Morgunblaðið - 20.03.1964, Síða 8

Morgunblaðið - 20.03.1964, Síða 8
8 Föstudagur 20. marz 1964 1 MORGUNBLAÐIÐ IMý Eldborg HAFNARFIRÐI. — í>að er nú orðinn nær daglegur viðburður að nýr bátur bætist í flota lands manna. Nú síðast í fyrrakvöld sigldi Gunnar Hermannsson skip stjóri stálbátnum Eldborgu hing að inn á höfnina, og er það ann ar bátur hans með sama nafni. Hinn nýi bátur er 220 lestir og Gunnar Hermannsson skipstjórí. hinn vandaðasti í hvívetna, til dæmis er hann allur sandblás- inn að utan og innan og á hon- um nýtt ryðvarnarefni, sem reynzt hefur mjög vel. Eldborg er með M.A.N. disel- vél, sem er 6 strokka fjórgengis- vél, búin forþjöppu og er með 235 mm. borun. Er vélin með gír og skiptiskrúfu, og var gan-g hraði í reynsluferð 11,2 sjóm. — M.A.N. díselvélar eru í mörgum skipum hérlendis, svo sem togar anum Maí, olíuskipinu Ha-mra- felli og í fiskibátnum Jóni Finns syni í Garðinum. Það, sem sérstaka athygli vek- ur þegar hinn nýi bátur er skoð aður, er hversu öll fiskileitar- og siglingatæki eru af fulkominni gerð og þeim haganlega fyrir komið. Þar er nýtt 'iskileitartæki af Elac-gerð (þýzkt, sem hefur 3600 m. langdrægi, en venjulega hafa önnur 1500. Þá er hægt að snúa geislanum niður á við þeg- ar leitað, er, en það er talið mjög mikilsvert. Einnig má nota tækið sem dýptarmæli. í bátnum eru tveir radarar af Decca-gerð, og nær sá minni 24 mílur og er transistortæki. Eftirlit með niður setningu á tækjunum hafði Sigur björn Ólafsson á Radíóstofu ólafs Jónssonar, sem hefur með alla tæknilegu hlið þeirra að gera. Eld'borgin er byggð í Bosöes Verft í Molde og er níunda skip- ið, sem þar er byggt fyrir íslend inga á síðastliðnum fjórum ár- un.. Vistarverur eru fyrir 16 menn og allur frágangur á þeim til fyrirmyndar. Skipið getur tek ið 1300 mál síldar í lest, en það mun nú hefja veiðar með þorska nót. Skipstjóri er Gunnar Hermanns son; 1. stýrimaður Ríkarður Kristíánsson, og Magnús Krist- jánsson 1. vélstjóri, en hann fylgdist með niðursetningu vél- arinnar, sem hann lætur mjög vel af. Síðar í vetur tekur við vélstjórn Þórður Helgason. Á s.l. ári sigldu tveir bræður Gunnars Hermannssonar nýjum og glæsilegum skipum hér í höfn. Eru það vélskipin „Vigri“ skip- stjóri Gísli Jón Hermannsson og vélskipið „Ögri“, „kipstjóri Þórð ur Hermannsson. Allir eru þeir bræður frábærir dugnaðar- og aflamenn. G.E. Framsókn vill lögbjóða skyldutryggingu innbús Eldoorgin nyja á siglingu. Annaðhvort eru menn með þvi eba móti, sagði Björn Guðmundsson við umræður um málið / borgarstjórn Á BORGAitSTJÓRNARFUNDI í gær var eftirfarandi tillaga til umræðu frá fulltrúum Framsókn arflokksins: „Bougarstjórn Reykjavíkur beinir þeirri áskor- un til Alþingis að lögbjóða skyldutryggingu gegn eldsvoða á innbúum manna.