Morgunblaðið - 14.04.1964, Blaðsíða 28
IELEKTROLUX UMBOOIO
'lauoavíoi Míími 21800
84. tbl. — Þriðjudagur 14. apríl 1964
I
KELVINATOR
KÆLISKAPAR
Mskís. LAUGAVEGI
Kjálkabrotinn á báð-
um og nefbrotinn
í slagsmálum í Keflavík
AÐFARANÓTT sunnudags slóg-
ust tveir menn svo rækilega
utan við Ungmennafélagshúsið í
Keflavík, að annar kjálkabrotn-
aði báðum megin og nefbrotnaði.
í>etta gerðist kl. 12—1 um nótt-
ina, áður en dansleik lauk. Sá
slasaði var keflvískur sjómaður,
en hitt er Reykvíkingur sem
starfar við fiskvinnslu í Kefla-
vík.
í>egar lögreglan kom á vett-
vang var Reykvíkingurinn horf-
inn, en fannst skömmu seinna,
l>ar sem hann reyndi að dyljast
í húsagarði. Var hann tekinn fast
ur. A honum sáust engir áverk-
ar. Hinn maðurinn var fluttur
til læknis og síðan á Landsspít-
alann.
í>égar Keflavíkurlögreglan
var á leið heim í leigubíl veitti
lögregluþjónn athygli bifreið,
sem ekki virti biðskyldu við Hlíð
arveg og Hafnarfjarðarveg og
þar tveimur dögum síðar. Gunn-
ar var 66 ára að aldri.
var ekið eitthvað undarlega.
Meðan hann gáði betur að, ók
bílstjóri þar aftan á leigubílinn
sem lögreglan var í. Reyndist
ökumaður drukkinn og var af-
hentur lögreglunni í Hafnarfirði.
Lézt of slysför-
um við höfnina
GUNNAR Halldórsson, verka-
maður, Laufásvegi 45B, lézt á
laugardagsmorgun á Landakots-
spítala af völdum slyss, sem hann
varð fyrir sl. fimmtudag við
Reykjavíkurhöfn.
Gunnar var að vinna við að
taka á móti vörum úr Brúar-
fossi. Stóð hann uppi á palli
vörubifreiðar, er stroffa slóst í
hann. Féll hann niður af pallin-
um og höfuðkúpubrotnaði. Hann
var fluttur á sjúkrahús og lézt
Blnðamanno-
klúbbur 1 kvöld
BLAÐAMANNAKLÚBBURINN
er opinn í kvöld í Þjóðleikhús-
kjallaranum fyrir blaðamenn og
gesti þeirra. Gestur kvöldsins
er Lúðvíg Hjálmtýsson og mun
Ihiann spjalla um veitinga- og
gisfihús og ferðamál. Hefst
spjall Lúðvígs kl. 9.30.
Verkfall hjá
verkamönnum
Tveir ísl. togarar héldu
þaðan til Hull
DEILUR komu upp sl. sunnudag
um landanir úr togurum í Grims
by, sem leiddu til þess að hafn-
arverkamenn lögðu niður vinnu
við fisklandanir. Brezkum tog-
araeigendum tókst að láta sjálf-
boðaliða landa miklum hluta afl-
ans úr brezku togurunum, en er-
lendir togarar voru útilokaðir
á meðan frá löndun. Tveir ís-
lenzkir togarar, Askur og Ingólf-
ur Arnarson, komu á sunnudag
til Grimsby með fisk til sölu.
Þeir héldu báðir til Hull, til að
Fjallvegir ill-
færir eða
lokaðir
FYRIR helgina gekk hríð yfir
Norður- og Vesturland og teppt-
ust ýmsir fjallvegir, en aðrir
urðu þungfærir. Siglufjarðar-
skarð lokaðist alveg og varð að
skilja þar eftir 4 bíla. Gekk fólk-
ið úr bílunum. I einum þeirra
var lík, sem var verið að flytja
suður, og var það sótt daginn
eftir og borið niður. Einnig lok-
aðist alveg Lágheiði til Ólafs-
fjarðar, nema hvað jeppar hafa
farið þar yfir.
