Morgunblaðið - 11.09.1964, Page 1
28 siður
Forsetafrú íslands, Dóra Þór-
hallsdóttir, lózt í gærkveldi
Földust innan um
kjötskrokkana
- á ílótta til V-Berlínar
FORSETAFRÚ íslands, Dóra
Þórhallsdóttir, lézt um klukk-
an 11 í gærkvöldi í Landsspít-
alanum, þar sem hún hefur
legið frá fyrra sunnudegi. Var
hún þá skorin upp við tann-
sjúkdómi, en náði sér ekki
eftir þá aðgerð, enda kom í
ljós að hún þjáðist af öðrum
ajúkdómi og þyngdi henni, er
á vikuna leið. Banamein henn
ar var hvítblæði.
Frú Dóra Pórhallsdóttir var
#ædd í Reykjavík 23. febrúar
1893 oi? yar því á 72. aldursári,
þegar hún lézt. Foreldrar hennar
voru Þórhallur Bjarnarson bisk-
up og kona hans, frú Valgerður
Jónsdóttir. Fluttist hún 3ja ára
«neð foreldrum sinum að I>aufási.
Frú Dóra giftist Ásg:eiri Ás-
feirssyni 3. október 1917 og hef-
nr ávallt síðan staðið við hlið
znanns síns með reisn og höfðings
Bkap í fjölþættum störfum hans.
Undanfarin 12 ár hefur hún veitt
fprsetaheimilinu að Bessastöðum
forstöðu og ávallt notið trausts
•g virðingar þjóðarinnar í því
mikilvæga starfi.
Þessarar merku konu verður
níðar minnzt hér í blaðinu, en
Morgunblaðið veit að allir sam-
einast í að senda forsetanum,
hr. Ásgeiri Ásgeirssyni og fjöl-
ok.vldu hans, innilegustu sanr.úð
arkveðju við andlát hennar.
DORA ÞORHAI.ESDOTTIR.
Liðssafnaður Kínverja
við landamæri Mongólíu
- Vekur ugg og reiði landsmanna
- Stjórnin leitar ásjár Rússa.
BerMn, 10. sept. NTB.
• A-Þýzkur flutningabílstjóri,
ROSS að nafni, sagði fréttamönn
um í Berlín frá því í dag, að
sér hefði ekki verið alls kostar
rótt í gær, — er A-þýzkir landa-
mæraverðir í Heinrich Heine-
strasse voru að athuga bifreið |
hans, sem í voru 80—90 svína-
skrokkar, áður en þeir leyfðu
honum að halda áfram til V-Ber-
línar — en þangað var ferð hans
heitið. Og það var víst engin
furða því hefðu verðirnir leitað
ögn betur, hefðu þeir sennilega
fundið innan um kjötskrokkana
þrjár fullorðnar sprelllifandi
manneskjur og ellefu börn.
Voru þar kona hans, Betty og
átta börn þeirra, mágkona hans
og maður hennar Gerhard Worm
og börn þeirra þrjú. -
Ross sagði, að þau hefðu ráð-
gert flótta frá A-Berlín fyrir
mörgum mánuðum, en orðið að
fresta hcfnum nokkrum sinnum.
Ross og systurnar tvær unnu öll
hjá fiutningafyrirtæki í A-Berlín
— og voru þau öll orðin fullsödd
á vistinni í sæluríki Ulbriohts.
A miðvikuóag ákváðu þau að
láta til skarar skríða. Ross sótti
svínakjötsfarm á samyrkjuhú
eitt í Mecklenburg og þaðan ók
hann á tiltekinn stað um 11 km.
frá A-Berlin, þar sem fjölskyld-
urnar biðu hans. Börnunum hafði
verið gefið svefnmeðal til þess að
þau létu sem minnst á sér kræla
og nú var öllum komið fyrir í
miðri kjötskrokkahrúgunni í
kæliklefanum. í>ar var heldur
þröngt á þingi — en ekki háði
hitinn þeim, tennurnar glömr-
uðu í munni þeim allan tímann
og var mesta mildi, að þau skyldu
hafa hemil á þeim, meðan verð-
irnir voru að skoða farminn.
I Heinrioh Heine Strasse skoð-
uðu verðirnir skjöl Ross gaum-
gæfilega og þegar þeir opnuðu
dyrnar á kæliklefanum og íitu-
inn var hann sem festur upp á
þráð. En heppnin var með þeim.
Börnin sváfu svefni hinna rétt-
látu og verðirnir fundu ekkert
grunsamlegt.
Þegar til V-Berlínar kom
klöngraðist fólkið út og börnin
voru flutt í sjúkrahús. Voru þau
öll illa haldin eftir vistina í köld
um loftlausum kæliklefanuni.
Ekkert hafði fólk þetta með sér
farangurs annað en nærföt tii
skiptanna og ullarteppi.
Svo mælti Krúsjeff úrið 1960
- segir aldursforseti franska þingsins
Moskvu, 10. sept. (NTB)
Aldursforseti franska
þingsins, Kír kanúki, skýrði
AFP-fréttastofunni svo frá í
dag, að árið 1960 hafi Nikita
Krúsjeff, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, látið svo um
mælt, að hann gerði sér vel
ljósa þá möguleika, að til á-
taka kynni að koma milli Kín
verja og þjóða Evrópu.
Síkýrði Kír frá þessu, er hann
kom úr hádegisverðarboði so-
vézka forsætisráðherrans, þar
sem meðai viðstaddra voru
Andrei Gromyko, utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna og sovézki
sendi'herrann í Frakklandi. Kír
kvað Krúsjeff hafa sagt 196C, að
Framh. á bls. 2.