“ Björn Guðmundsson (F) mælti fyrir tillögunni og sagði, að það fylgdi oft brunafréttum, að innbú hafi verið óvátryggt. Málið væri of mikilsvert til að leggja það til hliðar. Lögboðið væri að brunatryggja hús, en ekki síður væri nauðsyrilegt að tryggja lausafjármuni. Birgir Isleifur Gunnarsson (S) kvaddi sér hljóðs og sagði, að á síaðsta fundi hefði Framsóknar- menn lagt fram tillögu um að kanna hversu margir borgarbú- ar hefðu innbú sitt tryggt, en ekki komið með neinar tillögur um hvernig slíka könnun skyldi gera og aðspurðir hefðu þeir ekki getað svarað því. Borgar- stjórn hefði vísað þeirri tillögu frá. Birgir sagði, að varðandi hina nýju framsóknartillögu þætti sér enn skorta á upplýsingar hvernig hún skyldi framkvæm- ast og beindi þeirri ósk til Fram sóknarmanná að þeir skýrðu mál ið nánar. Einar Ágústsson (F) sagði a3 þeir sem framkvæma ættu til- löguna hlytu að geta fundið færa leið. Engin vandi væri að fram- kvæma hana, aðeins þyrfti að fá svör við því hjá borgarbúum hvort þeir hefðu vátryggt inn- bú, hægt væri að kanna verð- mæti innbús með skýrslugerðum eða láta meta það og einnig kæmi til greina að skylda fjöl- skyldu feður til að tryggja fyrir lágmarksupphæð. Sagðist Einar álíta, að það væru fremur hinir Úthlutunarnefnd listamannalauna verði skipuð 7 mönnum — Síðasti fundur efri deildar fyrir páska — Nokkrar umrœður um húsnœðismálastofnun og skipulagslög FUNDIR voru haldnir í samein- uðu þingi og báðum deildum AI- þingis í gær. 1 sameinuðu þingi voru leyfðar fjórar fyrirspurnir um Ljósmæðraskóla Islands, lán til fiskvinnslustöðva, ríkisábyrgð ir og greiðslur vegna ríkisá- byrgða. Atkvæðagreiðslur um fjórar þingsályktunartillögur, sem ræddar voru í fyrradag fóru fram og var þeim vísað til nefnda. Samþykkt var tillaga um úthlutun listamannalauna og skulu nú 7 menn skipaðir í út- hlutunarnefnd í stað 5 áður. í efri deild voru tvö mál á dagskrá, frv. um ríkisborgara- rétt, fyrsta umræða og lauk henni og afgreitt var sem lög frv. um afnám laga um verð- lagsskrár. Sigurður Ó. Ólafsson, forseti deiídarinnar, kvað þetta verða síðasta fund í deildinni fyrir páskahlé, ef ekkert sérstakt kæmi fyrir. Óskaði hann deildar- mönnum góðrar heimferðar og gleðilegra páska. — Karl Kristj- ánsson þakkaði forseta og óskaði gleðilegra páska. gÆÐtTR Gylfi Þ. GLslason, menntamála ráðherra, mælti fyrir frv. um skemmtanaskatt, sem fer fram á að framlenging hans verði ótíma- bundin, en hefði þingið verið að framlengja hann árlega. Málið var komið frá efri deild. Var því án frekari umræðna visað til annarar umræðu. Emil Jónsson, félagsmálaráð- herra mælti fyrir frumvarpi um Húsnæðismálastofnun. — Kvað hann breytingu þá er frv. gerði ráð fyrir felast í því að skyldu- sparnaður ungl- inga á aldrinum 15—25 árahækk aði úr 6% í 15%. — Mundi þetta gefa á næsta ári sem svarar 30 milljónum, en færi síð- an lækkandi eftir því sem heim- ildir kæmu til úttektar á þessu fé. Ráðherrann kvað skyldusparn aðinn tvíþættan, annars vegar aflaði hann fjár til húsnæðis- mála, en hins vegar yrði hann til að auðvelda ungu fólki stofn- un eigin heimila, er að því kæmi að þau fengju hið sparaða fé greitt. Eysteinn Jónsson (F) kvað framsóknar- menn hafa att hlut að því að styðja skyldu- sparnað og væru þeir fylgjandi