Morgunblaðið - 22.07.1964, Side 1
24 siðiiff
.51 árgangur
169. tbl. — Miðvikudagur 22. júlí 1964
Prentsmiðja Morgunblaðsln*
Refsiaðgerðir gep
S.-Afríku og Portúgal
— samþykktar á fundi afrískra leiðtoga
í Kairó — fundinum lokið
Kairó, 21. júlí — (AP) —
LEIÐTOGAR 34 Afríkuríkja
luku í dag fundi sínum í
Kairó. Ákveðið var í fundar-
lok, að öll þátttökulönd beittu
sér fyrir efnahagslegum
refsiaðgerðum gegn Suður-
Afríku. Þá var einnig ákveð-
ið, að reynt skyldi að veita
skæruhermönnum á portú-
gölskum yfirráðasvæðum þá
aðstoð, sem hægt er.
í tilkynningu, sem gefin
var út í lok fundarins, var frá
því skýrt, að fundarmenn
hefðu samþykkt skýrslu, þar
sem greint var frá landamær-
um einstakra ríkja í Afríku.
Sagt var þó, að tvö ríki, Mar-
okkó og Sómalíuland hefðu
neitað að viðurkenna skýrsl-
una.
Gert er ráð fyrir, að önnur
atriði lokasamþykktar fund-
arins verið birt síðar í kvöld,
eða nótt.
Það var í dag, að fundarmenn
tóku að ræða sérstakar aðgerðir
gegn Suður-Afríku og Portúgal,
og var það gert á lokuðum fundi.
Fundarstörf hafa gengið hægt.
Þrír fyrstu fundardagarnir ein-
Framh. á bls. 16.
Efrt myndln sýnlr (t. v.)
Antoine Gizenga, sem fyrr-
um var studdur af komm-
únistum, og Moise Tshombe,
eftir að Tshom.he hafði kom-
ið því til leiðar, að Gizenga
var látinn ilaus. Hann hafði
þá setið I tvö ár í Bula-
Bemba fangelsinu í mynni
Kongóárinnar. Myndin var
tekinn sl. laugardag.
Neðri myndin er frá fundi
afrískra leiðtoga, sem staðið
hefur undanfarna daga í
Kairó. Frá vinstri sjást
Kwame Nkrumah, forseti
Ghana; Leon M‘Ba, forseti
Gabon; Haile Selassie, keis- •
ari Eþíópíu og A. M. Apithy,
forseti Dahomey. — Ljósm.
AP.
Johnson forseti krefst rann-
sóknar vegna óeirðanna
Washington, 21. júlí — (AP)
JOHNSON, Bandaríkjafor-
seti, gaf í dag út fyrirskipun
Javits gegn
Goldwater
New York, 21. júlí — AP
JACOB Javits, repúblikani,
öldungadeildarþingmaður frá
New York, sem kunnur er
vestan hafs fyrir afskifti sín
af miálum flokksins, lagðist í
dag gegn Goldwater, forseta-
efni flokksins.
Javits sagði, að hann gæti
ekki lagt Goldwater lið, en
sagðist ekki mundu ganga úr
flokknum, heldur beita sér
fyrir því, að frjálslyndir
repúblikanar berðust gegn
íhaldsöflunum.
Kvað hann nauðsynlegt, að
komið yrði í veg fyrir, að
þeir, sem fylgja Goldwater
að málum, nái yfirhöndinni
innan flokksins.
um, aö alríkislögregla Banda
ríkjanna, FBI, hefji þegar í
stað rannsókn á kynþátta-
óeirðum þeim, sém til hefur
komið vestan hafs síðustu
dægur.
Forsetinn sagði í yfirlýs-
ingu sinni, að ofbeldi og lög-
leysur yrðu ekki látnar við-
gangast. Sagði þar ennfrem-
ur, að sérstök nefnd hefði
þegar tekið til starfa á veg-
um FBI, og skyldi hún rann-
saka sérstaklega, hvers kon-
ar lagabrot hefðu átt sér stað.
Blaðafulltrúi Hvíta hússins,
George E. Reedy, las eftirfar-
andi yfirlýsingu forsetans;
„Það verður að gera öllum
ljóst, þegar í stað, að ofbeldi
og lögleysur verða ekki þol-
aðar.... bandarískir borgar-
ar hafa fullan rétt á vernd..“
(Sjá grein um kynþáttaóeirð-
irnar í Bandaríkjunum, ann-
ars staðar í blaðinu).
f gærkvöld, mánudagskvöld,
varð y ára gömul blökkustúlka
fyrir' skotárás á einnj af götum
Chicagoborgar.
Áhorfendur að atburðinum
segja, að hópur unglinga (hvítra)
hafi ekið um götuna á miklum
hraða, og hafi verið skotið
stúlkuna úr bifreið, sem
Framh. á bls. 9.
Æskan í dag falleg og myndarleg
María Andxésdóttir 105 óra
ÁRNI HELGASON í Stykkis-
hólmi átti eftirfarandi samtal
við Maríu Andrésdóttur fyrir
Morgunblaðið í tilefni af 105
ára afmæli hennar í dag. —
Óskar blaðið hinu merka af-
mælisbarni til hamingju.
— ★ ★ ★ —
— Hafa seinustu 5 árin ver
ið þér erfið?
— Erfið, nei, sei ,sei, nei.
Það er ekki orðið yfir það. Að
vísu hefir flensan herjað á
mig, en til allrar lukku hafði
ég þar betur og hvernig getur
nokkuð verið erfitt þegar
maður á annað eins að eins og
fólkið hér í húsinu, blessunina
hana Ingibjörgu og Aðalheiði
mína, og svo auðvitað karl-
mennina líka, ekki skal
gleyma þeim, nei, nei, það
má alls ekki. Nei, ég hefi það
gott. Blessuð hjónin sköffuðu
okkur Ingibjörgu þessa ágætis
stofu. Það er svo hátt til lofts
og vítt til veggja eins og sagt
var hér áður fyrr. Og útsýnið
upp á blessaða Skógarströnd
ina mína. Nei, Árni minn,
miðað við aldurinn og það
sem á dagana hefir drifið, hefi
ég það gott, svo er guði fyrir
að þakka.
Framh. á bls. 10
*