Morgunblaðið - 06.06.1964, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 06.06.1964, Blaðsíða 23
Laugardagur í. júní 1964 MORGU N BLAÐIÐ 23 Svíaprinsessa giftir sig Désirée og Niclas Silíverskiöld barón gefin saman í Stokkhólmi Stokkhólmi, 5. júní AP—NTB í DAG voru gefin saman í Stórkirkjunni gömlu í Stokk- hólmi Désirée Svíaprinsessa og stórgósseigandinn Niclas Silfverskjöld, harón. Athöfn- inni var sjónvarpað um öll Norðurlönd. Désirée prinsessa er 26 ára og þriðja elzta bam Sibyllu prinsessu og manns hennar, sonar Gústafs Adolfs, núver- andi konungs, sem fórst í flug slysi árið 1947. Næstelzta syst irin, Birgitta, giftist árið 1961 þýzika prinsinum Johan Georg von Hohenzollern og sú elzta, Margaretha, giftir sig 30. júní n.k. brezka kaupsýslumannin- um John Ambler. Brúðguminn er tæplega þrí I tugur og á miklar lendur í S- ! Svíþjóð. Hjónavígslan fór fram með 1 miklum hátíðleik í hinni 1i gömlu og fögru dómkirkju Stokkhólmsborgar, Stórkirkj- unni (Storkyrkan) fyrir há- degi í dag. Kirkjan var fagur- lega skreytt hvítum og blá- , um blómum, en blátt og hvítt i eru litirnir í skjaldarmerki 1 em litirnir í skjaldarmerki Silf i verskjöld-ættarinnar i Stór- krýningar og síðast var þar haldið konunglegt brúðkaup þegar Ingiríður núverandi Danadrottning giftist Friðriki kóngi árið 1935. Erkibiskup Sviþjóðar, Upp- salabiskupinn Gunnar Hult- gren, gaf brúðhjónin saman en Gústaf konungur leiddi sonardóttur sína að altarinu. Á annað þúsund boðsgesta vom við kirkjubrúðkaupið, þar á meðal forsetar þingdeild anna og Tage Brlander, for- sætisráðherra. Hægra megin við altarið sat fjölskylda brúð urinnar, konungsfjölskyl-dan Og vinstra megin fjölskylda brúðgumans og vom nákvæm- lega jafn margir hvom meg- in, 28 manns. Désirée prinsessa klæddist brúðarkjól Birgittu systur sinnar, beinhvítum satín-duch esse-kjól með 4 metra löngum slóða. Um brúnt hár henni lá fagurt höfuðdjásn úr gulli, skreytt „kameum“ og hafði það áður átt Jósefína drottn- ing Óskars konungs fyrsta, en Birgitta borið djásnið við brúð kaup sitt fyrir tveimur rum. Prinsessan var alvarleg í bragði og gaf jáyrði sitt svo lágri röddu að varla varð greint og Niclas barón var ó- styrkur er hann dró á hönd hennar hring þann úr hvíta- gulli er biskupinn hafði áður vígt. Er brúðhjónin komu út á kirkjutröppurnar laust eftir klukkan eitt biðu ljósmyndar ar úti fyrir dyrum og að beiðni þeirra kyssti baróninn brúði sína á kinnina og voru bæði broshýr. Veður var ekki gott í Stokk hólmi í dag, lágskýjað en þó ekki rigning og heldur kalt. Samt vom þúsundir manna á leiðinni frá kirkjunni til hal'l- arinnar og biðu þess að sjé prinsessuna og mann hennar sem óku þennan spöl 1 opn- um vagni. í höllinni tók konungur á móti 240 boðsgestum og heils- uðu allir brúðhjónunum og óskuðu þeim til hamingju en sjónvarpsmenn mynduðu sem óðast. Gústaf kóngur flutti ræðu undir borðum og var bæði hrærður og hreykinn. Hann bað brúðhjónunum allrar blessunar, kvaðst fela sonar- dóttur sína í hendur manni hennar í öruggri