Morgunblaðið - 22.12.1963, Page 16

Morgunblaðið - 22.12.1963, Page 16
16 MORCUNB LAÐIÐ Sunnudagur 22. des. 1908 JMOTQQHnfrfoMfr ÍTtgefandi: Hf. Arvakur, Reykjavik. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jonsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreíðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Áskrifturgjald kr. 80.00 á mánuði innanlands. t lausasölu kr. 4.00 emtakiö. TEKJUSKIPTINGIN Nasser, forseti Egyptalands, heilsar C'hou en-Iai, forsætisráð herra Kína. Tveggja mánaða Afríku ferð Chou en-lais hafin Ý vinnudeilum er yfirleitt verið að kljást um skipt- ingu þjóðarteknanna milli hinna ýmsu starfshópa. Hver stétt um sig leitast við að bera sem mest úr býtiim og engir vilja una því, að aðrir fái meiri hækkanir en þeir. í vinnudeilunum, sem nú voru háðar, horfði þetta nokk uð öðru vísi við. Þó báru verkfallsmenn sig saman við opinbera starfsmenn og töldu sér nauðsynlega verulega kauphækkun til að vega upp á móti hækkuðum launum þeirra. En á hinn bóginn var víðtæk samstaða launþega- samtakanna. Það var verið að reyna að ná heildarsamn- ingum fyrir alla félagsmenn innan Alþýðusambands ís- lands. Menn ræddu mikið um nauðsyn þess að bæta kjör láglaunafólks, en þegar á hólminn kom, neituðu önnur launþegasamtök að fallast á meiri hækkun til verkamanna en annarra og töldu, að ekki kæmi til greina að breyta tekjuhlutfallinu milli hinna ýmsu starfshópa innan Al- þýðusambandsins. Viðreisnarstjórnin hefur sem kunnugt er gert ítrekað- ar tilraunir til þess að bæta kjör láglaunafólks, án þess að allir aðrir fylgdu á eftir og krefðust sömu hækkana að hundraðshluta. Þetta reyndi hún enn í vinnudeilunum, sem nú eru afstaðnar, en laun þegasamtökin í heild, og þar með fulltrúar verkamanna, vísuðu þessu algerlega á bug. Með þeim samningum, sem nú hafa verið gerðir, hafa launþegasamtökin þess vegna sjálf lýst því yiir, að tekju- skiptingin skuli vera óbreytt. Verkamenn skuli ekki bera hlutfallslega meira úr býtum en þeir nú gera. Fyrir þessum sjónarmiðum eru færð þau rök, að auka þurfi menntun og tæknikunn- áttu. Þess vegna verði að borga þeim mönnum veru- lega meira, sem leggja á sig nám til þess að auka verk- menningu þjóðarinnar, hvort heldur um er að ræða iðnað- armenn, tæknifræðinga eða verkfræðinga. Þá er einnig á það bent að verkamönnum fari hlutfallslega fækkandi og fleiri og fleiri sérhæfi sig til starfa; að þeirri þróun eigi að vinna með mismunandi launa greiðslum. Auðvitað eru þessi sjónar- mið meira og minna rétt, en samt vildi Viðreisnarstjórnin og stuðningsflokkar hennar gera tilraun til að bæta nokk- uð kjör láglaunafólks. Sú til- raun mistókst, vegna þess að launþegasamtökin vildu ekki á þau sjónarmið fallast. Þess vegna verður ríkisstjórnin ekki ásökuð fyrir það að kjör láglaunamanna séu of bág- borin. Tekjuskiptingin hefur verið ákveðin af launþega- samtökunum og skæruhernað ur til að fá henni breytt verð- ur héðan í frá ekki réttlætt- ur með því, að launþegar séu beittir misrétti. Þeir hafa sjálfir ákveðið hlutfallið. AFSKIPTI RIKIS- STJÓRNARINNAR að var yfirlýst stefna ríkis- stjórnarinnar þegar hún tók við völdum, að hún hyggð ist ekki blanda sér í vinnudeil ur, það væri verkefni sam- taka launþega og vinnuveit- enda. Því miður kom á dag- inn, að þessi samtök voru of máttvana og sundruð til þess að geta farsællega ráðið mál- um sínum og þess vegna hef- ur ríkisvaldið nú haft nokk- ur afskipti af vinnudeilum. Reynt var að stuðla að sem víðtækastri samstöðu beggja aðila, launþega og vinnuveit- enda, til þess að unnt reynd- ist að gera heildarsamninga, einkum með það fyrir augum að reyna að bæta kjör lág- launafólks, eða láta a.m.k. á það reyna, hvoýt í raun og veru væri vilji fyrir því með- al heildarsamtaka launþega. En þegar á daginn kom, að kommúnistar hugðust ekki vinna að heilbrigðri lausn mála, heldur nota samstöðu þá, sem orðin var, til þess að koma fram pólitískum áform- um sínum um kauphækkanir, sem óhjákvæmilega hlutu að leiða til gengisfellingar og vandræðaástands, gat ekki hjá því farið, að einstök félög reyndu að ná samningum fyr ir sitt fólk. Verzlunarmenn og iðnverka fólk náðu góðum samningum, sem nær einróma voru sam- þykktir á fundum þessara fé- laga og með þessum samning- um var höggvið á hnútinn og opnaðar leiðir til að leysa verkföllin fyrir jól, en ella hefðu þau að líkindum staðið eitthvað fram á næsta ár. Samningar þessara félaga voru því gæfuspor bæði fyrir þau sjálf, aðra launþega og þjóðarheildina. Ríkisstjórnin