Morgunblaðið - 07.03.1964, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ
La'ugarctágur 7. marz 1964
íslendingar unnu Egypta 16:8
Egyptai* höfðu yfir í byrjun —
*
og Islendingar taugaspenntir •
ÍSLAND vann Egyptaland í fyrsta leik sínum í úrslita-
keppni 16 liða um heimsmeistaratitilinn í handknattleik í
Bratislava í Tékkóslóvakíu í gær með 16—8. Með þeim
sigri er ísland eftir fyrsta leikdaginn efst í sínum riðli :—
en hafði líka veikasta mótherjann. En þessi byrjunarúrslit
voru þægileg og gefa vonandi liðinu það traust sem nægir
til að tryggja 1. eða 2. sætið í riðlinum þar sem liðið á eftir
að leika við Svía og Ungverja. Tvö lið úr riðlinum halda
áfram keppni, hin tvö eru úr leik og mega halda heim.
Mbl. átti símtal við Frímann
Gunnlaugsson íormann landsliðs
nefndar í gærkvöldi og fékk álit
hans á leikmum. Frásögn hans
fer hér á eftir.
— Þetta var gott að vissu
marki. Leikurinn var ekki
góður, að því leyti að við
getum meira og við vonumst
eftir að sjá piltana gera betur.
Þetta var mjög gott að því
leyti, að Svíarnir voru að stúd
era okkur svo nákvaemlega
fyrir leikinn á morgun. Við
getum gert miklu betur en í
dag var gert. Vonandi kemur
það bezta á morgun eða móti
Ungverjum. En það var gott
að fá góðan vinning í hálflé-
legum leik.
— Egyptar eru miklu betri
en við reiknuðum með. >eir hafa
geysilegt úthald, eru mjög fljót-
ir og mjög flínkir. En þá vantar
skotmenn. >eir leika mikið línu
spil, en það er máttlítið vegna
þess að þeir leika harkalega og
ef harkalega er tekið á móti þá
er línuskip þeirra dautt. Dómar-
ar hér dæma ekki vítakast nema
brotið sem vörnin fremur sé
100% brot og það fyrir miðju
marki. Fyrir annað fá menn ekki
vítakast.
Landsliðið
magaveikt
ÍSLENZKA landsliðið í hand
knattleik var nær allt rúm-
liggjandi í fyrradag. Ástæðan
var, að piltarnir höfðu látið
ofan í sig einhvern óþverra,
sem gerði rækilega vart við
sig.
Okkur tókst að pína frá-
sögn af því upp úr Frímanni
Gunnlaugssyni, er við rædd-
um við hann í gær. Hann
sagði:
„Við búum hér á mjög fínu
og dýru hóteli. Við komum
snemma, vildum ekki að 20
klst. járnbrautarferð sæti í
piltunum og yrði afsökun. En
Tékkamir borga ekki fyrir
okfcur fyr en degi fyrir keppn
ina. Við ætluðum að spara og
fórum á matsölustað hér í
næsta búsi. Afleiðingin var
rúmlega næsta dag.
— Hver var matseðillinn?
— >að var steik, sem allir
tóku nema tveir. Sósan var
víst eitthvað krassandi. Tveir
urðu ekki veikir.
En þetta er allt að komast
í lag. >að hefur kannski háð
einhverjum, en á morgun verð
ur þetta allt búið — og kann-
ski ætturðu alls ekki að minn
ast á þetta, sagði Frímann.
— Var byrjunin góð?
— Þetta byrjaði hálf illa.
Guðm. Gústafsson var í mark-
inu og fyrir utan völl sátu og
hvíldu þeir reyndu garpar
Gunnlaugur, Birgir og Karl
Jóhannsson. I liðsmönnum
sem léku voru taugarnar sýni
lega ekki í lagi og þegar Egrypt
ar byrjuðu harkalega þá tóku
okkar ungu nienn vel á móti.
Þetta fór þannig að eftir 10
til 15 min. var staðan 3—1
fyrir Egypta og tveim mönn-
um okkar hafði verið visað af
velli þeim Sig. Einarssyni og
Herði Kristinssyni. Við héld-
um jafnvel að liðið væri að
brotna og skiptum um hið
snarasta.
Gunnlaugur, Karl og Birgir
fóru inn á og Hjalti í markið.
