Morgunblaðið - 08.04.1964, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 08.04.1964, Qupperneq 26
V 0RGVfí,Bl.4P,IÐ 26 MiSvíkudagur 8.„apríl 1964 ÍR fslandsmeistari í korfuknattleik ÍSLANDSMÓTINU í körfuknatt- leik lauk sl. mánudagskvöld, með leík ÍR pg Ármanns í meistara- flokki karla. Leiknum lauk _með sigri ÍR, 57:48, og hafa ÍR-ingar þannig unnið mótið og hlotið átta stig, unnið alla sína leiki. KR og Ármann eru jöfn í 2. og 3. sæti með tvö stig hvort. Einnig léku KR og Ármann til úrslita í 4. flokki og sigruðu KR-ingar, og Ármann burstaði KFR í úrslitum 1. flokks karla. Leikur ÍR og Ármanns gat eng- in áhrif haft á úrslit mótsins, IR- ingar voru þegar orðnir íslands- meistarar. Samt sem óður varð leikurinn mikill baráttuleikur og bar öll einkenni úrslitaleiks. Ár- menningar náðu sér óvenjuvel 'á strik og settu talsverðan skelk í ÍR-unnendur, sem eru bæði fjöl- mennir og raddsterkir. Ármann var yfir allan fyrri hálfleik, 16:7 þegar tíu mínútur voru búnar, og 32:26 í hléi. í byrjun síðari hálf- leiks héldu þeir sama striki og bættu við forskotið 38:27. Þá taka ÍR -ingar snarpan sprett og um miðjan hálfleik komast þeir yfir 1 fyrsta sinn, 39:38. Hélzt leikur síðan mjög jafn og var mikil bar- átta á báða bóga. Síðustu þrjár mínúturnar eru IR-ingar sterk- ari og skora átta stig gegn tveim- ur hjá Ármanni og sigra með 57 stigum gegn 48. Leikurinn var í heild mjög skemmtilegur og vel leikinn á báða bóga. Einkum áttu Ármenn- ingar góðan leik og væri gaman að sjá fleiri svona leiki hjá lið- inu, þá mættu ÍR-ingar fara að vara sig. Hjá ÍR átti Þorsteinn að vonum góðan leik og var bezti maður liðsins, með 14 stig og mik ið af fráköstum, en hittnin var ekki eins góð hjá honum eins og oft áður. Einnig óttu Agnar, Hólm steinn og Viðar allir ógætan leik og skoruðu 12, 12 og 13 stig. Hjá Ármenningum 'átti Birgir Örn sinn bezta leik um langt skeið og var langbeztur í liðinu. Hittnin var mjög góð og hann hirti mikið af fráköstum. Davíð, Grímur og Sigurður áttu einnig góðan leik. Stigin fyrir Ármann skoruðu: Birgir 18, Davíð 14, Grímur 8, Sigurður 4 og Finnur og Ingvar 2 hvor. Dómarar voru Þórir Ariii bjarnarson og Kristbjörn Alberts son og dæmdu þeir allvel. En seint ætla dómarar að læra að flauta ekki nema þeir séu í að- stöðu til að sjá hvort brot á sér stað. Sá dómari sem stendur heila vallarlengd í burtu getur varla séð hvort um brot er að ræða. í I. flokki karla léku Ármann og KFR til úrslita. Leikurinn var í heild fremur illa leikinn, en Ár- menningar höfðu greinilega yfir- burði og unnu auðveldan sigur, 48:26,-í hálfleik var staðan 26:13. Dómarar voru Einar Bollason og Kristbjörn Albertsson og var frammistaða þeirra ein sú hörmu legasta sem hefur sézt á Háloga- landi og kalla menn þó ekki allt ömmu sína í þeim efnum. I Jíni n j élagsmót INNANFÉLAGSMÓT í tilefni.65 ára afmælis KR 18. febr. í KR- heimiiinu. Sigurvegarar urðu: Langstökk án atrennu Stúlkur. 1. Guðrún Svava Svavarsdóttir 2.32. Karlar. 1. Valbjörn Þorláks- son 3.03. Drengi.r. 1. Einar Gíslason 2.76. Sveinar.- 1. Jón E. Hjaltason 2.61. Þrístökk án atrennu Karlar. 1. Valbjörn Þorláks- son 9.23. Drengir. 1. Einar Gíslason 8.45. Sveinar. 1. Jón E. Hjaltason 7.90. Stangarstökk 1. Valbjörn Þorláksson 4.30. 1 Hástökk Stúlkur. 1. Helga Höskulds- dóttir 1.25. | Karlar. 1. Valbjörn Þorláks- son 1.80. | Drengir. 1. Ólafur Guðmunds- son 1.75. Sveinar. 1. Jón Magnússon 1.60. j Jón Asgeirsson við æfingarhjólið. Nudd og gufubað í Sögu OPNUÐ hefur. verið ný og glæsileg nudd og baðstofa í kjall ara hótel Sögu. Er þar reyndar einnig griðastaður þeirra er sjúk ir eru af gigt eða ýmsu öðru enda er eigandi stofunnar, Jón Ásgeirsson, lærður í Noregi í sjúkranuddi, sjúkraleikfimi o.fl. Hann hefur rekið slíka nuddstofu um árabil að Hverfisgötu 16 en húsnæði hans þar var of þröngt og nú hefur hann fengið 120 fermetra gólfflöt í Sögu og bætt við aðskildri og sérstakri bað- stofu. 