tilnefndi þá Bjarna Benediktsson, for- mann Sjálfstæðisflokksins, og Emil Jónsson, formann Al- þýðuflokksins, til samráðs við UM síðustu helgi lagði Chou en-lai, forsætisráðherra Al- þýðulýðveldisins Kína, upp í tveggja mánaða ferðalag til Afríku, ásamt fjölmennu fylgd arliði og er þetta fyrsta opin- bera heimsókn hans til álf- unnar. Fyrsti áfanginn á leið hans var Egyptaland, en hann hyggst koma víða við. Chou en-lai var gestur Nass ers, forseta Egyptalands, á heimili hans í gær. Tók Nasser hjartanlega á móti honum, svo og kona hans og börn, fimm að tölu, og var tekin mynd af þeim öllum saman. Þeir höfð- ingjarnir ræddust síðan við í nokkrar klukkustundir og var fjölmennt lögreglulið á verði við bústað Nassers meðan á viðræðunum stóð. Fréttamenn fylgjast með heimsókninni í Kairó af mik- illi athygli, ekki sízt vegna þess, að Nasser var einn helzti forvígismaður Colombo-til- lagnanna til lausnar landa- mæradeilu Kina og Indlands og hefur yfirleitt verið stuðn- ingsmaður Indverja í þeim átökum. Ferð Chau en-lais hófst sl. laugardag, er hann hélt flug- leiðis frá Peking til Kaíró um Indland. Hann hafði áður fengið sérstakt leyfi Nehrus, forsætisráðherra Indlands, til vmmmmmamm^m^mmm^^mrn launþega og vinnuveitendur og unnu þeir ötullega að lausn málsins, þó að ríkis- stjórnin gætti þess að taka ekki fram fyrir hendurnar á aðilum. Afskipti þessara manna urðu til að auðvelda lausn deilunnar og eiga þeir þakkir skildar fyrir framlag sitt. NÝ ÚRRÆÐI r nn á ný hefur verið samið ^ um mikla kauphækkun, sem aðeins mun að litlu leyti þess að flugvél hans mætti ó- áreitt fljúga yfir indverskt land — og sendi Nehru sér- staklega þakkarskeyti, þegar til Kaíró kom. Forsætisráðherra Egypta- lands, Ali Sabry, tók á móti kínversku gestunum á flug- vellinum í Kaíró. Nasser var þá staddur í Túnis, en kom heim á sunnudag. * Á miðvikudag heimsóttu gestirnir Aswan-stífluna og hlýddu á sögu hinna ýmsu fornminja á þeim slóðum. Þá bar svo við, að Chou en-lai fékk eins konar aðsvif og blóðnasir. Læknar hans komu þegar á vettvang og hresstu hann við. Var haft eftir ein- hverjum af aðstoðarmönnum forsætisráðherrans, að hann ætti vanda til slíkra aðsvifa, einkum ef hann þreyttist, og því væru jafnan læknar í fylgdarliði hans á ferðalögum. Chou lét í ljós mikla for- vitni um hvað komið hefði fyrir nefið á Sfinxinum mikla og sagði Mohammed Rahman, yfirmaður þjóðminjasafns Eg- yptalands, honum ýmsar sög- ur, er sagðar hafa verið til skýringa. Þeirra á meðal var saga um, að hermenn Napóle- ons hefðu skotið af hohum nefið — önnur hermdi, að fall- byssuskot hefði grandað því, nýtast sem kjarabætur, en hafnað hefur verið öllum til- raunum til að fara nýjar leið- ir og raunhæfari í kjaramál- unum. Menn gerðu sér til dæmis vonir um það, að launþegar mundu fallast á að hækka eingöngu dagvinnukaup eða lækka álag á yfir- og nætur- vinnu til þess að auðvelda frystihúsunum að standa und ir kauphækkunum og gera mönnum kleift að draga úr yfir- og næturvinnu og una við það kaup, sem þeir fengju fyrir eðlilegan vinnutíma. þegar á miðöldum — „en að öllum líkindum hefur nefið einfaldlega dottið af og týnzt“, sagði Rahman, og bætti við, að 4000 ára gamlar frásagnir hermdu, að þá styttan var gerð, hafi nefið verið höggvið út sérstaklega og síðan fest við. Loks upplýsti Rahman, að skeggið af Sfinxinum væri í eigu Breta frá fyrri tíð, og hefðu Egyptar ekki gert gangskör að því að fá það aftur. Chou en-lai og fylgdarmenn hans munu dveljast a.m.k. vikutíma í Egyptalandi. Það- an mun förinni heitið til Alsír. x London, 19. desember — AP Ættartala Adolfs Hitler var í dag seld á uppboði hjá Christie, í Londan, fyrir 100 pund (12. þús ísl. krónur). Það var ungur maður, sem ættartöluna keypti. — Sagt er, að fyrri eigandi, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sé Þjóðverji. Hafi hann misst annan fótinn, er hann barðist fyrir foringjann í neðajarðar- hýsi hans í Berlín. Sagt er, að sá, sem seldi, rnuni ætla að kaupa sér gerfifót fyrir féð. En jafnvel þótt allir rétt- sýnir menn hljóti að viður- kenna, að slík tilhögun væri til mikilla hagsbóta fyrir launþega, mátti ekki á þetta minnast, þegar út í deilurnar var komið. Þá varð að ríg- halda sér í þá kreddutrú, að það hefðu verið kjarabætur að hækka yfirvinnuálag í verkfalli áður úr 50% í 60% o.s.frv. Þannig virðist seint ætla að takast að koma á skynsam- legum umræðum og heil- brigðri lausn í vinnudeilun- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.