Morgunblaðið - 06.06.1964, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 06.06.1964, Blaðsíða 24
} <uTS7/V/7Jl/éF | SAUMAVÉLAR } Júkhr laugavegÍ 125. tbl. — Laugardagur 6. júní 1964 A myndinni til vinstri sjást fulltrúar vinnuveitenda undirrita samkomulagiö'á hádegi í gær. Til hægri undirrita fulltrúar verkalýösféiaga á Norður- og Austurlandi. — Torfi Hjartarson, sáttasemjari, situr fyrir borðsenda á báðum myndum. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.) Frú Bungay dæmd í 12 mánaöa fangelsi — fyrir uppspuna um innbrot og tilraun til vátryggingasvika — Kveðst sjálf íslenzk að uppruna, en engin kannast við hana hér SVO sem menn rekur minni til gerðist það í febrúarbyrj- un i vetur að Mbl. birti frétt um að 'innbrot hefði verið framið hjá konu einni í Lond on, sem teldi sig vera af ís- lenzkum ættum. Heitir hún Christine Bungay, og rekur snyrti- og hárgreiðslustofu fyrir hunda þar í borg. í við- tali við Mbl. svo og brezku blöðin kvaðst frúin vera sdcil in, og sagðist örugglega vera »f íslenzkum ættum. Skýrði hún lögreglunni svo frá, að þjófur hefði ráðizt inn í íbúð sína, bundið sig og keflað, og síðan stolið um 11.000 sterlings punda virði (1.340.000 ísl. kr.) af skartgripum í íbúðinni. — S.I. þriðjudag gerðist það í hinum fornfræga rétti Old Bailey í London, að umrædd frú Bungay var dæmd í 13 mánaða fangelsi fyrir að hafa skrökvað upp innbrotssögunni í því skyni að svíkja fé af tryggingafélagi. Vinkona henn ar, sem deilir með henni íbúð, og þóttist hafa fundið frú Bungay keflaða, hlaut einnig 12 mánaða fangelsi. Upphaf máls þessa var að Framh. á bls. 15 Hér sést frú Bungay við sím- ann í hundasnyrtistofu sinni. Myndina tók Associated Press fyrir Mbl. í vetur, er frúin taldi sig hafa orðið fyrir árás innbrotsþj óf sins. Hollenzk stúlka kosln fegurðardrottning Evrópu SNEMMA á föstudagsmorgun var hollenzk stúlka, Elly Koot, kosin fegurðardrottning Evrópu í ár i Líbanon. Hún er 21 árs, ljóshærð, og var valin úr hópi 17 stúlkna frá Evrópulöndum. Nr. 2 varð Marion Zota frá Vestur-Þýzkalandi, nr. 3 Siv Áberg frá Svíþjóð og nr. 4 uirðu Bdith Noel frá Frakklandi oig Bosa Maria Ruiz frá Spáni. %mia Egiisdóttir, siein varð þriðja í fegurðarsamkeppninni hór heima í fyrra, tók þétt í keppninni fyrir íslands hönd. Kosning fór fram í Casino du Liban, fjárhæ-ttuspil avíti og næturklúbbi skammt fyrir utan Beirut, hötfuðborg Líbanons. Staðurinn er á ströndinni við botn Miðjarðarhaifs, og er þetta í fimmta skiptið, sem kjörið fer þar fraim. Heppilegt þykir, að kosninigin sé haldin í „hlutlausu ríki, þ.e. ekki í Evrópulandi, þar sem íbúamir gætu reynt að hafa áhrif á kosninguna. Nette Stenstad frá Noregi. sem var fegurðardrottning Evrópu 1963U964, krýndi hina nýju drottningu frá Hollandi. Þátttak endur ferðast nú uim Líbanon. Samningar nyrðra cg eystra SAMNINGUR við 24 verka- lýðsfélög á Norður- og Aust- urlandi var undirritaður um hádegisbilið í gær. Er það fyrsti samningurinn, sem gerð ur er skv. samkomulagi því, er náðist í fyrrinótt milli vinnuveitenda, launþega og ríkisstjórnarinnar. Samning- urinn var undirritaður af full trúum verkalýðsfélaga á svæð inu frá Siglufirði til Horna- Síldin í vésturgöngu RAUFARHÖFN, 5. júní — Síld- in heldur áfram að veiðast eystra, og alltaf fjölgar skip- unum á miðunum. Síldin er á vesturgöngu og hefur nú færzt sem svarar kluikkustundar stími vestur á bóginn. Hún er nú 60-70 mílur austur af Raufarhöfn. Margir búmma, en þeir sem ná henni fá góð köst. Vindinn hefur þyngt á austan, svo að sjómenn eru farnar að tala um að leita inn. Nú er Sjómannadagurinn líka í nánd, og vilja menn þá helzt vera í sinni heimahöfn. Um tíu skip lönduðu ’hér í daig og kvöld. Verksmiðjan hefur alls tekið á móti 10—11 þús. mál- um. Síldin er reglulega falleg, stór og full af rauðátu. Fitumagnið er 18%. Kópavogur Sjálfstæðisfélögin í Kópavogi efna til skemmtiferðar í Land- mannalaugar, helgina 13. og 14. júní nk. Lagt