vissu um að þar væri hún í góðum hönd- um, og minnti hana jafnframt á skyldur þær er hún geng- ist nú undir og þá ábyrgð er hjónabandið legði henni á herðar. „En með glaðlyndi og áhuga gengur þetta allt sam an“, sagði afi gamli, sem nú er kominn hátt á 82. aldurs- árið og kvaðst ekki efast um að Désirée stæði sig prýðilega í hinni nýju stöðu sinni og að henni færust vel úr hendi hús móðurstörfin á hinu víðlenda svéitasetri barónsins í Suður- Sviþjóð. Að veizlunni lokinni lögðu prinsessan og maður hennar upp í brúðkaupsferð sína en ekki vissu menn hvert henni var heitið. I Brezka þotan á Reykjavíkurflugvelli í gærmorgun. „Fjögurra gata tryliitæki“ kölluðu ung- lingarnir hana. (Ljósm. Mbl. Sv. Þ.). Þotumennirnir ánægðir með Reykjavíkurvöll Verkamannoílokkurinn vinnur á við aukukosningor í Bretlundi BREZKA þotan (Gomet IV C), sem kom hingað til lands á fimmtudag, lenti á Reykjavíkur flugvelli kl. hálf tiu á fimmtu- dagsmorgun. Eins og skýrt var frá hér í Mbl. í gær, flýgur Filippus hertogi með þotu þess ari til Englands, þegar hann fer héðan úr íslandsheimsókn sinni hin 3. júlí. Lendingin gekk vel í alla staði, og notaði flugvélin ekki nærri alla flugbrautina. Flugmennimir voru harðánægðir Ðieð brautina og kváðu engan annmarka vera á lendingu þar. Mikill rykmökkur gaus upp þegar flugvélin lenti. Sætin í þotunni snúa aftur, eins og nú þykir öruggara. Mjög þeirra verða tekin úr vélinni, óður en hún kemur hingað aftur, til þess að rýmra verða um her- togann. Englond Portúgnl 1-1 ENGLAND og Portugal léku í „litlu heimsmeistarakeppninjni“ í Brazilíu í gær. Jafntefli varð 1—1 og er þetta talinn einn lak- csti landsleikur Breta á síðari ár ur. Portugal hafði forystu í hléi 1—0. Brezki þjálfarinn Ramsey reyndi taktik með 3 miðherja en það mistókst gersamlega. Sókn Breta mistókst hvað eftir annað og vörnin gerði margar skyssur. Banks markvörður, Thomsen bak vörður og Thompson útherji, voru einu Bretarnir sem áttu góð an leik. Geta má þess, að einn yfir- manna á þotunni, var hér í brezka flughernuim á styrjaldar- árunum. Seoul, S. Kóreu, 5. júní (AP-NTB) STJÓRNIN í Suður Kóreu fyrirskipaði í dag lokun allra háskóla landsins, en þeir eru 85 með alls 125 þúsund nem endur. Er gripið til þessara ráðstafana vegna stöðugra mótmælaaðgerða stúdenta gegn yfirvöldunum. Einnig var skýrt frá því í Seoul í dag að handteknir hafi verið um 300 stjórnmála menn, hlaðamenn og há- skólakennarar. Chung Hee Park, forseti, skýrði frá því í dag að Chong Pil Kim, leiðtogi stjórnar- flokksins og hægri hönd for- setans, hafi í dag sagt af sér leiðtogaeinhættinu, í þeirri von að það geti orðið til þess að lægja mótmælaöldurnar gegn ríkisstjórninni. Jafnframt því sem háskólum laudsins verður nú lokað þar til Kl. eitt eftir bádegi fór þot- an héðan. Hóf hún sig á loft með venjulegum hætti; þ.e. reis ekki bratt frá jörðu (ekki „vertical take-off“). Var það gert vegna þess, að flugmennina fýsti að sjá Surtsey, en hraði þotunnar er slíkur, að ekki hefði verið hægt að lækka flugið í