Morgunblaðið - 08.04.1964, Page 13
Miðvikudagur 8. apríl 1964
MORCUNBLAÐIÐ
13
táknræn. Hver vestrænn rit-
höfundur, sem talar við rithöf-
und frá Ráðstjórnrríkjunum,
hiýtur að verða þess var, að
stundum eru eins og hvorugur
viti raunverulega hvað hinn er
að fara“.
Jón Óskar segir, að rithöf-
undar í Ráðstjórnarríkjunum
virðist „löngu hættir að hugsa
um þau vandamál sem við er-
um sí og æ að velta fyrir okkur
og deila um, eins og til dæmis
frelsi listamanna og tækifæri til
að koma verkum sínum á fram-
færi“.
Höfundur hitti að máli fleiri
andans menn þar eystra. Túlk-
urinn snaraði einu ljóði eftir
hann og arkaði með höfundinn
á fund ritstjóra bókmenntatíma-
rits. Ritstjórinn hafnaði kvæðinu
á þeim forendum, að ekki tæki
að birta aðeins eitt kvæði: „En
Vadím (túlkurinn) efaðist ekki
um það, að þegar hann væri bú-
inn að þýða fleiri ljóð, mundi rit
stjórinn taka þeim tveim hönd-
um.“
Pegar heim kom, lét höfund-
ur ekki á sér standa og sendi
bækur sínar austur. En þá var
hann ekki virtur svars.
Laxness segir, að undir Stalín
hafi ekki verið hægt að trúa
orðum bezta vinar síns í þvísa-
landi. Jón Óskar kveður ekki
svo fast að orði, enda var Stalín
andaður og komirin í glerhús,
þegar hann ferðaðist um landið.
Engu að síður virðast Rússar enn
hafa kunnað að leika tveim
skjöldum. Vonandi eru þeir nú
vaxnir upp úr því að gera at i
langþreyttum ferðamönnum.
Reisubók Jóns Óskars er ekki
samfelld ferðasaga, heldur laus-
ir þættir, sumir harla snubbótt-
ir. Frásögnin er alþýðleg og hisp
urslaus, en ekkert fram yfir það.
Höfundur er alvörumaður, laus
við spjátrungsskap og galgopa-
hátt. Hann slær ekki um sig með
hnyttnum athugasemdum og hót
fyndnum líkingum, þótt efnið
gefi stundum tilefni til þess.
Mest furðar mig, að hann skuli
ekki skrifa persónulegri stíl en
raun ber vitni. Stundum dettur
manni í hug, að hann hafi gef-
izt upp og hlaupið frá hálfnuðu
verki, t.d. í kaflanum Ráðstjórn-
arríkin hverfa. .. . Þar 'hefur and
inn blásið honum i brjóst gríða-
mikla mælsku, sem endist í eina
blaðsíðu .Og sem maður les þessa
síðu, finnst manni það vera upp
haf á löngum kafla. En viti menn
— kaflinn er þá ekki lengri. Á
næstu síðu byrjar annar kafli.
Sums staðar bregður fyrir
furðu viðvaningslegu orðalagi
eins og þessari athugasemd um
fólkið -á Italíu: „Var nú ekki
hægt að fá það til að vilja fas-
isma?“
í kaflanum Rústir stendur
þessi forklúðraða málsgrein:
„Það var mynd af Colosseum í
kennslubókinni minni, þegar ég
var í skóla að læra landafræði
og mannkynssögu eins og við er-
um öll vön að gera.“
Á öðrum stað skjótast fram
eftirfarandi setningar í ræðustíl
séra Bjarna: „Fátæktin er hér,
en auðæfin eru hér líka. Hver
er fátækur og hver er ríkur?“
Víða hefur höfundur þann
hátt, þegar hann hefur setning-
ar eftir útlendingum, að hann til
færir þær fyrst á því máli, sem
talað var, en þýðir síðan á ís-
lenzku. Þess konar tvítekning er
óþörf og þreytandi. Þeir, sem
skilja málin þurfa ekki á þýð-
ingum að halda. Og hinir, sem
ekki skilja þau, eru engu nær.
Endursögn úr einu máli á annað
er því aðeins nauðsynleg, að höf
undur setji fyrirvara um þýð-
ingu sína.
