Morgunblaðið - 07.03.1964, Qupperneq 17
I Laugardagur 7. man 1964
— Svar til K. A.
' Framh. af bls. 8
og þjóð sömu svör í þessu máli
eins og hingað til (stjórnarskrár-
málinu) þá telur fundurinn æski-
legt, að sambandi íslands og Dan-
merkur væri slitið á löglegan
hátt“ (bls. 93). En hvernig gat
ísland skilið við Danmörku án
þess áð verða ríki?
En þótt þetta vaki fyrir íslend-
ingum, þá er framgangur máls-
ins vonlaus, eins og K. A. aldrei
þreytist á að endurtaka. íslend-
ingar sætta sig því við að sam-
þykkja margt, sem gengur langt-
um skemmra en þeir vilja, og
þeir’jafnvel í hjarta sínu á móti.
Og nú er sú þróun mikið vatn á
myllu Kristjáns Albertssonar.
Hinn 6. okt. 1896 farast Birni
Jónssyni svo orð: „Samband vort
við ríkisráðið er sá hnútur, sem
vér verðum að fá leystan áður en
vér getum gert oss von um það,
eem öll stjórnarbaráttan er fyrir
háð: innlenda stjórn með ábyrgð
fyrir alþingi. Meðan ekki fæst
breyting í því efni, er ekki annað
6ýnilegt en að allar stjórnarbóta-
tillögur verði einbert kák, sem
ekki er lítandi við, því síður
neinu til kostandi“. (Eftir B. Th.
Melsted: Önnur Uppgjöf íslend-
inga, Eða Hvað? (1898, bls. 34).
Hvað gat vakað fyrir mönnum
með deilum um ríkisráðsákvæðið
annað en það, að þeir vildu að ís-
land yrði ríki? Hinsvegar segja
íslendingar oft við Dani — og þá
til að þóknast þeim, t.d. til að fá
viðræðugrundvöll — meira en
þær staðreyndir, sem búa í hug
þjóðarinnar, fái staðið undir.
Hið milda tal íslendinga er
ekki annað en óframfærni fólks,
sem hafði barið höfðinu við stein
inn á dögum Estrup-stjórnarinn-
ar (já, bæði fyrr og síðar) og því
vant að geyma hugsanir sínar og
tilfinningar. En Knud Berlin sá
hvar fiskur lá undir steini, þótt
K. A. geri það ekki enn í dag.
Grein K. A. er auðvitað enn
eitt dæmið um pólitíska litblindu
hans. Hann er að gefa H. H. upp-
haf þeirrar stefnu, að gera ísland
að sjálfstæðu ríki. Hann segir:
„Björn Jónsson skrifar —--------
að orðin „Frjálst sambandsland"
í (Blaðamanna) ávarpinu merki
„að vér hugsum ekki til þess að
verða ríki sér““. Lykilorðið er
sér. Björn er að reyna að fá Dani
inn á sitt mál, eða segir þetta til
þess að þóknast Dönum. f sögu
Hannesar Þorsteinssonar sjáum
vér, að í þessu atriði á Björn það
til að ganga barnalega langt..
Hvernig K. A. leikur Björn Jóns-
son og samnefndarmenn hans,
þegar þeir tala fullt út (1901),
og heimta heimastjórn, hefi ég
greint hér að framan. (Þá gera
þeir sig seka um það, að heimta
eitthvað sem allir vita að ekki
fæst!)
Þátttaka andstæðinga H. H. í
söfnun til minnisvarða hans er
bezta svarið til K. A. um viðhorf
þeirra og þjóðarinnar til H. H.
Hefðu þeir verið þeir menn, sem
K. A. segir, þá hefði mátt búast
við að þeir hefðu sagt sem svo:
Við reisum fyrst okkar flokks-
foringjum minnisvarða. En það
gerðu þeir ekki, og við hin skilj-
um hvers vegna.
Þar fyrir þurfum við ekki að
taka þegjandi við hinni fölsuðu
sögu, sem K. A. hefir sett saman.
