Morgunblaðið - 26.01.1964, Síða 17

Morgunblaðið - 26.01.1964, Síða 17
Sunnudagur 26. jan. 1964 MORGUNBLAÐIÐ 17 Hver vildi láta það ólán henda sig? Þrú banaslys á fáum dögum, fjöldi árekstra og meiðsla mis- munandi alvarlegra hljóta enn á ný að vekja menn til hugsunar um hættur af umferðinni. Oft er erfitt að dæma um hverjum slysin séu að kenna. Þeim verð- ur seint með öllu afstýrt, en aukin aðgæzla og varúð draga örugglega úr fjölda þeirra. Bezt er að hver líti í eigin banm og skoði, hvað hann sjálfur getur gert til umbóta á eigin hátterni á vegum úti, hvort heldur hann gengur eða ekur. Hinum full- orðnu ber að brýna varúð fyrir börnum og unglingum. Þar hafa bæði heimili og skólar miklu verkefni að gegna. Allir finna 6árt til þegar slys verður, senni- lega enginn þó sárar en sá, sem siysinu veldur. Hver vill láta þá ógæfu henda sig að verða öðr- um manni að bana? Sök bítur setíð sekan en fullkomið óhapp, sem mannsbana veldur, leggst áreiðanlega einnig þungt á þann ökumann, sem fyrir slíku verð- „Fast þeir sóttu sjóinn — Ljósm. ÓL K. REYKJAVÍKURBRÉF ttr. Varúðin er fyrir öllu í vax- andi umferð. ískyggilegir skips- tapar Sízt situr á landkröbbum að ásaka sjömenn fyrir að fara óvarlega á hafi úti, þegar þeir eru að sækja björg í bú. En hinir tíðu skipstapar að undanförnu við síldveiðarnar austan við Vestmannaeyjar hafa slegið óhug á almenning. Allir þakka þá guðs .nildi, að mannbjörg hefur orðið. Þar hefur stundum litlu mátt muna. Á siðíista án var efnt tii rannsóknar á skips- töpum, sem orðið höfðu þá að undanförnu. Þeirri rannsókn mun ekki lokið, eða a. m. k. hafa engar skýrslur verið birtar um hana. H'insvegar hafa verið sett- ar nýjar hleðslureglur og er það út af fyrir sig góðra gjalda vert. Hætt er þó við, að það sé ekki einhlítt. Umfram allt þarf að kanna til hlítar orsakir hverju sinni og færa í nyt þann lær- dóm, sem af má draga. í sjó- ferðum dugar ekki varúðin ein, en án hennar má þó aldrei vera. Kapp er bezt með forsjá. Þriðja hættan Til viðbótar hættum af um- ferð og sjóslysum verður mönn- um að vonum þessa dagana mjög tíðrætt um þriðju hættuna, þá »f sígarettureykingum. Segja má, að fuílorðnir menn megi af ráðnum hug leggja sjálfa sig í hættu, ef þeir skaði ekki aðra. Hver verður að gerá upp við *jálf»n sig, hvort hann vilji venja sig af óskynsamlegum ávana eða ekki, enda hefur löng um reynzt erfitt að ætla að hafa vit fyrir öðrum. Það á raunar jafnt við unga og gamla. Lág- markskrafa er þó, að allir fái vitneskju um hverjar hættur eru samfara almennum ávana eða tízku. Unglingum verður að gera ljóst, hverjar hættur leiði •f reykingum. Vitneskja um það hlýtur að verða svipaður þáttur í uppeldi eins og kennsla í um- ferðarreglum. Bönn ekki einhlít 1 Fæstum blandast húgur um, •ð lög og reglur eru ómissandi í siðuðu þjóðfélagi. Áhrifavald þeirra má þó ekki ofmeta. Jafn- ▼el í einræðisríkjum fær 'lögregi •a ekki ráðið við nema sumt Laugard. 