Morgunblaðið - 20.03.1964, Blaðsíða 24
AuatýsTngaráblTa
Utanhuss-auglýstngar
allskonarskilti oíL
AUGLYSINGA&SKILTAGERÐLN SF
Bergþórugötu 19 Simi 23442
Tfordens
w*,*,, w* VORUR
♦ irA ★★★★★★♦★★★★★★★★★★★★★★ ★★★★★★★★★★
BRAGÐAST BEZT
ítarlegri rannsóknir á
Strákum vegnaganganna
— Gangagerðln tefst meðan
athugun fer fram, sem byggja
má á endanlega staðsetningu
þeirra
'Siglu firði 19. marz.
BLAÐIÐ Neisti skýrir frá hví í
dag að horfur séu á nokkrum
töfum varðandi gerð fyrirhug-
aðra jarðganga um fjaUið Strá! I ,
sem leysa áttu Siglufjörð úr álög-
um einangrunar.' Segir blaðið að
jarðfræðileg rannsókn Tómasar
Tryggvasonar, sem gerð var á
árunum 1956—1960 hafi leitt í
ljós, að engin sérstök tormerki
væru á því að gera göngin. Hins
vegar hafi rannsókn annars jarð
fræðings, Þorleifs Einarssonar,
leitt til „nokkuð annarrar niður
stöðu“, er byggðist á legu berg-
laganna í fjallinu, þannig að
„vafasamt væri“ að vinna göng-
in austan frá.
Enn segir blaðið, að gagnstæð-
ar niðurstöður þessara jarðfræð-
inga hafi verið bornar undir
norska kollega þeira, sem hafi
talið nauðsyn á enn frekari jarð-
Metsalan
nær
iöfnuö
TOGARINN Sigurður seldi í
Bremerhafen í Þýzkalandi í
gærmorgun 234 lestir af fiski
fyrir 195,873 mörk, eða fyrir
kr. 2,117,000. — Hæsta sala
íslenzks togara, sem um get-
ur í Þýzkalandi, var hjá tog-
aranum Hauki 1962, er hann
seldi rúmar 202 lestir fyrir lið
lega 196,000 mörk. Vantar því
aðeins nokkur hundruð mörk
á að Sigurður hefði jafnað
metsöluna.
fræðilegum rannsóknum. Segir
blaðið að framhaldsrannsókn
verði framkvæmd á komandi
sumri og muni því gerð gang-
anna seinka eitthvað.
Með hliðsjón af þeim mikla
kostnaði, sem vegagerð um Al-
menninga og Úlfsdali hefur þeg-
ar leitt af sér, sem og vilyrða í
framkvæmdaáæ'tlun rikisstjórn-
arinnar, var það álit manna hér
að ölluan tæknilegum og vísinda
legum undirbúningi venksins
væri lokið með jákvæðri niður-
stöðu. Hefur því fj-étt þessi vald
ið miklum vonbrigðum Siglfirð-
ingum, sem treystu á varanlega
samgöngubót um göngin 1965.
Væri æskilegt að Vegamála-
stjórnin léti blöðunum í té grein-
argerð um gang þessa máls, sem
verið hefur um langt árabil í
höndum hennar.
— Stefán.
Mbl. átti í gær tal við Sigurð
Jóhannsson, vegamálastjóra um
mál þetta. Hann sagði:
„Við ítarlega jarðfræðirann-
Fram'hald á bls. 23.
káifshama^vík
Húna-
HbfJakaupihiuf
flói
Hvað er að gerast að Saurum?:
Borð færast úr stað, stó
bollar og diskar brotna
— en ekkert annað virðist haggast
Fréttamaður Mbl. vitni að atburbi: „V/ð stóðum orblausir"
AÐFARANÓTT miðvikudags tóku að gerast þeir
atburðir á bænum Saurum við Kálfshamarsvík á
Skaga, sem ekki hafa verið skýrðir. Þar hafa kastazt
til eldhús- og stofuborð, svo óg einn stóll, sem svo
harkalega fór, að hann brotnaði og er ónothæfur. Þess-
um fyrirbærum hafa engar jarðhræringar fylgt, hvorki
að Saurum né annars staðar í nágrenninu, að því er
fréttaritari Morgunblaðsins, Þórður Jónsson, fullyrðir.
Telur heimafólk að Saurum, og aðrir, sem fylgzt
hafa með, að gjörsamlega sé útilokað að hér sé
um jarðhræringar að ræða, og er það þyngst á metun-
um í því sambandi, að aðeins umræddir hlutir hafa
hreyfzt með skruðningum, en munir á hillum, margir
smáir, hafa ekki haggazt. Leirtau hefur tvívegis þeytzt
af eldhúsborðinu og brotnað mélinu smærra á gólfinu,
en annað ekki hreyfzt í eldhúsinu. Stofuborðið, sem
er þungt, og talsvert átak þarf til að hreyfa, hefur
nokkrum sinnum flutt sig um set, og síðast í gærkvöldi.
