Morgunblaðið - 06.06.1964, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.06.1964, Blaðsíða 6
6 MORGU NBLAÐIÐ r Laugardagur 6. júní 1964 Lögum mótmælt BLAÐINU hefur borizt eftir- farandi frá stjórn Verkfræð- ingafélags íslands: STJÓRN Verkfræðingafélags ís- lands mótmælir harðlega þeim lögum, sem Alþingi setti þann 13 þ.m. þar sem verkfræðimgar einir allra stétta. eru: sviptir rétti til setningar gjald- skrár fyrir störf sín, sviptfr rétti til sameiginlegra samninga um kjör sín, sviptir rétti til persóulegra ráðningasamninga. Gjaldskráán Hinn 1. maí 1982 tók gildi ný gjaldskrá fyrir verkfræðistörf, er vandlega hafði verið undirbú- in og að formi til sniðin eftir nýjustu gjaldskrám verkfræð- inga í nágrannalöndunum. Kom hún í stað gjaldskrár frá 19. apríl 1955, sem var að formi til um 30 ára gömul og í flestu orðin úielt. Daginn eftir gaf ríkisstjórnin út bráðabirgðalög, þar sem nýja gjaldskráin var bönnuð en gjald- skráin frá árinu 1955 sett í henn- ar stað .Þessa aðgerð sína rök- studdi ríkisstjórnin með því að hm nýja gjaldstkrá, sem er sölu- verð verkfræðiþjónustu atvinnu- rekenda, raskaði launakerfi hins opinbera, sem er allt annar og óskyldur hlutur. Ríkisstjórnin ruglaði þarna algerlega saman verðlagi og launamálum, og því voru bráðabirgðalögin fljótræð- isverk og studd röngum rökum. Þessi bráðabirgðalög voru stað- fest af Al'þingi sem lög nr. 46 13. apríl 1963. Hinn 17. ágúst 1963 setti ríkis- stjórnin að nýju bráðabirgðalög og nú „um lausn kjaradeilu verk- fræðinga." Þar var m.a. ákveð- ið, að gerðardómur skyldi setja gjaldskrá fyrir verkfræðistörf. í 2. gr. bráðabirgðalaganna segir m.a.: „Við setningu gjald- skrár fyrir verkfræðistörf, unn- in í ákvæðisvinnu og tímavinnu, Skal höfð hliðsjón af gjaldskrá VFI frá 19. apríl 1955 og regl- um, er gilt hafa um framkvæmd hennar.“ Um þetta atriði er í for- sendum gerðardómsins komizt m.a. svo að orði: „Dómurinn hefur eftir föngum kynnt sér ákvæði gjaldskrár- innar frá 1955 um þóknun fyrir ákvæðisvinnu, svo og hliðstæð ákvæði í frumvarpi að gjald- skrá VFÍ frá apríl 1962. Við sam- anburð gjaldskránna hefur kom ið í ljós, að gjaldskráin frá 1955 er að sumu leyti orðin óviðun- andi og ónothæf sem grundvöll- ur að ákvörðun þóknunar. í gjaldskránna vantar ákvæði um ýmsar greinar verkfræði, sem nú eru stundaðar. Auk þess eru ákvæði um skyldur verkfræðings eigi ætíð sem fyllilegust. Af þess um ástæðum hefur dómurinn á- kveðið, að frumvarpið frá apríl 1962 skuli lagt til grundvallar við samningu nýrrar gjaldskrár.** Gerðardómurinn tók síðan gjaldskrá VFÍ frá 1962 að mestu leyti up orðrétt og fór þannig þvert gegn fyrirmælum laganna. Með þessu kvað hann upp áfell- isdóm yfir bráðabirgðalögunum fyrri, sem voru staðfest af Al- þingi 13. apríl 1963, en gerðar- dómurinn kvað upp sinn dóm 28. október 1963. Kjaradeila Stéttarfélags verkfræðinga Sumarið 1963 átti Stéttarfé- lag verkfræðinga í löglegri vinnu deilu við vinnuveitendur. Hinn 17. ágúst þ.á. greip ríkisstjórnin inn í deiluna og gaf út bráða- brgðalög, þar sem ákveðig var, að gerðardómur skyldi m.a. ókveða kjör verkfræðinga, sem starfa hjá öðrum en ríkinu.. Bráðabirgðalögin voru sett í þann mund ,sem kjarasamningar voru að takast milli Stéttarfé- lags verkfræðinga og verkfræði stofnanna sbr. eftirfarandi um- mæli þeirra í skýrslu til gerðar- dómsins: „Er sýnt var, að málinu þok- aði lítið til samningaáttar, og jafnframt, er umboð samninga- nefndar var útrunnið, var boðað hinn 16.8 1963 til fundar allra verkfræðistofnanna A fundi þess um var kjörin ný sámninganefnd, er hafði rýmra umboð en hinar fyrri. Umboðið fól m.a. í sér að freista skyldi samninga beint við S. V., ef hinir sameiginlegu