Morgunblaðið - 06.06.1964, Page 1
24 síðuv
51 qrgangur
125. tbl. — Laugardagur 6. júní 1964
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ný sókn kommúnista í Laos
Bretar og Rússar fallast á viðræður í Sviss
[ Vientiane, London, Moskvu,
5. júní (AP-NTB)
PATHET Lao kommúnistar
hófu nýjar árásir á hersveitir
Laos-stjórnar á Krukkusléttu
í nótt. Eftir sjö klukkustunda
bardaga tilkynnti stjórnin í
Vientiane að áhlaupinu væri
hrundið.
Stjórnir Bretlands og Sovét
ríkjanna hafa fallizt á tillögu
Póllands um að boða til ráð-
stefnu í Sviss til að ræða á-
standið í Laos.
Bandarískar könnunarflug-
vélar hafa ljósmyndað flutn-
ingalest um 60 vörubifreiða á
leið til stöðva Pathet Lao á
Krukkusléttu. Kom lest þessi
frá Norður-Vietnam.
Sókn kommúnista hófst klukk-
en þrjú í nótt eftir staðartíma, og
ibeindist aðailega gegn stöðvum
etjórnarhersins á hæðinni Phou
Dregur úr út-
breiðslu tungu-
veikinnur
| 351 í sjúkrahúsi
Aberdeen, 5. júní (NTB)
í DAG var tala taugaveikis-
sjúklinga í Aberdeen komin
upp í 361, og hefur þeim'
fjölgað um. 17 frá því í gær.
Engu að síður telja heilbriðis-
yfirvöldin mangt benda til að
tekist hafi að hefta útbreiðslu
veikinnar.
Dr. Ian MacQueen, yfir-
maður heilbrigðismála bong-
arinnar s.agði fjölgun sjúkl-
inga í dag hafi verig minni
en hingað til, og benti það
til þess að varúðarráðstafanir
yfirvaldanna væru farnar að
bera árangur.
í bænum Shrewsbury í
(Englandi var 13 ára stúlka
Tfluitt úr járnbrautarlest ogi
l’oeint í sjúkrahús. Grunur
ileikur á að hún hafi tekið'
Uaugaveiki, en hún var nýletga
[ í Aberdeen.
Khoutt. Fór yfirmaður stjórnar-
hersins fram á að Bandaríkja-
menn seadu sprengjuflugvélar
gegn kommúnistum, en úr því
gat ekki orðið. Hæðina, sem bar-
izt var úm, tóku Pathet Lao
kommúnistar í síðustu viku, en
stjórnarhernum tókst að ná henni
aftur á sitt vald.
Kouprasith Abhay, hershöfð-
ingi, talsmaður stjórnarhersins
og einn forvígismanna stjórnar
byltingarinnar í Laos í apríl, átti
fimd með blaðamönnum í dag.
Sagði hann að stöðugir vista- og
liðsflutningar frá Norður Viet-
nam til kommúnista á Krukku-
sléttu leiddu tii þess að stjórnar-
herinn ætti jafnan í vök að verj-
ast. Taldi Kouprasith nauðsyh-
legt fyrir stjórnina í Laos að
tryggja sér erlenda hernaðarað-
stoð til að hrekja kommúnista
frá Krukkusléttu. Til frekari
skýringar sagði hershöfðinginn
að fyrst og fremst bæri að leita
eftir þeirri aðstoð hjá Bandaríkja
mönnum.
Ekki ber fregnum um bardag-
ana á Krukkusléttu saman. Seg-
ir í tilkynningu stjórnarinnar að
sókn kommúnista hafi verið stöðv
uð eftir sjö klukkustunda bar-
daga, en aðrar fregnir herma að
enn sé barizt þar.
Viðræður í Laos og Sviss
Reynt hefur verið að koma á
viðræðum fulitrúa ríkjanna
fjórtán, sem stóðu að ráðstefn-
unni í Genf um Laos 1962. Ekki
hefur náðst samkomulag um
fundarstað, en hinsvegar hafa
sendiherrar sex þessara ríkja í
Vientiane, ræðst við undanfarna
tvo daga. Eru það sendiherrar
Bandaríkjanna, Bretlands, Kan-
ada, Indlands, Thailands og Suð-
ur Vietnam. Koma þeir enn sam
an á morgun, laugardag. Full-
trúar Indlands og Kanada eiga
auk fulltrúa frá Póllandi sæti í
þriggja ríkja eftirlitsnefnd í
Laos, sem skipuð var á ráðstefn-
unni í Geúf.