Moskvu, Belgrad,
10. sept. (NTB)
'fg FRÁ Moskvu berast þær
fregnir, að síaukinn liðs-
safnaður Kínverja á landa-
mærum Mongólíu veki vax-
andi ugg ráðamanna í Alan
Bator, höfuðborg landsins —
og hafi stjórnin þar leitað á-
sjár Sovétsjórnarinnar. Landa
mæri Kína og Mongólíu liggja
saman á 4000 km svæði.
• Fregnir þessar eru hafffar eftir
Moskvu-fréttamanni júgóslav-
Verða 885
náðaðir ?
Aþenu og Kaupmannahöfn,
10. sept. NTB.
Dómsmálaráðherra Grikk-
Lir.ds Polychronis Polychronid-
es hefur lagt fram í griska þing-
inu tillögu um að 885 manns,
sem dæmdir hafa veriff fyrir
miuni háttar afbrot, verffi náff-
affir í tilefni ai brúðkaupi Konst
autíns konungs og Öunu-Maríu
Danapriusessu.
nes>ku fréttastofunnar Tanjug- og
fylgir þeim, aff fulltrúar stjórnar
Mongólíu hafi átt tíffa fundi meff
sovézkum ráffamönnum í sumar
og leitaff álits þeirra og affstoffar
gegn storkandi aðgerffum Kín-
verja.
í fyrstu var álitið í Alan Bator,
að Pekingstjórnin hefði aukið
herlið sitt á landamærunum í því
skyni einu að stemma stigu fyrir
sívaxandi straumi flóttamanna til
Mongólíu. En nú er svó komið,
að hún hefur gert beinar landa-
kröfur í Mongólíu, jafnframt því
sem hún stendur að baki upp-
reisnaraðgerðum og skemmdar-
verkastarfsemi innan landamæra
Mongólíu.
í dag var birt í Pravda, mál-
gagni sovézlca kommúnistaflokks
ins, harðorð yfirlýsing frá stjórn
lýðveidisins Mongóllu, þar sem
Pekingstjórnin er sökuð um að
seilast þar til yfirráða. Segir þar,
að íbúar landsins séu slegnir ugg
og réiði vegna hinnar ógnandi
framkomu Mao Tse Tungs.
Aðeins nokkrir dagar eru um
liðnir frá því Pravda sakaði Kín-
verja um að hyggjast ræna Mong
ólíu frelsi sínu og gera landið
hluta af Kina. Staðhæíði Pravda
þá, að Pekingstjórnin hefði boðið
Sovétstjórninni að ganga til sam-
komulags við hana tim örlög
Mongólíu.
ifiiiiiiiitiiiiiiiiiiiililiiililliiiiiiiiuiiiimmuuiiiiiiimMMiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiuifiii
| Konurnar í Chile
I tryggðu Frei sigur
Frá Halldóri Sigurðssyni.
® Þegar kjósendur í Chile
héldu til kjörstaffa sinna sl.
föstudag, fóru þeir í raun og
veru til þess aff svara, hver
fyrir sig, tveim ákveffnum
spurningum Annarsvegar,
hvort Chile ætti aff verffa ný
Kúba — hinsvegar, hvort
Chile ætti fyrst ríkja heims
að velja sér kommúníska
stjórn með lýðræffislegum
hætti.
Öldungadeildarþingmaður-
inn, Salvador Allende, var
meðal frambjóðenda til for-
setaembættisins — en hánn
er fyrsti kommúnistaleiðtog-
inn í sögu Suður-Ameriku,
sem nýtur svo mikils fylgis
meðal þjóðar sinnar, að hann
var talinn mjög líklegur til
sigurs í þessum kosningum.
Því var með þeim fylgzt af
mikilli eftirvæntingu um all-
an heim. Hér var ekki að-
eins um að ræða framtíð
stjórnmála í Chile. Hefði All-
ende náð kosningu hefði það
getað haft í för með sér, að
kommúnistar næðu stjórnar-
taumum í ríkjum eins og
Perú, Bolivíu og Argentínu,
sem öll eiga við mikla efna-
hags-, stjórnmála- og þjóð-
félagslega örðugleika að etja.
Stjórn Perú á sem stendur í
höggi við uppreisnargjarna
bændur, sem kommúnistar
styðja og skæruliðar, er njóta
margháttaðs stuðnings Kúbu
og Kína, láta vex-ulega að sér
Eduardo Frei á kjörstaff. iý
kveða á ýmsum svæðum Boli- =
víu og Argentínu. =
í Washington hefur verið l§
fylgzt gjörla með þróun mái- 1§
anna í Chile, ekki sízt þar Jj
sem Bandaríkjastjórn hef- =
ur veitt Chile meiri efnahags H
aðstoð en nokkru öðru S- =
Ameríkuríki, sé miðað við S
höfðatölu. §§
>að var því, sem heyra §§
mætti hvernig menn önduðu ||
léttar allt frá Santiago til =
Washington, þegar úrslit kosn E§
inganna voru heyrin kunn — l§
Eduai-do Frei, hinn frjáls- §§
lyndi frambjóðandi kristi- !§
legra demókrata hafði unnið s
með óvnætum meirihluta.
Osigur Aliendes má eflaust =
Framh. á bls. 2. =
liiíimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiimmmmmmiiimiiijimmiiuimmiiiimuimiiiimimmmmmmiiimiimummimiiimiimiiiiiiiiiimimmiiaiiiiimmiiimiiimTii