Morgunblaðið - 08.04.1964, Side 21

Morgunblaðið - 08.04.1964, Side 21
Miðvikudagur 8. apríl 1964 MORGUNBLAÐIÐ 21 Kýpurstjórn krefst brott- farar tyrkneskra hermanna Stjórn Tyrklands mótmælir — Makaríos til Aþenu V Nicosía, Ankara, 7. apríl — NTB — MAKARÍOS erkibiskup, for- seti Kýpur, krafðist þess í kvöld, að tyrkneska stjórnin kallaði heim hermenn sína á Kýpur, en þeir eru þar sam- kvæmt varnarsamningi Kýp- urbúa, Grikkja og Tyrkja frá 1960. Makaríos sagði upp samn- ingi þessum í gær fyrir hönd Kýpurstjórnar og sagði, að fyrsta skrefið til þess að sýna að hann væri úr gildi runn- Réttarhöld í Tulsa Tulsa, Oklahoma, 7. apríl — AP — A N N A R íslendinganna tveggja, sem skotið var á í Tulsa í haust, bar í gær vitni við réttarhöld yfir árásar- manninum, J. D. Scaggs, en Scaggs er ákærður fyrir að hafa skotið í þeim tilgangi að ráða íslendingana af dögum. Það var Halldór Gestsson, sem bar vitni í gær, en hann og félagi hans, Ketill Oddsson, komu til Tulsa að þessu sinni til þess að vera viðstaddir réttarhöldin yfir Scaggs. Vitnisburður Halldórs í réttin- um var samhljóða vitnisburði hans við undirbúningsyfirheyrsl- ur. Hann sagði, að þeir félagar hefðu verið gestkomandi hjá konu að nafni Jacqueline Owings, en hún hefði leigt hjólhýsi af Scaggs. Scaggs hafi skipað þeim að yfirgefa hjólhýsið og síðan skotið á þá með þeim afleiðing- um að þeir særðust. — Halldór sagði, að hann hefði kynnzt Jacqueline viku áður en skotið var á þá Ketil. Ketill og Halldór kváðust sjálf- ír hafa greitt fargjald sitt til Tulsa og heim aftur, um 43 þús. ísl. kr., en sögðust vonast til þess að yfirvöld í Tulsa endurgreiddu þeim að minnsta kosti hluta þess- arar upphæðar. — Peter Sellers Framh. af bls. 1. einkastofu, en í morgun hrak- aði honum mjög og varð að flytja hann í sérstaka stofu, þar sem sjúklingar eru undir stöðugu eftirliti og hægt að veita þeim aðstoð þegar í stað. Eftir því sem á daginn leið varð ástand Sellers alvar- legra. Um kvöldmatarleytið sagði talsmaður sjúkrahússins, að hjartsláttur sjúklingsins væri óreglulegur og virtist allt benda til þess að skemmdir hefðu orðið á hjartanu. — Skömmu síðar var tilkynnt að Sellers hefði enn versnað og hann væri milli heims og helju. — ★ — Peter Sellers kom til Holly- •wood fyrir nokkrum vikum til þess að leika eitt aðalhlutverk ið í kvikmyndinni „Kiss me stupid“ (Kysstu mig heimsk- ingi). Aðrir aðalleikarar eru Dean Martin og Kim Novak. Kvikmyndun hefur verið hætt vegna veikinda Sellers, og talsmaður kvikmyndafélags ins sagði, að hlutverk Sellers væri þannig að enginn annar gæti leikið það og yrði því að bíða með tökuna þar til hon- : um batnaði. Kona Sellers, Britt Eklund, var við kvikmyndun í Lon- don þar til fyrir nokkrum dög- um, að hún hélt til Holly- wood án þess að kveðja kóng ; eða prest. Hefur kvikmynda- félagið, sem hún var ráðin hjá : gert skaðabótakröfu á hendur henni. Britt sagði í dag, að hún og maður hennar hefðu snætt kvöldverð í veitinga húsi sl. sunnudagskvöld og hefði hann þá ekki fundið til veikinda. Snemma á mánu- dagsmorgun hefði hann vakn að með verki fyrir brjóstinu og um hádegið hefðu verk irnir verið orðnir svo slæmir, að hringt hefði verið í sjúkra bifreið. Fyrri hluta dagsins ! dag var Britt við sjúkrabeð manns síns en í kvöld varð hún að bíða fregna af líðan hans í næsta herbergi. Britt og Peter Sellers gengu í hjónaband fyr- ir tæpum tveimur mánuðum. inn væri að svipta tyrkneska hermenn réttindum til dvalar á Kýpur. Alls eru 650 tyrk- neskir hermenn á eyjunni. Stjórn Tyrklands segist ætla að grípa til nauðsynlegra að- gerða til þess að koma í veg fyrir, að gengið verði á þau réttindi Tyrkja, sem gert er ráð fyrir í áðurnefndum samningi. Gagnrýnir hún Makaríos harð- lega fyrir að segja honum upp einhli'ða. Makaríos erkibiskup heldur flugleiðis til Aþenu á morgun til þess að ræða við grísku stjórn- ina. Mun hann dveljast í borg- inni í þrjá daga. Engar fregnir bárust af bar- dögum á Kýpur í dag, en skamm.t fyrir utan Nicosíu stöðvaði grísku mælandi lögregla kanadíska her- menn úr liði Sameinuðu þjóð- anna. Hermennirnir fylgdu sjúkralest tyrkneskra Kýpurbúa. Hermönnunum var ekki leyft að halda áfram með lestina fyrr en eftir nokkrar klukkustundir, en þá höfðu viðræður um atburðinn farið fram í Nicosíu. 