 og 23, Foss- vogsvegur, Fossvogsvegur 2, 2A, 3, 5, 13 og 14, Klifurveg- ur, Fossvogsblettur, Reykja- nesbraut, Garðshom, Hjarðar holt, Kirkjuhvoll, Leynimýri, Rauðahús, Sólbakki, Sólland og Br. 88 Fossvogi, Sléttu- vegur, Fossvogsblettur. (Frá Reykjavíkurprófasts- dænu). frumvarpið 1908 og ósigri Hann- esar Hafsteins — og afleiðing- um hans, fram til þings 1909. — Þess má einnig geta í sam- bandi við 1. bindi ævisögunnar, að enda þótt frumupplag þess væri óvenjustórt, 6000 eintök, er það nú þrotið með öllu og hef- ur því orðið að endurprenta bók ina nú í haust. Er hin nýja prent un, 2000 eintök, komin á mark- aðinn fyrir skömmu. 1. desember og prestskosningar STÚDENTARÁÐ Háskóla íslands hefur í ályktun látið í ljós ó- ánægju yfir því, að á fullveldis- daginn 1. desember, skuli fara fram fyrirferðarmiklar prests- kosningar í Reykjavík. — Telur Stúdentaráð, að prestskosningarn ar dragi athyglina frá fullveldis- deginum og stuðli síður en svo að virðuleik hans. Sendi Stúdenta- ráð biskupi og kirkjumálaráðu- neytinu ályktunina, svo og blöð- um og útvarpi. Biskupinn, herra Sigurbjörn Einarsson, hefur skrifað Stúd- entaráði og segir hann í bréfi sínu, að hann harmi, að stúdent- ar telji fullveldisdeginum misboð ið. Segist hann fullvissa stúdenta, að það hafi alls ekki verið ætlun- in, hins vegar hafi þeir aðiljar, sem um málið fjölluðu, verið sam dóma um, að annar kostur væri vart fyrir hendi. Segir biskup, að sízt hafi verið ætlunin að varpa skugga á virðu- leik fullveldisdagsins, enda væri ekki ástæða til að líta svo á að til slíks hafi verið stofnað með umræddri ákvörðun. Óeirðir ■ Caracas Caracas, 30. nóv. — AP: Til mikilla óeirða kom í Cara eas í dag, en á morgun verður þar gengið til forsetakosn- inga. — Fimm marrns létu lífið í skipulögðum óeirðum í dag, og hafa ofstækismenn hótað að myrða alla fram- bjóðendur í kosmingunum. Þá kveiktu ofstækismenn- irnir í húsum víða í borginni í dag. Að baki þessum hryðju verkum standa kommúnísk samtök, sem nefma sig „Vopn aða þjóðfreisishreyfmgin". Annars staðar í Venezuela kom víða til óeirða í dag, og greinilegt, að kommúnistar ætla að gera allt, sem þeir geta, til að hindra löglegar kosningar. Víst er þó talið, að kosningarnar fari fram, eins og ákveðið hefur verið. Hafa yfirvöld lands'imis gripið til víð tækra ráðstafana, til að koma á reglu. „Dæfui Fjnll- konunnm", ný bók eftir Hugrúnu ÚT er komin ný bók eftir Hug- rúnu skáldkonu, og nefnist hún „Dætur Fjallkonunnar". Eru þar skráðar æviminningar tveggja kvenna, Sigríðar Sveinsdóttur og Önnu Margrétar Björnsdóttur. Ævisaga Sig- ríðar er sérstæð um margt og mun trúlega koma á óvart, hve fjölhæf og listfeng Sigríður er. Anna Mar- grét er ekki eins sérstæð. Þar er skráð örlagasaga alþýðukonu sem Hugrún b a r ð i s t langa ævi við kröpp kjör. Hún er nú látin. Bókin er 169 bls. að stærð. í henni eru myndir af sögukonun- um svo og nokkrum smíðisgrip- um Sigríðar. Útgefandi er Ægis- útgáfan. Kosið í Ástralíu — og Mýja Sjálandi Wellington, Sydney, 30. nóv. — AP: Þótt talningu sé ekki enn lok ið í þingkosningunum í Ástra líu, þá þykir allt til þess benda, að samsteypustjórn Robert Menzies muni halda 5—10 sæta meirihluta. Talningu er lokið í Nýja- Sjálandi. Þar hefur Þjóðar- flokkurinn, flokkur Keith Holyoak, forsætisráðherra, haldið meirihluta. Flokkurincn hefur nú 44 sæti, stjórnarand staðan 36. Þjóðarflokkurinn tapaði 2 sætum, einu til Sósial kreditflokksins (eina sæti þess flokks) og einu sæti til Verkamannaflokksins, sem nú hefur 35 sæti. r Arekstrar og bíl- veita vegna hálku í GÆR var mjög hált víða á göt- um borgarinnar og urðu nokkrir árekstrar, flestir þó smávægileg- ir. Einn allharður árekstur