Morgunblaðið - 08.04.1964, Síða 24

Morgunblaðið - 08.04.1964, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 8. apríl 1964 pFUZABETH TeRRt&SÍ 21 47 — Stundum verður mér það að halda, að þeir kunni ekki nema þetta eina lag í þessum hluta veraldar, sagði Step'uen, — eða þá að maður verði svo ringlaður af þessu eina lagi, að öll önnur heyrist vera þau sömu. — En heyrðu, Stephen. . . Ruth hafði verið með alla at- hyglina við tónlistarmennina, sem snöggvast. — Ég vona, að þú haldir ekki að ég viti, hvar Sebastino á heima. Ef hann er ekki í búðinni, hef ég ekki minnstu hugmynd um, hvar hans er að leita. Stephen stakk hendinni í vas- ann. — Ég er með vasabókina hans Ballards hérna. En um leið dró hann líka upp úr vasanum pappírsblað, sem sveif til jarðar án þess að hann tæki eftir. Hann tautaði fyrir munni sér: — S, fyrir Sebastino, og tók að blaða í bókinni. Ruth laut fram, eins og ósjálf rátt og tók upp blaðið. Það hafði verið brotið saman, aftur og aftur svo að úr varð mjó rsema og endinn á þeirri ræmu var sviðinn. Hún ætlaði að fara að rétt Stephen það, þegar hún kom auga á einhverja skrift á því að utanverðu. Hún glápti á það og vildi ekki trúa sínum eigin aug um. Söngurinn í rjóða manninum fannst henni allt í einu vera orðinn óþolandi sterkur, og henni fannst sem klórið á gíítar- strengina væri innan í höfðinu á henni. Það glumdi í eyrum hennar, meðan hún ffetti sundur blaðinu með stirðum fingrum. Þarna var komið blaðið frá Marguerite, með rithöndinni hennar á: — Fyrirgefðu,. að ég varð að þjóta út. Kem strax. Bíddu. Marguerite. Og neðan undir var hennar eigið svar: „Get ekki beðið lengur“. þess að svara, og grúfði sig niður í vasabókina. — Stephen.! Röddin skalf. — Viltu líta á þetta? Hann stakk vasabókinni á sig <pg sagði: — Þetta er allt í lagi, heimilisfangið hans er hérna. Svo leit hann á blaðið. — Hvað er þetta? Hann seildist eftir því, en hún kippti því að sér. — Hvernig náðirðu í þetta? spurði hún. Hann hleypti bara brúnum, rétt eins og hann fylgdist ekki með því, sem hún var að segja. — Hvernig ég 'náði í það? Hann leit á hana og augu þeirra mættust. — Það veit ég ekki. Hvar náðir þú í það? — Það datt upp úr vasa þín- um áðan, þegar þú tókst upp vasabókina. — Nú jæja, en hvað er þetta? — Skoðaðu það vel. Hún hélt því að honum, en hélt samt fast í það. Þegar Stephen las blaðið í annað sinn, virtist hann fyrst verða var við fjandsemina í framkomu hennar. Hann varð kvíðinn á svipinn. — Hvað er þetta endurtók hann og nú hvassar. — Það er blaðið frá henni Marguerite, sem sannar, að hún bjóst við mér heim til sín síð- degis í gær — og það datt upp úr vasa þínum! — Guð minn góður! tautaði hann í hálfum hljóðum. Hann renndi fingrunum gegn um úfna ljósa hárið á sér, og Ruth heyrði sjálfa sig segja, reiðilega: — Æ, því í dauðan- um geturðu ekki látið klippa þig? Þú lítur hræðilega út svona! — Já, það veit ég og ég hef alltaf ætlað að láta gera það . . . En, sjáðu til . . . þetta blað . . . heldur þú virkilega, að ég hafi tekið það? — Hvernig komst það í vasa þinn? — Það veit ég ekki Ég er alltaf að finna hitt og þetta í vösum mínum. Ertu viss um, að það hafi komið þaðan? — Það datt að minnsta kosti ekki af himnum ofan, niður í Raventoþorpið. — Og þú heldur, að ég hafi verið að lauma á því? Þú held- ur, að við Marguerite. . . . — Hvernig fékkstu það? Hversvegna sagðirðu mér ekki að þú værir með það? Hvað ætl- aðirðu að gera við það? — Bíddu ofurlítið við! Hanp greip