Morgunblaðið - 05.06.1964, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.06.1964, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ Föstudagur 5. júní 1964 Myndin var tekin í Stórólfshvolskirkju á sunnudaginn var, þegar kosið var til Oddaprestakalls. Kjörstjórnarmenn sitja fyrir miðri kirkju. Taldir frá vinstri: Guðmundur Pálsson, verzlunarmað- nr, Páimi Eyjólfsson, sýslufulltrúi, og Páll Björgvinsson, oddviti. (Ljósm. Mbl.: Ottó Eyfjörð) — Góður hagur Framh. af bls. 1 arinnar um 30 millj. til þess að mæta kauphækkun fastra starfsmanna, en að svo miklu leyti, sem ekki þyrfti að nota þessa upphæð alla í þeim tilgangi — skyldi hluti þessarar hækk- unar mæta útgjöldum vegna ráð gerðra aukinna framkvæmda við fullnaðarfrágang gatna. Ljóst var, að útsvarsupphæðina var unnt að hækka um þessar 30 milljónir kr. vegna stórhækkaðra tekna gjaldenda. Rekstrargjöld undir áætlun — tekjur hærri en áætlað var Eftir þessar breytingar og aðr ar minni háttar síðar á árinu varð gjaldaáætlunin alls um 375,7 millj. en samkvæmt reikn ingum urðu rekstrargjöidin hins vegar 374,5 millj. eða 1,2 millj. lægri en endanieg fjárnagsáætl- un. Tekjur voru áætlaðar 442.5 milij. en urðu samkvæmt reikn- ingum 470,4 millj. eða 27,8 millj. hærri en áætlað hafði verið. Raunverulegar umframtekjur á árinu 1963 hefðu hins vegar að- eins numið um 4 miilj. kr. þar sem færðar hefðu verið til tekna nokkrar upphæðir, sem ekki hefðu verið innheimtar í árslok Þessar 4 millj. ásamt óeyddum fjárveitingum til gatnagerðar 15 millj. svo og lækkun sjóðseignar kr. 13,2 millj. hefðu gengið til niðurgreiðslu viðskiptamanna- skulda og til framkvæmda. Nýjar götur og holræsi Þá vakti borgarstjóri athygli á því, að jafnvel þótt hin óeydda fjárveiting til gatnagerðar væri ekki talin með hefði gatnagerð- arkostnaður vegna nýbygginga orðið 15,3% rekstrargjalda eða heldur hærri hundraðshluti en árið áður. Starfsemi vélamiðstöðvar Reykjavíkurborgar mun auka notagildi þeirra véla og tækja sem aflað hefur verið. Jafnframt standa vonir til að unnt verði að stórauka nýbyggingar í gatna- og holræsagerð í samræmi við á- ætlun borgarstjórnar um þær framkvæmdir. Hrein eign eykst — skuldir lækka Hrein eign borgarinnar jókst um 141,3 millj. á árinu og er nú 1 milljarður og 42 millj. kr. Hef- ur hún aldrei vaxið meira á einu ári. Skuldir borgarsjóðs lækka um 23.2 millj. og benti borgarstjóri á að frá árslokum 1959 til ársloka 1963 hefðu skuldir borgarsjóðs aukizt um aðeins 1.9 millj. kr. þrátt fyrir sívaxandi þjónustu af hálfu borgarfélagsins við almenn- ing og stórauknar framkvæmdir og mun meiri veltu í krónutölu. Þá skýrði borgarstjóri frá því, að útistandandi skuldir hefðu hækkað um 9,3 millj. kr., sem stafaði nær eingöngu af aukn- um skuldum borgarfyrirtækja og sérsjóða borgarinnar. Ræddi borgarstjóri sérstaklega um Bæj- arútgerð Reykjavíkur og kvað brýna nauðsyn bera til að athuga náið hvernig bæta mætti afkomu BÚR. Hefði hann óskað sérstak- lega eftir því við framkvæmda- stjóra fyrirtækisins, að þeir í samráði við útgerðarráð tækju afkomuhorfur BÚR til endurskoð unar og