25. jan. Hvað sem boði og banni líður fara einstaklingarnir ætíð sínu fram í fjölmörgum efnum. Um það er áfengisbann sígilt dæmí. Það hefur verið reynt í stærstu stórveldum eins og Bandaríkj- unum og Sovétríkjunum og ein- angruðu smáríki eins og okkar. Reynslan hefur hvarvetna orðið hin sama. Vegna þess, að bann hefur ekki átt stoð í almenn- ingsáliti, jafnvel þótt það hafi í fyrstu verið sett eftir sam- þykkt við þjóðaratkvæða- greiðslu, þá hefur orðið að hætta við það. í stað siðbótar leiddi það til siðspillingar. Þetta er skýrasta dæmið en hins sama gætir í ótal öðrum efnum. Meðal vegurinn milli óstjórnar og of- stjórnar er vandrataður. Jafn- vel í lýðræðisríkjum verða stjórnendur stundum að taka ákvarðanir, sem brjóta í bág við almenningsálit. Ef þeir gerðu það ekki, væru þeir ekki trausts verðir. En andstaða almennings getur einnig gert hin beztu áform stjórnenda að engu. Ef tryggja á góðu máli sigur til lengdar, verður því fyrst og fremst að tryggja því stuðning almenningsálitsins. Allra ráða leitað Við íslendingar höfum nú ára- tugum saman átt í baráttu við verðbólguna. í þeirri baráttu hefur allra ráða verið leitað. Beitt hefur verið beinum bönn- um og leitað hefur verið frjálsra samninga og öll úrræði þar í miili reynd. Allt hefur komið fyrir ekki. Meinsemdin hefur haldið áfram að vaxa, hverjir, sem voru við völd, og hver, sem úrræðin voru þá eða þá. Á þessu eru vafalaust margar skýringar. Þær þurfa menn að kanna vegna þess að ekki verður við mein- semdina ráðið án þess, að tekið sé fyrir orsakirnar. Hér er ekki færi til að rekja þær en löngu er sýnt, að engar ráðagerðir um skyndilækningu fá staðizt. Þraut seigja og það að ætla sér ekki of mikið í einú verður affara- sælast. Ekki eingöngu öðruin að kenna Hvað, sem öðrum orsökum líð- ur, þá hefur löngum vantað raun- hæfan stuðning almenni.ngsálits. Ékki það, að allir tækju ekki undir, að verðbólguna yrði að stöðva1. Þetta bera allir sér í munni. En þegar tii kastanna kemur, ætlast þeir til, að aðrir leggi meira af mörkum í þessu skyni en þeir sjálfir. Að vísu beygja menn sig stundum í bili fyrir aðkallandi nauðsyn og finna þá, að fórnin er ekki eins sár og þeir höfðu ætlað. Áður en langt um líður finnst þeim þó nóg að sér hert og vilja því betur ná sér niðri í næstu um- ferð. Allt er þetta í samræmi við mannlegt eðli og við Islend- ingar erum sízt eigingjarnari eða aðgangsfrekari en aðrir. Þvert á móti eru vandfundnir örlátari eða eyðslusamari menn. En vegna smæðarinnar má þjóð félag okkar við svo litlu til að það sporðreisist. Þess vegna þarf trúlega meiri þroska í fjármála efnum til að allt fari vel í okkar litla ríki heldur en hjá hinum stærri, sem lengur geta haldið jafnvægi. Valdið í hvers eins liendi Hvort vel eða illa fer, er kom ið undir því að nógu margir skilji, að úrslitin eru í hvers og eins hendi. Á meðan flestir reyna að velta ábyrgðinni yfir á aðra og ætlast af þeim til þess, sem þeir eru ekki reiðubúnir að leggja fram sjálfir, þá er voðinn vís. Reynslan kennir mönnum vafalaust áður en yfir lýkur. Einungis má kennsla hennar ekki verða of dýru verði keypt. Til að forða frá slíku, verður að halda áfram að fræða menn um