í niðurlagi greinar sinnar segir
hann: Það er „Hannes Hafstein
sem fyrstur tekur þá stefnu að
knýja Dani til þess að viður-
kenna ísland sjálfstætt ríki“ —
snemma á ári 1906. Baráttan var
löng og hörð áður en svo langt
væri komið að hægt væri að fara
að semja. Þetta sem Kristján seg-
ir er því sögufölsun. Árið 1906
hafa menn þegar rætt skilnað í
a.m.k. áratug, eins og ég hefi lítil
lega drepið á hér að framan. Lík-
lega hafa þeir gert það, af því að
þeir voru svo mikið á móti hon-
um? Valtýr Guðmundsson skrif-
ar bækling sinn: Merki fslands,
líklega af því hann var að hugsa
\un danskt ríki á íslandi? Nafn-
arnir Benedikt Sveinsson, eldri
®g yngri, og Einar Benediktsson,
voru að berjast, en fyrir hverju?
MORG UN B LAÐIÐ
17
K. A. veit svarið: fyrir völdufi
sér til handa. Vegna þess að Krist
ján skilur ekki tilganginn, þá er
honum algjörlega um megn að
skrifa sögu tímabilsins öðruvísi
en sem vitleysu, og til þess þarf
hann að gera mennina óþekkjan-
lega.
K. A. finnst ég halli á sig í
skrifunum um Benedikt Sveins-
son sýslumann. Honum finnst ég
leggi lítið upp úr því sem hann
segi. B. Sv. til „lofs og dýrðar“.
Fyrst er nú það, að lofið er fyrst
og fremst lof um persónu B. Sv.,
ekki stjórnmálamanninn B. Sv.
Annað atriði er svo það, að þessi
skrif K. A. eru ekki beinlínis
frumleg: „B. Sv. hefir allra sam-
tíðarmanna mesta gáfu til að
kveikja eldmóð, en skorti ýmsa
hæfileika til að vera foringi á
þingi; þótti ólaginn og erfiður í
samvinnu —---------“ Ég hlýt að
bera þetta saman við eftirfarandi
orð: „En B. Sv. er betur lagaður
til þess að kveikja hug og tendra
gneistaflug meðal manna, en að
halda þeim saman að máli og
fylgja þeim beinustu og greið-
ustu leiðina. Hann er ósamvinnu-
þýður og óverksýnn; þess vegna
getur hann svo fátt til lykta leitt
af þeim málum, sem hann hefir
barizt fyrir“. Þetta er sem sé um-
sögn Boga Th. Melsted: Önnur
Uppgjöf-------(1898, bls. 27). K.
A. á sér fyrirrennara, og sá fyrir-
rennari sér ekki fyrirstöðu Dana
í þessu sambandi. K. A. er ekki
ýkjafrumlegur um sumt. Hann
tilfærir eða tekur upp það sem
aðrir hafa áður gert. Þessvegna
legg ég ekki mikið upp úr til-
vitnunum hans í ræður B. Sv.,
því að hann gerir það ekki sjálf-
ur. Saga Magnúsar Jónssonar,
Merkir íslendingar, og skrif Boga
eru nægir vottar um vinnubrögð
K. A.
Ég er ekki reiðubúinn að
breyta mati mínu á skrifum K.
A. um Einar Benediktsson og
Valtý Guðmundsson. Honum er
yfirleitt varnað þess skilnings,
að athafnir mannanna verði ekki
rétt túlkaðar, nema af þeim sem
skilur hvað fyrir þeim vakir,
hver sé tilgangurinn.
Þar sem K. A. hafði sýnt okk-
ur rækilega ranghverfuna á Birni
Jónssyni í bók sinni, ákvað ég að
sýna rétthverfuna. K. A. marsérar
svo eins og stígvélaóur liðþjálfi
beint í gildruna. Auðvitað er
Björn Jónsson hvorugt, heldur er
hann eins og ábreiðan: þarna á
milli.
Að lokum: dómurinn um
Hannes Hafstein. K. A. er undr-
andi. Hvernig má það vera að til
skuli menn, sem sjái glæsi-
mennsku H. H. og skilji afrek
hans í sjálfstæðisbaráttunni, en
vilji þó ekki varpa fyrir borð
heilbrigðri skynsemi, gagnrýni
og dómgreind?