Skv. upplýsingum frá vega-
málaskrifstofunni var leiðin
norður í land sæmileg, nema
hvað Öxnadalsheiði var illfær.
Bílar skröltu þó þar yfir, en í
gær var ýta á leið upp til að
ryðja veginn. Vaðlaheiði var fær
bílum.
Á Vestfjörðum lokaði þessi
snjókoma Breiðadalsheiði og
Botnsheiði og þar hafði ekki ver-
ið hægt að hreinsa í gær.' En
Þorskafjarðarheiði og Þing-
mannaheiði voru lokaðar fyrir.
Nýmæli í útsvars-
og skaftamálum
í KVÖLD flytur Gunnar Thor ný viðhorf skapazt í þessum
eddsen f já.rmálaráðherra efnum <(> mun ráðherrann
ræðu á Varðarfundi um efnið: gera þau að uir‘alsefni. Að
Nýmæli í útsvars- og skatta- lokinni ræðu hans verða frjáls
málum. ar umræður .
Eins og alkunna er voru Allt Sjálfstæðisfólk er hvatt
gerðar viðtækar skattalækk- til þess að koma til fundar-
anir 1960 og aftur var skatta- ins, sem haldinn er í Sjálf-
lögunum breytt 1962. Nú hafa stæðishúsinu og hefst kl. 8,30.
landa þar á þriðjudag og mið-
vikudag, áður en hafnarverka-
menn í Grimsby höfðu með at-
kvæðagreiðslu ákveðið í gær-
kvöldi að taka aftur upp vinnu á
þriðjudagsmorgun.
Eftirfarandi fréttir af deilum
fékk M)bl. í einkaskeyti frá AP
og í símtali við F. Huntly wood-
cock, fiskiráðunaut ísl. sendiráðs
ins í BretlandL
Stéttarfélag hafnarverka-
manna í Grimsby sér uta að af-
ferma togarana og eru meðlimir
þess allir sérslaklega skráðir til
þess. Félagið hefur veitt sam-
þykki sitt til, að þegar mjög mik
ið berst að af fiski á sumrin,
megi ráða lausamenn til hjálpar
vfð landanir. Á sungmdaginn
réðu togaraeigendur 144 lausa-
menn til uppskipunar, en hafn-
arverkamenn töldu að það hefði
hafnar-
í Crimsby
verið óþarfi og þetta væri brot
á samþykktum reglum.
Á miðnætti á sunnudag lögðu
540 verkamennirnir niður vinnu
v i<5 togarana af þessum sökum
0;» héldu verkamenn verkfall-
inu áfram á mánudagsmorgun.
íiomið var upp sjálfboðaliðs-
sveitum frá togaraeigendum og
skrifstofuliði, sem landáði helm-
Lng, til tveim þriðju hlutum af
1100 lesta afla, er beið í 30 tog-
urum.
Meðan á verkfallinu stóð voru
ailir erlendir togarar útilokaðir
frá löndun í Grim'Sby. íslienzku
togararnir tveir, Askur og Ing-
óitfur Arnarson, sem voru ný-
k.omnir með 270 lestir af fiski,
bréldu yfir Humberfljót til Hull
Cjg ætluðu að landa þar fyrir
þriðjudagsmarkaðinn og mið-
vikudiagsmarkaðinn, Askur um
117 lestum og Ingólfur Arnar-
s-on 150 lestum.
í gærkvöldi ákváðu hafnar-
verkamenn í Grimsby með at-
kvæðagreiðslu að taka aftur upp
vtnnu á þriðjudagsmorgun.
Lýðræðissinmar sjálf-
kjörnir í Frama
LAUGARDAGINN 11. apríl var geirsson. Meðstjórnendur: Jakob
Þorsteinsson og Gestur Sigur-
jónsson.
Stjórn Launþegadeildar er nú
skipuð þessum mönnum: For-
maður: Pétur Kristjánsson. Vara
formaður: Kristján Jóhannes-
son. Ritari: Einar Steindórsson.
útrunninn framboðsfrestur til
stjórnarkjörs í Bifreiðastjórafé-
laginu Frama.
Einn framboðslisti barst í
hvorri deild félagsins og var því
sjálfkjörið í báðum deildum.