samningar bæru ekki árangur strax næstu daga. Nokkur breyting var gerð á launaskala á þann veg, að mjög líklegt væri, að S.V. gæti sætt sig við hann. Samninganefnd þessi fékk aldrei tækifæri til að starfa, þar eð gráðabirgðalögin varðandi verkfræðingadeiluna voru sett samdægurs." Bráðabirgðalöigin hindruðu því kjarasamninga milli lögform legra samningsaðila. I bráðabirgðalögunum eru á- kvæði, sem mæla fyrir um það, hvernig gerðardómurinn skuli vinna. Þar segir m.a. í 2. gr.: „Gerðardómurinn skal við ákvörðun mánaðarlauna, vinnu- tima og launa fyrir yfirvinnu hafa hliðsjón af því, hver séu kjör verkfræðinga oig annarra sambærilegra starfsmanna hjá ríkinu samkvæmt launakerfi því, er gildir frá 1. júlí 1963.“ Þessi ákvæði stangast alger- lega á við eftirfarandi ákvæði opinberra starfsmanna, þar sem í 20. gr. laga um kjarasamninga segir: „Kjaradómur skal við úrlausn- ir sínar m.a. hafa hliðsjón af kjörum launþega, er vinna við sambærileg störf hjá öðrum en ríkinu.“ Því hefur einniig verið marg- í fyrradag var 14. norræna laganemamótið sett í Háskóla íslands af Theodór B. Líndal, pró- fessor. Kl. 2 um daginn flutti forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fyrsta fyrirlestur mótsins, og fjallaði hann um „Konstitutionel nödret”. — Myndin var tekin við setningu mótsins. Fremstir sitja (frá vinstri) Geir Hallgrímsson, borgarstjóri, Gylfi Þ. Gíslason, menntamálaráðherra, og Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra. (Ljósm. Mbl.: Ól. K. M.) sinnis lýst yfir af hálfu ríkis- valdsins, að kjör opinberra starfs manna gætu ekki verið fordæmi að kjörum annarra stétta, sem er eðlilegt sjónarmið. Frágangur laganna Frágangur hinna nýsettu laga er með eindæmum. í 2. gr. þeirra standa enn ákvæðin um, að við setningu gjaldskrár fyrir verk- fræðistörf skuli höfð hliðsjón af gjaldskrá VFÍ frá 19- apríl 1955, enda þótt gerðardómurinn sé bú- inn ag forkasta þeim sem ónot- hæfum og hafi lagt gjaldskré V.F.f. frá 1962 til grundvallar dómi sínum. í 3. gr. laganna segir, að venk- föll í því skyni að knýja fram skipan kjaramála, sem lög þessi taka til, séu óheimil, „þar á með- al fram'hald verkfalla Stéttarfé- lags verkfræðinga, sem nú eru háð.“ Engin verkföll verkfræð- inga eru nú háð. Þeim lauk sam- kvæmt valdboði 17. ágúst 1963. Tilefnislaus réttindaskerðing Bráðabrigðalögin frá 17. ágúst 1963 voru sett til þess að leysa kjaradeilu verkfræðinga, sem þá stóð yfir, og gerðardómurinn lauk sínu verki síðar á því ári. Eftir þag urðu almennar kaup- og verðlagshækkanir um a.m.k. 15-20%. í stað þess að nema úr gildi þessi lög, sem voru búin að þjóna tilgangi sínum, hefur Al- þingi nú veitt þeim gildi fram í tímann til ársloka 1965 án til- efnis og án þess að nokkur rök- stuðninigur fyrir nauðsyn þess hafi verið færður fram. Með þess befur Alþingi svipt verkfræð- inga rétti til setningar gjald- skrár fyrir verkfræðistörf, rétti til persónulegra ráðningarsamn- inga, því sérhvert frávik frá dómsorði gerðardómsins jafn- gildir broti á lögum, og varða brot sektum. Hvert stefnir? Á undanförnum árum hafa op- inberar stofnanir að óþörfu feng ið fjölda verkefna erlendum verk fræðingum í bendur til úrlausnar bæði hér á landi og í heima- landi þeirra. Fyrir þau hefur verið greitt miklu meira fé en samkvæmt bráðabirgðalögunum fyrri og gerðardóminum. Með þessU hefur rí'kisvaldið hindrað eðlilegan viðgang íslenzkra verk- fræðinga og unnið gegn verk- menningu landsmanna og að auki goldið fé fyrir. Af þessari lagasetningu verður ekki annað ráðið en það, að ríkis valdið telji íslenzka verkfræð- inga vera óæskilegra fóik. Það er raunar annað sjónarmið en rík ir í öðrum löndum heims, þar sem verkfræðingar eru