Það vinna fleiri afrek en H. H.,
sumir stærri. Afrek manna verð-
ur að miða við aðstæðurnar. Og
aðstæður B. Sv. og H. H. eru
gjörólíkar. Hannes Hafstein er
foringi fyrst þegar málin eru
komin á viðræðu- og samninga-
stigið, foringi íslendinga — til-
nefndur af Dönum. Hinir, sem
hljóta hraklega meðferð í bókum
K. A., eru foringjar hins stríð-
andi liðs. Líf þeirra er barátta —
stjórnmálabarátta, hans líf fyrst
og fremst líf embættismannsins.
Hann verður stjórnmálamaður
fyrst um aldamótin, en þá er
sjálfstæðisbaráttan gömul saga,
hann nýliði. Hann hefir dregið
fæturna, svo ekki sé meira sagt.
En nú fer hann smám saman að
harðna. Hann hallast meir og
meir að stefnu, sem aðrir hafa
barizt fyrir, og finnst ónotalegt
hvað sér sé hrundið áfram, eftir
að hann hefir tekið við ábyrgð
foringjans. Það er ekki honum
að þakka að sjálfstæðismálið er
á dagskrá. Það var á dagskrá með
þjóðinni áður en hann fæddist.
En hann er til reiðu, þegar Danir
fallast á að það sé komið á við-
ræðu- og samningastigið. Sá sig-
ur sem meðfram fólst í Uppkast-
inu er stærsti sigur H. H., en sá
sigur er að þakka langtum fleiri
en honum, og það mönnum sem
höfðu barizt lengur en hann,
verið foringjar stríðandi lýðs,
þótt þeir væru ef til vill ekki
heppilegir sem nefndarformenn.
Danir litu áreiðanlega á H. H.
sem einskonar Dana. Hann hlaut
því að valda þeim vonbrigðum.
Hann hlýtur að hafa tekið það
nærri sér, að sumir landar hans
litu eins á, ef dæma má af gengi
hans sem stjórnmálamanns með
þjóðinni. Og ekki er ótrúlegt að
þetta sé ein skýringin á breyt-
ingunni, sem verður smám sam-
an á stjórnmálaviðhorfi hans. En
ég trúi að hann hafi verið hé-
gómalaus maður, og því sætt sig
við örlög sín án þess að mögla,
enda hlaut hann umbun langt
umfram flesta menn aðra. Þetta
er ekki glansmynd K. A. af
af Hannesi, en mér finnst hún
sannari, mannlegri og ólíkt at-
hyglisverðari.
Eins og ég hefi þegar drepið á,
þá segist K. A. hafa séð í bók um
lýðveldisstofnunina 1944 mynd
af vegg á sýningu sem haldin var
í tilefni atburðarins. Þar blasi við
stórar myndir af Skúla og Birni,
en á sýningunni muni „engin
mynd hafa verið af Hannesi Haf-
stein“. Nú vill svo einkennilega
til, að á þessari mynd með Skúla
og Birni, sést greinilega mynd af
H. H. og konungi ríðandi upp
Kamba og ennfremur hálf mynd,
sem okkur rennur grunur í hver
muni vera, því á blaðsíðunni, sem
er blaðhlið myndarinnar, stendur
sérstaklega áberandi: „Á austur-
vegg þessa herbergis er stórt mál
verk af Hannesi Hafstein og hin
fræga ljósmynd“ (úr Kömbum).
Fyrir miðjum suðurvegg var
stórt brjóstlíkneski af Benedikt
sýslumanni Sveinssyni. Svo
Hannesi er siður en svo gert lágt
undir höfði. Ég er farinn að halda
að reiðir menn séu ekki aðeins
ólæsir, heldur einnig blindir. Því
dettur mér ekki í hug að taka
fyrir nefið. Og leiðréttingin um
það, að það hafi átt að standa „á
aðalvegg“ er að mínu áliti ekki
annað en klaufaleg ósannindi,
eins og bókin um lýðveldisstofn-
unina ber með sér.