Allur leikurinn róaðist og okk
ar lið fann taktinn, komst í
gang. Markatalan jafnaðist og
færðist okkur í vil. Á 15 min.
breyttist hún úr 3—1 fyrir
Egypta í 8—5 fyrir okkur.
Þannig var hún í hálfleik.
Fyrri hlutinn af síðari hálfleik
var bezti kaflinn í leiknum hjá
ísl. liðinu. Allt gekk vel og yfir-
burðasigri var aldrei ógnað. Síð-
ari hluta hálfleiksins var tekið
létt á hlutunum. Leik lauk 16—8.
Mörk íslands skoruðu Gunn-
laugur og Ragnar 4 hvor, Sigurð-
ur Einarsson og Örn Hallsteins-
son 3 hvor, Karl Jóhannsson og
Hörður Kristinsson eitt hvor.
— Hvernig var salurinn?
— Hann er mjög góður en þó
varasamur að því leyti að gólfið
fjaðrar mjög mikið og fjaðrar mis
jafnlega. >að var því ákveðíð að
gera sem minnst af því að reka
knöttinn (dripla).
— Horfðu margir á?
— 2500 manns — en það er
hálft hús. Fólk hér er fyrir hand-
knattleik, en það vill sjá heima-
menn á veliinum — að minnsta
kosti öðru megin.-
Framhald á bls. 23.
Gunnlaugur
Ragnar
Sigurður
Sköruðu frttm úr
mm
mss
Hjalti
Karl
Orn
Gunnlougui
beztur segir AP|
í FRÉTTASKEYTI sem blað-
ið fékk frá AP-fréttastofunni
um kappleik íslendinga og
Egypta segir m.a.:
— fslendingarnir voru tauga
óstyrkir mjög framan af og
Egyptar náðu með hörðum
ieik og hröðum forskoti 3-1
,og 4-2. En síðan tókst íslend-
ingum sem eru svo miklu
framar tæknilega séð að ná
töikum á leiknum. Tauga-
óstyrkurinn hvarf og þeir
sýndu fallegar og nákvæmar
sendingar sem flestar enduðu
í marki mótherjanna. Bezti
maður ísl. liðsins var Gunn
laugur Hjálmarsson. Hann
sýndi frábæran varnarleik og
í sókn fyrir framan varnar-
vegg andstæðinganna átti
hann margar sérlega vel hugs-
aðar og nákvæmar sendinigar
sem eigi varð varizt.
Með hraða i síðari hálfleik
náði isl. liðið algerum tökum
á leiknum og Egyptar þreytt-
ust. Ragnar Jónsson, annar
bezti maður ísl. liðsins átti
mörg góð skot. Sigur ísl. hðs
ins hefði getað orðið enn
stærri ef markverðirnir tveir
hefðu reynzt betur.
Hrmakeppi?’
á skiðum
Á sunnudaginn kl. 1 e.h. hefst
í Skálafelli úrslitakeppni í
firmakeppni Skíðaráðs Reykja^
víkur.
Um hundrað firmu taka þátt
í firmakeppni Skiðaráðsins að
þessu sinni.
>rátt fyrir snjóleysi hafa fé-
lögunum tekist að fá brautir
hjá skálum sínum fyrir undan-
rásir í firmakeppnina. Keppni
þessi er forgjafakeppni og keppa
hérna saman ungir og gamlir
skíðamenn.
Reykjavíkurmeistarar og aðrir
sigurvegarar frá síðastliðnum
sunnudegi mæta til keppni þess-
arar.
Verðlaunaafhending (12 bik-
arar) ásamt sameiginlegri kaffi
drykkju verður í KR skálanum
að móti loknu.
Skíðaráð Reykjavíkur vonást til
að sjá umboðsmenn fyrirtækj-
anna sem styrkt hafa firma-
keppni Skíðaráðs Reykjavíkur
og eru þeir boðnir til kaffi-
drykkju og verðlaunaafhending-
ar að loknum mótum.
