Morgunblaðið - 22.12.1963, Síða 10

Morgunblaðið - 22.12.1963, Síða 10
10 MORCUNBLAÐIÐ r Sunnudagur 22. des. 1963 Fiskverkunarstöð Stór og góð fiskverkunarstöð til leigu í Keflavík frá áramótum. Tilb. sendist afgr. Mbl., merkt: „Fiskverkunnarstöð — 3974“. G jafakassar í miklu úrvali frá HELENA RUBINSTEIN o. fl. FRÖNSK ILMVÖTN, STEINKVÖTN í fjöl- breyttu úrvali G jafasett fyrir herra. Austurstræti 16 (Reykjavíkurapóteki) Sími 19866. Nýtt — Nýtt PRIMAVERA þurrkhengið léttir húsmóðurinni störfin. Losnið við smáþvottinn af ofnunum með því að kaupa PRIMAVERA þurrkhengið. — Hentug jólagjöf. Sendum í póstkröfu um allt land. BJÖRN G. BJÖRNSSON, Skólavörðustíg 3a. III. hæð. — Sími 2-17-65. Fæst einnig hjá: K E A , Akureyri — Kaupfélag Árnesinga, Selfossi — Verzlunin Lea, Njarðvík. IVofF Verk færaselt Rafmagnsborvélar, með hjólsög, stingsög, rennibekk, statívi, slípi- skífum, pússivél, og mörgum fleiri hjálpar tækjum, hentugt fyrir handlagna menn. Tilvalin jólagjöf fyrir húsbóndann og soninn. Úrval fyrirliggjandi. — Hagstætt verð. HAMARSBUfl .......■ ■ MHAMKIitl . SÍMI l)l]| Þannig var umhorfs í brú Gr önlands, er skipið kom til Reykj avíkur sl. miðvlkudag. Öll skil- rúm eru horfin. (Ljósm. Mbl. Sv. Þ.) Þýzkur togari brenn- ur á Grænlandsmiðum Áhöfnin varð að yfirgefa skipið eftir 10 mínútur - logaði í 15 klst. og var dregið til Reykjavíkur Á MIÐVIKUDAGSMORGUN kom> til Reykjavíkur þýzki togarinn Grönland, 1000 lesta nýtízku skuttogari, eitt glæsi- legasta skip þýzka togara- flotans. Skipið er aðeins tæpra þriggja ára gamalt. Hingað hefur það komið alls sex sinnum, en það hefur nær eingöngu stundað veiðar við Grænlandi. Er togarinn var á veiðum á Fylkisbanka við Austur Grænland að morgni föstudagsins 13. des. s.l. kom skyndilega upp eldur í véla- rúmi hans, og magnaðist svo skjótt að við ekkert varð ráð- ið. Logaði skipið í 15 klukku- stundir og er stórskemmt. Áhöfnin fór í báta og bjarg- aðist yfir í nærstaddan þýzk- an togara, Germania. >að var ömurleg sjón, sem mætti fréttamönnum Mbl., _ er þeir stigu um borð eitt sinn glæsilega togara miðvikudag. Brúin og öil yfirbygging Skipsins er gjör- ónýt að sjá. Plöturnar allar á þilfari voru orpnar af hitan- u-m og höfðu allir naglar í brúarvæng gengið tommu upp úr þilfarinu. Weinberg skipstjóri tjáði fréttamönnum að þetta væri í sjötta sinn, sem hann kæmi með togarann til Reykjavíkur en hann hefur verig skipstjóri á Grönland £rá upphafi. Skipstjóri sagði að eldurinn hefði komið upp í vélarúmi um kl. níu umræddan morgun og verið mjög mikill. Reynt hefði verið að slökkva en án árangurs. Fimm mínútum eftir að eldurinn kom upp, stöðvuðust vélar skipsins og öll ljós slokknuðu. Fimm mín útum síðar fóru allir í bát- ana. Skipstjóri sagði að veð- ur hefði verið gott, 3-4 vind- stig af norðaustri. Var skip- brotsmönnum bjargað upp í Germania, sem var á veiðum aðeins tvær mílur frá Grön- land. Grönland logaði í 15 kluklkustundir samfleytt, og má heita að allt hafi brunnið, sem brunnið gat. Vélar skips- ins eru ónýtar taldar, en ekki hafði það þó verið fullkann- að. Mikið gas var í vélarúmi og höfðu skipsmenn ekki treystst niður til þess að kanna skemmdirnar. I ráði var að fá menn með gasgrím- ur til þess að fara í vélarúmið og reyna að blása gasinu burt. Skipstjóri sagði yfirbygg- ingu skipsins alla ónýta. Hann sagði að skipsmenn á Germa- nia 'hefðu aðstoðað við slökkvistarfið, og er um síðir tókst að vinna bug á eldinum, tók Germania togarann í tog til Reykjavíkur. Skipstjóri og fjórir menn aðrir voru um borð á leiðinni, en 25 áhafnar- meðlimir voru settir um borð í annan þýzkan togara, Walter Herwig og sigldi sá til Þýzika- lands. Hingað eru nú komnir full- trúar frá tryggingarfélagi því í Þýzkalandi, sem togarinn er tryggður hjá, svo og full- trúar eigenda skipsins, Lud- wig Jansen & Co., Bremer- haven. Weinberg skipstjóri sagði að Grönland hefði verið á veiðum í 34 klst. er eldurinn kom upp. Hefði aflinn verið 4 tonn af frosnum fiskfljjkum og 22 tonn af karfa. Sængv r Endurnýjum gömlu sæng- urnar. Eigum dún- og í'ið- urheld ver. Dún- og gæsa- dúnsængur og koddar fyrir liggjandi. Dún- og fiðurhreinsunín Vatnsstíg 3. •— Sími 18740.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.