Með kaflanum um myndina í
bókinni um lýðveldisstofnunina
þykir mér Kristján draga tjöldin
heldur betur frá: „Þessi vegg-
mynd frá sýningunni 1944 mun
hafa átt nokkurn þátt í því að ég
gerðist til að skrifa sögu Hannes-
ar Hafsteins". Ég sagði í greinum
mínum að í bókinni kæmi K. A.
einfeldningslega fyrir sjónir. Nú
uppgötvum við að hið mikla rit-
verk er til komið fyrir misskiln-
ing! Maðurinn sem sá ekki hvað
er á myndinni af sýningunni, er
kom þó miklu róti á hug hans, né
var læs á texta á sama blaði
(„stórt málverk af H. H.“), hann
telur sig hafa það sem með þurfi
til þess að skrifa ævisögu H. 'H.
og stjórnmálasögu meira en
tveggja áratuga. En það vill út,
sem innifyrir er. Bókin hefir
aldrei verið hugsuð sem hlut-
laus saga.
Það er áþreifanlegt tilverunnar
samræmi, að þetta furðulega rit-
verk eigi sér fáráðlingslegt upp-
haf og tilefni. Þeir sem vilja
kynna sér málið ættu að gera sér
það ómak að fletta upp í bókinni
um lýðveldisstofnunina 1944 (bls.
418). Það litla verk leiðir óvænt
stóran sannleik fram í dagsljósið.
24. 2. 1964.
Ármann Guðjón
Björnsson
GETUR þetta verið satt? Ár-
mann dáinn? Erfitt var að trúa
því að okkar góði vinur Ármann
Björnsson væri allur, svona
skyndilega í blóma lífsins,
hraustur, glaður og glæsileg
framtíð við hlið ástríkrar eigin-
konu og myndarlegs barnahóps.
En staðreyndir verða ekki um-
flúnar og í dag fylgja honum
ástvinir og vinir síðasta spölinn
að hinzta hvílustað.
Ármann Guðjón Björnsson
var fæddur í Beykjavík 6. sept.
1923, yngstur 6 barna hjónanna
Björns Sæmundssonar f. 16. júlí
1885 í Hvammsveit í Dalasýslu
og konu hans Guðrúnar Jóns-
dóttur frá Stokkseyri. Föður
sinn missti hann árið 1925 þá
rúmlega ársgamall. Móðir hans
barðist áfram með barnahópinn
sinn þar til hún féll frá árið
1933.
Eftir fráfall hennar ólst Ár-
mann upp hjá vinkonu móður
hans til sextán ára aldurs, en
þá hóf hann lífsbaráttuna á eig-
in spýtur.
Árið 1951 kvæntist hann eftir-
lifandi konu sinni, Sigurbjörgu
Stefánsdóttur, og stofnuðu þau
heimili í Keflavik.
Eignuðust þau sex mannvæn-
leg börn, Halldór 12 ára, Krist-
in 11 ára, Ársæl 9 ára, Lilju 7
ára, Val Rúnar 5 ára og Agnesi
1 árs.
Þrátt fyrir tiltölulega mikla
ómegð byrjaði Ármann að reisa
sér eigið hús, og árið 1959 fluttu
þau í nýtt hús að Greniteig nr.
4 í Keflavík.
Fram til ársins 1961 hafði Ár-
mann stundað atvinnu sína á
Keflavíkurflugvelli, lengst af á
hjólbarðaverkstæði fsl. aðalverk-
taka, en það ár hóf hann sjálf-
stæðan atvinnurekstur, og opn-
aði eigið hjólbarðaverkstæði í
Keflavík, fyrst í leiguhúsnæði
við Bifreiðastöð Keflavíkur og
nú síðast í eigin nýju og mynd-
arlegu verkstæði við Vörubíla-
stöð Keflavíkur. Þar var hann
nýlega búinn að koma sér fyrir
og stundaði blómlegan rekstur,
sem fyrst og fremst byggðist á
hans fádæma lipurð, greiðasemi,
flýti og verklagni. Sama var
hvenær var kallað á Ármann
utan verkstæðistíma, ætíð var
hann reiðubúinn að aðstoða Veg-
farandann.
Fáa menn höfum við þekkt
sem voru jafn örlátir, gestrisnir
og glaðværir og Ármann. Enginn
fór frá honum bónleiður gæti
hann með nokkru móti leyst
vandann og yfirleitt kom hann
auga á lausn, þótt jafnvel væri
þá nærri honum sjálfum geng-
ið. Ekkert var of gott eða nógu
mikið fyrir kunningjana eða vin-
ina og þeir voru margir.
