Morgunblaðið - 07.03.1964, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
Uausardagur 7. marz 1964
í GÆR voru saman korr.nir
liðlega 80 hestar í stórri voru-
skemmu í Seaweed-hverfi á
Keflavíkurflugvelli, og biðu
flugfars til Sviss. Canadair-
flugvél, samskonar vélum
þeim, sem Loftleiðir festu ný-
lega kaup á, frá bandaríska
flutningafélaginu Seaboard
World Airways, lagði upp frá
New York seint í fyrrakvöld,
en varð síðbúin vegna veðurs.
Átti vélin að koma til Kefla-
víkur um sexleytið í gærmorg
un, en tafðist fyrst vegna veð-
urs eins og fyrr getur, og síð-
an í nokkra klukkutíma í
Syðri Strauxr.firði á Græn-
landi vegna vélarbilunar.
Hingað kom vélin um áttaleyt
ið í gærkvöldi og var þá þeg-
ar hafizt handa um að skipa
hestunum um borð. Gæzlu-
menn þeirra á leiðinni til
Hér sjást þeir fsleifur Magnússon (t.v.) og Sigurjón Jónasson bóndi að Skörðugili í Skagafirði,
með tvo blesótta bræður úr Skagafirði á milli sín. (Lgósm. Mbl. Sv. Þ.
Stóð flutt flugleiðis til Sviss
STAKSTEIMAR
„Samdrátturinn'1
Orðin „ofboðs-fjárfesting.“ Þeg
ar viðreisnarráðstafanirnar hóf-
ust 1960, voru Framsóknarmenn
óþreytandi að lýsa þeim hörm-
ungum, sem af henni myndi
leiða. Hér myndi verða samdrátt-
ur, kreppa, atvinnuleysi og Móðu
harðindi af manna völdum. En nú
hefur blaðinu gjörsan’.'ega verið
snúið við og í Tímanum í gær
stendur m.a.:
„Tíminn hefur aldrei borið í
móti því, að hér væri ofboðs fjár
festing, heldur þvert á móti og
hann hefur einmitt sagt, að hana
þyrfti að takmarlfa en til þess
hefur ríkisstjórnin verið gersam-
lega ófáanleg. Framsóknarflokk-
urinn hefur einrrrtt krafizt þess,
að þessi ofboðs fjárfesting væri
takmörkuð með vali milli nauð-
synlegra og ónauðsynlegra fram-
kvæmda og ofboösf járfestingin er
oftast ekki brýn.“
Nú er sem sagt samdrátturinn,
sem mest var um talað orðinn að
ofboðsfjárfestingu og getur Morg
unblaðið vel viðurkennt að síð-
ari fullyrðing Tímans er nær
sanni en hin fyrri. Fjárfestingin
er of nv.kiL
Canadair-skmíuþota sækir 82 ísienzka hesta og flytur til Zúrich
Zurich eru þrír Svisslending-
ar og einn íslendingur.
Blaðamenn Mlbl. litu við í
skemmu 'þeirri, sem hestarnir
voru geymdir í, síðdegis í gær.
Þangað var þá kominn 81 hest
ur og von .var á einum í við-
bót síðar um daginn, þannig
að alls er hér um að ræða út-
flutnirag á 82 hestum. >að er
Sigurður Hannesson & Co.
sem annast útflutning hest
anna.
Forsaga máísins er að hing-
að kom fyrir noklkru sviss-
neskur maður að nafni Kern,
Festi hann aðallega kaup á
hestum á Árnessýslu og í
Skagafirði, að því er éinn
gæzlumanna hestanna á Kefla
víkurflugvelli, ísleifur Magn-
ússon úr Garðahreppi, tjáði
fréttamönnum Mbl. í gær. Is-
leifur flutti hestana til Kefla-
víkurflugvallar í stórum bíl,
sem hann hefur undanfarin
ár notað til flutnings á hest-
um og nautgripum. ísleifur [
sagði að Kern þessi hefði yfir J
leytt keypt hestana á 10—12
þúsund kr. en nokkrir hefðu
verið keyptir á allt að 20 þús-
und krónur.
