Morgunblaðið - 20.03.1964, Side 23
Föstudagur 20. marz 1964
MORGU N BLAÐIÐ
23
Ég skíri þig úr kampa-
víni — Hotsjökull!
UNG íslenzk „dama“ kornst
hel-dur betur í blöðin. í Skot-
Ólöf Iitla grípur kampa-
vínsflöskuna.
landi s.I. miðvikudag. ÖU blöð
in í Edinfoorg birtu af henni
myndir og það fleiri en eina.
Hún hafði sýnilega unnið
hjörtu blaðamannanna, enda
broshýr og upp á búin í ís-
lenakum búningi. Þetta var
Ólöf Einarsdóttir, 7 ára göm-
ul dóttir Einars Sigurðssonar,
útgerð armanns.
Ólöf hafði komið fljúgandi
frá íslandi til þess að skira
hið nýja skip Jökla, Hofsjökul.
Scottish Daily Mail segir svo
frá athöfninni: Hún kom í
Grangemouth-skipakvína upp
dubbuð í þjóðbúningnum sín-
um. Allt var tilbúið fyrir hina
stóru stund, skírnaratihöfnina
— og ánsegjuna af að brjóta
kampavínsflösku á skipshlið-
inni.
Hún kom auga á flöskuna.
Og með öllum sínum sjö ára
kröftum sveiflaði hún henni
og skírði skipið Hofsjökul.
Hún hitti prýðilega, en var
heldur sterk — kampavínið
skvettist yfir hana þegar flask
an kom til baka. Herrann
hennar dró í snarheitum upp
vasaklút og þurrkaði vætuna
af henni.
Þegar Ólöf var orðin þurr
í framan, veifaði hún glað-
lega á eftir fánum prýddu
skipinu Hofsjökull, og óskaði
því góðrar ferðar heim.
Herrann hennar kemur
til hjálpar
Málverk eiftir „Mugg“
sSegið á 35 þús. kr.
Stefna SH í 4 liðum
— Sprengjuþofur
Framhald af bls. 1.
Fisher sagði að hver B147
fiugvél hafi kostað um tvær
milljónir dollara (um 86
millj. kr.) þegar þær voru
smíðaðar, en ekki sagði hann
hve margar vélar væru nú í
notkun. Um eftirlit með eyði-
leggingunni sagði Fisher að
það yrði mjög auðvelt.
Tsarapkin lét ekki standa
á svari. Hann sagði að til-
laga Bandaríkjanna væri ekk-
ert annað en kænskubragð af
þeirra hálfu. B-47 vélarnar
væru orðnar úreltar. Ekki
minntist hann þó á að rúss-
nesku vélarnar væru það þá
einnig. Tsarapkin sagði að til
gangur bandarísku herstjórn-
arinnar væri einfaldlega sá
að endurnýjar þessar úreltu
flugvélar með nýjum gerð-
um, til dæmis rneð gerðinni
A-ll, og hefði því tillagan
ekkert að segja að því er af-
vopnun varðar. Benti hann á
að jafnvel á þessari öld eld-
flauga hefðu sprengjuflug-
vélar enn talsvert hernaðar-
legt gildi, og því bæri að fara
«ð tillögum Sovétríkjanna og
eyðileggja allar sprengjuflug
vélar.
Þá ítrekaði Tsarapkin fyrri
ummæli sín og sagði að til-
lögu Rússa um að flytja bæri
«llt herlið frá erlendum her-
stöðvum þyrfti að ræða fyrst
allra tillagna. Vísaði hann í
því sambandi til þess þegar
bandarísk herflugvél var
skotin nðiur yfir Austur-
Þýzkalandi fyrir nokkrum
dögum. Sagði hann að slík
lofthelgisbrot, eins og þegar
bandaríska vélin flaug inn
yfir Austur-Þýzkaland, væru
mjög alvarleg, en unnt væri
að koma í veg fyrir þau með
því að loka öllum erlendum
herstöðvum.
FLsher kvaðst harma það að
Tsarapkin hafi dregið mál
þetta inn í umræður Afvopn-
unarráðstefnunnar. Banda-
rikjamenn hefðu beðizt afsök
unar á fluginu inn yfir landa
mærin, en einnig mótmælt
því harðlega að vélin, sem
villtist inn yfir landamærin,
skuli hafa verið skotin niður.