Eftir 1. umferð
ATTA fyrstu leikir lokaátaka
heimsmeistarakeppninnar fóru
fram í gær. Úrslitin urðu þessi:
A-riffill
V->ýzkal. —
A->ýzkal. —
Júgóslavía 14—14
(8—3)
USA 20—9 (9—4)
B-riffiIl
Svíþjóð — Ungv.l. 15—8 (8—4)
ísland — Egyptal. 16—8 (8—5)
C-riffilI
Danmörk — Sviss 16—13 (8—5)
Tékkar — Frakkl. 23—14 (12—7)
D-riffilI
Japan — Noregur 18—14 (9—4)
Rúmenía — Rússl. 16—14 (7—8)
í A-riðli kémur á óvart hve
V->ýzkaland og Júgóslavía eru
jöfn og einnig það að A->ýzka-
land skyldi ekki vinna Banda-
ríkin með meiri mun en 20—9.
A->ýzkalandi er af sérfræðing-
um spáð sigri í riðlinum en hin
löndin munu eftir jafntefli sín
á milli reyna að hamra sem mest
á Bandaríkjamönnum — marka-
talan ræður hvor heldur áfram.
í B-riðli hlýtur ísland efsta
sæti eftir 1. umferð ‘með hag-
stæðasta markatölu. Tölur' ap
líta þannig út:
U J T
Island 10 0 16—8 2
Svíþjóð 10 0 15—8 2
Ungverjal. 0 0 1 8—15 0
Egyptal. 0' 0 1 8—16 0
í C-riðli vekur athygli knapp-
ur sigur Dana yfir Sviss en hina
vegar virðast Tékkar mjög góð-
ir, því Frakkar hafa aldrei verið
betri en nú.
í D-riðli kemur sigur Japana
yfir Norðmönnum mjög á óvart
og hlýtur að vera reiðarslag fyr-
ir Norðmenn. >eir reiknuðu með
að komast í 8 liða úrslit en nú
þykir einsýnt að þeir verði
neðstir í sínum riðli. >arna vek-
ur það athygli að Rússar sem
nú keppa í fyrsta sinn á HM
höfðu yfir í hálfleik í leik á móti
heimsmeisturunum frá 1961.
Kemst Island í 8 liöa úrslit?
KEMST ísland upp úr riðla-
keppninni í 8 liða úrslitin í
Tékkóslóvakiu er spurningin
sem allir veltu fyrir sér í gær.
Um þetta getum við birt álit
tveggja sjónarvotta.
Frímann Gunnlaugsson
form. landsliðsnefndar sagði
í simtali:
Ég álít að við eigum mögu-
leikann. ísl. liðið átti heldur
slakan leik í gær en það veit
hver íslendingur hér að liðið
getur miklu meira. Við gerum
Okkur vonir um að sterkasta
hlið liðsins eigi eftir að koma
fram.
Leikur Svíanna virkaði illa
á okkur, þ.e.a.s. hinn mikli
markamunur sem þeir unnu
með er ógnvekjandi. En leik-
ur Svía og Ungverja var ekki
handknattleikur, heldur slags
mál — hrein slagsmál, ekki
íþrótt. Sænska liðið er
„þungt“ og það má leika
kringum það, en það hefur á
að skipa frábærum skotmönn
Um og markvörðurinn Lenn-
art Ring er stórkostlegur og
getur það orð þó ekki lízt hon
um. Svíar hefðu tapað leikn-
um í dag fyrir Ungverjum,
ef þeir hefðu haft markmann
af meðalstyrkleika. Lennart
Ring er líka talinn bezti mark
vörður heims í dag. Hann lék
allan leikinn og varði m. a.
tvö vítaköst.
Ungverjarnir voru mjög
góðir. >eir eru geysilega harð
ir og leika hratt. >að verða
einhver átökin þegar við mæt
um þeim.
Mbl. hafði einnig samband
við AP fréttastofuna. Hún
segir.
„Eftir þennan fyrsta leik ís
lands virðist svo sem það hafi
alls ekki verið fyrir hendingu
að ísland hréppti 6. sætið í
síðustu keppni um heims-
meistaratitilinn. Af fyrsta
leiknum að dæma getur ís-
land gert sér vonir jafnvel um
enn betra sæti nú. Gunnlaug-
ur Hjálmarsson bezti maður
ísl. liðsins — heldur frétta-
stofan áfram — sagði eftirfar
andi. „Við íslendingarnir
fengum tækifæri til að hita
okkur upp fyrir frekari átök.
Ég held að við getum gert
miklu betur næst“.