Morgunblaðið - 14.04.1964, Blaðsíða 14
14
MORCUNBLAÐIÐ
ÞriðludagOT 14. aprfl 1964
Útgefandi:
Framkvæmdast j óri:
Ritstjórar:
Auglýsingar:
Ú tbreiðslustj óri:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Áskriftargjald kr. 90.00
I lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sígurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Sverrir Þórðarson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
HVER ER STEFNA
FRAMSÓKNAR-
FLOKKSINS?
að hefur lengi verið flókið*
athugunarefni hverja
stefnu Framsóknarflokkurinn
hafi í hinum ýmsu málum.
Flokkurinn hefur reynt að
forðast að skilgreina afstöðu
sína, nema mjög almennum
orðum, til þess að geta slegið
úr og í eftir því, sem talið er
pólitískt hagkvsemt hverju
sinni.
Oft tekur dagblað flokks-
ins eina afstöðuna í dag og
aðra á morgun til þess að
höfða tií stuðningsmanna
beggja sjónarmiða.
í útvarpsumræðunum kom
fram ný aðferð Framsóknar-
flokksins í þessum línudansi.
Það var að láta tvær skoðanir
koma fram í senn. Varafor-
maður flokksins, Ólafur Jó-
hannesson, tók jákvæða af-
stöðu til vestrænnar sam-
vinnu og varnarmála, en rit-
stjóri Tímans, Þórarinn Þór-
arinsson, tók neikvæða af-
stöðu.
Það er skylda Framsóknar-
flokksins að skera úr um það,
hvort sé stefna flokksins. Ef
flokkurinn gerir það ekki, þá
er hann að bregðast hlutverki
sínu, kjósendum sínum og
stuðningsmönnum.
MERK MÁL Á
ALÞINCI
T angt er nú liðið þingtímans,
^ en 84, löggjafarþingi ís-
lendinga mun væntanlega
ljúka í ofanverðum þessum
mánuði eða öndverðum maí.
Það hefur verið deilt á þetta
þing fyrir aðgerðarleysi og
má vera að sú gagnrýni eigi
nokkurn rétt á sér. Slík gagn-
rýni á raunar ávallt rétt á sér
með framsækinni þjóð.
Þetta Alþingi hefur þó fjall
að um og afgreitt mörg hin
merkustu mál. Má nefna
vegalögin, sem samþykkt hafa
verið og loftferðalögin, sem
nú liggja fyrir þinginu. Þetta
eru hvorttveggja hinir merk-
ustu lagabálkar.
í atvinnumálum hafa legið
fyrir þinginu þrjú stjórnar-
frumvörp, sem hafa munu
mikil áhrif í framtíðinni á
uppbyggingu íslenzkra at-
vinnuvega. Frumvarpið um
breytingu á jarðræktarlögun-
um hefur verið samþykkt og
fiumvarpið um breytingu á
-------------------------
lögum um stofnlánadeild
landbúnaðarins verður vænt-
anlega afgreitt innan skamms.
Bæði þessi frumvörp munu,
þegar orðin eru að lögum,
stórauka stuðning ríkisvalds-
ins við ræktunina í landinu,
sem er undirstaða landbún-
aðarins. Einkum er þýðingar-
miklil stuðningur við smæstu
búin.
Lærdómsríkar voru undir-
tektir Framsóknarmanna við
frumvörp þessi. Að vísu hafa
þeir ekki talið sér fært að
standa gegn frumvörpunum,
en þeir hafa haft allt á horn-
um sér og síðan tekið upp
yfirboð og heimtað hærri
styrki en frumvörpin gera
ráð fyrir. Það eru þó ekki
nema um sex ár síðan Fram-
sóknarmenn voru sjálfir í
ríkisstjórn og neituðu þá
frekari stuðningi. Það er mun
ur að vera í stjórnarandstöðu
og geta verið höfðingi í orði.
Þá Jiefur ríkisstjórnin lagt
fram á Alþingi frumvarp um
kísilgúrverksmiðju við Mý-
vatn. Frumvarp þetta er
mjög vel undirbúið og mun,
þegar það verður að lögum
verða merkur og öflugur þátt
ur íslenzks iðnaðar.