verður af stað frá Sjálf- stæfðishúsinu í Kópavogi föstu- dagskvöldið 12. júní kl. 20.30 — Þátttaka tilkynnist laugardag- inn 6. júni í sima 40922 kl. 13 til 18. Merki seld í dag í DAG verða merki Listahá-1 tíðar Bandalags ísl. listamannal seld á götum bæjarins. Úr| silfri' kosta þau 50 kr. og úr pappa 15 kr. fjarðar. Meðal þeirra eru fé- lögin á Akureyri, Húsavík, Raufarhöfn og nær öll félögin á Austurlandi. Samningavið- ræður hafa staðið yfir frá 15. maí, og hefur sáttasemjari ríkisins, Torfi Hjartarson, stjórnað þeim. Logi Einars- son, varasáttasemjari, hefur tekið þátt í viðræðunum mest allan tímann. Félögin 24 höfðu áður hvert sinn sérsamning. Bar þar oft mik ið á milli, og hlutust stundum ýmis vandkvæði af því, ekki sízt á síldarvertíð. Ekki er samið um beinar kaup- hækkanir, en í samræmi við sam- komulagið frá í fyrrinótt, „ramma Umferðarslys í Hafnarfirði UM KL. 19.20 á fimmtudag var station-bíll á leið til Hafnarfjarð ar eftir Kaldárselsvegi ofan til við kirkjugarðinn. Bílstjórinn ók þá utan í ljósastaur vinstra meg- in og missti við það vald á bíln- um Ók hann fyrst inn um girð- ingu og inn á tún, síðan út af túninu aftur í gegnum girðing- una (sneiddi hom af túninu) oig lenti þá beint á kirkjugarðs- veggnum. Hjón með barn voru í bílnum. Skárust hjónin talsvprt og slösuðust eitt'hvað að öðru leyti. Bíllinn skemmdist mjög mikið. Grunur leikur á, að um ölvun hafi verið að ræða. Eldur í flutnlngabii Borgarnesi, 5. júní. UM KL. átta í kvöld var lögregl- an í Borgarnesi kölluð upp í tal- stöð stórs flutningabíls, sem var staddur nálægt Grímarsstöðum í Andaikíl. Var sagt, að kviknað hefði í faranigri í bílnum og beð- ið um aðstoð. Lögreglan til- kynnti slökkviliðinu í Borgarnesi þetta. Brá það við og fór á vett- vang. Tókst því að slökkva eld- inn, án þess að miklar skemmdir yrðu á bílnum, en hins vegar skemmdist farangurirua talsvert. Bíllinn mun hafa verið á leið vestur á Snæfellsnes með flutn- ing í veiði'hiús. Á bílnum voru m.a. kol, sem eldur komst í. Ekki er vitað, með hverjum hætti eldur komst í farangurinn. — Hörður. samninginn" svokallaða, verður upp tekin verðtrygging og breyt- ing á vinnutíma. Leiðir það til hærra raunverulegs kaups fyrir dagvinnu á kostnað eftir- og næt urvinnu. Einnig er samið um ýmis atriði, sem gilda sérstak- Iega fyrir félögin nyrðra og eystra, eins og hækkun á kaup- tryggingu síldarfólks og til- færslu á kauptaxta fyrir síldar- vinnu. Fulltrúar verkalýðsfélaganna undirrituðu samninginn með þeim fyrirvörum, að samþykki fé laganna fáist á hverjum stað og „rammasamningurinn" komi til framkvæmda svo skjótt, sem auð ið er. EINRÓMA SAMÞYKKT Á AKUREYRI Samningurinn verður lagður fyrir félagsfundi í verkalýðsfélög unum við fyrstu hentugleika, sennilega víðast nú um helgina. í tveimur félögum á Akureyri, Einingu og Bílstjórafélagl Akur- eyrar, var hann samþykktur ein« róma i gærkvöldi. Dregið eftirj þr]á daga Gerið skil í dag | NÚ ERU aðeins þrír dagar þar til dregið verður I hinu stórglæsilega happdrætti Sjálí 1 stæðisflokksins. Vantar nú að-í eins lokaátakið til þess aðJ selja alla miða og gera full * iskil, og er iþess vænzt að þeir, T sem fengið hafa senda miða, 1 og ekki hafa enn gert skil,í geri það strax í dag. í dag, laugardag, verður skrifstofan I í Sj álfstæðishúsinu opin til kl. 6 e.h. og á morgun, sunnudag' 1 frá kl. 10—12 f.h. og 1—6 e.h. | Miðarnir hafa selzt mjög vel ( en enn er hægt að fá þá í happ idrættisbílunum þremur; við 1 Aðalstræti og við Útvegslbank | ann í Austurstræti. Enn frem . ur á skrifstofu Sjáltfstæðis- 1 flokksins í Sjálfstæðishúsinu 1 við Austurvöll, sómi 17104. — | Munið að glæsilegri vinningar 1 eru ekki á boðstóluim, en í ' þessu happdrætti, hnattferð k fyrir tvo, og þrír bílar, sam-é tals að verðmæti 700 Iþúsundj krónur. I Eflið Sjálfstæðisflokkinn ogi kaupið miða strax í dag. r Happdrætti J Sjálfstæðisflokksins V

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.