En sleppum því. Það er ekki
hægt að dæma bók eingöngu
eftir stíl og áferð, enda fer mann
gildið ekki eftir því, hve vel er
komizt að orði. Verkefni skálds-
ins er víðtækara en svo, að felist
í orðalaginu einu saman. Skáld-
ið er rödd sinnar þjóðar. Og þá
fyrst verður sú rödd hjáróma,
þegar skáldið fer að lofsyngja
einhver heimsundur í fjarlæg-
um löndum — heimsundur, sem
reynast svo blekkingar einar.
Þess er getið á kápu bókarinn-
ar, að hún hafi átt að koma út
á fyrra ári, en seinkað vegna
verkfalla. Skemmst er að minn-
ast, að í fyrra komu út tvær
bækur í svipuðum anda, Valdið
og þjóðin eftir Arnór Hannibals-
son og Skáldatími Laxness. Þær
bækur táknuðu viss tímamót
Og þau timamót eru nú orðin
gleggri með útkomu ferðabókar
Jóns Óskars.
Það er nú senn hálfur fjórði
áratugur, síðan Sigurður Einars-
son reið á vaðið með bók sinni,
Hamar og sigð. Nokkru siðar
hófu Rauðir pennar útkomu sína.
Kristinn E. Andrésson fylkti liði
og boðaði nýja bókmenntastefnu,
„sósíalistiskan realisma." Fylk-
ing Kristins lét mikið að sér
kveða, og þarf ekki að gera henn
ar hlut minni en hann var.
Stefna Rauðra penna verður sið-
ar metin og vegin í bókmennta-
legu tilliti. En hvenær skal tínaa
setja upphaf og endi þeirrar
stefnu? Sagnfræðingar miða
flest við ártöl. Nú er umrætt
tímabil tæpast orðið saga, og er
því erfitt að afmarka það. Svo
mikið er þó víst, að með út-
komu þeirra þriggja bóka, sem
hér var á minnzt, er áhrifavald
Rauðra penna endanlega liðið
undir lok. Hamar og sigð er fall-
ið merki í íslenzkum bókmennt-
um.
Erlendur Jónsson.
Stjórnmálasamband
Kairó, 6. apríl (NTB)
• Belgía og Arabíska sam-
bandslýðveldið munu nú
aftur taka upp stjórnmálasam
band, sem slitið var af hálfu
Belga, eftir að múgur manns
réðist að belgíska sendiráðinu
í Kairó um það bil sern átökin
í Kongó voru alvarlegust.
Sigurbjörn Cuðmundsson
illinningarorð
af störfum sökum heilsubrests.
Trúmennska Sigurbjörns var
slik að með afbrigðum var. Hann
lagði sig allan fram í að gera
veg Hlífar sem mestan.
Árið 1961 heiðraði V.m.f. Hlíf
Sigurbjörn með því að sæma
hann gullpening félagsins fyrir
góð störf í þess þágu.
Hér að framan hefur aðeins
verið drepið á nokkur atriði úr
ævi Sigurbjörns, en miklu sleppt.
Stafar það af ókunnugleika mín-
um, þar sem lífssaga hans er
mér eigi kunn, fyrr en samstarf
hefst á milli okkar í verkalýðs-
málum árið 1938.
Þegar Sigurbjörn Guðmunds-
son er nú kvaddur hinztu kveðju,
færi ég honum þakkir fyrir vin-
áttu og samstarf, og óska þess
að honum verði að trú sinni um
góða heimkomu og gleðiríka end
urfundi við látna ástvini.
Hermann Guðmundsson
— Um bækur
Framh. af bls. 6
ur hefur sýnilega lagt sig fram
um að sannprófa þetta álit sitt
í ferðinni.
f einum kaflanum segir frá
heimsókn til Erenbúrgs rithöf-
undar. Erenbúrg upphóf raust
sína á frönsku. Þar að auki var
túlkur til aðstoðar.' Þessi rúss-
neski höfundur svaraði spurn-
ingum eins og slyngur sendi-
herra, sem verður að gæta þess
að sitja og standa eins og yfir-
völdunum þóknast. Þegar hann
var spurður, hver ætti að ráða
bókmenntunum, fólkið eða rit-
höfundarnir, svarði hann stutt
og laggott — ég skil ekki.
