Morgunblaðið - 22.07.1964, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.07.1964, Blaðsíða 6
MORCUNBLADIÐ MiðvtkucJagur 22. júlí 1964 Kennsla í meðferð liskileitartækja NÝLEGA birtist I einu dagblað- anna viðtal við Hilmar Krist- jónsson, forstöðumann veiðitækni deildar FAO í Róm. Var þar m.a. réttilega vakin athygli á nauð- syn þess, að hér á landi yrði tek- in upp föst kennsla fyrir sjó- menn í notkun fiskileitartækja Og annarri veiðitækni. Viðtal þetta hefur gefið blöð- tmum nokkurt tilefni til hugleið- inga. Af þvi, sem þar hefur kom- ið fram, sem m.a. gefur til kynna, að ekkert hafi verið gert hér á landi í þessum efnum, þykir mér pétt að vekja athygli á eftirfar- •ndi: Eftir að fiskileitartækin voru almennt tekin í notkun við síld- veiðarnar hér við land og ný veiðitækni í sambandi við þau, kom brátt í ljós, að hin nýja tækni var ekki öllum jafn auð- lærð. Fiskifélag íslands hófst því handa og stofnaði til námskeiða til fræðslu í meðferð fiskileitar- tækja og veiðitækni í sambandi við notkun þeirra. Var nokkurt fé veitt til þessarar starfsemi á fjárlögum. Námskeiðin voru haldin víðsvegar um land, svo að lem flestir skipstjórnarmenn gætu haft af þeim gagn. Tveir menn voru það aðallega, sem höfðu veg og vaftda af fram- kvæmdum í sambandi við nám- Bkeiðin, Kristján Júlíusson, loft- •keytamaður, og Jakob Jakobs- *on, fiskifræðingur. Auk þess, voru svo fengnir hinir færustu skipstjórar til að skýra frá reynslu sinni og ræða við þátt- takendur í námskeiðunum um hagkvæmasta notkun tækjanna. Var það álit allra, sem fylgdust með þessari starfsemi, að hún hefði borið mikinn árangur. Það var hinsvegar augljóst, að slíkri starfsemi eru takmörk sett Steinavötn í Suð- ursveit brúuð. HÖFN, Hornafirði, 20 júlí — Siáttur hófst í Hornafirði síðari hluta júní-mánaðar, en hefur gengið fremur hægt. Þurrkar hafa ekki verið hagstæðir, en grasspretta mun víðast hvar vera •Ilgóð. Byrjað er að brúa Steina- vötn í Suðursveit. Brúarsmiður tr Jónas Gíslason. Mjög mikili straumur ferða- fólks er hér dag hvern. Flest hef- ur fólkið orðið-að snúa aftur við Steinavötn. >au eru aðeins fær bifreiðum með drifi á öllum hjól- um, en ferðafólk vill gjarnan komast að ævintýralandinu við Jökulsá. — Gunnar. Bílvelta í Hraun- gerðishreppi A LAUGARDAGSKVÖLD valt Moskvitsbifreið út af veginum hjá Bitru í Hraungerðishreppi. Elín Björt Jónsdóttir úr Kópa- vogi, sem ók bifreiðinni, slasaðist eitthvað, en engin meiðsli urðu á tveimur fanþegum, sem með henni voru. og getur ekki komið að sömu not- um og ef um fasta kennslu er að ræða. f framhaldi af námskeið- unum og byggt á þeirri reynslu, sem þar fékkst, var svo birtur í tímaritinu Ægi langur greina- flpkkur, sem Kristján Júlíusson ritstýrði, um fiskileitartækin og notkun þeirra. Var greinarflokk- ur þessi síðan sérprentaður og sendur út þannig, að reynt var að sjá svo til, að hann kæmist í hendur öllum skipstjórnarmönn- um á síldveiðiflotanum. Loks er nú í undirbúningi út- gáfa bókar um fiskileitartækin og notkun þeirra, þar sem fram kemur allt hið nýjasta í þessum efnum byggt á þeirri reynslu, sem fengizt hefur undanfarin ár. Verður þetta mjög gagnleg handbók skipstjórnarmönnum. Ritstjóri bókarinnar er Jakob Jakobsson, en Fískifélagið gefur hana út með fjárstyrk úr ríkis- sjóði. Mun bókin koma út fyrir haustið og er þess að vænta, að skipstjórnarmenn notfæri sér þann mikla fróðleik, sem þar er að finna, í aðgengilegu formi. Af þessu má sjá, að nokkuð hef ur