Morgunblaðið - 20.03.1964, Side 15
-r S östudagur 20. marz 1964
MORCUNBLAÐIÐ
15
Árný Filippusdóttir
sjötug
• Það segir fátt, þótt semji ég
kvæði
um sjötuga konu í Hveragerði.
En ég vil gjarnan lóð mitt leggja
til liðs við hana, er dró sitt erði,
plægði og sáði unninn akur
anda og handar valdra kvenna,
þar sem moldin angar yfir
eldum lands. — Þar vildi hún
kenna.
Hefur margt á Hverabökkum
heillað gest í salarkynnum.
Æviverk úr högum höndum
hvar við meira, betra finnum?
— Húsfreyja á sínu setri
setti markið hærra flestum,
náði því að njóta að veita
af nægtabrunni skólagestum.
Ég hef hvergi sjóði séða
af svona mörgum þáttum lista.
Tök og fimi tveggja handa
tel ég mesta hana gista.
íslenzk þjóð má lengi leita
að líka»hennar fyrr og síðar.
«— Mér finnst hún orðin fyrr en
varir
fyrirmyndiii seinni tíðar.
Hyllum dug og orku í anda
und aftansól í hennar ranni.
Vissulega ólík öllum,
Árný kempan. — Dugurinn sahni
heillaði til hetjudáða.
Heilbrigt líf hún studdi af þrótti.
— Þetta er kvenna heilla höllin.
Hingað mörg ein vakning sótti.
Sjötíu vetur elju og iðni
efni nýrra söguspjalda.
Landsmenn allir ættu að muna
ötult starf og þökkum gjalda.
•— Munum öll, sem Árnýju
þekkjum
öðlingskonu sterkra þátta.
Veitum henni virðing ríkrar
vegsemdar til hinztu nátta.
Magnús Einarsson
frá Laxnesi.
— Minning
Framh. af bls. 10
taka lærling til náms. Helgi kvað
það ekki útilokað. Vilborg ljós-
móðir sagði þá að unglingurinn,
sem hún bæri fyrir brjósti, væri
fótvana og auk þess heyrnin
dauf.
Það varð úr að Helgi réði dreng
lnn til náms og lauk Valgeir
námi á tilskildum fjórum árum.
Vitnisburð hlaut hann góðan,
bæði í bóklegum fræðum og verk
legum úrlausnum.
í þá daga var trésmíðanámið
ekki einskorðað við einn þátt iðn
greinarinnar, heldur lærðu svein-
ar jöfnum höndum húsasmíði og
húsgagnasmíði. Að auki vann
Valgeir talsvert að líkkistusmíði,
en trésmiðjan Rún annaðist mik-
ið þann starfa.
Eftir að Valgeir hafði lokið
námi og hætt störfum í Rún
starfaði hann að margskonar tré-
smíði víðsvegar í borginni, m.a.
allmörg ár í Landssmiðjunni og
einnig utan borgarinnar. Síðustu
érin starfaði hann í Ti'ésmiðj unni
í Silfurtúni.
Valgeir var, sem fyrr segir,
hagur og lagtækur og því góður
iðnaðarmaðúr, duglegur og kapp
samur til allra starfa.
Skap hans var milt og lundin
létt. Var maður bjartsýnn og
kjarkmikill.
Vinir Valgeirs þekktu þá erfið-
leika, er hann bar á baki alla ævi.
Sjálfur lét hann þó aldrei hug-
fallast.
Yfirleitt var hann fáskiptinn
og prúðmenni í allri umgengni.
Valgeir kvæntist fyrir nær
tuttugu árum, Lovísu Pálsdóttur,
sem lifir mann sinn ásamt einka-
dóttur og þremur börnum Lovísu
frá fyrra hjónabandi, sem áttu
athvarf og heimili hjá þeim hjón-
um.
Á kveðjustund minnast ástvin-
ir og allir aðrir, sem Valgeir
þekktu, vináttu hans og tryggðar
með þökk í huga fyrir samfylgd
og bjartar endurminningar, er
hann skilur eftir í hjörtum svo
margra, sem mætt hafa honum á
lífsbraut liðinna ára.
A. B.
— Afmæli
Framhald af 6. síðu
stundirnar í gömlu baðstofunni,
er amma raulaði við strákinn
sinn eða afi tók hann á kné sér.
Nú er búið að aðskilja æskuna og
ellina, segja menn og bæta við:
Þeir sem vaxnir eru að reynslu
og árum hafa ekki lengur næði
til að skipta sér af hinum, sem
ungir eru, heldur eiga nóg með
sig. Svo hratt flýgur stund að
menn verða uppgefnir af því
einu saman að fylgjast með.
En hvernig er hægt að fylgjast
betur með en með því að blanda
geði við ungt fólk? Og á hverju
lærir ungt fólk ef ekki á slíkum
kynnum? Þessvegna segi ég, holl
vinur minn og frændi: þú átt
þakkir skilið. Með þessu segi ég
ekki, að sjáist á þér elliglöp, held
ur þvert á móti. Hvernig er stætt
á að segja annað um mann á sjö-
tugsaldri, sem umber og reynir að
skilja þá, sem nú eru að koma
til manndóms og þroska?
