Morgunblaðið - 12.08.1964, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 12.08.1964, Qupperneq 12
r 12 MORCUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 12. ágúst 1964 Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. - Askriftargjald kr. 90.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 5.00 eintakið. EFLING BUVÍSINDA OG BÆNDA- MENNTUNAR Ctórauknar framfarir hafa ^ orðið í landbúnaði hér- lendis og ^rtendis. Framleiðni og vörugæði hafa aukizt vegna aukinnar þekkingar og tækni og síaukinna rann- sókna og tilraunastarfsemi. Þessar staðreyndir er hollt að hafa í huga á 75 ára af- mæli bændaskólans á Hvann- eyri. Innlend bæudamenntun er aðeins rúmlega áttatíu ára gömul. Á þessum tíma hefur horft í rétta átt, þótt skrefin til aukinnar bændamenntun- ar og búvísinda hefðu mátt vera stærri og djárfari. Hinar stórstígu framfarir, sem orðið hafa í landbúnaði erlendis, t.d. í Bandaríkjun- um, hafa verið samhliða efl- ingu tækni og búvísinda. Svo hlýtur einnig að verða hér- lendis. Framfarir og þróun landbúnaðarins hlýtur að styðjast að verulegu leyti við þann árangur, sem næst í bú- vísindum, jarðvegsrannsókn- um, áburðarrannsóknum, jurtakynbótum og húsdýra, aukinni tækni við vinnslu og nýtingu lands, aukinni hag- ræðingu við búrekstur o.fl. Efling bændaskólanna og rannsóknarstofnana landbún- aðarins eru því brýnt verk- efni. Ingólfur Jónsson, Iandbún- aðarráðherra, flutti ræðu á Hvanneyri um síðustu helgi. Lýsti hann því yfir, að ríkis- stjórnin mundi beita sér fyr- ir því, að fjárveiting til end- urbyggingar bændaskólans á Hvanneyri verði aukin ríflega á næsta ári. Þá ræddi ráð- herra um bændamenntunina og nauðsyn á framhaldsnámi í búvísindum hérlendis. Sagði ráðherrann, að ákvörðun um fyrirkomulag framhaldsnáms mégi ekki dragast, enda verði fljótlega tekin ákvörðun í því máli. ÍSLAND OG SAMEINING EVRÓPU C'ameining Evrópu og fram- ^ tíð hefur enn einu sinni verið ofarlega á baugi, nú einkum vegna deilna stjórn- málamanna í Vestur-Þýzka- landi vegna afstöðunnar til Frakklands og Bandaríkj- anna. Annars vegar takast á öfl, sem vilja stefna að sterkri sameinaðri Evrópu undir for- ustu Frakka og Þjóðverja, sem sé sem óháðust samvinnu við Bandaríkjamenn, hins vegar eru þeir, sem leggja áherzluna á sem mest jafn- ræði þátttökuríkjanna í Ev- rópu og nána samvinnu við Bandaríkjamenn. íslendingar hljóta að fylgj- ast með þessari þróun af at- hýgli, því að sú þróun, sem á sér stað og mun verða síðar, kemur til með að hafa mikil áhrif á stöðu íslands. Hér er því um að ræða mjög þýð- ingarmikið mál fyrir alla framtíð íslands, sem nauð- synlegt er að kanna af for- sjálni og gaumgæfm. Blekk- ingaskrif og æsingar munu ekki í þessu efni frekar en öðrum verða málstað íslands að liði. Sameining Evrópu, bæði stjórnmálalega og efnahags- lega, hefur verið ofarlega á baugi allt frá stríðslokum. Mörg merk skref hafa verið stigin, en frekari þróun er þó án efa langt undan. Til þess ber enn of mikið í milli. Til þess eru hagsmunir og sjón- armið of ólík. En á skammri stund skipast veður í lofti og áður en varir kynni að eiga sér stað þróun, sem gæti haft mjög mikil áhrif á gang mála, einhig hér á landi.- Okkur ber því að gefa þess- um málum meiri gaum, en verið hefur, líta til hagsmuna okkar og takmarks og marka stefnuna í samræmi við það. Við hljótum að hafa samúð með þeim, sem leggja upp úr jafnræði ríkjanna og náinni samvinnu þjóðanna beggja vegna Atlantshafsins. Það er augljóst vegna stærðar þjóð- arinnar og legu landsins. — •Stórveldadraumar einstakra Evrópuþjóða eru ekki hags- munamái íslands, né heldur sú þróun, að beggja vegna Atlantshafsins séu öflug stór- veldi og lítil samvinna, þar sem vandi fylgir vali hverju fyrir smáríki milli risanna. Hér er um að ræða þróun mála, sem á eftir að hafa mik- il áhrif, ekki aðeins á sögu ís- lands, heldur mannkynssög- una. Umhugsun og urnræður um þessi mál eru því hátt yfir orðaskak hafnar. Þessi þróun mun sjálfsagt eiga sér í framtíðinni og mun afstaða íslands þar ekki ráða úrslit- um. Engu að síður er nauð- synlegt að fylgjast vel með og reyna að gæta hagsmuna okkar í hvívetna. ÁNÆGJULEGIR SIGRAR ¥ Tm helgina voru ánægju- legir dagar fyrir íslenzka íþróttamenn. Tugþrautarkapp ar unnu verðskuldaðan sigur yfir Svíum og Norðmönnum á laugardag og sunnudag. Á mánudaginn sigraði íslenzka landsliðið í knattspyrnu lið Bermhda og var sá sigur einn- ig verðskuldaður, þótt ekki hafi verið við ofurefli að etja. Það er ástæða til þess að fagna þessar vblgengni íþrótta manna okkar. Tíðir ósigrar íþróttamanna okkar valda mörgum áhugamanni hugar- angri og efla gagnrýni, sem stundum á rétt á sér. Það er því rétt að láta hina vösku íþróttamenn okkar njóta sann mælis, þegar vel gengur. Kongó fær stjórnnrskró 0 Hið róstusama Kongó- lýðveldi hefur nú loks fengið stjórnarskrá fjórum árum eftir að landið fékk sjálfstæði. — Samkvæmt henni verður forseti lands- ins miklurn mun valda- meiri en áður. Embættinu svipar til embætta forseta Bandarikjanna og Frakk- lands, m.a. hefur forseti völd til að víkja forsætis- ráðherra frá völdum. Kasavubu, forseti, undirrit- aði stjórnarskrána sl. sunnu- dagskvöld og fékk þar með heimild í hendur til að víkja frá Moise Tshombe, núverandi forsætisráðherra, ef svo kynni að fara að alvarlega kastaðist í kekki með þeim. Stjórnar- skráin kveður svo á að almenn ar kosningar skuli fara fram innan níu mánaða. Stjórnarskráin nýja kem- ur í stað löggjafar þeirrar, er belgíska stjórnin hafði sett áður en landið fékk sjálfstæði sumarið 1960, án þess að lands búar réðu þar nokkru um. Að þessu sinni fór fram þjóðar- atkvæðagreiðsla um stjórnar- skrárfrumvarpið og var það samþykkt með 90% greiddra atkvæða. Að sögn innanrikis- ráðuneytisins í Leopoldvilla tóku 2:4 milljónir Kongóbúa þátt í atkvæðagreiðslunni, seru tók tvær vikur — en lands- búar eru um 15 milljónir tals- ins. Kasavubu forseti — iæ: aukin völd

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.