^ Að þessu eru nú orðin allmörg vitni, þar á meðal
fréttaritari Morgunblaðsins á Skagaströnd, Þórð-
ur Jónsson, sem ásamt öðrum manni dvaldist í þrjá
tíma að Saurum í gær og urðu þeir vitni að því að
stofuborðið fluttist frá vegg og út á mitt gólf. Ekkert
annað hreyfðist, og segir Þórður að þeir geti báðir bor-
ið vitni um að þetta hafi ekki gerzt af manna völdum.
Fer hér á eftir frásögn Þórðar um þessa dularfullu
atburði. —
Skagaströnd 19. marz.
í fyrirnótt vaknaði fólkið á
Saurum við Kálfsihamarsvík
við það að borð og stólar
hoppuðu eftir gólfinu. Stöðugt
síðan, með nokkurra klukiku-
tima millibili, hefur þetta hald
ið áfram, borð og stólar færzt
úr stað meira og minna á dul
arfullan hátt. Fréttamaður
Mbl. brá sér út af Saurum sið
degis í dag til þess að fá nán-
ari fréttir af atburðum þess-
um.
Á Saurum búa hjónin Guð-
mundur Einarsson og Margrét
Framh. á bls. 3.
«
VerkalýSmál rssdd
á Óðinsfundi í kvöld
Frummælandi: Gunnar Helgason
Síldarnót frá Eski-
firöi flutt til USA
Netagerð Jóhanns Clausen hyggur og
á útflutning til Afríku
MÁLFUNDAFÉLAGIÐ Óðinri
heldur almennan félagsfund í
Valhöll við Suðurgötu í kvöld
kl. 8,30. Á fundinum verður rætt
um verkalýðsmál og ástand og
horfur í kaupgjalds-, verðlags- og
atvinnumálum.
F*rummælandi á fundinum
verður Gunnar Helgason, form.
Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokks
ins, en að erindi hans loknu gefst
fundarmönnum kostur á að koma
með fyrirspurnir og ræða málið
almennt og mun frummælandi
Keflavík 19. marz.
NOKKUR brögð hafa verið að
því að bátar af Suðurnesjum
hafi rifið þorskanætur sínar að
undanförnu. Stafar þetta af því
að fiskurinn heldur sig grunnt,
og geta nætur bátanna lent í
botnfestum og rifnað illa. Er hér
um mikið tjón að ræða, þar
eð hver slík nól kostar um 450
þúsund krónur.
Mfbl. Kristján Valgeir frá
Sandgerði hefur rifið nót sína
tvisvar á suðurmiðum undan-
farna daga. í nótt reif hið kunna
ásamt öðrum úr stjórn Verka-
lýðsráðs svara þeim fyrirspurn-
um er fram kunna að koma.
Þessi mál hafa verið mjög of-
arlega á baugi undanfarið og
miklar umræður og blaðaskrif
um þau að undanförnu, er því
ekki að ófyrirsynju að Sjálfstæð-
ismenn taki þessi mál til um-
ræðu á fundi í launþegafélagi
flokksins. Allt Sjálfstæðisfólk er
velkomið á fundinn meðan hús-
rúm leyfir.
aflaskip Sigurpáll nót sína við
Vestmannaeyjar, og mun nú tefj
ast í tvo daga á meðan gert verð
ur við nótina eða ný fengin.
Þrátt fyrir þetta verður að segja
að Sigurpáli hefur gengið vel í
vetur. Hefur hann fengið 400
tonn af þorski í nótina á þess-
ari vertíð, og auk þess 22 þúsund
tunnur af síld og 5 þúsund tunn-
ur af loðnu. Skipstjóri á Sigur-
páli er hinn kunni aflamaður
Eggert Gíslason.
Þá hefur mb. Guðbjörn einnig
rifið nót sína.
Eskifirðg 19. marz.
UM þessar mundir er að hefjast
sérstæður útflutningur héðan
frá Eskifirði. Með Selfossi fer
frá Reykjavík í dag nýuppsett
síldamót til Bandaríkjanna. Er
nótin frá Netagerð Jóhanns
Clausen hér á Eskifirði, og var
samið um sölu þessa seint í
janúar. Horfur eru einnig á að
fyrirtækið selji síldarnætur til
Vestur-Afríku í framtíðinni.
Starfsemi Netagerðar Jóhanns
Clausen hefur vaxið mjög ört.
Eru þar sett upp allskonar
veiðarfæri og margvísleg þjón-
usta veitt sjávarútveginum enda
oítast fyrirlgigjandi birgðir af
flestum útgerðarv$*um, sem
ekki eru fáanlegar annars stað-
ar á Austfjörðum.
Verkefni netagerðarinnar eru
mikil og starfa nú um 20 manns
hjá fyrirtækinu í góðum en
alltof þröngum húsakynnum.
Ráðgerð er viðbótarbygging í
vor en óvíst er hvort af fram-
kvæmd’um verður þar sem
örðugt er um lánsfé til þeirra
hluta. Segir eigandinn að slæmt
sé til þess að vita ef arðvæn-
leg fyrirtæki, sem starfa í þágu
sjávarútvegsiris, hafi takmörk-
uð vaxtarskilyrði aí þeim sök-
um. — Gunnar.
Bátar rífa nætur