Verksmiðjan mun einnig
reynast héruðunum á Norð-
urlandi mikil lyftistöng og
færa með sér hagsæld og vel-
megun. —
ÞARF AÐ
ENDURSKOÐA
ÞINGSKÖPIN?
að hefur nokkuð verið deilt
á Alþingi fyrir hæga-
gang við afgreiðslu mála. —
Lagafrumvarp verður að
fara í gegnum a.m.k. þrjár
umræður í hvorri deild og er
vísað a.m.k. einu sinni til
nefndar í hvorri deild. Málin
liggja oft mjög lengi í nefnd
og er út af fyrir sig ekkert
við það að athuga, að mál
hljóti rækilega og vandlega
athugun í þingnefnd.
Það kemur hinsvegar of oft
fyrir, að mál liggja miklu
lengur í nefnd, en ástæða er
til. Það er algengur afgreiðslu
máti á Alþingi, að nefnd ligg-
ur á máli, skilar ekki áliti um
það og svæfir þannig málið,
hundruð
Fjölskyldudeilur um
milljóna króna
Eigínkonur og „auka eigin-
konur64 í imálaferlum
SARIT Thanarat marskálk
ur stóð fyrir byltingu, sem
gerð var í Thailandi 1957,
hrifsaði til sín völdin og
var einvaldur þar til hann
lézt um miðjan desember
sl. Hann barðist mjög gegn
fjármálaspillingu sem ríkti
í landinu og bætti fjárhag
landsins til mikilla muna.
En baráttan gegn spilling-
unni náði ekki til hans
sjálfs.
Hundrað dögum eftir lát
marskálsins var lík hans
brent með mikilli viðhöfn að
viðstöddum konungshjónun-
um í Thailandi, fulltrúum er-
lendra ríkja og tveimur eigin-
konum hans. Auk þess mættu
þar nokkrar af fjölmörgum
„auka éiginkonum“ marskálks
ins. Ekki komu ættingjarnir
saman til að syrgja Sarit
Thanarat, því heiftarlegar
deilur eru innan fjölskyldunn-
ar um skiptingu eigrianna. En
þar er ekki um neinar smá-
upphæðir að ræða.
Ekki hefur enn fengizt upp-
gefið hve miklar eignir Than-
arat átti er hann lézt, en þær
eru metnar á frá 100—800
milljón baht, eða 210—1650
milljón ísl. krónur. Vitað er
að marskálkurinn átti húseign
ir víða um land, þar á meðal
a.m.k. 30 hús í Bangkok.
Hann og fjölskylda hans
áttu meirihluta í rúmlega 15
hlutafélögum, en sum þess-
ara félaga nutu sérstöðu í við-
skiptum á vegum stjórnarinn-
ar. Meðal fyrirtækjanna var
til dæmis banki, sem hafði
einkaleyfi á öllum gull-inn-
flutningi til landsins, og önn-
ur félög, sem nutu samskonar
fríðinda.
Meðal annarra eigna Than-
arats voru 51 bifreið, þyrla,
fiskisnekkja og 53 milljónir
baht, eða um 110 milljónir kr.,
í bankainnstæðu. Þá má nefna
heimili hans í Bangkok. Þar
hafði marskálkurinn peninga-
skáp, sem var opnaður fimm
dögum eftir lát hans. Fundust
þar 100 þúsund baht í pening-
um, en auk þess verðbréf og
demantar. Það var í rauninni
þessi peningaskápur, sem kom
fjölskyldudeilunum af stað.
Þegar peningaskápurinn
var opnaður fyrst, var frú
Vichitra Thanarat, önnur
kona marskálksins, viðstödd,
og tók hún eitthvað af því
sem í skápnum var. Nokkrum
dögum seinna opnaði Setha
Thanarat, elzti sonur mar-
Sarit Thanarat
skálstns og fyrstu konu hans,
skápinn með eigin lykli, og
var skápurinn þá tómur. —
Grunaði hann að frú Vichitra
ætti hér hlut að máli. Setha,
sem er majór í hernum, leit-
aði þá aðstoðar móður sinnar
og bróður og óskuðu þau eft-
ir að fá dómkvadda menn til
að skipta eignunum. Þegar
hér var komið, var málið orð-
ið opinbert, og blöðin keppt-
ust um að birta nýjustu frétt-
ir. Eitt blaðanna sagði að
þetta mál ætti eftir að verða
enn meira hneykslismál en
Profumo og Keeler í Englandi.
