Morgunblaðið - 20.03.1964, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.03.1964, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 20. marz 1964 fsland og Svíþjdö í landsleik í kvðld 1 DAG hefst í Helsing'fors svo- nefnd Polar Cup-keppni í körfu- knattleik eða Norðurlandamót í þeirri grein. Fjögur lönd taka þátt í keppninni nú sem hinni fyrstu fyrir 2 árum, Finnland, Svíþjóð, ísland og Danmörk. í dag hefst mótið með leik Finna og Dana en á eftir leika íslend- ingar gegn Svíum. í síðustu keppni urðu Finnar öruggir Norðurlandameistarar. Svíar urðu í öðru sæti síðan ís- land og Danir ráku lestina. Finn ar voru lang öruggastir og Svíar báru nokkuð af hinum þjóðun- um tveim en íslendingar og Dan ir háðu fremur jafna viðureign þó ísland ynni öruggan sigur og verðskuldaðan. Um liðin nú er ekki mikið vitað en þó þetta. Finnland var eitt Norðurlandaliða í Evrópumeistaramótinu í Pól- iandi enda var síðasta Polar Cup keppni úrtökumót fyrir EM. á Norðurlandasvæðinu. En þeir komust ekki í hóp 10 beztu liða. Það urðu mikil vonbrigði því Finnar hafa á síðasta keppnis- tímabili unnið mörg af beztu liðum Evrópu þar á meðal Pól- verja. f vetur hafa Finnar leikið á heimavelli gegn Ungverjum og unnu óvænt 70—62. Ungverj- ar urðu 1 5. sæti á Evrópumót- inu. 11. marz s.l. léku Finnar við A-Þjóðverja í Helsingfors og unnu Finnar með 79:72. A- Þjóðverjar urðu í 7. sæti á EM. Það er því allt útlit fyrir finnsk an sigur öðru inni um Polar- bikarinn. Svíþjóð hefur leikið 5 landsleiki á þess Knatt- spyrnu- tréttir LISSABON. — Sporting Club í Lissabon sigraði Manchester Utd. með hvorki meira né minna en 5 mörkum gegn 0 í undanúrslitum í keppninni um Evrópubikar (bikarkeppn issigurvegara). Enska liðið hafði unnið fyrri leik liðanna á heimavelli sínum með 4—1. En nú er Manch. Utd úr leik með 4—6 tap. MEXICO. — Bandaríkin og Maxico unnu sína leiki í und- ankeppni OL í knaít*pymu í gær. Bandaríkin unnu Panama með 4—2 en Mexico vann Surinam með 6—0. BELGRAD. — Landslið Júgó slava i knattspyrnu sem kepp ir í OL-keppninni lék við ÍOlympíulið Búlgaríu í „vina- leik“ í Belgrad. Júgólsavar unnu með 1—0. um vetri. Svíar unnu Dani en töpuðu 4 leikjum gegn A-Þjóð- verjum. Svíar unnu Dani 6. jan. með 89—49. Danmörk hefur auk leikins við Svía leik ið gegn Luxemborgar-mönnum og töpuðu Danir þeim leik með litlum mun. Að framansögðu er ljóst að Finnar eru í sérflokki og Svíar sennilega öruggir með 2. sæti. Barátta getur orðið milli Dana og íslendinga en vegna forfalla í okkar liði er ekki ráðlegt að búat við of miklu. Runólfur, Guðmundur, Sveinbjörn, Jóhann, Helgi og Hermann, við kcppnisborðið góða. Ljósm.: Ól. K. M. Eru Landsbankamenn ísl. meistarar í borðtennis? Hafa unnið allar sveitir, sem þeir vita að æfa VIÐ komumst að því í gær að Landsbankamenn kunna ýmis- legt annað en telja þykk seðla- búnt og afgreiða víxla og tékka. í litlum sal uppi undir súð