Morgunblaðið - 13.06.1964, Qupperneq 12
12
MORGU N BLAÐIÐ
Laugardagur 13. Júní 1964
Útgefandi:
Fr amk væmdas t j óri:
Ritstjórar:
Auglýsingar:
Útbreiðslustjóri:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Askriftargjald kr. 90.00
í lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Sverrir Þórðarson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
NÝ VIÐHORF
í LAUNAMÁLUM
lyiýlokið er ráðstefnu um
’ hagræðingu í íslenzku at-
vinnulífi, sem haldin var í
Borgarfirði að tilhlutan
Stjórnunarfélags íslands. —
Ráðstefnuna sátu bæði full-
trúar Alþýðusambandsins og
Vinnuveitendasambandsins,
auk fulltrúa frá samtökum
launþega og vinnuveitenda í
Noregi, sem fluttu fyrirlestra.
Á ráðstefnunni voru sam-
þykktar margar ályktanir,
sem allar miða til aukinnar
þekkingar og fræðslu á gildi
hagræðingar á hinum ýmsu
sviðum atvinnulífsins. Ráð-
stefnan mælti eindregið með
samstarfi þeirra aðila, sem
hér eiga hlut að -máli, um
þjálfun og fræðslu og vakti
athygli á þeirri reynslu, sem
fengizt hefur í nágranna-
löndunum. Samningar milli
launþega og vinnuveitenda
um samstarfsnefndir, vinnu-
rannsóknir og kerfisbundið
starfsmat hafa gefizt mjög vel
og stórbætt sambúð atvinnu-
rekenda ög vinnuveitenda.
Ráðstefnan mælti eindreg-
ið með því, að slíkir samning-
ar yrðu upp teknir hérlendis
og voru lögð drög að slíkum
samningum á ráðstefnunni,
sem nefndir launþega og
vinnuveitenda hafa nú til at-
hugunar.
Reykjavíkurblöðin fagna
öll ráðstefnunni í gær og á
ráðstefnunni töluðu bæði
Kjartan Thors, forseti Vinnu-
veitendasambands íslands, og
Hannibal Valdemarsson, for-
seti Alþýðusambands íslands,
og lýstu báðir yfir ánægju
sinni með ráðstefnuna og ár-
angur hennar.
Kjartan Thors sagði m.a.:
„Við ættum ekki að þurfa að
standa í verkföllum og vinnu-
deilum oft á ári úr þessu“.
Hannibal Valdimarsson
sagði m.a.: „Nú hafa verið
gerð drög að rammasamningi
um vinnuhagræðingu og ég sé
enga ástæðu til annars en að
ætla, að vel takist til um þá
samningagerð“.
ÁSTÆÐA TIL
BJARTSÝNI
/"tylfi Þ. Gíslason, viðskipta-
^ málaráðherra, flutti í
fyrradag ræðu á aðalfundi
Kaupmannasamtaka íslands.
Ráðherrann ræddi um ástand
ið í efnahags og viðskipta-
málum, einkum með hliðsjón
af samkomulaginu um launa-
mál, sem tekizt hefur milli
launþegasamtakanna, sam-
taka atvinnurekenda og ríkis-
valdsins. Ráðherrann fagn-
aði samkomulaginu og kvað
það skapa ný viðhorf, sem
gæfu ástæðu til bjartsýni.
í ræðu sinni rakti ráðherr-
ann það jafnvægisleysi, sem
ríkt hefur í efnahagsmálun-
um undanfarna áratugi. Tíma
bilið frá stríðslokum til 1960
hefði einkennzt af rangri
gengisskráningu og höftum á
flestum sviðum atvinnu- og
viðskiptalífsins. Væri hér
sennilega skýringin á því, að
hagvöxtur hefur ekki verið
örari hér á landi á þessu tíma
bili.
Meginþýðing samkomulags-
ins um launamál er einmitt
fólgin í því, sagði ráðherrann,
að allir aðilar þess virðast
viðurkenna, að víxlhækkanir
verðlags og kaupgjalds verði
að stöðva. Síðar sagði við-
skiptamálaráðherra, að ef á-
framhald verði á þeirri stefnu,
sem mörkuð var með sam-
komulaginu, hafi ný viðhorf
skapazt í íslenzkum launamál
um. Vonir ættu þá að standa
til þess, að árlegar grunn-
kaupshækkanir verði ekki
meiri en svarar til árlegrar
framleiðsluaukningar, þannig
að verðlag innanlands og
gengi erlends gjaldeyris ætti
að geta haldizt stöðugt um
langt tímabil. En þar með
væru einmitt fengnar forsend
urnar fyrir því, að hagvöxt-
urinn gæti orðið sem örastur
og lífskjarabótin sem mest.