mest efit- irspurða vinnuaflið. Nú eru yfir 70 íslenzkir verk- fiæðingar starfandi erlendis ea aðeins um 270 hér heima. Fjölg- un verkfræðinga hlutfallslega hér á landi er mun hægari en hjá nágrannaþjóðunum. Þessi þróun er alvarlegt íhugunarefni fyrir þjóðina. Hugsandi menn vita það, að raunvísindi og tækni er undirstaða verkmenningar þjóða og forsenda velmegunar þeirra, Mátturinn til lífsbjargar er fyrst og fremst kominn undir kunnáttu einstaklinganna í þesa um efnum. Það er ófrávíkjanleg krafa Verkfræðingafélags íslands, að umrædd lög verði felld úr gildi svo verkfræðingar fái aftur full mannréttindi og íslenzk verk- menning geti þróast á eðlilegan hátt, landi og þjóð til heilla. Reykjavík, 20. maí 1964. Stjórn Verkfræðingafélags íslands. A T H U G I Ð að borið saman við útbreiðslu er langtum óýrara að auglýsa í Morgunblaðinu en öðrum blöðum. S:::::::::::::::::::::::::::::::::::: Hreinsunaræði Nú hefur hreinsunaræði grip- ið Reykvíkinga — sem betur fer — og fólk virðist ætla að vera samtaka um að hafa þrifa legt hjá sér á þjóðbátíðinni. Það er engu líkara en allir kóng ar Evrópu séu væntanlegir. Og það er ekki nóg með að fólk hressi upp á útlit húsa sinna og lóða. Þetta hreinsunaræði fer eins og alda yfir bæinn og nágrennið — og fólk tekur til í skúffum ig skápurn — losar sig við allt, sem það safnar saman og geyrn ir, vill ekki farga — en notar aldrei. Flöskukaupmaðurinn Jafnvel Velvakandi reiif upp alla skápa, tíndi saman tvær fullar töskur af tómum flösk- um (fimm ára safn) og labbaði niður í ,,Ríki“ til þess að selja safnið. Fulltrúi hins opinbera skoðaði flöskurnar vandlega, eina af annarri, eins og hann hefði aldrei áður séð flöskur. Eftir að hann haifði yfirvegað málið vel Og vandlega tók hann eina flöskuna, stakk henni und ir borðið — opnaði svo heljar mikinn peningaskáp — og með vísindalegri nákvæmni lagði hann tveggja krónu pening á borðið: „Við kaupum bara flösk ur, sem merktar eru Áfengis- verzluninni", stundi hann. „Hér eru tvær krónur — vesgú“! Sjálfsagt hef ég verið kindar- legur á svipinn, þegar ég labb aði út með allar flöskurnar — enn þá í vafa um hvort ég hefði átt að taka við greiðslunni, eða styrkja ríkisbáknið með and- virði flöskunnar. Ég var mest hissa yfir þvi að fulltrúi hins opinbera skyldi greiða heilar tvær krónur án þess að útbúa skýrslu í fjórriti. Hann virtist hins vegar ekki hissa á neinu — og vísaði á flöskusala innar við Skúlagötu. En ég lét öskutunn una 'hafa heila safnið, eins og allt annað. Ég hef komizt að þeirri niður stöðu, að flöskur eru meðal þess, sem menn eiga ekki að safna — og ég er viss um að bezta ráðið er að kaupa sem fæstar. Ég sé heldur ekki að neitt samrætni sé í inkaups- og útsöluverði á flöskum hjá hinu opinbera. Smitandi En, eins og ég sagði áður: Það er ég, sem hef smitazt af hreinsunaræðinu. Ég veit ekki til að ég hafi smitað neinn. — Og þetta fólk, sem smitað hef- ur mig, eru hinir mörgu, sem hringja hingað daglega til þess að kvarta yfir náunganum —■ benda á að Jón Jónsson í húsi númer fimmtíu við tiltekna götu hafi alltaf ýsu eða þorsk hangandi út af svölunum, — að ekkert lok sé á öskutunnunum hinum megin við götuna, að stig inn, sem þeir notuðu við að mála þakið á Breiðfirðingabúð fyrir þremur árum, sé enn uppi á þakinu, að Pétur eða Páll á bí'lnuim R þetta eða G hitt hafi losað úr öskubökkunum út um gluggann í miðju Austurstræti. Ég vona bara að náunginn í næsta húsi taki niður jóla- skrautperurnar á þakskegginu áður en ég hleyp með það í blöðin. tig"® m ;rn_Q m 63/Y ELDAVÉLAR ELDAVÉLASETT GRILL jjálfvirkt hita- og tímaval. A E G - umboðið træðurnir ORMSSON Vesturgötu 3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.