35 farast í slysi Giresun, Tyrklandi, 7. apríl (AP) í dag rann farþegabifreið út í á við Svartahaf með þeim afleiðingum að 35 menn, sem í henni voru, biðu bana. Or- sök slyssins eru óljós, en lög- reglan vinnur að rannsókn þess. — Danir semja... Framh. af bls. 1 verði lagðar fyrir stjórn atvinnu rekenda og fulltrúaráð alþýðu- sambandsins eftir um það bil mánuð. Viðurkenningin-’ á sameigin- legri stefnu varðandi tekjur kemur ekki beint fram í nýju reglunum, en felst í hinu mik- ilsverða ákvæði um, að forystu- menn beggja aðila hefji viðræð- urnar og semji um þá hækkun sem til greina þykir koma. Ef viðræður hefjast þannig verður auðveldara fyrir hin ýmsu fé- lög og atvinnurekendur að ræða málin, því að þá vita þeir fyrir- fram hve mikil hælkkun er hugs- anleg. Það eina, sem þeir þurfa að gera er að skipta henni og glíma við staðbundin vandamál. Alþýðusambandið og atvinnu- rekendur í Danmörku munu, ef samningareglurnar verða sam- þykktar, krefjasit tryggingar á því að sömu reglur gildi um aðrar stéttir þjóðfélagsins og talið er að þess verði farið a leit við ríkisstjórnina og þingið. Meðal annarra mikilvægra at- riða uppkastsins um samnings- reglur er hvenær hin nýja skip an þessara mála skuli ganga i gildi. Bendir margt til þess að samið verði um að láta hana gilda frá 1. marz s.l., eða þar um bil. Talið er fullvíst, að í hinum nýju samningsreglum og allt þvingunaraðgerðir, sem aðilar geta gripið til, ef viðræður fara út um þúfur. Bjartsýni ríkir innan viðræðu nefndarinnar um árangur af hin- um nýju samningsreglum og allt bendir til þess að þær auki mögu leikana á að aðilarnir leysi sjálÆ- ir deilur sínar án verk- falla, verkbanna og íhlutunar stjórnarvaldanna. Sýnin'í Kristjáns Davíðssonar MÁLVERKASÝNING Kristjáns Davíðssonar í Bogasal Þjóðminja safnsins hefur verið opin síðan á laugardag. Sýningin hefur vakið mikið umtal og athygli, enda hefur hún verið sérstaklega vel sótt. f gær höfðu þegar selzt 15 myndir af 35. Olíumálverkin eru öll nema þrjú máluð á sein ustu tveimur árum. Sýningu Kristján lýkur á sunnudagskvöld. Hún er opin frá kl. ,þrjú til tíu, nema á laugar- dag og sunnudag frá kl. tvö til tíu. Hér að ofan er ljósmynd af einu málverkanna á sýningunni. Takið Bandaríkjamenn ykkur til fyrirmyndar sagði Krúsjeíf við landbúnaðarsérfræðinga í Ungverjalandi Búdapest, 7. apríl (NTB). Krúsjeff forsætisráðherra Sovét ríkjanna hélt ræðu á fundi með ungverskum landbúnaðarsér- fræðingum í dag. Sagði hann, að þeir hefðu ekki á réttu að standa er þeir héldu því fram, að miðað við landssvæði væri meiri hveiti framleiðsla í Ungverjalandi en í Bandaríkjunum. „Þið eigið ekki að skrökva“, sagði Krúsjeff og vakti það hlátur viðstaddra. Krúsjeff sagðist vita betur en svo, að hann tryði, að Ungverj- ar framleiddu meira hveiti en r Agæt skóla- skemmtun í Kjós VALDASTÖÐUM, 35. marz. — Nemendur í barnaskólanum í Ás garði, héldu árshátíð sína 21. marz að Félagsgarði fyrir fullu húsi. Var skemmtunin borin uppi af kennurum og nemendum skól- ans. Fór hún fram með leik og söng, sem stóð yfir í tvo tíma og iþótti takast með ágætum. Höfðu sumir áhorfendur orð á því, að vert væri, að þetta væri sýnt víðar. Leikritið, sem sýnt var, hét „Fjölskyldan fer út að skemmta sér.