álitsgerðar. Ennfremur ræddi hann nokk- uð um önnur fyrirtæki borgar- innar svo sem Vatnsveituna, Hita veituna og Strætsvagna Reyikja víkur. Skuldir rikissjóðs hefðu stöðugt farið lækkandi á undan förnum árum en skuldir íþrótta sjóðs ríkisins hefði aðeins hækk- að. Loks gat borgarstjóri þess að greiðslujöfnuður borgarsjóðsins hefði orðið hagstæður um rúma 1 millj. árð 1963 og væri það 7. árið í röð sem svo væri. • VíÐSKJFTASAMN- INGUll Brússel, 4. júni AP f dag var undirritaður í Brússel_ viðskiptasamningur milli ísraels og Efnahags- bandalags Evrópu. Rýmkaö um kvöldsölutíma ? Geta verzlanir haft opið til ki. 10 ? Á FUNDI borgarstjórnar í gær- kvöldi var rætt um samþykkt borgarráðs um bráðabirgða- ákvæði frá því fyrr um daginn, en hún hljóðar svo: „Borgarrá.ð getur heimilað verzlunum, sem hafa til sölu sæmilegat úrval helztu nauðsynjavara, að hafa opið til kl. tíu að kvöldi. Ekki má þó veita slíkt leyfi, án þess að meðmæli heilbrigðisnefndar og lögreglustjóra komi til. Borg- arráð getur áskilið greiðslu gjalds fyrir slík söluleyfi“. Sam þykkt þessi var til fyrri umrælj á borgarstjórnarfundi í gær- kvöldi. Kristján Benediktsson (F) bar íram þessar fyrirspurnir: 1) Hverjar horfur eru á, að sam- komulag takizt á næstunni milli Kaupmannasamtakanna, Kron og Verzlunrmannafélags Reykja- víkur um breyttan afgreiðslu- tima verzlana skv. samþykkt um afgreiðslutíma verzlana í Reykja vrk, sem gildi tók hinn 1. apríl sl? 2) Hvaða ráðstafanir eru fyrirhugaðar, ef framangreindir sðilar' ná ekki samkomulagi um breyttan afgreiðslutíma og skiptiverzlun, svo að verzlunar- þjónusta við almenning verði eigi lakari en fyrir 1. apríl sl? Borgarstjórn, Geir Hallgríms- son, sagði um fyrri fyrirspurnina, au hann gæti litlu til svarað, en væri heldur svartsýnn á, að sam- komulag næðjst á næstunni. Of lítill áhugi virtist vera hjá báð- um deiluaðiljum um að koma sér saman. Um síðari fyrirspurn- ina sagði borgarstjóri, að leitað hefði verið álits borgarfulltrúa og þeirra aðilja, er hlut eiga að máli, og nú væri hér borin fram tillaga um ákvæði, sem giltu til bráðabirgða, meðan fullkomin lausn fyndist ekki, og miðaði hún að aukinni þjónusbu við borgarbúa. Óskar Hallgrímsson (A) sagði, að hér fælist heimild til allra verzlana, sem um vildu sækja og sikilyrði uppfylltu, til þess að hafa opið til kl. 22. Auka ætti vörulistann, svo að borgarbúar gætu keypt allar helztu nauð- synjavörur sínar. Kvaðst hann vera sammála tillögunni, því að hún væri eina úrræðið, sem leyst gætu þau vandamál, er skapazt hefðu nú. Von allra borgar- stjórnarmanna hlyti að vera sú, að Reykvíkingar fengju rýmri verzlunarþjónustu. Einnig tóku til máls Kristján Benediktsson (F), Adda Bára Sig fúsdóttir (K) og Einar Ágústsson (F). Benti sá síðastnefndi á, að nú væri komið algert öngþveiti í kvöldsölumálum, og hefði hann aldrei greitt hinni umdeildu reglugerð atkvæði sitt, hefði sig órað fyrir því, til hvers hún leiddi, og svo mundi vera um fieiri borgarstjórnarfulltrúa. Sérstaklega tók Einar fram, að núverandi verzlunarhættir leystu síður en svo nokikurn vanda í sambandi við