Morgunblaðið - 05.06.1964, Blaðsíða 3
Föstudagur 5. jún! 1964
MORGUNBLAÐIÐ
3
piiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiiimiiiimiiiiiiiiiii
H UM KIj. hálf fjögur í fyrri-
| nótt veittu lögreglumenn á
g eftirlitsbíl athygli bilnum
S G-2569 við Skúlatorg og þótti
= ekki allt með felldu um akst
= ur hans. Hugðust lögreglu-
S menn stöðva bílinn og athuga
E ökumann, og óku því fram úr
|j honum. Steig ökumaður
E G?2569 þá benzínið í botn og
= fór aftur fram úr lögreglu-
S bílnum, og upphófst siðan elt
= ingaleikur, sem lauk ekki fyrr
g en uppi í Mosfellssveit, en
= þar tókst loks að þvinga öku-
= fantinn út af veginum, og
STAKSTEIiAH
Leikurínn berst eftir Vesturlandsvegi. Myndin var tekin við Grafarholt, og augnabliKi siöar rakst
bíll þess drukkna á annan lögreglubílinn, sem reyndi að fara fram úr.
Eltingaleikur I fyrrinótt:
Ók í krákustígum fyr-
ir lögreglubílana
Ölvunarakstur pilts, sem nýlega hefur
fengið ökuréttindi
handsama hann. Var hann
þegar færður í járn enda
drukkinn svo sem vænta
mátti.
Er bíllinn, sem var af
Chevrolet gerð, fór fram úr
lögreglubílnum við Skúlatorg
gerðu lögreglumenn aðvart
um talstöð. Bættist brátt ann
ar eftirlitsbíll í eltingaleik-
inn, svo og einn leigubíll og
loks óeinkennisklæddur lög-
reglumaður í einkabíl sinum.
Leikurinn bart eftir Suðúr
landsbraut og inn á Vestur-
landsveg. Ók G-2569 í kráku
stígum, og hindraði að lög-
Ekið fram úr ökufantinum um síðir. Hann sést við stýri bíls síns, en hefur ekki numið staðar. —
Annar lögreglubilanna sést á eftir. Þessi var tekin úr leigubíl, sem skauzt fram úr.
(Ljósm. Mbl.: Ingi Jensen)
Sjómannadagurinn
á sunnudaginn
N Ú á sunnudaginn kemur er
sjómannadagurinn hátíðlegur
haldinn. Af þvi tilefni voru
fréttamenn.kvaddir á fund stjórn
ar Sjómannadagsráðs í gær, en
hana skipa Pétur Sigurðsson, for-
maður, Guðmundur H. Oddsson,
gjaldkeri, Kristens Sigurðsson,
ritari, Hilmar Jónsson og Xómas
Guðjónsson.
Eitt aðalverkefni Sjómanna-
dagsráðs er að sjá um hátíðahöld
á sjómanna’daginn. Þetta er 27.
sjómannadagurinn. Eru nú 196
vistmenn á Hrafnistu, sem Sjó-
mannadagsráð sér um; þar af 44
á sjúkradeild. Auk þess sér
6tjórn ráðsins um rekstur Laug-
arássbíós og sumardvalarheimilis
fyrir börn sjómanna í Lauga-
landi í Holtum fyrir börn sjó-
manna úr ReykjaVík, Seltjarnar-
nesi, Kópavogi, Garðahreppi og
Hafnarfirði. Þar dvöldust 40 börn
í fyrrasumar, en verða yfir 50 í
sumar. Einnig sér ráðið um út-
gáfu Sjómannadagsblaðsins, en
ritstjórar þess nú eru Halldór
Jónsson og Guðmundur H. Odds-
son.
Dagskrá Sjómannadagsins 1964
verður með þessum hætti:
Kl. 08.00: Fánar dregnir að hún
á skipum í höfninni.
Kl. 10.00: Sala á merkjum Sjó-
mannadagsins og Sjómannadags-
blaðinu hefst.
11.00: Hátíðamessa í Laugarás-
bíói. Prestur séra Grímur Gríms-
son. Söngkór Laugarnessóknar
syngur. Söngstjóri Kristinn Ingv-
arsson.
13.30: Lúðrasveit Reykjavíkur
leikur sjómanna- og ættjarðar-
lög á Austurvelli.
13.45: Mynduð fánaborg á
Austurvelli með sjómannafélaga-
fánum og íslenzkum fánum.
