Morgunblaðið - 12.08.1964, Síða 1
24 siður
= Mynd þessi var tekin þegar tyrkneskar herflugvélar réðust á varðbát Kýpurstjórnar í höfninni g
§j í Xeros, á norð-vestur hluta eyjunnar, hinn 8. þ. m. Fjórar orustuþotur af gerðinni „Super §
| Sabre“ réðust að bátnum með vélbyssu og eld flaugaskothríð, og stóð árásin í 20 mínútur. Bát- |
E urinn lá fyrir akkeri um 500 metrum frá landi, en áhöfninni tókst að ræsa vélarnar og sigla §|
I bátnum upp í fjöru þar sem hann gjöreyðilagð ist af eldi. Átta menn voru um borð, og særðust |
E allir. (Sjá fleiri myndir bls. 10).
ímiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiwíii
KYRRT Á KÝPUR
Öryggisráðið ræðir kæru Kýpurstjómai
vegna loftárása tyrkneskra flugvéla
Kínverskar þotur
til N-Vietnam
/-
Úreltar vélar, sem Rússar sendu Kínverjum
fyrir mörgum ámm
Washington, 11. ágúst (AP)
SKÝRT var frá því í Was-
hington í dag að Kínverjar
hafi sent fjölda orustuflug-
véla til Norður-Vietnam. Eru
þetta þotur af gerðunum Mig-
15 og Mig-17.
Frá þessu var skýrt á blaða-
mannafundi hjá Arthur Sylvest-
er, blaðafulltrúa varnarmála-
ráðuneytisins. Benti hann á að
Robert S. McNamara, varnar-
málaráðhérra, hafi sagt í síðustu
viku að búast mætti við því að
Kínverjaí sendu flugvélar til N-
Vietnam, og nú væri ljóst að flug
vélarnar væru komnar þangað.
Ástæðan fyrir því að koma
flugvélanna kemur ekki á óvart
er sú að unnið hefur verið að því
að undanförnu að lengja brautir
flugvalla í nágrenni við Hanoi,
höfuðborg N-Vietnam.
Aðspurður hvort kínverskir
flugmenn væru með vélarnar,
sagði Sylvester það hugsanlegast
að flugmenn frá N-Vietnam hafi
verið æfðir í meðferð vélanna í
Kína, en flugmennirnir gætu
einnig verið kínverskir.
Báðar þessar flugvélategundir
eru úreltar samkvæmt þeim
kröfum, sem gerðar eru í dag.
Þetta eru vélar, sem Rússar
sendu Kínverjum fyrir mörgum
árum meðan sambúðin var góð.
Báðar gerðirnar komu fyrst fram
á sjónarsviðið í Kóreustyrjöld-
inni fyrir rúmum tíu árum, og
báðar fara þær hægar en hljóðið,
eða innan við 1200 km á klukku-
stund. Hinsvegar fara sumar
nýjustu orustuþoturnar með yfir
2400 kílómetra hraða á klukku-
stund.
Nicosia og Ankara, 11. ágúst.
- (AP) -
KYRRT hefur verið á Kýpur
í dag, og virðast báðir deilu-
aðilar að mestu halda vopna-
hléið á eyjunni. — Þó hafa
heyrzt skothvellir öðru hverju
í dag.
Tyrkneskar herflugvélar
flugu yfir eyjima í dag, en
tyrkneska stjórnin segir að til-
gangurinn hafi aðeins verið að
taka myndir úr lofti og fylgj-
ast með því að vopnahléið sé
haldið. — Heldur tyrkneska
stjórnin fast við fyrri kröfur
sínar um að her Kýpurstjórn-
ar láti tafarlaust af hendi þau
þorp á eyjunni, byggð tyrk-
nesk-ættuðum mönnum, sem
herinn hefur tekið í sókn sinni
undanfarið. Kyprianou, utan-
ríkisráðherra Kýpur, hefur
lýst því yfir að stjórnin muni
ekki' geta gengið að þessum
kröfum Tyrkja.
Öryggisráð SÞ kom saman
í New York í kvöld til að
ræða ástandið á Kýpur sam-
kvæmt ósk Zenons Rossides,
fulltrúa Kýpurstjórnar.
