Morgunblaðið - 22.12.1963, Síða 5
Sunnudagur 22. des. 1963
MORGUNBLADIÐ
Grœnlandspóstur
Föstudaginn 13. des. sl. hljóp
Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli
tindir bagga er flugvél frá
danska flughernum, sem flutti
jólapóst til Grænlands, bilaði á
K^flavíkurflugvelli. í dönsku
flugvélinni voru 1500 pund af
pósti til Grænlands, en skömmu
eftir lendingu kom á daginn að
•kipta þurfti um mótor í vélinni.
Áhöfn nr. 5 úr 24. flugdeild á
Keflavíkurflugvelli bauð þá fram
eðstoð við að koma jólapóstinum
í tæka tíð til Grænlands. Var
áhöfnin að fara í ísleitarflug, og
fóru tveir menn af dönsku flug-
vélinni með flugvél Bandaríkja-
mannanna, sem varpaði síðan
niður póstinum í Scoresbysund,
Topinhöfða, Aputileg-eyjar.
Dönsku flugmennirnir önnuðust
radíóviðskipti við menn á jörðu
niðri, og stjórnuðu flugi banda-
rísku vélarinnar til þeirra staða,
sem kasta átti póstinum til. Alls
var varpað út 22 póstpokum í
fallhlíf, og komust þeir strax í
hendur réttra aðila. Ef ekki hefði
komið til aðstoð varnarliðsins,
hefði ekki verið unnt að koma
jólapóstinum á þessa einangruðu
staði í tseka tíð. — Myndin sýnir
bandarísku áhöfnina og Danina
tvo við heimkomuna til Kefla-
víkur.
VISUKORN
Dags er glæta þrotin þá
þokan vætir kinnar
Skjóna fætur skripla á
skuggum næturinnar.
Hjörleifur Kristinsson
Gilsbakka.
Happdrœtti
Frá Kvenfélaginu Hringnum: Þessi
númer komu upp í skyndihappdrætti
Hringsins 8. desember s.l.: 6615, 5386,
5403, 5461, 4909, 5349, 5587, 4630, 4896,
4953, 6623, 5398, 4712, 5486, 5373, 5040,
4696, 4775 og 669. Vinninga sé vitjað
til Sigríðar Jónsdóttur, Hrefnugötu
10, sími 12524.
Áheit og gjafir
Barnaspítalasjóði hringsins hefur
borizt gjöf að upphæð kr. 10.00.00 —
Tíu þúsund frá Eiríki Jónssyni, tré-
smíðameistara, Grenimel 12. Gjötfin
er til minningar um látna eiginkonu
hans, Snjólaugu G. Jóhannesdóttur
frá Laxamýri, sem fædd var 13. des-
ember 1903, og hefði því orðið sextug
13. desember 1963.
Læknar fjarverandi
Kristjana Helgadóttir læknir fjar- |
verandi um óákveðinntíma. Stað-
gengill: Hagnar Arinbjarnar.
Páll Sigurðsson eldri fjarverandi
um óákveðinn tíma. Staðg. Hulda
Sveinsson.
Gegnum kýraugað
sá HÆST bezti
Þegar skálholtskirkja var vígð í sumar og boðsgestir voru í Ara-
tungu í hádegisverðarboði kirkjumálaráðherra, voru menn að
skrafa saman. Þá segir einn við séra Pál Pálsson í Vík í Mýrdal:
„Hingað hefur verið boðið ýmsum mönnum, sem maður hefur
aldrei heyrt nefnda í sambandi við kirkjuna. Hvers vegna ætli t.d.
vegamálastjóra hafi verið boðið hingað?“ Þá segir séra Páll:
^Ætii það sé ekki vegna þess, hvað hann elskar mjóa veginn?"
Ný geffraun
Nú getið þið, krakkar mínir,
spreytt ykkur á því í jólafríinu
að teikna mynd um efnið í vís-
unni, sem hér kemur að neðan.
Myndirnar séndið þið svo til
Dagbókarinnar fyrir 6. janúar,
og verður tilkynnt um verðlaun-
in síðar. Verið þið nú dugleg
að teikna, og ég óska ykkur
gleðilegra jóla!
Jólasveinar einn og átta,
ofan komu af fjöllunum.
í fyrra kvöld, þá fór ég að hátta,
þeir fundu hann Jón á Völlunum.
ísleif hittu þeir utan gátta
og ætluðu að færa hann
tröllunum,
en hann beiddist af þeim sátta
óvægustu körlunum,
en þá var hringt öllum
jólabjöllunum.
ER það ekki undarlegt, að
fréttamanni útvarpsins skyldi
sjást yfir „sund“ eitt blátt
þegar hann sagði svo fallega
frá samingaumleitunum hér
á dögunum.
Hann sagði Alþýðusam-
bandsmenn og Hannibal vera
í Sanitas (sem þýðir raunar
heilbrigði, svo að ekki eru
öfugmælavísur enn úr móð á
íslandi) en atvinnurekendur
og Björgvin í Hæstarétti. Síð-
an sagði hann fagurlega: „Það
er vík á milli vina og fjörður
á milli frænda, og aðeins eitt
hús á milli.