“ Auk þess annað leikrit „Sambýlingar", söngur og gítarleikur. Upplestur, skrautsýn ing o. fl. Allt fór þetta fram með aðstoð skólastjóra'hjónanna, þeirra Erlu Stefánsdóttur og Konráðs Péturssonar. Er það vit- að, að þau hafa lagt sig mjög fram um að géra þessa sam- komu, sem bezt úr garði, enda tekizt með ágætum. Ágóði af samkomunni rennur í ferðasjóð nemenda skólahs. — St.G. Bandaríkjamenn. Sagði hann, að viðstöddum væri nær að hætta að hreykja sér af eigin ágæti og taka Bandaríkjamenn sér til fyr irmyndar, því að þeir væru komnir mjög langt á sviði land- búnaðar. Til dæmis væru Banda ríkjamenn mjög framarlega í ma ísframleiðslu, þar væru Sovétrík in kominn mun styttra en nú hefði Sovétstjórnin ákveðið að hefja maísframleiðslu til mann- eldis í stað þess að framleiða ein göngu maís sem skepnufóður. Forsætisráðherrann kvaðst vera að semja nýjar áætlanir fyr ir landbúnað Sovétríkjanna og myndu þær lagðar fyrir mið- stjórn kommúnistaflokks lands- ins innan skamms. í áætlununum væri lögð áherzla á nauðsyn auk innar sérhæfingar, vélvæðingar og skipulagðrar fjárfestingar. Landbúnaðarstofnunin, sem Krúsjeff heirpsótti hefur aðsetur í höll, er eitt sinn var mikil tón- listarmiðstöð. Þar samdi Ludwig van Beethoven mörg verk sín og Krúsjeff varð við ósk ljósmynd- aranna, sem fylgdu honum, og leyfði þeim að taka mynd af sér við hlið höggmyndar af hinu fræga tónskáldi. — Belgia Framh. af bls. 1. óbreyttum borgurum, og sagði innanríkisráðherra Belgíu í dag, að það hefði bjargað mörgum mannslífum. Læknarnir tveir, sem hand- teknir hafa verið, eru sakaðir um að hafa átt þátt í dauða 18 mánaða barns með því að neita að veita því læknishjálp. Handtökuskipun var gefin út strax og fréttist um lát barns- ins og henni framfylgt en á fimmtudaginn \ erður skorið úr um hvort skipunin skuli gilda áfram. Einn af leiðtogum verk- fallsmanna, Andre Wynen, við urkenndi á fundi með frétta- mönnum, að liðið hefðu 6 klst. frá því að foreldrar barns- ins báðu um lækni þar til hann kom. Wynen sagði hinsvegar, að læknirinn, sem fyrst hefði verið leitað tU hefði sjálfur verið sjúkur. Fundur á Krukku- sléttu Vientiane, 7. apríl (NTB) Fulltrúar hlutlausra, — vinstri- og hægrisinna í Laos hafa orðið ásáttir um að hitt- ast til viðræðna á Krukku- sléttu 17. apríl nk. Munu full- trúarnir ræða árekstrana, sem orðið hafa í landinu að undan- förnu og leið»- til varðveizlu friðarins. \ Félogsfræði honda unglingum eítir Magnús Gíslason námsstjóra FYRIR nokkru kom út á vegum Ríkisútgáfu námsbóka Félags- fræði handa unglingum eftir Magnús Gíslason náms’stjóra. — Þetta er önnur útgáfa. Áður hafði bókin verið gefin út sem handrit. Þessi nýja útgáfa er mikið aukin og breytt. Allmargar breyting- anna eru byggðar á bendingum kennara, sem kennt hafa bókina til reynslu tvo undanfarna vetur. Bókin er 160 bls. í Skírnisbroti, prýdd 53 teikningum eftir Þröst Magnússon teiknara. Einnig eru í bókinni 42 ljósmyndir, einkum úr atvinnulífi þjóðarinnar, og þrjár litmyndasíður með skjaldar merki íslands, þjóðfánanum, ríkisfánanum og helztu umferð- armerkjum. Aðalkaflar bókarinnar eru þess ir: Fjölskyldan og heimilið, Ó- skrifuð lög, Skólinn, Tómstundir, Stofmm heimilis, Réttindi og skyldur þegnanna, Hollar lífs- venjur, Samgöngur og umferð, Póstur og sími, Lög og reglur þjóðfélagsins, Peningar og fjár- mál, Stjórnskipun og stjórnarfar, Bæjafélög og sveitafélög, Kirkj- an, Fjölskylda þjóðanna, Atvinnu hættir og atvinnuvegir, Starfs- val, Þjóðfáninn og skjaldarmerki íslands. Auk þess eru stjórnar- skrá lýðveldisins íslands og Mannréttindayfirlýsing Samein- úðu þjóðanna prentaðar í heild í bókinni. — í lok hvers aðalkafla eru verkefni úr umhverfi og dag- legu lífi nemenda, einkum ætluð til þess að gera kennsluna líflegri og fjölbreyttari. I bókarlok eru nokkrar leiðbeiningar til nem- enda, þar sem reynt er að glæða sjálfstætt námstarf þeirra og hvetja þá til að temja sér skyn- samleg vinnubrögð og góðar námsvenjur. Prentun bókarinnar annaðist Prentsmiðja Hafnarfjarðar hf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.