Margar af blaðagreinunum
hafa verið um „auka eiginkon-
urnar“, en þær voru rúmlega
20. Hefur eitt blaðanna birt
viðtal við 19 þeirra. Flestar
eru þær fegurðardrottningar
eða leikkonur. Flestar hafa
verið ófeimnar og skýrt frá
því að marskálkurinn hafi
ekki leitað þær uppi, heldur
kynnzt þeim gegnum aðrar
konur, sem höfðu milligöngu
og tóku sinn hlut af umbun
þeirra.
Stúlkurnar segja að mar-
skálkurinn hafi jafnan verið
mjög kurteis í viðmóti. Allar
fengu þær eigin hús, a.m.k.
einn bíl og föst mánaðar-
laun. Ein stúlknanna segir að
á fyrsta fundi þeirra Thanar-
ats hafi henni Verið afhentar
tvær ávísanir, samtals að upp-
hæð 260.000 baht (ísl. kr. 540
þúsund). Fæstar stúlknanna
höfðu vit á því að láta þing-
lýsa eignir sínar, og nú hefur
frú Vichitra Thanarat gert
kröfu til eignanna. Hafa
nokkrar stúlknanna leitað að-
stoðar hjá innanríkisráðherr-
anum. Aðrar hafa stofnað
sameiginlegan sjóð til að reka
málið fyrir rétti.
En nú er kominn fram bar-
áttumaður fyrir rétti „auka
eiginkvennanna“. Er það Pao
Waikuna, sem áður hafði yfir-
umsjón með bílaflota mar-
skálksins. Hann hefur höfðað
mál gegn frú Vichitra, og
krefst þess að hún afhendi
vottorð er sanni eignarrétt
hans á 27 fasteignum í Bang-
kok. Heldur Waikuna því
fram að Thanarat 'hafi látið
skrá þessar fasteignir á hans
nafn, en hann hafi síðan átt
að afhenda stúlkunum þær.
Frú Vichirta á því eftir að
standa í málaferlum bæði við
Waikuna, fyrir hönd „auka
eiginkvennanna", og við stjúp
syni sína tvo.
Mál þetta hefur vakið mikla
athygli, eins og gefur að
skilja, og er ríkisstjórnin til-
neydd að rannsaka það nánar.
Hefur Thanom Kittikachorn
forsætisráðherra í því skyni
skipað fimm manna rannsókn-
arnefnd undir forustu fyrrver
andi forseta hæstaréttar. —
Leggur forsætisráðherrann á-
herzlu á að verkefni nefndar-
innar sé eingöngu að rann-
saka hvort almenningsfé hafi
lent í fjárhirslum Thanarats,
en hún eigi ekki að hafa »f-
skipti af fjölskylduerjum.
Rannsókn þessi mun sjálf-
sagt taka langan tíma, og
sama er að segja um réttar-
höldin. En það verður fylgzt
með af áhuga í Thailandi.
lætur það daga uppi, eins og
það er kallað.
Þingsköp Alþingis eru að
meginstofni tæplega þriggja
áratuga gömul. Það er athug-
unarefni, hvort nauðsynlegt
sé að endurskoða þau ogskapa
möguleika á greiðari af-
greiðslu mála. Þá eru uppi
tíðar raddir um það, að deilda
skipan Alþingis sé að verða
úrelt. Það gæti verið fróðlegt,
ef fyrir lægi álitsgerð stjórn-
skipunarfræðinga á þessum
atriðum.
4ra ára telpa fyrir
bíl í KeHavík
UM KL. þrjú á föstudag varð
umferðarslys í Keflavík, þegar
fjögurra ára telpa varð fyrir
fólksbíl á Vesturbraut. Að sögn
bílstjórans kom telpan hlaup-
andi frá hægri og lenti á hægra
framhjóli bílsins. Telpan fót-
brotnaði og hlaut áverka á höfði.
Var hún flutt í sjúkrahús.
AKRANESI, 11. paríl. — 170
tonn bárust hér á land í gær af
18 bátum. Höfrungur III land-
aði 2 lestum, sem hann fékk
í þorskanótina. 8 bátar héðan
eru á sjó í dag. — Oddur,
Japanskt
sjónvarp
í Moregi
Oslo, 10. apríl — AP
NORSKIR sjónvarpseigendur
fá brátt tækifæri til að fylgj-
ast með beinni sjónvarpssend
ingu frá Japan. Verður það
nk. fimimtudag, 16. apríl.
Hér er um að ræða 20 mín-
útna þátt, sem sendur verður
um sjónvarpshnöttinn Teistar
2. M. a. verður sýndur undir-
búningur að OL-leikjunum,
sem fram fara í Tokyo síðar 4
árinu.