æskulýðsmál. Mik- ið hefði verið fjasað um „sjoppu hangs“ unglinga og ýmsan vanda, sem aí þvi leiddi, en með öllu væri ólíklegt, að æskulýður borgarinnar væri betur settur með núverandi fyrirkomulagi. Kartoflumus Kaffi - vorur - KakómaJt Kakó ÁS-búðirnar Gísli Morkns- son minning Fæddur 25. nóvember 1903. Dáin 18. maí 1964. OKKUR setti hljóða, er við spurðum lát eins af vinnufélög um okkar, Gísla Markússonar. Hann hafði átt við veikindi að stríða um skeið, en lét það ekki á sig fá og innti skyldustörf sín af hendi með þeirri kostgæfni, sem einkenndi hann alla tíð. Gísli var fæddur 25. nóv. 1903 að Valstrýtu í Fljótshlíð. Árið 1928 fluttist hann til Reykjavík ur og hóf bifreiðaakstur hjá Bif reiðastöð Reykjavíkur á sérleif isleiðunum Reykjavík — Fljóts- hlíð, Reykjavík — Vífilsstaðir og Reykjavík — Hafnarfjörður. Árið 1944 fluttist hann ásamt eig inkonu sinni Guðrún Sæmunds- dóttur til Stokkseyrar og bjó þar um fimm ára skeið. Þá flutt ust þau aftur til Reykjavíkur og hóf Gísli þá akstur hjá Strætis- vögnum Reykjavíkur, þar sem hann starfaði til dauðadags. Fyr ir starfi sínu bar Gísli siíka virð- ingu, að fátítt mun teljast. Með þessum fátæklegu orðum vil ég fyrir hönd starfsmanna Strætis- vagna Reykjavíkur þakka Gísla þær samverustundir, sem við átt um með honum bæði í starfi og frístundum og bið honum Guðs • EFTIRLITSNEFND S.Þ. New York, 4. júní NTB Öryggisrað Sameinuðu þjóð anna samþykkti á fundi sín- um í dag að senda þriggja manna eftirlitsnefnd til landa mæra Cambodia og S-Viet- nahm. blessunar i hinni nýju tjiveru. Eiginkonu hans sendum við einlægar samúðarkveðjur. Guðmundur Halldórssop. Sumardvalar- heimili í Svarfað- ardal Akureyri 4. júní VERKALÝÐSFÉLAGIÐ Ein- ing hefur ákveðið að reka sumar dvalarheimili fyrir börn í heima- vistarbarnaskólanum að Húsa- bakka í Svaríaðardal frá 20. júní til 20. ágúst í sumar. Ráðgert er að unnt verði að taka á móti 30 börnum. Forstöðukona verður frú Jónína Jónsdóttir. Bæjarstjórn Akureyrar sam- þykkti nýlega að veita félagmu 45,000 króna styrk til starfsem- innar og einnig mun ríkissjóður styrkja félagið að einhverju leyti. Sv. P. Ný Sardasfurstinna EYGLÓ VIKTORSDÓTTIR hef- ir nú tekið við aðalhlutverkmu í óperettunni Sardasfurstynn- unni í Þjóðleikhúsinu, eins og kunnugt er af blaðafréttum. Þreytti hún þessa frumraun sína í stóru hlutverki á sviði Þjóðleikhússins í fyrrakvöld. Eðlilegur taugaóstyrkur .og vafalaust þreyta eftir strangar æfingar, þar sem Eygló hefir tekið við þessu stóra hlutverki með mjög stuttum fresti, kom fram í því, að rödd hennar naut sín tæpast eins vel og stundum áður, virtist dálítið óstyrk og fremur hljómlítil á lágsviðinu. Sömuleiðis leynir það sér ekki, a(j hún hefir ekki mikla sviðs- reynslu að baki. Engu að siður náði hún öruggum tökum á hús fylli áheyrenda með söng sínum og látlausri, ótilgerðarlegri framkomu. Er tvímælalaust, að Eygló vann hér mikinn sigur, miðað við allar aðstæður, enda var henni mjög ákaft og innilega fagnað, bæði af áheyrendum og meðleikendum hennar. Jón Þórarinsöon.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.