Halldór Blöndal.
FYRIR nokkrum árum vorum
við nokkrir félagar á ferð í Borg-
arfirði. Þetta var að áliðnu
sumri og komið yfir lágnætti.
Brotnaði þá öxull í bílnum. Það
var lán í óláni, að skammt var
til bæjar, Lunda í Stafholtstung
um. Var afráðið að leita þar hæl-
is, það sem eftir lifði nætur, og
hafði um það forustu ættmaður
bóndans. Sá var laussvæfur,
gekk skjótt til dyra, er að var
knúð, og tók okkur opnum örm-
um.
Eftir nokkrar orðahnippingar
um pólitík og fleira var okkur
boðið til stofu. Var þar sezt að
góðum fagnaði og b~"+ á umræð-
um, og var hl óndans
ekki hvað síztur . . —jm efn-
um. Orðhvass og orðheppinn,
fróður um alla þá hluti, sem um
var rætt, rak hann Reykvíking-
ana oft í varnarstöðu, þótt státn-
ir þættust. Hélt leiknum svo á-
fram til morguns og næsta dag,
unz bíllinn var aftur ökufær.
Þetta voru fyrstu kynni mín
af Geir í Lundum.
Síðan höfum við oft sézt og
átt marga gleðistund, þótt engin
hafi tekið fram þeirri fyrstu. En
alltaf eru einkenni Geirs þau
sömu. Velviljaður í gerðum sín-
um, þótt óvæginn kynni að vera
í orðum, ef á þarf að halda.
Nú er hann fluttur úr sveit-
inni hingað til borgarinnar og
hefur þegar sigrazt á óyndi því,
sem á hann sótti fyrst eftir flutn-
inginn.
Og í dag er hann sextugur, þótt
ekki verði séð, að ami honum
ellin.
Ég flyt honum hamingjuóskir
mínar í tilefni dagsins. Vona ég,
að viðskipti okkar verði jafn
góð og hnökralaus og þau hafa
verið hingað til, þótt eigi verði
hnútukast lagt fyrir róða.
G. E.
Vélapakkningar
Ford amenskur
Ford Taunus
Ford enskur
Chevrolet, flestar tegundii
Buick
Dodge
Plymoth
De Soto
Chrysler
Mercedes-Benz. flestar teg.
Volvo
Moskwitch, allar gerðir
Pobeda
Gaz ’59
Opel. flestar gerðir
Skoda 1100 — 1200
Renault Dauphine
Volkswagen
Bedford Diesel x
Thames Trader
BMC — Austin Gipsy
GMC
Willys, allar gerðir
Þ. Jónsson & Co.
Brautarholti 6.
Sími 15362 og 19215.
Ódýrir
tékkritar
Bókabúð
Stefáns Stefánssona.
Laugavegi 8.
Hsllenzku
perlon
sokkarnir
komnir aftur.
Verð kr. 37,00.
fermingargjafa
Cndirkjólar
Undirpils
Náttföt
Náttkjólar
Greiðslusloppar
Fallegar og vandaðar vörur
í úrvali.
Austurstræti 7.
HJA'
MARTEINI
LAUGAVEG 31.
Annorakkar
Sformjakkar
Ferðabuxur
Sportskyrtur
Gœruúlpur
Peysur
íbúð
Góð 3—4 herb. íbúð óskast til
kaups. Útborgun 3—400 þús.
Þarf að vera laus sem fyrst.
Tilboð merkt: „9180“ sendist
Mbl. fyrir mánudagskvöld.
6IFREIDJVEIGEIUDUR
HJQLBJVRÐJVVIDGERÐIR
* Vanir menn, — góð þjón-
usta.
A Höfum til sölu:
TRELLEBORG,
METZELER og
rússneska hjólbarða.
ér Opið alla daga, helga sem
virka, frá kl. 8—23.
Hjólbarbaverkstæðið
KRAUNHOLT
v/Miklatorg — Sími 10800
cu
8 K Y R T AIV
sem ekki barf að strauja.
GUSTAF A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmaður
Þórshamri við Templarasund
Sími 1-11-71
Iðnaðarhúsnœði
60—150 ferm iðnaðarhúsnæði óskast til kaups eðá
leigu. Upplýsingar í síma 23560 og eftir kl. 6
í síma 35294.
VELSETJARI
ÓSKAST STKAK
Vinyl .....iiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiij/^uimiiiiiiiiiiiniiiiunninuy
glofinn^
Vinyl \
glófinn,
Afgreiðslumaður
Óskum eftir röskum og reglusömum manni til lager
starfa og útkeyrslu á vörum úr M.R. búðinni. —
Þarf að hafa bílpróf.
Mjólkurfélag Reykjavíkur
Laugavegi 164.
i