Nú hefur pólska stjórnin lagt
til að boðað verði til nýrrar ráð-
stefnu í Sviss hið fyrsta, og að
þangað verði boðaðir fulltrúar
sex aðila. Aðilarnir, sem Pólverj-
ar vilja að sendi fulltrúa á ráð-
stefnuna, eru þessir: Sovétríkin
og Bretland, sem skipuðu for-
Framhald á bls. 2
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra.
Allir geta fagnað sameiginlegum sigri
Viðtal við Bjarna Benediktsson, forsætisrdðherra
MORGUNBLAÐIÐ náði í
gær tali af Bjarna Benedikts
syni, forsætisráðherra, og
spurði hann hvað hann vildi
segja um þau miklu tíðindi,
að samkomulag hefur náðst
milli vinnuveitenda og laun-
iþega fyrir milligöngu ríkis-
valdsins. Forsætisráðherra
mælti á þessa leið:
— Ríkisstjórnin stefndi að þvi
í vetur að reyna að ná samning-
um við aðila um varanlegri lausn
þessara mála en tekizt hafði á
undanförnum árum. Ljóst var, að
slíkir samningar hlytu að verða
ýmsum annmörkum háðir, eink-
anlega vegna þess að með kaup-
hækkununum á síðasta ári var
vissulega teflt á tæpasta vaðið.
Ráðherrann sagði, að í þeim
efnum hefði þó betur rætzt úr
en á horfðist, að nokkru leyti
vegna þeirra varúðarráðstafana
sem þegar voru gerðar á s.l.
hausti og gagnráðstafana, sem
gerðar voru í janúarmánuði. Síð
an sagði hann:
— En úr skar hið mikla atfla-
magn, sem barst á land. Vegna
hinna ríflegu gjaldeyrissjóða,
sem fyrir hendi voru, var hægt
að bíða átekta, og nú er komið
á daginn, að hvorki þurfti að
grípa til allsherjarlækkunarráð-
stafana eða gengislækkunar eins
og ýmsir óttuðust um og upp úr
áramótum.
— Ýmsir hafa legið stjórninni
á hálsi fyrir það, að hún væri
aðgerðarlítil, en eins og hún
lýsti þegar yfir, taldi hún nauð-
synlegt að sjá hver þróunin yrði
og hefur notað tímann til marg-
báttaðs undirbúnings samninga-
viðræðna.
— Það var okkur þvi mikið
fagnaðarefni, þegar ríkisstjórn-
inni barst 17. apríl bréf frá Al-
þýðusambandi íslands, þar sem
vitnað var til ályktunar mið-
stjórnar sambandsins hinn 16.
sama mánaðar, um að teknar
yrðu þegar í stað upp viðræður
milli ríkisstjórnarinnar og verka
lýðshreyfingarinnar um tilraun
til stöðvunar verðbólgunnar og
um réttlátar og óhjákvæmilegar
kjarabætur.
— Ríkisstjórnin varð að sjálf-
sögðu þegar í stað við þessum
tilmælum og hefur ætíð síðan
staðið í stöðugum viðræðum,
bæði við fulltrúa verkalýðshreyf
ingarinnar og vinnuveitendur.
Ástæðulaust er að rekja þær við
ræður í einstökum atriðum;
þarna hafa margir aðilar komið
við sögu og vitanlega hefur ekki
verið fyrirhafnarlaust að sam-
ræma skoðanir manna. En það
hefur mjög greitt fyrir störfum,
Island ákjósanlegasti staður jarðar
til geislarannsókna í geimnum
Tilraunir við Vík í ðlýrdal ■ júlfi
Paris,_ 5. júní Quiriconi—AP)
I>RJÁTÍU og fimm franskir vís-
indamenn vinna nú að undirbún-
ingi geimrannsókna, sem hefjast
við Vík í Mýrdal í næsta mán-
ttði. Verður tveimur eldflaugum
a.f „DrekaM gerð skotið út í geim
inn til að kanna geislun í út-
jarðri gufuhvolfsins og utan við
það. Tilraunir þessar munu taka
um þrjáf vikur, og er vonazt til
nð með þeim fáist mikilvægar
upplýsingar fyrir geimferðir
framtí«.irinnar,
Franska geimrannsóknastofn-
unin (Centre National Détudes
Spatiales) gaf í dag nokkrar
upplýsingar um þessar tilraun-
ir á íslandi. Eldflaugunum tveim
ur verður skotið á loft í júlí,
en ek'ki ákveðið hvaða djaga.