hið sanna samhengi upp aftur og aftur á meðan timi vinnet til. Engin óskhyggja fær breytt óhagganlegum staðreyndum. Efnahagslífið hlítir sínum lög- málum, hvort sem mönnum lík- ar betur eða verr. Ef menn ætla að flýja undan þeim, skapa þeir sér einungis aukin vandræði. „Felld íyrir ára- mót“ f nýútkomnum Hamri, blaði Sjálfstæðismaima í Hafnarfirði, segir svo: „Einn aðaiforvígismaður komm únista hér í bæ sagði skömmu fyrir jól, þegar rætt var um fiskleysi, „að engin ástæða væri til að kviða neinu, ríkisstjórnin yrði felld fyrir áramót og þá yrði nægur fiskur í sjónum eftir það.“ Hann sagðist líta björtum augum á framtíðina.“ Engin ástæða er til að halda annað en þessi kommúnistafor ingi hafi talað af heilum hug. Hann vissi sem var, að éinn aðaltilgangur margra félaga hans með verkföllunum fyrir jólin var sá, að knýja ríkisstjórn ina frá völdum. Hann hefur tal- ið víst, að það mundi takast, og þess vegna litið björtum augum á framtíðina. Sá góði mann hefði þó mátt minnast hvernig fór, þegar þeir lagsbræður höfðu úrslitaráð í ríkisstjórn. Árið 1958 var mesta aflaár, sem þang- að til hafði yfir land okkar gengið. Engu að síður gafst þá- verandi ríkisstjórn upp rétt fyrir áramótin af því að hún réði ekki við neitt. Afneitun staðreynda og innbyrðis ósamkomulag varð henni að fjörtjóni. Aukning þ jóðar- tekna Hér á landi segja kommún itsar að auðvelt ætti að vera að auka þjóðarframleiðslu 1 6—7% a. m. k. á ári, og vilja láta tryggja verkamönnum veru legan hluta þeirrar aukningar raunhæfa launahækkun árlega Sem betur fer er ekki um það deilt á íslandi, að almenningur eigi að fá svo mikinn hluta aukn ingar þjóðartekna, sem fremst er mögulegt, enda eru ásakanir um að hlutur launþega í þjóðar- tekjum sé hin síðari ár minni en áður með öllu úr lausu lofti gripnar. Þau hlutföll eru laun þegum nú sízt óhagstæðari en t. d. á tímum vinstri stjórnarinn ar. Hitt er jafn fjarstætt nú sem þá, að hækkun launa almenn- ings umfram vöxt þjóðartekna leiði til raunhæfra kjarabóta Viðfangsefnið er að auka þjóð artekjurnar. Þá mun ekki á því standa að launþegar og allur al menningur fái sinn hlut í aukn- ingunni. Þætti lítið hér Eru líkur til þess, að þjóðar' tekjur mundu vaxa meira, þótt kommúnistar fengju meiri áhrif á stjórn landsins? Ekki segir reynsla annarra það. Raunar stærði sjálfur Krúsjeff sig af því fyrir nokkrum árum, að þá væru Rússar í þann veginn að ná Bandaríkjamönnum i fram leiðslu. Sú bjartsýni hefur hing að til reynzt ástæðulaus, Sam; kvæmt síðustu gögnum er vöxt ur þjóðarframleiðslu í Sovxét- veldinu ekki nema 214%. Mundi slíkt ekki þykja mikið hér landi. Enginn efast um, að marg háttaðar framfarir hafi orðið Rússlandi frá því að kommúnist ar náðú þar Völdum. Rússar voru áður um margt langt á eftir öðrum. En allar líkur benda til, að jafnvel hinu gerspililta zar veldi hefði ekki tekizt ver úm endurbót lífskjara en Sovétherr unum. Þrátt fyrir ólík stjórnar form, hefðu báðir orðið að lúta lögum efnahagslífsins. Fækkun í sveitum og framtíð land- búnaðar Um þessar mundir birtast í