14.00: 1) Minningarathöfn: a)
Biskup íslands, hr. Sigurbjörn
Einarsson minnist drukknaðra
sjómanna, b) Erlingur Vigfússon
tenórsön'gvari syngur. 2) Ávörp:
a) Emil Jónsson, sjávarútvegs-
málaráðherra, fulltrúi ríkis-
stjórnarinnar, b) Valdimar Indr-
iðason, framkvstj. frá Akranesi,
fulltrúi útgerðarmanna, c) Örn
Steinsson, vélstjóri, forseti FFSÍ,
fulltrúi sjómanna, d) Pétur Sig-
urðsson, alþingismaður formað-
ur Sjómannadagsráðs, afhendir
heiðursmerki Sjómannadagsins,
e) Erlingur Vigfússon, tenór-
söngvari, syngur. — Lúðrasveit
Reykjavíkur, stjórnandi Páll P.
Pálsson, annast undirleik og leik-
ur á milli ávarpa.
Um kl. 15.45, að loknum há-
tíðahöldunum við Austurvöll,
hefst kappróður við Reykjavíkur-
höfn. Verðlaun afhent.
Sjómannadagskaffi verður í
Slysavarnahúsinu á Grandagarði
frá kl. 14.00.
Á sjómannadaginn, sunnudag-
inn 7. júní verða kvöldskemmt-
anir á vegum sjómannadagsins á
eftirtöldum stöðum:
Súinasal Hótel Sögu, sjómanna-
dagshóf. Breiðfirðingabúð, gömlu
og nýju dansarnir. Glaumbæ,
reglubílarnir kæmust fram úr
honum.
Við Grafarholt rakst bíllinn
utan í einn lögreglubílanna i
þessum aðförum, og skemmd
ist lögreglubíllinn nokkuð.
En er kom að malargryfjum,
sem eru við veginn móts við
Helgafell í Mosfellssveit,
tókst bílunum, sem eltu, í fé-
lagi að þvinga bíl ökuníð-
ingsins út af veginum. Reyndi
ökumaðurinn þá að aka afturá
bak upp á veginn aftur til að
halda áfram flóttanum, en
lögreglumönnum tókst að aka
einum efitrlitsbílanna aftan á
bílinn og festa hann þarna
Var ökumaðurinn þar hand-
tekinn og járnaður.
Hér var um að ræða ungan
pilt, sem öðlaðist ökuréttindi
fyrir réttum mánuði. Bílirtn
hafði piltúr þessi keypt á bíla
sölu nýlega.
Við yfirheyrzlur í gær ját
aði pilturinn að hafa gert allt
sem í valdi hans stóð, til þess
að hindra lögregluna í því að
komast fram fyrir bíl sinn, og
ná sér. Kvaðst hann ekki hafa
verið með sjálfum sér eftir að
eltingarleikurinn hófst.
1.........IIHI......
dansleikur, skemmtiatriði. Ing-
ólfscafé, gömlu dansarnir. Klúbb-
urinn, dansleikur, skemmtiatriði.
Röðull, dansleikur. Sigtún, dans-
leikur, skemmtiatriði.
Allir dansleikirnir standa yfir
til kl. 02.00.
Sjómannadagsblaðið verður af-
hent blaðsölubörnum í Hafnar-
búðum og Skátaheimilinu við
Snorrabraut á laugardaginn kl.
14.00—17.00.
Einnig verða merki Sjómanna-
dagsins og Sjómannadagsblaðið
afhent sölubörnum á Sjómanna-
daginn, sunnudaginn 7. júní frá
kl. 10.00 á eftirtöldum stöðum:
Hafnarbúðum, Skátaheimilinu
við Snorrabraut, Réttarholts-
skóla, Sunnubúð við Mávahlíð,
Vogáskóla, Melaskóla, Drafnar-
borg, Leikskóla og dagheimili,
Safamýri 5, og Laugalækjarskóla.
Auk venjulegra sölulauna fá
börn sem selja fyrir 100.00 kr.
eða meira aðgöngumiða að kvik-
myndasýningu í Laugarásbíói.
Munið eftir sjómannakaffinu í
Slysavarnahúsinu!
20 þús. á
10 dögum
Höfn, Hornafirði, 4. júní:
FJÓRIR bátar stunda humar-
veiðar frá Hornafirði og hef-
ur afli þeirra verið jafn og
góður. Mun hásetahlutur vera
orðinn röskar 20.000 krónur á
tíu sólarhringa veiðum. Verið
er sem áður að búa stærri bát
ana á síldveiðar fyrir norðan
og austan. Héðan munu fara
fimm bátar, þeir fyrstu eftir
nokkra daga. — Fréttaritari.