annarri hendinni í hárið á sér, rétt eins og hann vildi binda sig fastan við þetta, sem hann gat ekki skilið. — Ég verð að hugsa mig um. Þetta hefur einhvernveginn komizt í vasa minn, svo að ég hlýt að hafa stungið því þar sjálfur. Svo mik ið er víst. En þá er bara að vita, hvenær? — Áttu við, að þú hafir ekki vitað, að þú varst með það á þér? Ætlastu til, að ég trúi því? Röddin var full fyrirlitn- ingar. — Ég get ekki séð, hvers vegna ekki. Ekkert er trúlegt eða ótrúlegt í sjálfu sér, heldur veltur það allt á viðkomandi fólki. — Já, eins og eldspýtnastokk- arnir. Áttu við það? Stundum ertu með engan og stundum með marga á þér, en mjög sjaldan einn, eins og aðrir menn. Þú skilur, að það var afskaplega trúlegt, þegar þú sagðir mér það, en nú er ég alls ekki viss um, að ég trúi því. Svona skekkj ur geta verið þægilegar, þegar maður þarf að svara vandræða- spurningum. — Eldspýtnastokkar! Step- hen velti því orði fyrir sér, eins og hann hefði ekki tekið eftir neinu öðru. — Guð blessi þig . . þarna hittirðu einmitt á það rétta. Það var það, vitanlega. Engar eldspýtur. Hann brosti eins og honum létti stórum. — Ég skil ekkert hvað þú ert að fara, sagði Ruth. ’ — Lofðu mér að sjá þetta, andartak, sagði hann og benti á blaðið. Ruth flýtti sér að fjar- lægja það frá honum. — Sjáðu til, sagði hann, alvar legur á svipinn. — Ég sver, að ég skal ekki rifa það og ég skal rétta þér það aftur eftir hálfa mínútu. Annars skil ég nú ekki í, að þú skulir ekki geta treyst mér, af því að ef ég tæki það í mig fyrir alvöru að ná í það, væri það mér innan handar. — Innan um allt fólkið hérna? XVI. Ef Ruth hefði verið fær um að hugsa, er hún sat þarna með blaðið í hendinni, hefði hún laumað því þegjandi í veskið sitt. Stephen var enn að blaða í rauðu bókinni og gaf henni eng- an gaum. Hún hefði hæglega getað skotið blaðinu undan og látið sem ekkert væri, og haldið áfram þessari krökóttu för til Napólí án þess a(5 forvitnast um hið raunverulega erindi með ferðinni. Síðan refði hún getað farið til lögreglunnar með blaðið og sagt henni, hvar hún hefði fundði það. Og þá hefði Stephen orðið að gera grein fyr- ir einu og öðru. Og það hefði getað verið forvitnilegt að heyra þá greinargerð. En hún var svo dolfaljin, að hún gat ekki annað en starað á þetta pappírsblað, sem var henni svo þýðingarmikið. Hún hélt áfram að stara á það, þangað til hún eins og ósjálfrátt rétti það íram og sagði: — Stephen! Hann murraði eitthvað, 1 stað tveir á öndverðan meið, en á þessum tíma voru þeir nánir vinir, og veittu fé í bóslevíka- hreyfinguna, eins og þeir voru menn til. Á árunum 1906 og 1907 voru ofbeldisverk næstum daglegir viðburðir í rússnesku þjóðlífi, það er áætlað, að á þessum ár- um hafi ein fjögur þúsund manns verið myrt. í júnímán- uði 1907 framdi ’ glæpamaður, þekktur undir nafninu Kamo, verulega eftirminnilegt verk í Tifils. Með litlum hópi karla og kvenna, sér til aðstoðar, sat hann fyrir bankavagni um há- bjartan dag og komst undan með 340.000 rúblur handa flokknum 1). Nokkuð af þessu fé komst til bolsjevíkanna. 