Fjölskyldu sinni var Ármann
sannur heimilisfaðir, og hjóna-
band hans og Sigurbjargar ó-
venju ástríkt, þar sem aldrei
heyrðist styggðaryrði. Börnin
elskuðu og virtu föður sinn, sem
þrátt fyrir langan og erfiðan
vinnudag tók þátt í leikjum
þeirra og hugðarefnum af óvenju
miklum áhuga og natni í frí-
stundum sínum, á sumrin var
hvert tækifæri notað til útilegu
og veiðiferða með fjölskyldunni.
Með Ármanni er genginn góð-
ur drengur, og er hans sárt
saknað af ástvinum og óvenju
stórum kunningja- og vinahópi.
Að lokum, Ármann minn, vilj-
um við og vegna ættingja og
tengdafólks þakka þér innilega
fyrir okkar alltof stuttu við-
kynningu, en þrátt fyrir þungan
harm okkar, vitum við að þú átt
góða landtöku handan við móð-
una miklu.
Bára og Haukur.
Fæddur 6/9 1923
Dáinn 1/3 1964
Kveðja frá eiginkonu og
börnum.
Svo óvænt vinur, ertu horfinn
mér,
en um þig lifa minningarnar
björtu.
Er geyma allt, sem átti ég með
þér,
en ástin hreina tengi okkar
hjörtu.
Þú sannan drengskap sýndir
hverja stund,
í sorg og gleði, hvar sem sporin
lágu.
Og vildir öllu fórna fúsri lund,
hér, fyrir mig og börnin okkar
smáu.
Og þú varst okkur öRum, pabbi
kær,
svo ástríkur og blíður hverju
sinni.
Við minnumst þess, á meðan
hjartað slær,
hve mikil blessun fylgdi elsku
þinni.
Og gjafir þínar þökkum þúsund
falt,
með þinni breytni vannstu hylli
manna,
þín góðu áhrif, gegnum lífið allt,
við geymum hér, sem perlu dýra
og sanna.
Þitt aðalsmerki, drengskapur og
dáð,
að duga bezt, og reyndist sannur
maður.
Þín lífsins saga lifir þannig skráð
þú leystir sérhvern vanda trúr og
glaður.
Nú heitar þakkir hjörtu færa þér,
og hinztu kveðjutár í augum
skína.
Við blessum öll þá braut, sem
gengin er.
Já, blessum góði vinur, minning
þína.
Anton Valgeir Halldórsson. 666
Margan dag ég átti stutta stund
í stormahléi með þér, Anton
minn.
Ef virtist dimmt og lokað sér-
hvert sund,
mér sýndist birta, þegar þú
komst inn.
Guði vígð er gatan, þar sem fer
góður maður, slíkur einn varst þú.
Hlýja, traust og friður fylgdi þér.
— Fyrir allt og allt ég þakka nú.
Þeim, sem harma horfinn föru-
naut,
huggun bezt er minninganna safn
um góða drenginn, sem nú hlýða
hlaut
þeim hljómi, er eitt sinn kallar
hvers eins nafn.
Guðjón Jónsson.
Æ
fRO RIKISINS
M.s. Herðubreið
fer vestur uim land í hring-
ferð 12. þ.m. Vöruomóttaka ár-
degis í dag og á mánudag til
Hornafjarðar, Djúpavogs, —
Breiðdalsvíkur, Stöðvarfjarð-
ar, Mjóafjarðar, Borgarfjarð-
ar, Vopnafjarðar, Baikkafijarð-
ar, Þórshafnar og Kópaskers.
Farseðlar seldir á miðvifcu-
dag.
M.s. Skjaldbreið
fer vestur um land til ísa-
fjarðar 12. þ. m. Vörumóttaka
árdegis í dag og á mánudag
til Ólafsvíkur, Grundarfjarð-
ar, Stykkishólms, Patreks-
fjarðar, Sveinseyrar, Bíldu-
dals, Þingeyrar, Suðureyrar
og ísafjarðar. Farseðlar seldir
á miðvikudag.