í því gamla og virðulega húsi sem bankinn starfar í, áttum við stefnumót við nokkra unga bankamenn sem á undanfömum árum hafa haft sér það til gam- ans eftir vinnutíma að bregða sér á leik í borðtennis. Og þetta tómstundagaman þeirra hefur skapað áhuga þeirra á að ná lengra í þessari íþrótt. Þeir hafa leitað uppi aðra hópa sem hafa eitthvað lagt fyrir sig borðtenn- is, fundið nokkra og unnið alla með yfirburðum. Þeir eru ókrýndir konungar í borðtenn- is á íslandi, að því að bezt er vitað. En þeir eru jafnframt reiðubúnir til að verja þá „kon- ungstign" fyrir hverjum sem er — og þjálfað hefur, því fyrir óþjálfaða þýðir ekki að reyna, svo fimir eru Landsbanka- mennirnir orðnir. ir Klúbbstofnun Sveinbjörn Guðbjörnsson er eiginlega fyrirliði hópsins. Hann sagði að innan starfsmannafé- lags Landsbankafólks hefði mynd ast um 20 manna klúbbur sem áhuga hafði á borðtennis. Starfs mannafélagið hljóp þá undir bagga er ánægja félaganna var mikil af þessu og þetta almenn- ur áhugi. Fékk klúbburinn styrk félgsins til að kaupa 1. flokks borðtennisborð en slíkt kotaði þá um 10 þús. kr. frá Dan mörku með „lúxustollum'* er þá voru á öllum íþróttavörum. Klúbburinn hafði félagatal og hver borgaði 50 kr. ársgjald. Fyrir það voru fegnir 1. flokks spaðar frá Englandi og kúlur keyptar. Smám saman hefur heldur fækkað í klúbbnum þó bylgju- hreyfing sé á félagatalinu en 6 menn hafa skorið sig úr hvað hæfni snertir, getu og áhuga og þeir hafa unnið »lla sem þeir hafa keppt við. — Og við hverja hafið þið keppt? — í fyrstu var einnig áhugi í Útvegsbankanum og gaf því sam band bankamanna bikar til keppni. Keppt var í tveim flokk um, alltaf einmenningkseppni en þó í sveitum. Við unnum í báðum flokkunum. En það var aldrei keppt aftur — við höfum bi'karinn en áhugi Útvegsbanka- manna er dottinn niður, því ýms- ir í liði þeirra hættu störfum í bankanum. Næst kepptum við gegn sveit- um A. og B-flokks úr Val. Það var einnig sveitakeppni og varð allhörð — okkar hörðustu mót- herjar. Við unnum þó í báðum flokkum og það með sömu vinn- ingatölu 13 vinningum gegn 12. Næst mættum við sveit Há- skóla íslands. Það var keppni einnar sveitar frá hvorum. Við unnum með 21 vinning gegn 4. Þá höfðum við spurnir af borð tennisáhuga í tómstundaheimili Ríkharðs Jónssonar á Akranesi. Við fórum upp eftir á dögunum og kepptum í 3 manna sveitum í A- og B-riðli. Heildarúrslit urðu okkur í vil 26 vinningar gegn 11. Mótherjarnir voru marg ir af gömlu frægu knattspyrnu- stjörnum Akraness m. a. Rík- harður, Donni, Helgi Dan o. fl. Og í gær háðum við æfinga- leik við menn úr Innkaupastofn- un ríkisins. Það var okkar fyrsta tvímenningskeppni. Við unnum með 7 vinningum gegn 1. Og nú viljum við helzt frétta af fleiri veitum. Það kann vel að vera að borð- tennis sé iðkað í einhverjum féiögum eða meðal starfshópa og við viljum gjarna komast í kynni við slíkt. Ef enginn býður sig fram teljum