Morgunblaðið - 14.04.1964, Side 5
r,
Þriðjudagur 14. apríl 1964
MORCUNBLAÐIÐ
APAR í BORGINNI
Það er svo gráUegt að vita til þess, að þetta skuli einu sínni hafa verið ungar og fnllegar apaynjur!!
Reykvíkingar og nágrannar eru minntir á, að Sirc uskabareít Lúðrasveitar Reykjavikur stendur enn
yfir í Háskólabíe. Fer nú að verða hver síðastur að sjá hann.
I
Er það ekki furðulegt hvað
íslenzkum bílstjórum virðist
vera meinilla við að hleypa
öðrum fram fyrir sig?
Mönnum liggur misjafnt á,
stundum er það bein lífsnauð-
syn að komast áfram, til dæm
is fyrir lækna og marga aðra
aðilja.
En það er hins vegar bein
skylda, samkv. umferðarlög-
um að hleypa bíl framhjá,
sem gefið hefur merki urri
þann vilja sinn, við fyrsta
tækifæri.
Auk þess er það aðalsmerki
hvers góðs bílstjóra, að fylgj
ast alltaf með umferðinni á
bak við sig í speglinum, og
vikja greiðlega til að forðast
slys við framúrakstur.
Sérstaklega á þetta við hina
þungu vöruflulningabíla, sem
ekkert sjá aftur nema um
hliðarspegla. Þeim er sérstak
lega brýn nauðsyn á því að
sinna umferðinni á bak við
sig, og algerlega vítavert að
hafa ekki spegla. Auðvitað
getur það komið fyrir, þegar
um þunga bila er að ræða,
sem svo að auki hafa útvarp
í gangi, að bílstjórarnir heyri
ekki flaut, en þá er líka speg-
illinn til þess að nota hann.
Svona atvik kom fyrir uppi
á Kjalarnesi á sunnudag, að
stór bíll með engan spcgil,
hélt bílalest á eftir sér í lang
an tíma.
Hins má svo aftur geta, að
mjög eru vöruflutningabíl-
stjórar misjafnir og sumir
fylgjast alltaf með umferð-
inni, og gefa stefnuljós til
merkis um að nú sé óhætt að
fara fram hjá þeim. Þeim sé
heiður, en hinir eigi skömm-
ina.
Þriðjudagsskrýtlan
„Hvernig kanntu við það að
vera eiginmaður“? spurði starfs-
bróðir vin sinn, sem var kvæntur
fyrir skömmu.
„Það er ágætt“, svaraði hinn.
„Eg yngist upp með hverjum
deginum sem líður . . . ég er
farinn að reykja í laumi, eins
og ég gedði þegar ég var strákur“.
Öfugmœlavísa
Hamar úr klaka hafa má
hestajárn úr gleri,
úr hrossataði harðan ljá,
hvella klukku úi sméri.
Spakmœli dagsins
Það er ekki fjöldi orðanna,
sem heíur allt að segja, heldur
gildi þeirra.
ÆSKIIHARMUR
Augu snör
undir hvössum brúnum skarta;
stefnir ör,
stefnir geigsins ör
aö ungs manns hjarta.
Ekki fatast fleini
flug aö settu marki,
áöur auga greini
er á kafi í marki, —
skelfur, hrynur hugarborg;
burtu flýgur fuglinn hvíti,
eftir standa strœti dauö
og sönglaus torg.
SKATl
Ljó'ð þetta er birt aftur, vegna
þess, að niður féll lína úr því
í sunnudagsblaðinu.
Þeir gömlu kváðu
Silfurkerin sökkva í sjó
en soðbollarnir fljóta.
Sýning í Mbl. glugga
,T*Vá! tf
'f +1 f *
VISUKORN
Mann ég hitti, mikinn þar
mátt í greina vitið
Fréttaskjóðu fulla bar
m fyrirbandið slitið.
Uöf. ókunnur.
ÍM hl f il
í dag hefst sýning í glugga Morgunblaðsins á teikningum eftir börn
úr Barnaskóla Hafnarfjarðar. Teikningar eru eftir börn á ýmsum
aldri. Skipt verður um myndir um næstu helgi. Teiknikennarar,
skólans, Ragnheiður Vigfúsdóttir og Sigríður Óskarsdóttir settu sýn-
inguna upp Hér fyrir ofan er mynd eftir nemanda í 1Z ára B. og
heitir hún: Fólk á gangi. Er það klippimynd.
sd NÆST bezti
Umferðasali bauð húsfreyju lög til að fægja með silfur.
„Ég heí ekkert við þess háttar að gera“, anzaði konan.
„Mér þvkir leitt að hafa ónáðað yður, en ég hélt bara, að konan
hérna nið,n í húsinu væri að skrökva að mér, þegar hún sagði, að
mér þýddi ekkert að tala um silíurlög við yður“, sagði maðurinn
hæversklega.
„Og hváð sagði hún meira?“ spurði frúin.
„Hún sagði, að þér hefðuð aldrei timt að kaupa svo mikið sem
eina silfurskeið hvað þá meira“.
„O, bölvuð tófan, ekxi spyr ég að. Komið með 6 dósir til reynslu."
Til leigu
Tún í góðri rækt til leigu.
Hlaða með súglþurrkun get-
ur fylgt. Uppl. í síma
15260.
Viljum taka á leigu
1—2 herb. og eldhús. Uppl.
í síma 19386.
Ódýrt
Kjólar, kápur o. fl. til sölu.
Uppl. i sima 23404.
Takið eftir
Saumum skerma og svunt-
ur á barnavagna og kerrur.
Aklæði í mörgum litum.
Öldugötu 11, Hafnarfirði.
Sími 50401.
Til leigu
5 herbergja íbúð. Teppi á
stofum. Tilb. með uppl. um
fjölsk.stærð og greiðslu-
getu sendist afgr. biaðsins
fyrir föstudagskvöld merkt
„Skólavarða — 9575“.
Ung dönsk ekkja
óskar eftir íbúð strax. Tilto.
sendist afgr. Mbl., menkt:
„Strax — 9528“.
Skrifstofuhúsnœði
allt að 110 ferm., miðsvæðis í borginni óskast.
Tilboð merkt: „Skrifstofa — 3150“ sendist afgr.
Mbl. fyrir 18. apríL
PIERPONT ÚR
INIY GERÐ
4 VATNSÞÉTT
4 HÖGGVARIN
4 SAFÍRSLÍPAÐ GLAS
4 ÓBROTLEG FJÖÐUR
GEFH>
FERMiN G ARBARNINU PIERPONT ÚR
GARÐAR ÓLAFSSON, úrsmiður
Lækjartorgi — Sími 10081
kaupanda
að 5 herb. íbúð í Vesturbænum.
Höfum kaupanda
að 4—5 herb. íbúð í Hlíðunum, Norðurmýri eða
Laugarneshverfi. Mikil útborgun.
Höfum kaupanda
3ja—4ra herb. íbúð í Austurbænum. Mikil útb.
Skip & fasteignir
Austurstræti 12. — Sími 21735.
Eftir lokun 36329 og 51488.
f Hlíðunum
Til sölu 5 herb. íbúð á 1. hæð tilbúin undir tréverk.
Skip & fasteignir
Austurstræti 12. _ — Sími 21735.
Eftir lokun 36329 og 51488.