Hann gleymdi, að á milli
er líka Skuggasund, og þar
býr madama Framsókn, og
hver skyldi annars hafa verið
hlutur hennar á því að
draga verkfallið á langinn?
Jólasveinn Morgunblaðsins
veit svei mér, hvað hann
syngur. Hann veit alltaf,
hvað hvern vantar helzt í
jólagjöf. En það er ykkar,
krakkar minir að finna út,
hver á að fá jólagjöfina í
þetta sinn.
Hver þessara þriggja manna
á að fá þessa jólagjöf?
1) Blaðaljósmyndari minn
(hér hjá okkur heita Ólafur
K. og Sveinn Þ.) 2) Vega-
gerðarmaðurinn og 3) Skatt-
heimtumaðurinn frá Gjald-
heimtunni. Verið þið nú dug-
leg, krakkar mínir!
Keflavík
Matarlegt í Faxaborg. Úr-
vals dilkakjöt, svið, hangi-
kjöt. Lj ósmierki vísa veg-
inn. Heimsendingar.
Jakob, Smáratúni.
Sími 1826.
Keflavík
Nælon-regnkápur í öllum
stærðum, dökkbláar og
brúnar.
ELSA
sími 2044.
Keflavík
Nælon-náttkjólar, nælon-
náttföt, nælon-undirkjólar,
nælon-sloppar, prjónasilki
náttkjólar í frúarstærðum.
ELSA
sími 2044.
Keflavík
Tilbúinn sængurfatnaður
fyrir börn og fullorðna,
hvítt og mislitt.
ELSA
sími 2044.
| Keflavík — nágrenni
Svínakjöt, dilkakjöt, epli,
öl, allar tegundjr, smjör,
smjörlíki, kaififi, is og is-
tertur.
Sölvabúð, sími 1530.
I Tapað
Gleraugu, svört umgjörð,
töpuðust sl. föstudag frá
Suðurgötu að Bankastræti.
Vinsaml. skilist á Arag. 2.
Sími 11960.
Gólfteppi
Axminister A, lítið notað
til sölu. Stærð 3x275. Mjög
ódýrt. Uppl. í síma 50146.
| 3 herb. íbúð til leigu
í Garðahreppi, 30 -fenm.,
bílskúr getur fylgt. Tilboð,
merkt: „Fyrirframgreiðsla
— 3677“, sendist afgr. Mbl.
Keflavík
Þorláksmessu þjóðarréttur
í Faxaborg. Skata, saltfisk-
ur, hamsatólg, hrossakjöt,
'gott saltkjöt og gulrófur.
Jakob, Smáratúni.
Sími 1826.
Sterling — silfur —
borðbúnaður, 6 manna eða
12 manna. Tækifærisverð.
Guðni A. Jónsson,
öldugötu 11.
Danskur svefnstóll
og færanlegar bókahillur
til sölu. Sími 13677.
Nýtt nótnahefti
17 sönglög eftir Kristinn
Ingvason. Fæst í Hljóðfæra
húsinu, Verzlun Sigríðar
Helgadóttur og hjá útgef-
anda, Miklubraut 70, IL
hæð.
Keflavík
Urval af barnapeysum,, 1
til 3 ára. Dralon-golftreyj-
ur, 1 til 12 ára. Hvítir
telpna hanzkar.
ELSA
sími 2044.
Keflavík
Drengjabiindi, drengja-
slaufur, drengjasokkar,
uniglingahanzkar, herra-
treflar í gjafaköesum.
ELSA
sími 2044.
Herbergi
til leigu fyrir reglusama
konu. Uppl. í síma 11951.
Reglusöm
miðaldra kona óskar eftir
1—2 herberigjum og eld-
húsi. Tilboð sendist blað-
inu, merkt: „Regluseimi —
3351“.
Af.s. „Gullfoss
44
Af óviðráðanlegum ástæðum breytist brottfara-
tími m.s. „Gullfoss“ frá Reykjavík, sem áætlaður
var 26. þ.m. þannig að brottför skipsins verður
laugardaginn 28. þ.m. kl. 9 síðdegis til Hamborgar
og Kaupmannahafnar.
Farþegar eru beðnir að koma til skpis kl. 8.
H.f. Eimskipafélag íslands.
Japonskor gjafavörur
Japanskar gjafavörur í miklu úrvali.
íslenzkur listiðnaður: GULL — SILFUR.
Emileraðar skálar og vasar, keramikvörur.
Ullarvörur í fjölbreyttu úrvali.
Mjög mikið af erlendum gjafavörum koma fram
á morgun.
Gjörið svo vel að líta inn,
og berið saman verð og gæði.
Rammagerðin, Hafnarstræti 17
Minjagripaverzlunin, Hafnarstræti 5.
Lille-hainmer pípur
í gjafakössum nýkomnar og Ronson ga.*-
kveikjarar, pípustatív og krúsir undir
reyktóbak.
Verzlunin Bristcj)
Bankastræti 6.