við okkur þá beztu á landinu, sagði Sveinbjöm og bætti við að það væri bezt að vera ákveðinn þegar talað væri vði blaðamenn. k Allir jafn góðir — Hver er ykkar meistari? — Sveinbjörn spurði allan hóp inn en engin nöfn voru nefnd. Sveinbjörn sagði að sveitin væri alljöfn. Menn ættu allir „góða daga“ og hver væri beztur væri dagamunur að, en sveitina skipa Runólfur Sigurðsson, Guðmund- ur Guðmundsson, Sveinbjörn Guðbjörnsson, Jóhann Sigur- jónsson, Helgi Guðmundsson og Hermann Stefánsson. Það er sannarlega kemmtilegt ef að fleiri starfshópar tækju Landsbankamenn sér til fordæm is, því víða í fyrirtækjum er góð aðtaða til borðtennisiðkunar. Og hún er skemmtileg og veitir góða hreyfingu. Afmælismót KR í knatt- spyrnu Á LAUGARDAG hefst afmælis- mót KR í innanhúsknattspyrnu í Hálogalandi. Mótið hefst kl. 8.15. Þátttakandi lið eru 8 talsins, eitt lið frá Val, Fram, Þrótti, Víking, Haukum og Keflavík, og 2 lið frá KR. Er liðunum skipt í 2 riðla, sem keppa innbyrðis stigakeppni, en síðan leika nr. 1 í riðlunum saman, nr. 2 í riðl- unum leika saman og svo frv. Með því að takmarka þátttökuna fást jafnári lið og jafnari og tví- sýnni leikir. Þetta fyrirkomulag skapar einnig meiri fjölbreytni og tryggir hverju liði 4 leiki. Leikirnir fyrsta kvöldið verða: A-riðill: KR a — Valur Haukar — Fram B-riðill: KR b — Þróttur ÍBK — Víkingur A-riðill: KR a — Fram Haukar — Valur B-riðill: KR b — ÍBK Þróttur — Víkingur. Síðari hluti mótsins fer fram á mánudagskvöld kL 8,15. Skókþing íslonds helst íkvöld SKÁKÞING íslands 1964 hefst í kvöld í Breiðfirðingabúð. Verður teflt í 5 flokku-i: Landsliðs- flokki, Meistaraflokki, Fyrsta fl„ Öðruim flokki og UnglingaflokikL En er ek/ki vitað um heildar- fjölda þátttakenda, en í Lands- liðsflokiki verða þátttakendur 12. Er þegar vitað um 11 þeirra, en enn þá mun óráðið um einn þátt takandann. — Þeir, sem vitað er um að tefli í Landsliðsflokki eru þessir: Jón Kristinsson, Freysteinn Þorbergsson, Jónas Þorvaldssoh, Halldór Jónsson, Björn Þorsteinsson, Trausti Björnsson, Þórður Þórðarson, Magnús Gunnarsson, Helgi Ólafsson, Gísli Pétursson, Hilmar Viggósson. Skákstjóri á mótinu verður Gísli ísleifsson, en mótstjó- Þórir Ólafsson. Ensko knattspyrnan Markhæstu leilkmennirnir erv nú þessir: 1. deild: McEvoy (Blaokburn) 34 mörk Greaves (Tottenham) 31 — Byrne (West Ham) 30 — Law (Manohester U.) 28 — Baiker (Arsenal) 27 — Strong (Arsenal) 26 — Pickering (Blackburn) 26 — Ritchie (Stoke) 26 — Hunt (Liverpool) 25 — 2. deild. Dawson (Preston) 32 —• Saunders (Portsmoutíh) 29 — Davis (Norwioh) 28 — Kevan (Manohester C.) 27 —■ Hunt (Northampton) 24 —■ Crossan (Sunerland) 22 — 3. deild Hudson (Coventry) 26 — Biggs (Bristol Rovi_rs) 25 — Atyeo (Bristol City) 24 — Leighton (Bransley) 22 — 4. deild. Mcllmoyle (Carlisle) 40 — Green (Bradford Citý) 24 — Stubbs (Torquay) 24 — /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.