Morgunblaðið - 22.12.1963, Side 17

Morgunblaðið - 22.12.1963, Side 17
Sunnudagur 22. des. 1963 MORCUNBLAÐIÐ 17 Almennur léttir - óleystur vandi Í>RÁTT fyrir almennan létti vegna lausnar verkfallanna dylzt fæstum, að sjálf skapar lausnin mikinn vanda, sem óleystur er. Með þeim hækkunum, sem nú hefur verið um samið, hefur almenn kaupgjaldshækkun í landinu á þessu ári orðið nær 30%. Jafnvel þótt viðreisnin hafi tekizt vel, stendur íslenzkt efna- hagslíf ekki undir þessum hækk- unum án róttækra aðgerða. Ekki er vitað um að efnahagur neinn- ar þjóðar sé svo góður, að hann þoli slíkt, og er engin von til þess, að íslendingar geti leyft sér það fremur en aðrir. Enn er ekki tímabært að ræða um hverjar ráðstafanir reynist óhjákvæmi- legar. Víst er að kauphækkan- irnar hljóta að leiða til margs konar verðlagshækkana og að- gerða til að firra allsherjar at- vinnustöðvun. En af hverju var þá samið um þessar hækkanir? Svarið er ofur einfalt: Til að forðast algert öngþveiti þegar í ptað. Má og segja, að þrátt fyrir ellt sé lausnin hófsamleg, miðað við kröfurnar, sem fram voru settar og lengst var á staðið og ýmsir foringjar verkalýðshreyf- ingarinnar vildu halda til streitu. Klofningur kommúnista Eftir á er ljóst, að hin gífur- lega kröfugerð, aðgerðaleysi í samningum og gangur verkfalls- ins mótast mjög af klofningnum í röðum kommúnista. Almenn- ingur minnist enn hótunarinnar, sem Hannibal Valdimarsson hreytti framan í landsfólkið eftir að hann hafði heyrt kosninga- úrslitin í sumar. Jafnvel flestum lagsbræðra hans þótti sú hótun furðu hvatskeytleg. Kunnugir auðsæja sérstöðu þeirra. For- ustumenn verzlunarmanna sann- færðust hins vegar um það dag- ana næstu fyrir 10. desember, að foringjar Alþýðusambandsins hefðu harla lítinn áhuga á samn- ingum og beindu hugum sínum að allt öðrum verkefnum. Þeir gerðust því óróir og óskuðu eftir nánari skýringum á því, í hverju þeirra sérstaða væri fólgin. Þeg- ar hart var að gengið, kom al- ger synjun á viðurkenningu hennar. V erzlunarmenn semja REYKJAVÍKURBRÉF telja, að fyrir bragðið hafi þeir dregið af sér í kaupgjaldssamn- ingunum um miðjan júní og ver- jð þá mun sáttfúsari en ella. Of skammt þótti liðið frá hótun Hannibals til að ráðlegt væri að láta hana rætast. Þá var sam- þykkt að setja kjararannsóknar- nefnd á laggirnar og ætlazt til, að hún gæti gefið leiðbeiningar um nýja samningsgerð um miðj- *n október. Verkalýðsfélögin gettu hins vegar fram kröfur sín- ar án hliðsjónar til þeirrar rann- sóknar, enda voru þær gífurlegri en nokkru sinni fyrr höfðu sézt. Með aukakröfum munu járnsmið ir hafa krafizt hér um bil 115% hækkunar, Dagsbrún var að vísu verulega lægri, fyrir utan auka- kröfur var meginkrafan um 43% hækkun, ofan á 13% hækk- un fyrr á árinu. Þessi óhóflega kröfugerð sýndi, að ekki var um venjulega kjarabaráttu að ræða, heldur voru annarleg öfl að verki. Sáttargerð og samningatilraunir Þegar sætzt var á það hinn 9. nóvember að fresta verkföllum í einn mánuð og nota tímann til að reyna allsherjar samninga, var um það talað að væru samn- ingar hafnir mundi engin fyrir- staða á því að framlengja frest- inn eftir þörfum. Þegar til kom reyndist erfitt að fá raunveru- lega samninga tekna upp. Ríkis- stjórnin lýsti sig þá þegar í stað búna til viðræðna við aðila. En það var ekki fyrr en mánudag- inn 25. nóvember, sem viðræðu- nefnd verkalýðsfélaganna tjáði Laugard. 