varð þó á mótum Skothússvegar og Sóleyjargötu. Kona var farþegi í öðrum bílnum og meiddist lítils- háttar. Þá valt steypubifreið hlaðin steypufarmi á mótum Miklu- braútar og Rauðagerðis. Bifreiðar stjórinn klemmdist milli stafs og hurðar, en meiðsl hans eru ekki talin alvarleg. Lokið er nú við að ryðja veg- inn fyrir Ólafsfjarðarenni. — Á efri myndinni sést Sig- urður Oddsson, fulltrúi vegamálastjórnarinnar (annar frá vinstri) ræða við annan ýtustjórann, en á þeirri neðri er vinnuflokkurinn, sem vann að þessum framkvæmdum. Ljósm.: Ingi Jer.sen. — Báts saknab Framihald af bls. 32 stjóri, Gilhaga, Lýtingsstaða- hreppi í Skagafirði, 27 ára gam- all. Ókvæntur. Ingvar Gunnarsson, Laufási 4, Garðahreppi, 21 árs. Ókvæntur. Gunnlaugur Sigurðsson, frá Vestmannaeyjum, ekkjumaður, en á börn. Tveir þeir síðasttöldu eru nýkomnir á bátinn. Hörkusjór og vonzkuveður. Mbl. átti í gær simtal við Magnús Grímsson, skipstjóra á Guðmundi góða. Hann sagði að bæði skipin hefðu verið að veið- um fyrir austan Ingólfshöfða á fimmtudaginn. Var Hólmar búinn að fá 8—10 lestir af fiski, sem Magnús telur að sé rétt hæfileg ballest í bát af þessari stærð. Magnús sagði að Guðmundur góði hefði byrjað að keyra vest- ur kl. um 10.30 um kvöldið, en Hólmar kl. 12. Bilið á milli skipanna hefði því verið ca. 20 mílur, sem jókst í 30 mílur. — Við töluðum alltaf saman eftir veðurfiregnirnar, síðast eftir veðurfregnirnar um morguninn kl. 9.20, saigði hann. Þá vorum við komnir vestur fyrir Portland. En eftir hádegisveður- fréttirnar svaraði Helgi aldrei. — Hvernig veðrið var? Það voru 8—10 vindstig um nóttina yfir Meðallandsbuigtina, en lægði á milli. En ecftir kl. 10 um morg- uninn veirsnaði veðrið að miklum miun. Varð hörkumikill sjór og vonzkuveðúr. Þeg'ar ég talaði við Helga skipstjóra á Hólmari um morguninn spurði ég hann um sjólag og veður. Hann saigði að væri mikill sjór, en sjólag ekki slæmt, vindur væri 9—10 vindstig. Hann nefndi ekki annað en allt væri í ágætu lagi hjá hon- um. Eins hafði hann áður sa/gt mér að þetta væri ágætur bátur. — Við komum til Vestmanna- eyja kl. 4 síðdegis. Hólmar hefði átt að koma um kl. 8.30-9. Um 12 leytið vorum við orðniir æði órólegir og fórum að svipasx eftir honum og reyna að láta kalla hann upp. Og formaður á báti þarna talaði við Slysavarnafélag- ið. — Hvað heldurðu að hafi. get- að komið fyrir? — Ég veit það auðvitað ekkL Ef báturinn finnst ekki á sand- inum, þá er ekki um annað að ræða en að hann hafi fengið á sig brotsjó. LeitaS frá í býtl í gærmorgim. Mbl. hringdi í gær til Júlíusar Jónssonar í Norðurhjáleigu, en faðir hans er formaður björgun arsveitarinnar þar austur frá, og var einmitt að leita á Mýrdals- sandi. Júlíus sagði að í býtið um morguninn hefðu tveir bílar farið með leitarmenn, sem gengu fjörurnar frá Kúðaósi að Blautukvísl, en fundu ekkert sem gat verið úr Hólmari. Eftir há- degi fóru leitarmenn aftur af stað á einum bíl að beiðni Slysa varnafélagsins. Júlíus sagði að á föstudaginn hefði verið sunnan veður, lík- lega 8-10 vindstig á tímanum frá kl. 10 um morguninn til kL 6, en þá lægði. Einmg var dimm viðrL Bíllinn fundinn en uppl. vantar í GÆR var beðið um upplýsing- ar hér í blaðinu um bíl, sem hafði verið stolið. Bíllinn er kominn fram, fannst í Blesugróf, neðar- lega, í gærmorgun. Eigandi bílsins fór um veginn þar sem bíllinn fannst um kl. 11 í fyrrakvöld og var þar þá enginn bíll. Virðist hann því hafa verið notaður í fyrrinótt. Bíllinn ber einkennisnúmerið R-13235 og er Chevrolet, árgerð 1950, svartur ofan en grár neðan. Rannsóknarlögreglan biður þá, er kynnu að hafa orðið bílsins varir í fyrrinótt að láta sig vita.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.