Fundinum lauk án þess að
nokkur ákvörðun vær tekin.
Á LISTMUNAUPPBOÐI Sigurð
ar Benediktssonar í Hótel Sögu
í gær voru seldar 32 myndir
eftir 20 listmenn. Dýrustu mynd
irnar voru „Snæfellsjökull“
olíumálverk eftir Guðmund
Thorsteinsson (Mugg), sem var
slegin á 35 þús. kr. og stór vatns
litamynd frá Húsafelli, eftir Ás-
grím, sem einnig seldist á 35
þús. kr. „Hestar og fjöll“ (olía
á masonít), eftir Jón Stefáns-
son fór á 29 þús.
Listasafn ríkisins kyepti Þing-
vallamynd eftir Kjarval á 25 þús
und krónur og „Sveitalíf“ Kristín
— Kýpur
Framhald af bls. 1.
þegar grískir Kýpurbúar kröfð-
ust þess að tyrkneskir íbúar
þorpsins rifu niður vegatálman-
ir, sem þeir höfðu komið upp á
nærliggjandi vegum. Segja tals-
menn Grikkja að í stað þess að
verða við kröfunum, hafi Tyrkir
hafið skothríð á eftirlitslið
Grikkja.
Ghaziveran er um 65 km. fyrir
vestan Nicosia. Bardagarnir hóf-
ust þar í morgun, en fulltrúum
Breta, Tyrkja og Grkkja tókst að
koma á vopnahléi. Vopnahléið
stóð þó aðeins í fimm tíma, og
brutust út bardagar að nýju í
kvöld. íbúar Ghaziveran eru að-
allega Tyrkir. Sögðu þeir að þús
undir Grikkja hefðu umkringt
þorpið og héldu uppi skothríð á
það með sprengjuvörpum, vél-
byssum og rifflum. Þessar upp-
lýsingar ber þó yfirmaður brezka
eftirlitsliðsins til baka og segir
að um 150 Grikkir sæki að þorp
inu þar sem 60—80 Tyrkir hafi
búizt til varnar. Miklar skemmd-
ir hafa orðið í Ghaziveran, og
brunnu þar víða eldar í kvöld.
Pier Spinelli, fulltrúi SÞ á Kýp
ur, og Mike Carver hershöfðingi,
yfirmaður brezku sveitanna á
eyjunni, héldu til Ghaziveran í
kvöld Ul að reyna að ná samn-
ingum um vopnahlé. Einnig er
forseti þingsins á Kýpur, Glaf-
kos Clerides, farinn þangað sem
sérstakur fulltrúi Makariosar for
seta. -v
ar Jóndóttur var selt á 22 þús-
und. Á uppboðinu voru þrjár
vatnslitamyndir, sem Kjarval
málaði á Ítalíu árið 1920. Sú
þeirra, sem fyrst var boðin upp,
„Speglun“, var slegin á 16 þús.
kr. „Hús og blár himinn“ á 9
þús. kr., én ekkert boð fékkst
í hina þrjðju „Bogahvelfing og
súla“. Henni fylgdi að heiman
8 þús. króna boð, en samt þótti
furðu sæta, að enginn skyldi
bjóða í þessa sérstæðu mynd,
því fullyrða má, að mjög fáar
myndir eru til frá þessu skeiði
Kjarvals á Ítalíu.
Gullsleginn
bagall
Torshavn, Færeyjum ,19. marz
Einkaskeyti til Mbl.
VIÐ uppgröft undir steingólfi í
kór Olavs-kirkjunnar í Kirkju-
bæ á Færeyjum fannst biskups-
gröf, og er það fyrsta biskups-
gröfin, sem þar finnst. í gröfinni
var bagall með gullslegnum
krók. Bagallinn hefur verið 170
sentímetra langur, en er brot-
inn.
Kirkjubær var um 400 ára
skeið biskupssetur Færeyja með
an biskupsstóllinn heyrði undir
erkibiskupinn í Niðarósi.
Mjólkurbú í
Búðardal
Akranesi 19. marz.