þegar verið gert hér á landi í því efni, að fræða skipstjórnar- menn á síldveiðiflotanum um fiskileitartækin og veiðitæknina í sambandi við þau og enn er unnið að því. >að haggar þó ekki því, að nauðsyn er á fastri kennslu og yrði hún fyrst og fremst að fara fram við skóla sjómanna. Mun nú vera í endurskoðun námsskrá Stýrimannaskólans og verður þar vonandi tekið tillit til vaxandi þarfa á þessu sviði. Davíð Ólafsson. ■ . m 'V líwMWmfmM ■ »-,■. ... .. ■ Withold Lesxczynsky (til vinstri) og Relles Dominique Kvikmynd af forn- um víkingaslóðum MJÖG færist nú í vöxt, að hing- að komi útlendingar þeirra er- inda að gera kvikmyndir af landi og þjóð. Morgunblaðið hafði tal af tveimur mönnum í gær, sem hér hafa verið í 10 daga við töku kvikmyndar. Annar er Frakkinn, Dinique Birmann de Relles, sem starfað hefur við sænska útvarpið í 11 ár, og hinn er Pólverjinn, Witold Leszczyn- ski, sem nýlega hefur lokið námi i kvikmyndastjórn í Póyandi og hefur um eins árs skeið kynnt sér slíka starfsemi í Kaupmanna. höfn. Félagarnir hafa ekki áður gert kvikmynd, en de Relles, sem stjórnar töku myndarinnar, kveðst lengi hafa haft mikinn á- huga á Islandi og slóðum fornu víkinganna. Fékk hann árs leyfi hjá Sænska útvarpinu, seldi flest ar eigur sínar til að standa stnaum af kostnaði við kvik- myndatökuna og er nú hér kom- inn. Ætlunin mun vera sú að gera þrjár myndir, eina frá Græn landi, eina frá Færeyjum og þá lengstu og veigamestu af íclandi. Verða þetta 16 mm. filmur, ætl- aðar til að selja sjónvarpsfyrir- iækjum en einnig haft í huga að gera úr þeim heildarkvikmynd af fornum slóðum víkinganna til sýningar í kvikmyndahúsum. Til Grænlands munu kvik- myndatökumennirnir halda á íimmtudag, og dveljast þar 3 vik- ur og koma aftur til íslands ,þar sem þeir hyggjast ljúka mynda- töku í byrjun september. Síðan ætla þeir að fara til Færeyja. Á Íslandi sögðust þeir mundu leggja aðaláherzluna á að sýna líf fólksins, en ekki kvikmynda náttúru landsins nema að litlu leyti, þar sem hún er tengd starfi manna eða þar sem hún héfur að þeirra dómi átt þátt í mótun skapgerðar þjóðarinnar. Skák EFTIRFARANDI skák var tefld í 11. umferð mótsins. Svart: Benkö. Hvítt: TaL Caro-Kan. 1. e4, c6; 2. d4, d5; 3. RcS, dxe4; 4. Rxe4, Rbd7; 5. Bc4, Rgf6; 6. Rg5, e6 (Annar möguleiki er Rd5). 7. De2, Rdb6; 8. Bb3, h6; 9. Rgfi-f3, Be7 (E. t. v. var 9. — c5 nákvæmara). 10. Rh3, c5; 11. Be3, Rbd5; 12. 0-0-0, Rxe3; 13. fxe3, Dc7; 14. Re5, »6; 15. g4, Rd62; 16. g5, hxg5; 17. Rxg5, Bxe5; 18. dxe5, Dxc5; 19. Hd8t!, Ke7; 20. Hxh8, Dxg5; 21. Dd2, gefi#, 1 tólftu umferð var skálc þeirra Gligorio og PachmaiMi eina mikilvægust. Paobman* beitti franskri vörn, Mac Chulton afbrigði, gegn e4 hjá Gligoric. Júgóslavanum tókst að ná var- anlegu frumkvæði og vann skák- ina í 42 leikjum. Eftir þennan sigur á Giigoric allgóða mögu- leika á 13% til 15 vinn. Rúss- arnir unnu allir, nema Stein, sem á betri biðskák gegn Benkö. IRJóh. 3 tonn aí humar til Akraness Akranesi, 20. júlí: — HÖFRUNGUR I. landaði 1605 kg. Fram 850 kg. og Haukur RE 500 kg. af slitnum humar. Flestir humarbátar eru í landi í augna- blikinu, en fara út á veiðar 1 dag. Hann fer lygnandi. Ms. Lagarfoss kom sl. laugar- dag með sementsumbúðir til Sementsverksmiðjunnar. — Oddur. Beck og víkingasveit hans kom- izt í feitt — enn einu sinni. Hvorki meira né minna en 560 lítra af genever. Mundu margir segja, að minna mætti nú gagn gera. Já, og svo voru það sígaretturnar, 45 þúsund stykki, nú, í