Stjórn Sjálfseignarmannadeild
ar er nú skipuð þessum mönn-
um: Formaður: Bergsteinn Guð-
jónsson. Varaformaður: Narfi
Hjartarson. Ritari: Kristján Þor
Tvö börn
fyrir bíl
Á LAUGARDAG urðu tvö börn
fyrir bíl á Langholtsvegi, á móts
við húsið nr. 106. Bifretd var á
leið eítir Langholtsveginum, er
níu ára drengur hljóp skyndi-
lega fram fyrir hann. Bílstjórinn
reyndi að forða slysi með því að
beygja frá, þannig að drengur-
inn lenti aðeins á framhorni bíls
ins og féll út fyrir hlið hans.
Þegair bílinn sveigði út af lenti
hann á 8 ára gamalli telpu, sem
varð fyrir framenda bílsins, er
hann var að renna á steingarð.
Er talið að hún hafi orðið þar
á milli, en hún iærbrotnaði. Var
telpan, Ragnheiður Arnardóttir,
Sigluvogi 12, fiutt á sjúkrahús,
en drengurinn, Hjalti Eggerts-
son, Langholtsvegi 103, var flutt
ur á slysavarðstofuna með skrám
uir á fótum og kúlu á höfði og
síðan sendur heim.
Árekstur á
Holtavörðuheiði
Á SUNNUDAG óku tveir Reykj*
víkurbílar saman á Holtavörðu-
heiði skammt fyrir ofan Forna-
hvamm. Mættust bílarnir á blind
hæð og lentu þar saman. í Volks
wagen bílnum voru 4 manneskj-
ur, en tveir í Saab bílnum. Eng-
in alvarleg slys urðu á fólki og
má það teljast mildi, svo harð-
ur sem áreksturinn varð. Báðir
bílarnir eru mjö.g mikið skemmd
ir að framan, svo sem sést á
myndinni. Kallað var á lækni frá
Kleppjárnsreykjum og iögreglan
úr Borgarnesi kom á slysstað.
Akranesbátar
AKRANESI, 13. apríl. — Tveir
nótabátar lönduðu hér á laugar-
daginn, Sigurður 55 tonnum og
Höfrungur II 27 tonnum. f nótt
kom Höfrungur III inn með 20
tonn. Treg veiði hefur verið í
þorskanetin yfir helgina.
Þórarinn Olgeirsson
alvarlega slasaöur
ÞÖRARINN Olgeirsson, ræðis-
maður íslands í Grimsby, lenti
í bilslysi sl. laugardag og liggur
mikið slasaður í sjúkrahúsi.
Þórarinn var á leið heim í
hádegismat í bíl sínum á laugar-
dag, er árekstur varð milli hans
og ungs pilts á reiðhjóli. Lauk
því svo að bíll Þórarins lenti á
tré. Við það slasaðist Þórarinn,
sem var einn í bílnum, fjögur
rifbein brotnuðu og eitt þeirra
heíur gengið inn í lungað. Skv.
fréttum sem blaðfð fékk frá Eng
landi í gær, liggur Þórarinn
hættulega slasaður í sjúkrahúsi.
Þórarinn hefur um árabil ver-
ið umboðsmaður íslenzkra tog-
ara í Grimsby og ræðismaður ís
lendinga þar í yfir 15 ár.
skeyti frá AP fréttastofunni, þar
sem segir: „íslenzki ræðismaöur
inn í Grimsby, Þórarinn Olgeirs
son, sem hefur unnið mikið starf
í sambandi við landanir ís-
lenzkra togara, er þungt haldinn
eftir bílslys í Grimsby sjúkra-
húsinu, skv. upplýsingum þaðan
á mánudag.
Ræðismaðurinn, sem er 81 árs
að aldri, lenti í bíl sínum I
árekstri við hjólreiðamann á
laugardag. Hjólreiðamaðurinn
Nigel Daa Gay, er einnig illa
slasaður.
Þórarinn Olgeirsson er kunnur
maður við höfnina í Grimsby,
þar sem hafnarverkamenn og
togarakarlar kalla hann „Uncle
OIgy“. Sonur hans er togara-
í gærkvöldi barst Mbl. einka- skipstjóri í Grimsby.