MJÓLKURBÚ Dalamanna í Búð
ardal byrjaði að taka á móti
mjólk til vinnslu í gær. Stór-
merkum áfanga er þar með náð
hjá bændum vestur þar. Bænd-
ur úr níu hreppum senda mjólk
sína þangað auk bænda úr Skóg-
arstrandahreppi og vestan úr
Króksfjarðarnesi. Mjólkurbúið í
Búðardal er rekið á vegum Mjólk
ursamsölunnar. — Oddur.
Mbl. átti í gær tal við Dr.
Benjamín Eiriksson, bankastjóra
Framkvæmdabankans. Sagði
hann að sér hefði í gær borizt
stefna Sölumiðstöðvar Hraðfrysti
húsanna vegna ummæla shina í
tveimur greinum í Mbl. dagana
15. og 26. febrúar. Benjamín
sagði að stefnt væri vegna fernra
ummæla, einnar setningar úr
fyrri greinni, en þriggja máls-
greina úr hinni síðari.
Svo sem kunnugt er ritaði Dr.
Benjamin umræddar greinar
vegna fyrirhugaðrar öskjugerðar
S.H. '
Stefnt er fyrir eftirtalin um-
mæli:
1. „í rauninni er um að ræða
tilræði við hið íslenzka þjóðfé-
lag,‘
2. — „Ef hér kæmi öskjugerð,
sem S.H. ætti, þá er engin trygg-
ing fyrir því lengur, að S.H.
myndi kaupa af Kassagerð
Reykjavíkur, þó að hún byði öskj
urnar á lægra verði en S.H. gæti
sjálft framleitt. Lágt verð hjá ís-
lenzku iðnaðarfyrirtæki tryggir
ekki sölu til íslenzkra aðila.
Fleira kemur til, eins og ég
minntist á í fyrri grein minni.
Menn sem ráða kaupunum geta
haft sérhagsmuna að gæta í sam-
bandi við innkaupin. Þeir geta
til dæmis fengið umiboðslaun af
hinni dýrari vöru, sem þeir fá
ekki af hinni ódýrari. Fyrir þá
er því persónulegur hagur að
kaupa hina dýrari vöruna, frem-
ur en að kaupa hina ödýrari.“
3. — „En þessum gagnsterað-
ferðum bregður alltaf fyrir ann-
að veifið í flestum þjóðfélögum."
4. — „Hinn árangursríka at-
Drengir stdlu
13,000 krónun
í fyrrakvöld sneri verzlun-
arstjóri við nýlenduvöruverzl
un í Austurbænum sér til
rannsóknarlögreglunnar og
kærði stuld á 12—13,000 krón-
um. Höfðu peningarnir, frá söl
unni deginum áður, verið í
skúffu, en voru horfnir er
til átti að taka um kvöldið.
Rannsóknarlögreglan fór á
staðinn, og í gærmorgun voru
teknir tveir drengir, 14 og 15
ára gamlir. Viðurkenndu þeir
að hafa stolið peningunum.
Annar drengjanna hefur áður
unnið hjá umræddri verzlun,
og þekkti því til þar. — Af
þýfinu náðust 11,000 krónur,
en hinu höfðu drengirnir eytt.
Þá höfðu þeir einnig brennt
ávísun fyrir á annað þúsund
krónur.
■_______
Germanía sýnir
kvikmynd
Á KVIKMYNDASÝNINGU fé-
lagsins Germaníu á morgun,
laugardaginn, verða sýndar
nýlegar fréttamyndir, m. a. frá
jólaheimsöknum Vetur-Berlín-
arbúa til ættingja og vina í Aust
ur-Berlín, frá heimsókn próf.
Erhards, kanzlara til Lyndon B.
Johnsons í Texas og Sir Alec
Douglas-Home í London, frá
listskautahlaupi í Grenoble og
ýmsu fleira.
Fræðslumyndirnar á sýning-
unni verða tvær. Er önnur um
híbýlaprýði, einkum um vegg-
fóður, notkun þess á margvís-
legan hátt, áhrif þess á um-
hverfið, húsgögnin og annað
eftir því. Hin fræðslumyndin er
frá Allgau. Sýnir hún hið fagra
landslag Alpafjallanna í vetrar-
skrúða, skíðaferðir og aðrar
vetraríþróttir og villt dýrin, og
er myndin í litum.