Jafnframt væri þá fenginn
hinn æskilegasti grundvöllur
fyrir því að afnema þær höml
ur á viðskiptum, sem óvissan,
sem siglt hefur í kjölfar
ringulreiðarinnar í kaup-
gjalds- og verðlagsmálum,
hefur enn gert nauðsynlegar.
Ráðherrann ræddi einnig
um verðlagseftirlit og sagði,
að forsenda þess, að unnt sé
að afnema verðlagseftirlit,
væri jafnvægi í verðlags og
kaupgjaldsmálum. Þegar slíkt
jafnvægi hefði náðst, þá væri
verðlagseftirlit í hinu gamla
formi óþarft.
EINN ÁFANGI
ENN TIL JAFN-
RÉTTIS BLÖKKU-
MANNAí
BANDARÍKJUNUD/i
Cjögulegur viðburður átti sér
^ stað í öldungadeild banda-
ríska þingsins fyrir skömmu,
Rafknúinn „spámaður"
sagði fyrir um kosningaúrslitin í Kaliforníu
Nýjung ryður sér til rúms í Bandaríkjunuxc
VIÐ prófkosningarnar í
Bandaríkjunum að undan-
förnu hefur verið notuð' ný
tækni til þess að segja fyrir
um úrslit. T.d. var því spáð 23
mínútum eftir að fyrsta kjör-
staðnum var lokað í Kali-
forníu, að Barry Goldwater
myndi sigra og fá 51% at-
kvæða. Hann hlaut 51,3%.
Hér á eftir fer grein um
þessa nýjung eftir .Godfrey
Hodgson, einn af fréttaritur-
um Observers í Washington.
Birtist hún nokkuð stytt.
Þúsundir sjónvarpsáhorf-
enda í Washington lögðust til
svefns að kvöldi 2. júní sl.
sannfærðir um að Barry Gold
water, öldungadeildarþingmað
ur frá Arizona, myndi sigra
ríkisstjóra New York, Nelson
Rockefeller, í prófkosningum
repúblikana í Kaliforníu. —
Blöðin morguninn eftir full-
yrtu, að Goldwater yrði hlut-
skarpari og á daginn kom að
þau höfðu rétt fyrir sér.
En sama morguninn, 3. júní,
aðeins nokkrum klukkustund-
um síðar, hafði Rockefeller
fengið 836 þús. atkvæði, en
Goldwater ekki nema 818 þús.
Á ritstjórnarskrifstofum blað-
anna voru margir taugaóstyrk
ir, þar til Goldwater tók for-
ustuna á ný og Ijósf var að
þaU þyrftu ekki að éta ofan í
sig fullyrðingar sínar.
Til grundvallar fullyrðing-
unum lögðu blöðin niðurstöð-
ur rafknúins „spámanns" eða
rafeindaheila, sem vann' úr
upplýsingum samkvæmt nýrri
tækni. Var hún notuð í fyrsta
skipti í prófkosningunum.
Nýjungin er árangur af sam
vinnu IGM (International
Business Machines), sem
framleiðir rafeindaheila, út-
varps- og sjónvarpsstöðvar-
innar CBS (Columbia Broad-
casting System, og Lou Harris,
sérfræðings um skoðanakann-
anir og markaðsrannsóknir.
Samkvæmt kerfi sínu gátu
þeir skýrt frá því að Gold-
water myndi sigra aðeins 23
mínútum eftir að fyrsta kjör-
staðnum í Kaliforníu var lok-
að. Áður hafði kerfið verið
reynt í prófkosningum í Mary
land. Þar var úrslitum einnig
lýst áður en kosningu lauk og
Strax að kvöldi 2. júní, þegar
„spámaðurinn" hafði spáð um
úrslitin, lýsti Goldwater því
yfir, að hann hefði sigrað.
rafknúni „spámaðurinn“ -hafði
á réttu að standa.
„Spámaðuririh" vinnur með
miklum hraða úr upplýsing-
um, er fást með nútímá að-
ferðum við skoðanakannanir
og markaðsrannsóknir. Ef
heilinn fær niðurstöður kosn-
inga í nokkrum kjördæmum
skilar hann heildarniðurstöðu
eftir nokkrar mínútur. En
aðalatriðið er að kjördæmin,
sem heilinn vinnur úr séu
rétt valin og Harris er sagður
hafa náð mikilli leikni í því.
Áður en kosningarnar fara
fram fær rafeindaheilinn upp-
lýsingar um kosningavenjur
íbúa kjördæmanna, sem valin
hafa verið. T.d. hve mikil kjör
sókn hafi verið við síðustu
kosningar, hve margir flokks-
bundnir demókratar búi þar
og hver sigraði í síðustu kosn-
ingum. Einnig eru heilanum
veittar upplýsingar um kosn-
ingavenjur sérstakra mann-
gerða, t.d. blökkumanna,
ítalskra eða pólskra Banda-
ríkjamanna, íbúa fátækra-
hverfa eða úthverfa, bænda
eða víxlara.