1) þessi upphæð verður að vera áæUuð þar eð nákvæmar skýrslur um eignaupptökurnar eru ekki til. Hitt er víst, að með núverandi gengi rúblunnar — tíu gegn sterlingspundi — var um stórlé að ræða. Lenin hafði eina aðra tekju- lind. Það kom fyrri öðru hverju, að auðugir velunnarar arfleiddu sósíaldemókrataflokkinn, og í ýmsum tilvikum — frægt er orðið eitt ófriðlegt mál í sam- bandi við milljónara einn í Moskvu — tókst Lenin að beina aurunum í sinn eigin vasa. En nú tók hann að gerast nafnkunnari en áður haíðj. verið. Nýja blaðið hans, Proletarii, kom reglulega út og hann gat talið sér um 30.000 fylgismenn í Rússlandi sjálfu. Vorijð 1907 átti hann að halda nýtt þing í London, og hann var reiðubú- inn til nýrra átaka um völdin. Lenin lagði óskaplega vinnu í undirbúning þessara ráðstefna. Hann ritaði hvert bréfið eftir annað til fylgismanna sinna, og rökræddi, útskýrði og heimtaði, af mikilli þolinmæði og tryggði sér skilyrðislaust fylgi þeirra. Og 1907 var hann fær um að gera enn meira: hann útvaldi hóp áreiðanlegra manna, sem hann vissi, að mundu greiða at- kvæði með honum, og útvegaði þeim fé til að ferðast til Lon- don. -• í hinni löngu og grafalvarlegu runu fundargerða frá rússnesku flokksþingunum, er þingið 1907 áberandi fjörugt og jaínvel lit- ríkt. Þetta var stærsta samkoma byltingarsinnaðra hæfileika- manna sem nokkurntíma hafði saman komið. Rúsmlega 300 full trúar sóttu það, ýmist frá Rúss- landi eða annarsstaðar að — og 200 þeirra menntamenn en hinir verkamenn — og þeir hljóta að hafa verið merkileg sjón; sumir komnir beint frá Rússlandi með sauðskinnshatta og í verka- mannaslyppum, aðrir í skrif- stofufrökkum eins og þeir tíðk- uðust þá, enn aðrir dulbúnir í alskegg og krúnurakaðir — en allir hávaðasamir. Þarna var Plekhanov ásamt gömlu lífvörð- unum, Veru Zasulich og Axel- rod, og meðal mensjevíka-fylgis manna hans má nefna menn eins og Martov, og Tseretelli, sem voru þegar orðnir þjóðsagna- persónur í hreyfingunni. Maxim Gorky kom frá Ítalíu þar sem hann stýrði skóla fyrir rússneska byltingarmenn, á hinu ótrúlega eylandi, Capri, Lenin kom frá Finnlandi og auðvitað þurfti Trotsky einnig að sýna sig1). 1) Trotsky hafði verið sendur af keisaralögreglunni til staðar að nafni Obdorsk, rétt sunnar heim- skautsbaugs, lengst austur í Síber* íu. Hann skrifaði konu sinni á leið« inni þangað austur. „Með hverjum degi færumst við einni gráðu lengra inn í ríki kulda og villimennsku44, En hann lét hvergi bugast. Meðan félagi hans lagði falskt spor, sem tafði lögregluna dögum saman, komst Trotski burt, klæddur loðskinnum gegn kuldanum, undir heyhlassi 4 hreindýrasleða og slapp. Hann var með gullpeninga í skóhælunum, til að greiða með ferðakostnaðinn og honum tókst að komast yfir landa- mærin, inn í Evrópu. KALLI KUREKI Teiknari; FRED HARMAN Allt í lagi — þér er velkomið að eyðd þessum skotum þínum á harð- ar. steininn. Ég held hér bara kyrru fyrir unz dimmir og spásséra mig heyri getið um það, að slíkt megi svo burt. nota til að endurkasta byssukúl- — Það er steinn fyrir aftan þig um .... lika, Stubbur sæll. Þú hefur trúi ég Lenin gat nú reiknað méð fylgi nýrra og óvígra fylgis- manna, sem áttu næstum allir eftir að gegna forustuhlutverki í byltingunni: Bodanov, hinn lærði læknir, Kamenev og Zinoviev, tveir hinna yngri frum herja baráttunnar innan Rú;ss- lands, og þeir stóðu honum að líkindum nær en nokkrir aðrir, Litvinov, hinn tilvonandi komm- issar utanríkismálanna, Voroshi lov, hinn tilvonandi hermar- skálkur, Yaroslavksi, Rykov, Nogin og fleiri. Þarna var einnig einn ómerkari fylgisr laður frá Georgíu, Joseph Vissarionovich Djugashvili, sem síðar meir tók sér gervinafnið Stalin, en var nú ekki nógu gamall í hettunni til þess að hafa atkvæðisrétt. Eins og venja var til, hófst þingið seinlega og ófriðlega.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.