Sýningin verður í Nýja bíó og
hefst kl. 2 e.h. Öllum er heimiíl
aðgangur, börnum þó einungís í
fylgd með fullorðnum.
vinnurekanda, þann sem hagnast
af framtaki, umbótum og fram-
förum, sem nann kemur í verk,
þarf að vernda gegn því að ræn-
ingi komi og setjist að borði
hans, eða jafnvei komi honum á
kaldan klaka.‘
Ummæli dr. Benjamíns um
stefnuna.
Mbl. innti dr. Benjamín eftir
því, hvað hann vildi segja um
stefnuna, og fórust honum svo
orð:
„Það sem vekur athygli piína
um þessa stefnu er það, að þar
er á engan hátt vikið að því at-
riði, sem ég minntist á, að skatt-
borgararnir greiddu vexti og af
borganir af lánum manna, vegna
vanskila þeirra, á sama tíma og
þeir öfluðu sér mikilla nýrra
eigna: Meira hef ég ekki að
segja um þetta að svo stöddu.*4
— Strákavegur
Framh. af bls. 24
sókn á s.l. sumri kom í ljós að
ástæða er til enn frekari rann-
sókna, sem byggja má á endan-
lega staðsetningu og legu gang-
anna. Framkvæmdir munu tefj-
as tá meðan þessi rannsókn verð
um framkvæmd í sumar“.
Þá átti Mfol. einnig samtal við
Þorleif Einarsson, jarðfræðing,
og fórust honum svo orð:
„Fyrri rannsóiknin beindist
einkum að eðli bergsins, sem
reyndist sæmilegt til gangagerð-
ar. Rétt er að benda á að Strák-
ar eru mjög erfiðir til jarðfræði
athugana vegna snarbratta og
þverhnípis í sjó fram. Fyrri rann
sóknin var frumrannsókn, en er
sú síðari var framkvæmd var að-
staða nokkru betri til athugana,
enda þá komin tilraunagöng inn
í fjallið. Enn fremur höfðu þá
verið framkvæmdar meiri mæl-
ingar á svæðinu óg auk þess lágu
þá fyrir nýrri og fullkomnari
loftmyndir en þær, sem fyrir
hendi voru er fyrri rannsóknin
var gerð.
í ráði mun nú vera að atihuga
með enn frekari rannsóknum
hversu bezt megi haga gerð gang
anna gegnum fjallið."
Loks leitaði Mbl. til Tómasar
Tryggvasonar, jarðfræðings. —
Hann sagði:
„Þegar ég kom á staðinn í
fyrstu, ásamt verkfræðingi vega
málastjórnar, gerðum við okkur
Ijóst, að vegagerð á yfirborði eða
framan í hömrunum umihverfis
Stráka væri mjög miklum erfið-
leikum bundin. Einkum taldi ég
meira öryggi í göngum en í vega
gerð framan í fjallinu. Athuganir
sem í fyrstu voru gerðar, voru
að sjálfsögðu frumathuganir, en
síðar voru tilraunagöngin gerð.
Nú er komin nokkur reynsla af
þeim, þar sem þau hafa staðið
þarna í nokkur ár. Ef unnt er að
byggja göngin þannig, að þau
þræði berglög 'ætur til fallin
en þau, sem tilraunagöngin voru
gerð um, þá tel ég sjálfsagt að
sú leið verði farin. Ég hef ekJki
tekið þátt í síðustu athugunum
og ekki séð göngin eftir jarð-
skjálftann mikla í fyrra, en þeg-
ar ég sá göngin ársgömul, þó
gáfu þau mér ekki ástæðu til
svartsýni“.
- Jarðfræðingarnir
Framhald af bls. 1.
fljótsins verður mjög erfið, þvi
leiðangursmenn verða áð
höggva sér braut gegnum frum
skóginn. Og alia leiðina eiga þei-r
stöðugt yfir höfði sér árásir Lnd-
íána.
Sagt er að hvítir menn stjórni
árásum Indíánanna. Er hér um
smyglara að ræða, sem vilja
koma í veg fyrir að menningin
haldi innreið sína í frumSkóg-
ana, en talsvert er um náttúru-
auðlindir á þessum svæðum. Til-
gangur leiðangurs jarðfræðing-
anna var m.a. að finnavegarstæði
gegnum frumskóginn, svo unnt
væri að komast að þessum auð-
lindum og vinna þær. _