Morgunblaðinu fróðlegar um- ræður um framtíð landbúnaðar hérlendis. Margt nýstárlegt kem ur fram í greinum Gunnars Bjarnasonar og er ekki furða þó að kenningar hans sæti gagn- rýni. En þær hljóta að vekja menn til umhugsunar. Enga ís- lenzka valdhafa hefur skort um- hyggju fyrir velferð sveitanna. Án blómlegs íslenzks landbún- aðar væri þjóð okkar rótlaus. En við sem aðrir höfum nauð- ugir viljugir orðið að fylgjast með þróun, sem hvarvetna hefur gengið í sömu átt. Ömurlegt er að horfa upp á sjálfsblindu Framsóknarmanna, sem lengur hafa ráðið í landbúnaðarmálum en nokkrir aðrir á þessari öld umbyltinganna. Ef kenna ætti illvilja eða umhyggjuleysi ein- hverra um þá fækkun, sem orðið hefur í sveitum íslands frá því, að Framsókn fyrst fékk forráð landbúnaðarmála, þ. e. snemma árs 1917, hlyti sú sök fyrst og fremst að lenda á Framsóknar- mönnum. Ef um sök er að ræða, þá er sök þeirra einkum sú, að reyna að kenna öðrum um það, sem þeir voru sjálfir með öllu ómegnugir að ráða við. Vitnisburður 100 ára sveitakonu Þegar menn hlusta á allt Framsóknarkífið er fróðlegt að rifja upp orð Málfríðar Hans- dóttur, er varð 100 ára nú í vik- unni og hefur alla sína ævi átt heima í sveit. Hún sagði í sínu skemmtilega útvarpsviðtali: „Menningin og menntunin hefur náttúrlega breytt fólkinu alveg. Þá var allt að kæfast, þá var ekkert nema vinnan, vinna, vinna, til þess að geta haft ofan í sig og utan á. Allt hefur breytzt til batnaðar nú. á öldinni, það skiptist allt til batnaðar um alda mótin. Til að mynda með bú- skapinn, það var ekki lítið hvað þá batnaði margt, ellegar húsa- kynnin þá, mér finnst bara eins og þetta sé allur annar heimur, það er ekkert annað orð til yfir það. Það er bara eins og maður sé kominn í annan heim.“ Látum ekki sjálfs- blekkinguna tefja okkur Áreiðanlega er ekkert fjær hinni 100 ára öldnu heiðurskonu en að blanda sér í stjórnmála- deilur. Eftirtektarvert er, að hún telur batann hefjast um alda- mótin. Þá fór saman aukið stjórn frelsi, upphaf tæknialdar og batnandi veðurfar. Fyrir allt þetta megurn vió þakka og gera okkur grein fyrir, að þarna eru frumorsakir þeirrar hagsældar, sem við búum við. Hún hefur aukizt með vaxandi hraða eftir því, sem á öldina hefur liðið. Engu að síður hafa mörg mistök átt sér stað, og enn erum við sökum ofurkapps og sjálfsblindu að gera mistök, sem vel mætti forðast. Við ættum að vera búin að læra, að samþykktir um betri lifskjör og hækkað kaup bæta einskis hag, ef raunveruleikinn ber þau ekki uppi. Það er ekki ætíð líklegasta leiðin að létta sér sporin í bili. Nú segja t. d. sumir, að við getum afstýrt nýjum álög um til styrktar atvinnuvegum, sem allir játa, að éins óg komið er þurfi að styrkja, með því að éyða fé, sem þegar hefur verið safnað. Ef þannig yrði farið að, 'mundi það auka á verðbólguna, sem állir þykjast þó vilja berj- ast á móti. Slíkt væri auðveldara rétt í bili en hlyti innan stundar að draga úr framförum og tor- velda leiðina til þeirrar farsæid- ar, sem allir þrá.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.