7. des. sig tilbúna. Þangað til hafði tím- inn farið x að skipuleggja alls- herjar samninga. Tókst að koma á víðtæku samstarfi — a.m.k. í orði kveðnu — og var eðlilegt, að undirbúningur þess samstarfs tæki verulegan tíma. En því bet- ur þurfti að nota það, sem eftir var frestsins. Viðræðunefnd verkalýðsfélaganna undir for- ystu Hannibals Valdimarssonar taldi eðlilegast, að fyrst væri reynt að ná samkomulagi um sér- eða aukakröfurnar. At- vinnurekendur voru þessum starfsháttum andvígir og töldu ólíklegt, að um aukakröfur yrði samið fyrr en búið væri að ná samkomulagi um aðalatriðin. I þetta þóf fór heil vika eftir hinn 25. nóvember og gekk hvorki né rak. Til að koma hreyfingu á mál ið bar ríkisstjórnin fram tillögur sínar hinn 3. desember og var þeim þegar hið versta tekið af málsvörum verkalýðsins. Brugðust hinum lægst launuðu Tillögur ríkisstjórnarinnar með ekki meiri kauphækkun- um en þar voru ráðgerðar voru ekki líklegar til að falla í geð þeim, er þá stóðu enn á sínum himinháu kaup- hækkunarkröfum. En látum töl- urnar eiga sig. Vitað var, að um þær yrði togazt í lengstu lög. Hitt var enn alvarlegra, að fulltrúar verkalýðsins fengust ekki til að ræða um meginatriði tillagnanna, heldur höfnuðu þeim umsvifa- laust. Hið fyrra var, að hinir lægst launuðu skyldu fá meiri Vinna við höfnina að verkfalli loknu. — Ljósm. Mbl.: Ól. K. M. ur á flokksstjórnarfundinum og flokksbrot sitt sakað um hvers konar vammir og skammir. Lýð- ræðissinnar, sem með þessum mönnum störfuðu við samninga- gerð, áttuðu sig ekki strax á hvað á ferðum var eða orsökum þess, að hvorki rak né gekk. Þeir vildu leggja sig alla fram um heilshugar samstarf en voru ó- kunnugir innbyrðis hatri komm- únista og e.t.v. um of hræddir við ásakanir um undanslátt, ef þeir ýttu fastlega á, að samning- ar væru í raun og veru hafnir. Allt varð þetta til þess, að tím- inn leið án þess að nokkuð gerð- ist, enda voru alvarlegar samn- ingaviðræður sannast sagt ekki hafnar, þegar verkföllunum var skellt á aðfaranótt hins 10. des- ember. hækkun en aðrir. Og hið síðara, að hækkun skyldi einungis veitt á dagvinnu en ekki fyrir kvöld- og næturvinnu. Með þessari til- lögugerð var miðað að því að bæta úr tvennu, sem með réttu hefur sætt gagnrýni. Annars veg ar úr bágum kjörum hinna verst settu og hins vegar óhóflega löngum vinnutíma. Tillögur rík- isstjórnarinnar eru einu raun- hæfu tillögurnar, sem fram hafa komið þessu til leiðréttingar. Um of lítinn hlut hinna lægst launuðu og vinnuþrælkun vegna langs vinnutíma hefur endalaust verið talað undanfarna mánuði og ár. En þegar bent var á ráð til að bæta úr þessu og taka upp nýja stefnu, var þeim umsvifa- laust hafnað. Flokksstjórnar- fundur kommúnista Um sjálfa kauphæðina virtist einnig mjög tregt að koma af stað raunhæfum umræðum. í vik unni næstu fyrir 10. desember og þó einkanlega um helgina 7.-—8. var hugur kommúnista gersam- lega bundinn við átök á flokks- stjórnarfundi þeirra. Sumir, er mest höfðu látið að sér kveða, hurfu með öllu af samninga- nefndafundum og hinir voru eins og lamaðir menn. Greinilegt var, að í þeirra röðum var mikill klofningur. Enginn vildi hefja raunhæfa samninga meðan á flokksstjórnartogstreitunni stóð. Sá, sem það hefði gert, lagði sig í þá hættu að verða sundurtætt- Sérstöðutalið var einungis haft uppi meðan verið var að binda verzlunarmenn í málið og fá þá til að sækja fram, svo að aðrir gætu gengið í þeirra slóð. Þegar verzlunarmenn áttuðu sig á þessu, hófu þeir sérsamninga við atvinnurekendur sína og náðu samningum á