í skemmunni var einnig
staddur Fritz Kern, faðir þess,
sem hestakaupin gerði. Kvað
hann son sinn mundu selja
alla hestana aftur. Hefði hann
selt 58 þeirra fyrirfram, en
hinir væru enn óseldir. Sagði
hann son sinn, að þessum
hestaflutningum loknum, hafa
ílutt alls á fjórða hundrað ís-
lenz-ka hesta til Sviss síðan
1957. Haft er eftir kaupand-
anum, að takizt þessi tilraun _ . , . — „
með flutning á svo mörgum Svisslendmgamir Fntz Kern og August Heeb asamt tveimur
hestum loftleiðis vel, munihestanna- Heeb hefur verið ‘ H mánuði á Islandi, talar dágóð
hestar vart verða fluttir héð a ,slenzku> °S seSir að hestarnir tveir, sem hann átti í skcmnv
an í framtíðinni á annan u,uli’ verði ekki falir fyrir su,i 1 Sviss*
máta. Svo - sem kunnugt er,
hefur töluverður styrí staðið
um hestaflutninga sjóleiðis, og
fyrir hefur komið að hestar
dræpust í slíkum flutningum.
Er talið ólíkt mannúðlegra að
flytja þá loftleiðis, enda tekur
ferðin þá örfáar klukkustund-
ir í stað margra daga, og fer
vel um hestana.
í skemmunni var einnig
staddur Svisslendingur, Au-
gust Heeb að nafni. Hann hef-
ur verið hér í 11 mánuði, nán
ar tiltekið á Sand'hólaferju
hjá Ulricht Mart, og talar dá-
góða islenzku. Heeb átti þarna
tvo hesta í hópnum, og keypti
þá báða á s.l. ári. Kvað hann
þá ekki fala er til Sviss kæmi,
enda væru þetta góðvinir
hans. Heeb hugðist ferðast
með þssum kunningjum sín-
um í Canadair—vélinni, og
kvaðst alfarinn í bili. Bjóst
hann þó við að hann mundi
koma hingað aftur, enda hefði
sér líkað hér vel.
Töluvert tilstand mun vera
í Zúrich vegna komu hestanna
og munu sjóravarpsmenn m.a.
verða viðstaddir, enda um
óvenjulega flutninga að ræða.
Nýtt fjárhagsráð
Grein Timans heldur áfram:
„Framkvæmdir ríkisins og
íbúðabyggingar almennings ern
til dæmis engar ofboðsfjárfesting
ar og þær má ekki hefta. En það
eru einmitt þær sem ríkisstjórnin
vill hefta og hefur aflað sér sér-
stakrar heimildar Alþingis til
þess, þó að hún telji enga nauð-
syn að hafa heimild til þess að
setja hem.il á aðrar framkvæmd-
ir. Þetta er ein af mestu misgerð-
um stjórnarinnar í fjárfestingar-
málunum. Ofboðsf járfesting
hinna riku gróðamanna íhalds.
ins er óskabarn þessarar ríkis-
stjórnar og hana verndar stjóm-
in hvað sem á dynnr og til þess
að tryggja framgang hennar
fórnar hún hiklaust nauðsynja-
fjárfestingu ríkis og almenning."
Framsóknarmenn fara þannig
ekkert dult moð það, að þeir
vilja enn sem fyrr koma á> fjár-
festingarhömlum. Þeir vilja setja
upp nýtt fjárhagsráð, sem segi
til um það hvað menn megi
byggja og hvað ekki. Það á enn
að vera komið undir geðþótta
pólitískra ráðamanna hver sé
verðugur þess að byggja sér fjós
eða hlöðu, verkstæði eða bílskúr.
Og auðvitað yrði framhald þess-
arar stefnu eins og áður, að
íbúðabyggingar yrðu einnig
bannaðar öðrum en útvöldum.
Þessa stefnu Framsóknarforingj-
anna þekkja landsmenn af reynsl
unni og þeir munu ekki kjósa
hana yfir sig að nýju.
Afleiðing verðbólgu
f kommúnistamálgagninu er í
gær rætt um afleiðingar verð-
bólgu og þar segir m.a.:
„Verið er að færa á hendur
auðbraskara gífurlegar fjárfúlg-
ur og gróðafæri á kostnað alls
almennings í landinu."
Þetta segir Moskvu-má.lgagnið
að sé megin-afleiðing verðbólgu
þeirrar, sem. Hannibal Valdimars
son hótaði að stofna til eftir
kosningarnar í sumar og kommú-
nistar hrundu í framkvæmd með
desember-verkföllunum. Það er
því ljóst, að þeir vita hvað þeir
eru að gera og hverra hag þeir
þjóna ,þegar þeir í samvinnu við
Framsóknarmenn gera allt sem
í þeirra valdi stendur til þess að
ýta undir verðbólguþróunina.