4r Ýmis tæki Baðstofan nýja er sériega snyrtileg að öllum frágangi. Eru þar fataskápar fyrir allt að 16 manns samtímis, rúmgott flísa- lagt baðherbergi og ágætlega út- búinn gufubaðklefi. Auk þess er að finna í almennuim sal milli fataklefa og baðherbergis í rúm góðum sal ýmis æfi ngatæiki til áreynslu og sérstakra æfinga. Þar er m.a. standhjól sem menn geta svitnað rækilega á. Má stilla það á hvaða þunga sem er líkast því sem upp brekku sé hjólað og mismunandi bratta að vild. Mælar sýna á hvaða hraða er hjólað og hversu langt hverju sinni. Er þetta tæki skemmtilegt til afnota jafnframt sem það get ur verið grennandi fyrir þá er slíks þurfa. Þama eru og gormaæfinga- tæki, fleiri gerðir þrekprufu- hjója, lyftingatæki margskonar eftir því hvaða vöðva menn vilja styrkja eða þjálfa, æfinga- rimlar o'.fl. Auk þess er háfjallasól sem allir njóta er vilja er til stof- unnar koma. Síðast en ekki sízt skal nefna ágæta svefnklefa sem gestir eiga kœt á að afloknu baði. Allt er sem fyrr segir mjög snyrtilega útbúið. ★ Aðstoð við sjúka Sem fyrr segir flytur Jón Ás- geirsson með sjúkrastofu sína þarna vestur eftir og bætdr við hana nuddstofu og baðstofu. Hjá Jóni er hægt að fá sjúkra- nudd og meðferð alls kyns at- vinnusjúkdóma o.fl. Hefur mik- il aðsókn verið að þeim tímum hjá Jóni, ýmist sjúkra sem send- ir eru að læknisráði eða ann- ara. Baðstofan sem nú bætist við er opin almenningi sem hér seg- ir. Karlar á mánudögum 10.30-12 og 6-9, þriðjudaga 1-5, miðviku- daga 6-9, fimmtudaga 1-6, föstu- daga 1-9 og laugardaga 10.30-5. Fyrir konur eru sértímar á mánudögum og miðvikudögum 1-5. Þriðjudögum 6-9 og á fimmtudögum 7-9. Á þeim tím- um er hægt að njóta baðs, allra tækjanna, háfjallasólar, svetfn- kiefa og nudds. Starfsfólk stof- unnar er 6 karlar og konur 9 skíðamenn frá Rvík keppa í Noregi LAUGARDAGINN 11. apríl fara níu reykvískir skíðamenn til keppni í Alpagreinum Solfonn, Hardanger, Noregi. Skíðaráð Bergen og skíðaráð Odda standa fyrir móti þessu. • Auk Reykvíkinganna og Berg- ensmanna, mæta ennfremur til keppni sveit frá Skotlandi og Hol landi. Sveit Reykvíkinga er þannig skipuð: Ásgeir Christiansen, Ás- geir Úlfarsson, Björn Bjarnason, Björn Ólafsson, Helgi Axelsson, Leifur Gíslason, Sigurður Eirr- arsson, Þórður Sigurjónsson og Karólína Guðmundsdóttir. Keppt verður í fyrsta sinn um nýjan verðlaunagrip, sem er far- andbikar. Keppni í stórsvigi hefst laugardaginn 18. april og í svigi sunnudaginn 19. apríl. Áætlað er að koma aftur mánudagskvöld 20. apríl. Fararstjórar eru, formaður Skíðaráðs Reykjavíkur, frú Ellen Sighvatsson, og varaformaður Skíðaráðsins, Lárus Jónsson. íslenzkiir skíðamenn tóku þátt í bæjakeppni milli Bergen, Glas- gow og Reykjavíkur í fyrra og hlutu annað sætið. Ferðin þá var reykvískum skíðamönnum til mikillar ánægju. Áðstæður til skíðaiðkaná eru hinar ákjósan- legustu í Solfönn og dvalizt er í ágætu gistihúsi. Meistarar ÍB í körfuknattleik. Þorsteinn Hallfrimsson heldui á sigurlaununum. | /* * NA /5 hnútar i í V SOhnúfsr ¥ Snjókoma 9 C‘Í; V Stúrir - Þrurnur KuUaskií ^ NihskH H Hmt | ýivi^ kl. 12. í gær var lægð yfir Islands og gengur á með útsynnings- hafi og NA-Grænlandi en há- éljurn vestan lands, þótt hiti þrýstisvæði um Azoreyjar. sé 4-6 st. Austan lands er Hingað liggja fremur kaldir þurrt og bjart veður með 6-9 loftstraumar frá Grænlandi st. hita, hlýjast á Dalatanga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.