miðjum sígarettuandróðr- inum. Sjálfsagt rennur töluvert af smygluðu áfengi að jafnaði úr' greipum tollþjónanna, því varla hafa þeir tíma til að kíkja undir hverja fjöl og þukla öll skip, hátt og lágt. Þag hefur komið fyrir að tollverðir hafa skrúfað skilrúm úr skipum í brennivínsleitinni — og það kæmi engum á óvart þótt þeir tækju véUna úr einhverjum Fossinum einn góðan veðurdag. ★ FELUSTADIR Tollverðirnir eru farnir að þekkja hvern krók o.g kima í skipunum, þótt alltaf verði sjálfsagt einn og einn krókur útundan, þegar leitað er. En þessi leit hlýtur að valda margs eitthvað finnst. í rauninni ætti að gefa tollgæzlunni tækifæri til þess að birgja brunninn áður en barnið er dottið niður í hann — og leyfa gæzlunni að fylgjast með teiknipgu eins skips. Gefa henni tækifæri til að útiloka sem flesta felustaði frá upphafi. En hætt er við að það skip yrði hálfskrýtið — og þó öllu meiri hætta á að eng- inn lifandi maður fengist til að ráða sig á skip, sem hefði enga felustaði. ir TAUGARNAR Annars hef ég stundum verið að hugleiða það, þegar tollþjónarnir eru að taka þenn- an mikla smyglvarning, hvort þeir séu ekki hálf taugaveiklað- ir, sjómennirnir, sem koma í höfn með svo og svo mikið af smyglvöru — og bíða milli vonar og ótta; Þefa tollþjón- arnir varninginn uppi, eða slepp ég? Já, þetta hlýtur að reyna á taugarnar og er sjáJfsagt ekki unni til þess að geta veitt með- bræðrunum þá hollustu, sem felst í genever og sígarettum. Það er ástæða til að benda mönnum, sem vig smygl fást, á það, að ofspenntar taugar geta valdið alls kyns kvillum — og langvarandi taugspenna getur bókstaflega lagt mann í gröfina miklu fyrr en þeir hefðu annars hafnað þar. Þetta er ekkert grín. Tökum til dæmis 560 pott- flöskur af genever og 45 þús- und sígarettur. Hve margar andvökunætur hafa þær kostað hlutaðeigandi smyglara? Ætli matarlysin hafi ekki dofnað, þegar heimahöfn nálgaðist? Og þeir hafa sennilega reykt helm- ingi fleiri sígarettur en venju- lega. Öll ánægjan af að koma heim til fjölskyldunnar fer út í veður og vind og þegar toll- þjónarnir birtast, ja, hvernig eru taugarnar þá? Og ef þeir finna ekki neitt — ja, þá er að koma þessu í land, selja gósið. Það er heldur ekki hættulaust, eins og dæm- in sanna. Hegning, atvinnumissir, alLs kyns erfiðleikar og áföll á heim ili og út í frá, þegar upp kemst um smyglið, er svo kapituli út af fyrir sig. ÍT ILLUR FENGUR En hvað hefst upp úr krafs- inu, ef áætlunin stenzt? Jú, ætU þeir næli ekki í nokkur mán- aðarlaun, kannski tvenn, eða þrenn í þetta sinnið. Sömu fjár- hæðar er hægt að afla á heiðarlegan hátt. Þafl tæki lengri tíma og kost- aði að vísu erfiði, fyrir- höfn. En andlega ástandið, sam- vizkan væri allt önnur. Friður við guð og menn. Og einhvern veginn er það nú svo, að illur fengur verður mönnum oft tU bölvunar. Þetta er kannski hjá- trú og vitleysa. En það fer mik- ið eftir hugarfari mannsina sjálfs, andlegu ástandi hans, hvort hann er ánægður meS það sem hann er að gera, eð* ekki. Ef hann hefur ekki hreina tamvizku gagnvart sjálfum sér vegna þeirra fjármuna, sen» hann er að eyða, þá finnst hon- um alla tíð að fénu hafi verid illa varið og bölvun fylgja því, sem fyrir peningana fékkst. „Illur fengur illa forgengur** getur að því leyti verið prófua á siðferðisþroska mannsins. ELDAVÉLAR ELDAVÉLASETT GRILL Sjálfvirkt hita- œ tímaval. A E G - umboði# Söluumboð: HÚSPRÝÐI HF. Sími 2044« og 20441.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.