Með gífurlegum hraða getur
rafeindaheilinn metið fyrstu
tölurnar úr kjördæmunum,
sem hann hefur fengið upp-
lýsingar um og gefið til
kynna hver úrslitin verði.
Við kosningarnar í Kali-
forníu áttu fyrstu tölur í út-
hverfunum umhverfis Los
Angeles mikinn þátt í því, að
„spámaðurinn“ tilkynnti sig-
ur Goldwaters, þegar að
kvöldi 2. júní En það var ekki
fyrr en í dögun 4. júní, sem
talningu var endanlega lokið
í þessum hverfum, og þar
fékk Goldwater mikinn meiri-
hluta.
Kosningarnar í Kaliforníu
voru fyrsta meiriháttar verk-
efnið, sem „spámaðurinn"
fékk til þess að glíma við og
takist honum eins vel í fram-
tíðinni er fullvíst, að hann
nær mikilli útbreiðslu í Banda
rikjunum. En þó að hann geti
sagt nákvæmar fyrir um kosn
ingaúrslit en skoðanakannan-
ir hafa gert til þessa, er ekki
víst að hann verði vinsæll.
Hann getur sagt fyrir um úr-
slit áður en kosningunni lýk-
ur,-en hver kjósandi vill hafa
það á tilfinningunni, að hann
ráði nokkru um úrslitin, og
þykir súrt í broti, ef vél hefur
skýrt frá þeim áður en hann
kemur á kjörstað.
(Observer — öll réttindi
áskilin)
þegar tveir þriðju hlutar
deildarmanna samþykktu að
skera niður umræður um
frumvarpið um tryggingu á
réttindum blökkumanna. Slík
takmörkun á málfrelsi þing-
manna er einsdæmi, en mál-
þóf afturhaldssamra • þing-
manna frá Suðurríkjunum og
skilningur annarra þing-
manna á brýnni nauðsyn
þess að samþykkja frumvarp-
ið mun hafa valdið því, að
gripið var til þessara ráða.
Talið er, að nú sé þess ekki
langt að bíða, að frumvarpið
verði að lögum.
Bandaríkjamenn hafa frá
upphafi ríkis síns verið for-
ustuþjóð lýðræðisins í heim-
inum. Það hefur barátta
þeirra innan síns eigin lands
og utan sannað. Svertingja-
málið hefur þó verið blettur á
hinu bandaríska þjóðfélagi.
Það skilja flestir Bandaríkja-
menn bezt sjálfir og eru ó-
hræddir að viðurkenna þá
staðreynd. Baráttan fyrir
réttindum blökkumanna í
Bandaríkjunum mun verða til
lykta leidd á næstu árum.
Bandarísk stjórnvöld og ein-
staklingar gera sér grein fyr-
ir því, að hér er ekki aðeins
um hörundslit blökkumanna
að ræða, heldur menntun
þeirra og atvinnumöguleika.
Þegar Bandaríkjamenn hafa
tryggt blökkumönnum jafn-
ræði við hvíta menn fyrir lög
unum og veitt þeim jöfn tæki
færi til menntunar og at-
vinnu, þá munu þeir enn hafa
veitt þjóðum heims fordæmi
um það, hvernig erfið vanda-
mál leysast í lýðræðisþjóðfé-
lagL
ilMissir borg-
araréttinda
í USA
ÞANN 18. maí sl. úrskurðaðl
Hæstiréttur Bandaríkjanna,
að tveir kaflar „Laga um inn-
flytjendur og veitingu borg’-
araréttinda“ væru ógildir, þar
eð þeir færu í bága við stjórn
arskrá landsins.
Samkvæmt nefndim köft-
um téðra laga glatar maður,
sem öðlast hefir ■iueríakau
borgararétt, þeim rétti við f
vissar aðstæður, ef hann hefir íi
dvelizt í þrjú ár í fæðingar- X
landi sínu eða þar sem hann 1
hafði borgararétt áður eða |
við fimm ára dvöi í öðru í
landi. 1
Vegna þessa nýuppkveðna J
úrskurðar Hæstaréttar geta I
þeir aðilar, sem öðlazt höfðu I
amerískan borgararétt en £
glatað honum vegna framan-
greindra ástæðna, sótt um, að l
mál þeirra verði tekið tU end l
urskoðunar. Sltkar umsóknir |
bec að semda Ameríska sendi- ?
ráðiHM, Luifwegi 21. Keykja 2