tima, áð- ur en til Surtseyjar var kornið, ef hún hefði þotið þegar af stað upp í háloftin. f haust, verða aðrir skólar opn aðir á mánudaig. Að nafninu til verður háskólanum aðeins lok- að til 4. júlá n.k., en daginn eftir hefjast tveggja mánaða sum arleyfi stúdenta, svo raunveru- lega verða skólarnir lokaðir til hausts. Öerðir stúdenta í Suður Kó- reu hófust í marz með mótmæl um gegn samningum stjórnar- innar við Japani. Kórea var áður japönsk nýlenda, og þótti stú- dentum Park-stjórnin niður- lægja íbúa Suður Kóreu með því að semja við Japani um að taka upp eðlilegt stjórnmála- samband ríkjanna. Mótmælabar- átta stúdentanna hótfst í höfuð borginni Seoul, en hefur síðan breiðst út til flestra stærri borga landsins. Og þó í fyrstu væri aðeins úm mótmæli gegn samn- ingunum við Japani að ræða, hafa fleiri mál komið fram und- anfarið. Saka stúdentarnir stjórn- ina til dæmis um harðstjórn, spill ingu og verðbólgu. Segja stúdent amir að njósnað sé um fram- komu þeirra í skólunum, hand- tökur séu algengar og oft hafi handteknir stúdentar verið pynt aðir. Faversham, Englandi, 5. júní (AP-NTB). AUKAKOSNINGAR fóru fram í Faversham í héraðinu Kent í Englandi sl. þriðjudag. Úrslit voru kunn í dag, og hefur fram- bjóðandi Vcrkamannaflokksins haldið kjördæminu með auknum meirihluta atkvæða. Er þessi sigur Verkamannaflokksins tal- inn áfall fyrir stjórn sir Alecs Douglas-Home, forsætisráðherra. Frambjóðandi Verkamanna- floikksins var Terence Boston, og hlaut hann 24.749 atkvæði. Frú Elsie Olsen var í framboði fyrir Íhaldsflokinn og hlaut 19.808 at- kvæði. Síðast var kosið í kjör- dæmi þessu árið 1959, og sigraði þá frambjóðandi Verkamanna- fiok'ksins með aðeins 253 at- kvæða meri'hluta. íhaldsmenn höfðu vonir um að þriðji frambjóðandi í Favers- ham, Russel Eckley, sem er óflokksibundinn, taeki eitthvað af atkvæðum frá Verkamanna- fiokknum, og tryggði þannig að bilið milli flokkanna breikkaði ekki eða jafnvel að íhaldsmenn ynnu á. En Eckley hlaut aðeins 352 atkvæði, og hafði því engin á'hrif. Meirihluti Verkamanna- flokksins var nú 4.941 atkvæði, og þykir það ekki spá góðu fyrir íhaldsflokknn í þingkosningun- urn í Bretlandi í október. Ef Verkamannaflokikurinn bætti við sig atkvæðum við þinigikosn- ingarnar í sama hlutfalli og við aukakosninigarnar í Favexsham, hlyti flokkurinn 55 sæta meiri- hluta í Neðri málstofunni í ‘haust. Þingsæti í Neðri málstofunni eru 630 og skiptast þau þannig nú: íhaldsflokkur 359, Verka- niannaflokkur 259, Frjálsyndi flokkurinn 7 og óháðir 2. Þrjú þingsæti eru laus. Stúdentar MA 1952 ÁRÍÐANDI fundur í dag kl. 2 e. h. í Þjóðleikhúskjallaranum. Þessi bíll ei til sölu Ford Consul 315. Ekinn aðeins 27 þúsund km. og í ágætu ásigkomulagi. — Bíllinn verður til sýnis við Leifsstyttuna á Skólavörðuholti í dag og á morgun (laugardag og sunnudag) kl. 1—4 e.h. báða dagana. Verður þá tekið á móti tilboðum. Einnig má senda tilboð í afgr. Mbl. fyrir mánudagskvöld, merkt: 85 háskólum lokað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.