Þegar fundur Öryggisráðsins
hófst var aðeins einn maður á
mælendaskrá, Rossides frá Kýp-
ur. Hafði hann farið fram á fund
inn vegna þess að staðfesting
hefur fengizt á því frá fulltrú-
utn SÞ á Kýpur að tyrkneskar
vélar hafi gert loftárás á þorpið
Polis á mánudagsmorgun, en
þessu hafði tyrkneska stjórnin
Framhald á bls 2.
Ekki er ráð,
nema i tíma
sé tekið
Utanríkisráðherrar íslands og
Noregs á fimm daga ferð um
vesturströnd Noregs
Guðmundur í. Guðmundsson skoðaði í gær
Munch-safnið og verksmiðju, sem smíðar
Asdic-tæki
Ósló. 11. ágúst (Hellick O.
Haugen, fréttar. AP).
GUÐMUNDUR I. Guðmundsson,
utanríkisráðherra, heimsótti í
dag fyrirtækið Simonsen Radio
A/S í Osló, sem hann sagði að
hefði á undanförnum árum gert
íslenzkum fiskimönnum kleift að
stórauka sildarafla sinn. Kom
ráðherrann í fylgd með Hans G.
Andersen, sendiherra íslands í
Osló, og Johan Cappelen, sendi-
herra Norðmanna á íslandi.
Félagið Simonsen Radio varð
fyrst allra til að smíða asdic
tæki, sem notuð eru til fiskleitar
um borð í fiskiskipum. Forstjóri
félagsins, Willy Simonsen, tók á
móti utanríkisráðherranum og
sýndi honum allar deildir verk-
smiðjunnar þar sem asdictækin
eru smíðuð. ítrekaði Guðmund-
ur í. Guðmundsson ummæli sín
frá blaðamannafundi á mánudag
þess efnis að um 80—90 af hverj
um 100 íslenzkum fiskiskipum
væru búin norskum asdictækjum
frá Simonsen, og að þessi tæki
hefðu valdið byltingu í síldveið-
um. Síldin veiðist nú yfirleitt
mun dýpra en áður, og væri úti-
lokað að ná h’enni ef skipin
væru ekki búin leitartækjum.
Willy. Simonsen sagði við þetta
tækifæri að félag hans hefði á
undanförnum sex árum flutt
asdictæki til íslands fyrir að
meðaltali tvær milljónir norskra
króna á ári.
Sólríkt var í Osló í dag og
mikil hlýindi. Þegar Guðmundur
í. Guðmundsson hafði lokið
heimsókninni til Simonsen, hélt
hann ásamt fylgdarliði sínu til
Edward Munch listasafnsins.
Safn þetta er nýtt, var opnað
í fyrsta sinn á síðasta ári, en
Framhald á bls. 2
London, .11. ágúst (AP).
STJORNARFORMAÐUR Cun
ard skipafélagsins, sem gerir
m. a. út „drottningarnar"
Queen Mary og Queen Elisa-
beth, sagði í dag að rúmlega
i 200 manns hafi pantað far.
með skipi einu, sem enn er
ekki farið að teikna, hvað
þá smíða.
Skipi þessu hefur verið gef-
íð nafnið „Q-4“ til bráða-
birgða, og eru að minnsta
kosti fjögur ár þar til það
verður sjósett. En margir
1 viija aug. > anlega fá að vera
með í fyrstu ferðinni, og spyr
enginn þeirra hvað farið kost
ar. í dag kostar farið yfir
Atlantshafið á „lúxus“ far-
rými með Queen Elisabeth
1.001 sterlingspund (rúmlega
120 þúsund krónur) aðra leið
ina, en vitað er að það verð-
ur dýrara á nýju „drottning-
unni“.
Lítið hefur verið látið uppi
um „Q-4“. Þó er áætlað að
skipið muni kosta um 22
milljónir punda (2.650 millj.
kr.)
Mynd þessi var tekin þegar Guðmundur í Guðmundsson utan-
rikisráðherra, kom til ósló sl. sunnudag. Halvard Lange, utanríkis-
ráðherra Noregs, tók á móti gestunum á flugvellinum, og sjást þeir
utanrikisráðherrarnir hér ganga frá Loftleiðaflugvélinni, sem flutti
Guðmund I Guðmundsson til Noregs. Lange er sem stendur starf-
andi forsætisráð'herra Noregs meðan Gerhardsen er í sumarleyfi.