Morgunblaðið - 19.04.1964, Side 30
30
MOnCUNBLAÖIO
Súnifucfáguí 20. apríí 1964. '
— Erlend tíðindi
Framhald af bls. 13.
verkalýðssamtaka í þeim mál-
um.
• Samdráttur í lánastarfsemi,
einkum sé dregið úr neyzlu-
lánum.
# Skattahækkanir, eða nýir
skattar.
Ailir virðast sammála um, að
draga beri úr eftirspurn heima
fyrir, en hún hefur verið svo
mikil, að komið hefur niður á
útflutningi, auk þess, sem inn-
flutningur hefur farið fram úr
því, sem góðu hófi gegnir.
Afleiðing þess hefur orðið sú,
að allmikill halli hefur komið
fram á viðskiptajöfnuði. Þetta
hefur einkum gert vart.við sig
í Frakklandi, Ítalíu og Hollandi.
Verðhækkun neyzluvara hefur
orðið mest í þessum þremur
ríkjum að undanförnu. Hins
vegar hafa þær ekki verið eins
miklar í V-Þýzkalandi og Belgíu.
Verðmismunur sá, sem þannig
hefur orðið á neyzluvörum inn-
an banöalagsins, hefur m. a.
orðið til þess, að í Frakklandi
hefur eftirspurn eftir v-þýzkum
vörum aukizt.
Bandalagsríkin eiga þannig
við nýtt vandamál að etja: sam-
ræmingu aðgerða gegn verð-
bólgu Takist það, er miklum
vanöa bægt frá.
t ríkjum Fríverzlunarsvæðis-
ins, EFTA, hefur ekki verið
talin ástæða til að grípa til
slíkra aðgerða, enda sú skoðun
almenn meðal stjórnmálamanna,
a.m.k. ennþá, að verðbólguhætt-
an sé hvorki mikil, né aðkall-
andi.
Afgreiðslumann
vantar okkur nú þegar.
Ræsír hf.
Afgreiðslumaður
Óskum að ráða vanan afgreiðslumann í
byggingavöruverzlun vora nú þegar eða
eftir samkomulagi.
Uppiýsingar á skrifstofu vorri jgl ludvig 1
1 STORR J
Laugavegi 15, 11. hæð. ^ J
Þú ert broshýr,
þykir mér.
Já, ég er að fara
tii útlanda með
Flugfélaginu.
Jaó verður dásamlegt
að hvíla sig í
Kaupmannahöfn,
fara í Tívolí, verzla
á Strikinu, njóta
lífsins eftir allt stritið!
Flugfélagið býður 25 '°/o afslátt af
fargjöldum til útlanda ívertíóarlokin.
perðin til Hafnar verður þá 1688
krónum ódýrari. Leitið upplýsinga um
lágú fargjöldin hjá Flugfélaginu eða
ferðaskrifstofunum.
fo/Zf/Sj
///?
ICJELAJVJOAIM9.
Námsstyrkur
bor«arstjórnar-
innar í Kiel
BORGARSTJÓRNIN i Kiel mun
veita islenzkum stúdent styrk til
námsdvalar við háskólann þar í
borg næsta vetur.
Styrkurinn nemur DM 300,—
á mánuði í 10 mánuði, eða sam-
tals DM 3000,— til dvalar í Kiel
frá 1. okt. 1964 til 31. júlí 1965,
auk þess sem kennslugjöld eru
gefin eftir.
Um styrk þennan geta sótt
allir stúdentar, sem hafa stundað
hás'kólanám í a. m. k. þrjú miss-
eri í guðíræði, lögfræði, hag-
fræði, læknisfræði, málvísind-
um, náttúruvísindum, heimspeki,
sagnfræði og landlbúnaðarvís-
indum.
Ef styrkhafi óskar eftir því,
verður 'honum komið fyrir í
stúdentagaiði, þar sem fæði og
húsnæði kostar um DM 200,— á
mánuði.
Styrkhafi skal vera kominn til
háskólans eigi síðar en 15. okt.
1964 til undirbúnings undir nám-
ið, en kennsla hefst 1. nóvember.
Umsækjendur verða að hafa
nægilega kunnáttu í þýzku.
Umsóknir um styrk þennan
skal senda skrifstofu Háskóla
íslands eigi síðar en 30. apríl n.k.
Umsóknum skulu fylgja vottorð
a. m. k. tveggja manna um náms-
ástundun og námsárangur og
a. m. k. eins manns, sem er per-
sónulega kunnugur umsækjanda.
Umsóknir og vottorð skulu vera
á þýzku.
(Frá Háskóla íslands)
Yfir 50 lestir í
roön
Akranesi, 17. april: —
HÖFRUNGUR II landaði hér í
morgun 51 lest, sem hann fisk-
aði ínet og nót og Sólfari 53,5
tonnum, er hann fiskaði í net.
14 netabátar lönduðu hér í gær,
trillubáturinn Hafþór er fékk 2
tonn og þilfarstrillubáturinn
Froeti, sem fiskaði 1,7 tonn.
— Oddur.
GUSTAF A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmaður
Þórshamri við Templarasund
Sími 1-11-71
Cerum við
kaldavatnskrana og W.C.
hana.
Vatnsveita Aeykjavíkur
Símar 13x34 og 18000
Senuaft
Roigeymar
fyrir báta og bifreiðar.
6 og 12 volta. Margar staferðir.
Rafgeymahleðsla
og viðgerðir.
RAFGEYMABÚðlM
Husi sameinaða.
Skrifstofuherbergi óskast
nú .þegar, má vera lítið, þarf ekki að vera í mið-
bænum. Tilboð sendist í Box 278 fyrir þriðjudag.
Úfboð — Húsgögn
Tilboð óskast í smíði á skrifstofuhúsgögnum, allt
um 200 skrifborð. — Teikninga- og útboðslýsinga
má vitja á teiknistofu SÍS gegn 1000 kr. skila-
tryggingu.
Teiknistofa SÍS
Hringbraut 119.
íbúð fil leigu
Tvær samliggjandi stofur, (35 fm.) ásamt eldhúsi
og baði, og innri- og ytri- forstofu á aðal-hæð
í Blönduhlíð 8, Rvík. Hitaveita.
íbúðin er til sýnis í dag (sunnudag) kl. 2—6 s.d.
Tekið á móti tilboðum á staðnum.
F. J.
B A T A R
Getum tekið að okkur smíði á bátum úr aluminium,
stærðir allt að 14—16 tonn.
Til dæmis um hina mörgu kosti aluminíum báta viljum
við taka fram eftirfarandi:
Þeir hvorki ryðga eða tærast, viðhaldskostnaðiu’
er þess vegna ávallt í lágmarki.
Þeir eru léttari, bera meira og ganga betur með
sömu vélarorku.
Fiskimenn í Bandaríkjunum og Kanada, hafa fyrir
löngu uppgötvað kosti aluminiumbáta, og nota þá
í þúsundatali.
Leitið nánari upplýsinga.
Vélsmiðja Bjöms IHagnussonar
Keflavík — Símarl737 og 1175.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimmiiiiiiiimiiiiiiimiiiiiiiiniimmiiiiiw
FREDENSBORG — ÚRVAL SV-lands
leika í dag kl. 3,30 í íþróttahúsi Keflavíkurflugvalla r. — Ferðir úr Lækjargötu kl. 2.
Aðgöngumiðar seldir við bílana og í flugvallarhliði nu.
VÍKINGUR.