nokkrum dögum. Þeir létu hvorki hótanir né fag- uryrði kommúnista á sig fá, held- ur leituðu þeirrar lausnar, sem eðlilegust var og fengu samninga um að leysa deilu sína með kjaradómi. Haldinn var mjög fjölmennur fundur í Verzlunar- mannafélagi Reykjavíkur og var hann nær einhuga með samnings gerðinni. Á sama hátt hefur farið annars staðar en þar sem Fram- sóknarmenn ásamt kommúnist- um eru í meirihluta. Sú samfylk- ing hefur fellt samninginn, en þó ekki þorað annað en aflétta verkfallinu. Fóru þar saman hags munir almennings, verzlunar- fólks og kaupfélaganna um af- léttingu verkfallanna. í form- legri synjun samningsins lýsti sér andúð Framsóknarbrodd- anna á friðsamlegri framvindu mála. Eysteinn Jónsson mælti á Alþingi hinn 14. desember köp- uryrði vegna þess að sérsamn- ingar hefðu verið gerðir. Ey- steinn heimtaði þá heildarlausn, sem ríkisstjórnin átti að beita sér fyrir, enda þótt verkalýðsfélögiii stæðu þá enn óhagganleg á meira en 32% allsherjar kauphækk- unum! Umræður á Desember-verkfall Þegar talað hafði verið um hugsanlega frestun verkfalla eft- ir 10. des. höfðu menn ráðgert, að þá væru alvarlegar samninga- viðræður hafnar. Það, sem olli því að svo reyndist ekki, má segja að hvíli einhliða á komm- únistum og lagsbræðrum þeirra. Engu að síður neituðu þeir með öllu nokkurri frestun fram yfir hinn 10., og fengu til þess sam- þykki allra fulltrúanna. Hvað sem óskuldbindandi umtali leið, kom þessi ákefð í verkföll á þess- um árstíma ýmsum á óvart. Flestir höfðu talið, að verkalýðs- félögiin gætu trauðla valið sér óhentugri tíma. Þá gættu þeir þess ekki, að nú höfðu félög verzlunarmanna bundizt í sam- tökin, og var ætlunin að beita þeim fyrir verkfallsvagninn, því að aldrei yrði við það unað af almenningi, að jólaverzlun legð ist niður. Forráðamenn Alþýðu- sambandsins höfðu að vísu áður verið verzlunarmönnum lítt vin samlegir, en nú var látið mjög dátt við þá, tala um nauðsyn á samstarfi og fögur orð féllu um Alþi in«i Á þessum laugardagsfundi Al- þingis héldu þeir Lúðvík Jósefs- son, Eysteinn Jónsson, Hannibal Valdimarsson og Einar Olgeirs- son uppi harðri gagnrýni á rík- isstjórnina og voru þó ekki að öllu sammála. Lúðvík, Eysteinn og Einar virtust vilja, að ríkis- stjórnin byðist til að borga a.m.k. hraðfrystihúsunum það sem á milli bar, en þá voru kauphækk- unarkröfurnar sem sagt enn yfir 32%. Hannibal Valdimarsson lagði aftur á móti á það áherzlu að það væri frumskylda aðila að reyna til hlítar samninga sín á milli. Bjarni Benediktsson rakti gang málsins og sýndi fram á, að einu tillögurnar sem enn hefðu fram komið og væru hinum lægst launuðu raunverulega að gagni, væru tillögur rikisstjórnarinnar. Þeim hefði verið hafnað. Á með- an aðilum bæri jafn mikið á milli, þá væri það hvorki á valdi né færi ríkisstjórnarinnar að leysa málið nema með lögþving- un. Henni væru stjórnarand- stæðingar hins vegar algerlega andvígir, þótt þeir nú í öðru orð- inu krefðust frumkvæðis stjórn- arinnar. Slíkt frumkvæði væri gagnslaust meðan uppi væru hafðar jafn gegndarlausar kröfur og þá var haldið fast við. Sátta- semjara væri og mjög erfitt að bera fram sáttatillögur meðan jafn mikið bæri á milli og enn væri. Tíminn lét ekki á sér standa að birta í fréttaglugga sín- um rangfærslur á þessum orðum Bjarna, auðsjáanlega í því skyni að reyna að telja mönnum trú um, að ríkisstjórnin vildi hindra sættir í málinu! Framh. á bls. 18

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.