frv. og vitnaði hann til nýlegr- ar samþykktar flokksstjórnar. Lúðvík Jósefsson (K) taldi hér stigið nokkuð stórt skref, en flokkur hans myndi fylgjandi auknum skyldu sparnaði. Hins vegar kvað hann fleiri aðila ættu að koma til með framlag til hús- næðismálastofn- unarxnnax. Þórarinn Þórarinsson (F) spurði ráðherr- ann hvort ekki væru fyrirhug- aðar af hálfu rík isstjórnarinnar fleiri aðgerðir til aukningar fjár til stofnun- arinnar, hvort ekki ætti að hækka lánin og yrði gert til að hjálpa þeim, sem væru að missa íbúðir sínar vegna lausaskulda. Ráðherra kvaðst ekki geta á þessu stigi gefið um öll þessi atriði tæmandi upplýsingar, en kvaðst vænta þess að á þessu þingi yrðu lögð fimm frumvörp um frekari fjáröflun. hvort eitthvað Skipulagslög rædd Birgir Finnsson (A) hafði framsögu af hálfu nefndar um skipulagslög og rakti breyting- artillögur nefndarinnar svo og aðrar er borizt hefðu nefndinni. Einar Olgeirsson (K) gerði skipulagsmálin að umtalsefni og kvað stærstan vandann vera hve mikið af einstaklingum ættu lóð- ir, einkum í Reykjavík og þá innan Hringbrautar. Kvað hann þetta standa mjög í vegi fyrir skipulagi. Loks afgreiddi deildin 2. um- ræðu um frumvörp um auka- tekjur ríkissjóðs og sölu hluta úr landi Miðhúsa í Egilsstaða- hreppi. Dælur Miðflóttadælur Tannhjóladælur Stimpildælur Miðstöðvardælur Dælukerfi = HÉÐINN = fátækari sem yrðu fyrir tjóni. Hinir efnameiri væru gætnari I meðferð eigna sinna. Birgir ísleifur (S) tók aftur til máls og kvaðst enn vilja fá að vita meira um hvernig fiutn- ingsmenn hugsuðu sér fram- kvæmd tillögunnar. Sér fyndist t.d. það hljóta að kosta mikla fyrirhöfn og rask á högum borg- aranna að láta matsmenn fara inn á hvert heimili til að meta innbúið og það yrði að gera með ákveðnu millibili, þar sem verð- mæti innbús breyttist, t.d. ef ný húsgögn væru keypt. Ennfremur, sagði Birgir, væri vafasamt að ákveða lágmarks- tryggingu, þó ekki væri vegna annars en að ýmsir ættu ef til vill ekki innbú sem að verðmæti svaraði lágmarksupphæðinni. Slíkt fyrirkomulag væri and- stætt eðli trygginga. Þá taldi hann Alþingi sýnd óvirðing með því að senda því tillögu án nokk urra ábendingar um hvernig framkvæmd hennar væri hugs- uð. Birgir flutti því tillögu þes» efnis, að áður en borgarstjóm tæki afstöðu til málsins, lægi fyr ir greinargerð flutningsmanna um hvernig tillaga þeirra skuli framkvæmd. Einar Ágústsson tók aftur tii máls og sagði ag sig hefði grun- að að ekki yrði fallizt á tillög- una, en á þessari stundu væri hann ekki reiðubúin til að benda á þá réttu leið til að framkvæma tillöguna. Alfreð Gíslason (K) tók til máls og taldi málið eiga erindi í borgarstjórn og lagði til að framsóknartillögunni yrði vísað til borgarráðs til athugunar. Umræður héldu áfram góða stund um tillöguna og lýsti Björn Guðmundsson því m.a. yf- ir, að annaðhvort væru rnena með eða móti tillögunni. Lykt- aði málinu svo, að tillaga Birgi* ísleifs var samþykkt nxeð 9 at- kvæðum gegn 4.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.