Framsókn utan gátta
í forystugrein „Alþýðublaðs-
ins“ sl. miðvikudag segir:
„Framsóknarmenn eru utan
gátta um þessar mundir. Þeir
eiga enga aðild að viðræðum rík-
isstjómarinnar við alþýðu- og at-_
vinnurekendasamtökin og hafa
því engan þátt á.tt í þeirri leit að
samkomulagi, sem gerð hefur
verið og vonandi ber góðan árang
ur.
Tíminn kann þó ráð við slík-
um vanda. Hann tilkynnir les-
endum sínum, að samningar
milli ríkisstjórnar og alþýðusam-
takanna séu árangur af störfum
Framsóknarflokksins! Þeir sjá
nú fram á farsæla lausn þessara
mála, og eru þegar byrjaðir að
þakka sjálfum sér málið, þótt
þeir kæmu þar hvergi nærri!“
Úthýst úr eigin húsi
Fyrir nokkru birtist þessi for-
ystugrein í „fslendingi":
„Dagur segir nýlega frá. heim-
sókn norðlenzks bónda í höfuð-
staðinn. Langaði bóndann þar til
að skyggnast um sali í hinni
miklu gistihöll fyrir erlenda
ferðamenn, sem hann hafði lagt
fé í og orðin var með dýrustu
og glæsilegustu byggingum lands
ins. Er hann bar að garði við
Bændahöllina, búinn „sánu
skásta“, dreif þar að mikinn
fjöldi skartbúinna kvenna og
karla. Þjónar opnuðu upp á gátt
fyrir hefðarfólkinu og hneigðu
sig niður undir gólf. Meðeigandi
hallarinnar ætlaði að fara inn á
eftir (og e.t.v. líta á einhverja
hinna fjögurra vínstúkna, þó
ekki væri annað), en þá var
liurð hallað það nærri stöfum,
að vart var nema „svo sem þuml-
ungs rifa milli stafs og hurðar."
Og manni skilst, að þessi rifa
hafi verið minni en á Gullna
hliðinu forðum, er kona Jóns gat
fleygt skjóðunni inn um rifuna.
Það er raunar von, aj norð-
lenzka bóndanum finnist fátt um
þessar viðtökur í sínu eigin
húsi. Hitt má þó ekki gleymast
að Framsóknarbændur eru mjög
ánægðir með þá skattlagningu,
sem bygging þessarar gistihall-
ar hefur búið þeim. En að sama
skapi eru þeir æfir út af hlið-
stæðri skattlagningu til eflingar
lánastofnunum landbúnaðarins,
þeim sjálfum og afkomendum
þeirra til trausts og eflingar í
starfi framtiðarinnar. Neytendur
eru einnig skattlagðir til efling-
ar hinna sömu sjóða, og hefur
frá þeim heyrst hvorki hósti né
stuna. En Framsóknarbændur
hafa kannske fremur viljað aðra
bændahöll fyrir erlenda gesti.“
Verðbólgan
og vinstri stjórnin
„Alþýðublaðið“ vakti fyrir
nokkru athygli á ritstjórnargrein
sem birzt hafði í „Timanum“.
Segir blaðið svo m.a.:
„í ritstjórnargrein Tímans . . .
var athyglisverð játning. Þar var
rætt um ástand mála haustið
1958, þegar vinstri stjórnin var
að liðast sundur vegna ósam-
komulags .Síðan segir Tiininn
orðrétt: „Þá beitti Framsóknar-
flokkurinn sér fyrir hliðstæðum
samningum, en fékk ekki stuðn-
ing hjá öðrum flokkum. Ekkert
samkomulag náðist því þá og
hefur það stuðlag hvað mest að
því verðbólguflóði, sem síðan
hefur farið yfir landið“.
Með þessum orðum viðurkenn-
ir Tíminn, að verðbólguflóð und
anfarinna ára stafi hvað mest af
því, að vinstri stjórninni tókst
ekki að leysa þau mál. Þetta
stangast mjög á við þá kenningu,
að verðbólgan sé viðreisninni að
kenna, og má því búast við, að
einhverjum Framsóknarlesend-
um hafi brugið við lestur Tím-
ans“.