Frönskukunnátta og túlkur gátu
ekki vakið skilning hans á svo
einföldum orðum.
„í rauninni“, segir Jón Óskar,
„eru orð hans, ,ég skil ekki“,
í DAG verður gerð útför Sigur-
björns Guðmundssonar, sem and
aðist í Hafnarfirði 31. f.m.
Hann var fæddur 5. sept. 1880
®ð Barkarstöðum, Fremri Torfu-
staðahreppi, Vestur-Húnavatns-
sýslu. Foreldrar hans voru Guð-
mundur Sigmundsson og Mar-
grét Jónsdóttir.
Þegar Sigurbjörn var sjö ára
brugðu foreldrar hans búi og
fluttu frá Barkarstöðum, en við
búskap þar tók móðurbróðir Sig-
wrbjarnar, Björn Jónsson og
Ikona hans Helga. Hjá þeim ólst
Sigurbjörn síðan upp, og dvaldi
þar til hann kvæntist Ólafíu
Ólafsdóttur frá Bessastöðum í
Ytri-Torfustaðahreppi, og hófu
þau búskap í Bjarkastaðaseli, og
bj uggu þar í lengri tíma.
Þau hjón eignuðust tvö börn,
Björn Helga, sem lézt 14 ára og
Margréti, sem nú er húsfrú í
Pteykjavík, gift Jóni Halldórs-
syni. Auk þess ólu þau upp dótt-
ur, sem Ólafía hafði átt áður en
hún giftist, og pilt, sem lézt á
lfl. aldursári.
Árið 1927 hætti Sigurbjörn bú-
skap og fluttist til Hafnarfjarðar.
í Hafnarfirði stundaði Sigur-
björn margs konar störf. Hann
var verkamaður, verzlunarmað-
nr og síðustu starfsár sín var
Ihann innheimtumaður hjá V.m.f.
Hlif.
Árið 1958 fluttist Sigurbjörn
og kona hans Ólafia að Elli-
heimilinu Sólvangi, þar lézt Óla-
fía 13. janúar 1960 og svo Sigur-
björn hinn 31. f.m., eins og áður
er sagt.
Sigurbjörn Guðmundsson var
þreklegur vexti og vel á sig kom-
inn, hefur áreiðanlega verið burð
írmenni á yngri árum.
Hann hafði mikla ást á hest-
iira eins og flestir Húnvetningar,
og saknaði alltaf sveitalífsins,
sem ill örlög, höfðu flæmt hann
frá.
Sigurbjörn var félagslyndur
maður, einbeittur og óvæginn
bardagamaður. Það kom glögg-
lega fram í hinum miklu átök-
um í Hafnarfirði 1939 í hinni
frægu Hlífardeilu.
Afskipti Sigurbjörns þá af mál
um verkamanna, urðu til þess
að hann var kjörinn í stjórn
V.m.f. Hlífar árið 1942, og átti
þar síðan sæti til ársins 1945, en
árið eftir 1946 var hann ráðinn
starfsmaður Hlífar og gegndi því
starfi til ársins 1954, að hann lét
STERKASTA, VANDAÐASTA OG MEST
SELDA FJ ÓRH JÓLADRIFSBIFREIÐIN
Á HEIMSMARKAÐINUM.
REYNZLAN SÝNIR, AÐ BEZTU KAUPIN
ERU í WILLYS-JEPPANUM
TIL ALLRA STARFA
ALLTÁSAMA STAÐ
Ocill Vilkjdlmsson li.fj
PDSTHQLP 50 - REYKJAVIK - ÍSLANO
Happdrætti Háskóla Islands
Á föstudag verður dregið í 4. FLOKKI.
Á MORGUN eru seinustu forvöð að endurnýja.
2100 vinningar að fjárhæð 3.920.000 KRÓNUR.
4. flokkur
2 á 200.000 kr. .. 400.000 kr.
2 - 100.000 — . . 200.000 —
52 - 10.000 — . . 520.000 —
.180 - 5.000 — . . 900.000 —
1860 - 1.000 — .. 1.860.000 —
• Aukavinningar:
4 á 10.000 kr. 40.000 —
2100 3.920.000 kr.