Skotsvæðið er stkamt frá Vík í
Mýrdal. Verður eldflaugabraut
byggð á hraunbreiðu nokkrum
kílómetrum fyrir austan Vík í
kílómeters fjarlægð frá strönd-
inni. Sérstakar varúðarráðstaf-
anir verða gerðar til að fyrir-
byggja að eldflaugarnar geti
valdið skemmdum eða tjóni, ef
skotin misheppast svo sprengja
verði eldflaugarnar á flugi.
Eldflaugarnar tvær eiga að ná
450 kílómetra hæð og í þeim eru
mælitæki til að kanna hvort
Van Allen geislabeltisins svo-
nefnda gætir þar. Á sama tíma
verða loftbelgir sendir upp í 40
kílómetra hæð til að kanna
geislun. Niðurstöður rannsókn-
anna verða afhentar Háskóla ís-
lands.
Talsmenn geimrannsóknar-
stofnunarinnar segja að ísland
hafi orðið fyrir valinu vegna
þess að það sé ákjósanlegasti
staður jarðarinnar til geislarann-
sókna í geimnum. Þegar rann-
sóknirnar hefjast mun islenzka
útvarpig aðvara skip um að
halda sig utan skotsvæðisins og
islenzk eftirlitsskip verða á verði
við suðurströndina.
að allir aðilar, uudantekningar-
laust, hafa leitað málefnalegrar
lausnar og verið sammála um það >
höfuðsjónarmið, að gera alvar-
lega tilraun til að stöðva verð-
bólguna. Ekki þarf að taka fram,
að enginn hefur fengið fram allt
það, er hann helzt kaus, en á-
nægjulegt >er, að öllum ber sam-
an um, að í þessum viðræðum
hafi komið fram nýr og betri
andi en tíðkanlegur hefur verið.
Blaðið spurði forsætisráðherra
um samninginn sjálfan. Hann
svaraði:
— Þess ber að gæta, að hér
er um að ræða rammasamn, sem
út atf fyrir sig skuldbindur ekk-
ert einstakt félag, hvorki laun-
þega né vinnuveitendur, en aðil-
ar samkomulagsins skuldbinda
sig til þess að beita áhrifum sdn
um til að samið verði í einstök-
um tilfellum á þeim grundvelli
sem þarna er lagður. Samnings-
aðilarnir eru annars vegar öll
verkalýðshreyfingin, án tillits til
þess ágreinings, sem þar að öðru
leyti hefur gætt, og hins vegar
Vinnuveitendasambandið ásamt
Vinnumálasambandi samvinnu-
félaganna og enn fremur er búist
við, að Félag íslenzkra iðnrek-
enda gerist aðili. Þarf ekki að
efa að þessir aðilar eru allir sam
an svo öflugir, að eftir þeirra
ráðum verði farið.
— En menn mega ekki blanda
þessum samningum, sem áttu sér
stað undir forystu rikisstjórnéir-
innar, sarnan við samninga hinna
einstöku félaga, eins og félags-
anna á Norður- og Austurla'ndi,
sem síðustu vikur hafa setið að
samningum undir forustu sátta-
semjara ríkisins. Þar hefur einn-
ig verið unnið mikið starf og
tímafrekt, þar sem verið var að
samræma samninga 24 verka.lýðs
félaga, en sú samræming var
gerð með þeirri forsendu, að
heildarsamningar undir forystu
ríkisstjórnarinnar tækjust, enda
lauk þeim nokkrum klukkutám-
um síðar.
— Vafalaust rísa einhver vanda
Framh. á bls. 3.