Morgunblaðið - 11.09.1964, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 11.09.1964, Blaðsíða 8
8 MORC UN BLAÐIÐ l Fostudagur 11. sept. 1964 Áttræður í dag: Jón Helgason stórkaup- maður í Kaupmannahöfn ÖRLÖGIN skáka mönnum á ýmsa vegu á taflborði lífsins. Fyrir um það bil 65 árum sagði læknir 15 ára gömlum sveita- dreng norður í Þingeyjarsýslu, að hann væri kviðslitinn og myndi þess vegna aldrei verða til mikilla líkamlegra átaka eða erfiðisvinnu. Honum myndi því henta að læra einhveyja iðn, sem hann gæti setið við í hægu sæti. Unglingurinn hugðist fara að ráðum læknisins og réðist til skósmiðs vestur á ísafirði til þess að læra skósmíði. En þá tókst svo undarlega til, að skósmiður- inn hætti að smíða skó og fíutt- ist inn í Skötufjörð og fór að búa. Fór hinn ungi Þingeyingur með honum og dvaldist þar í eitt ár. Þá flutttist hann til ísafjarð- ar aftur og átti þar heima í tvö ár, stundaði sjósókn, uppskipun- arvinnu o.fl. Síðan lá leiðin aftur til Norð- urlands. Að þessu sinni norður til Akureyrar og Siglufjarðar, þar sem hann stundaði síldar- vinnu og verzlunarstörf fram undir tvítugs aldur. En á þessu tímabili varð hinn ungi Þingey- ingur einn fræknasti glímumaður landsins, glæsimenni og hraust- menni með afbrigðum. ★ Þessi maður er Jón Helgason, stórkaupmaður í Kaupmanna- höfn, sem á í dag áttræðisaf- mæli. Líf hans hefur að ýmsu leyti verið ævintýri líkast. Hann yfirgefur ísland um tvítugsald- ur til þess að kynna íslenzka glímu með þremur öðrum ung- um íslendingum úti í hinni stóru veröld. Fyrst liggur leiðin til Englands, síðan til Danmerkur og þaðan til Þýzkalands og Rúss- lands. Síðan er aftur ferðazt vítt og breitt um Evrópu í heilt ár, en að því ferðalagi loknu sezt Jón Helgason að í Rússlandi zars- ins og er þar búsettur árin 1911 —1920. Þar gerist hann íþrótta- kennari við keisaralega íþrótta- skólann í Pétursborg, verður þar ríkur maður, en verður að lok- um að flytjast úr landi, og vakn- ar einn góðan veðurdag við það í Kaupmannahöfn að hann er orðinn blásnauður maður, rúbl- urnar hans einskis virði að lok- inni rússnesku byltingunni. En þingeyski bóndasonurinn, íþróttakappinn og heimsborgar- inn gafst ekki upp við þetta áfall. Örlögin höfðu sagt skák en ekki mát. Hann hóf lífsbar- áttuna á nýjum vettvangi, gerð- ist fyrst sundkennari í Dan- mörku, fór á verzlunarnámskeið og tók síðan að einbeina starfs- kröftum sínum að verzlun og viðskiptum. Gerðist hann nú um- boðsmaður fyrir íslenzkar út- flutningsafurðir og stofnaði síð- an niðursuðuverksmiðju í Kaup- mannahöfn. Á tiltölulega skömm um tíma tókst Jóni Helgasyni að verða að nýju efnalega sjálf- stæður maður og meðal bezt stæðu íslendinga í Danmörku, ★ Þetta er í örfáum dráttum starfssaga þessa sérstæða og merka Islendings, sem hefur lif■ að og starfað meginhluta ævi sinnar erlendis. En því fer þó víðsfjarri að hér hafi öll saga hans verið sögð, enda er það ekki ætlunin með þessum fáu línum á merkum tímamótum í lífi hans. Jón Helgason tók jafnan mik- inn og virkan þátt í félagslífi íslendinga í Kaupmannahöfn, Hann stofnaði t.d. róðrarfélagið Heklu á síðari styrjaldarárunum og var lífið og sálin í þeim fé lagsskap. Hann átti sæti í stjórn íslendingafélagsins í mörg ár og var stofnandi og formaður Gefj unar, sem er deild úr Slysavarna- félagi íslands í Kaupmanna- höfn. Ennfremur átti hann sæti í stjórn Félags íslenzkra kaup- manna í Kaupmannahöfn. Allir sem þekkja Jón Helga- son vita, að félagsmálastarfsemi hans mótaðist af óvenjulegum ötulleik og félagsþroska. íslend- ingar í Kaupmannahöfn og marg- ir héðan að heiman minnast einnig með þakklæti gestrisni hans og höfðingsskapar. Eiga margir landar bjartar minningar um komu sína á heimili hans og konu hans, frú Kristínar Guð- mundsdóttur, dóttur Guðmundar Bergssonar, fyrrum póstmeistara á ísafirði. Heimili þeirra á Raad- mands Steins Allée 17 er í senn glæsilegt og rammíslenzkt. Þar getur að líta málverk og högg- myndir eftir íslenzka listamenn í björtum og fögrum húsakynnum. Mestu máli skiptir þó sá andi, sem svífur yfir vötnunum á þessu íslenzka heimili í hjarta Kaupmannahafnar. Frú Kristín hefur staðið við hlið manns síns af reisn og myndarskap, enda ágæt og merk kona. Eiga þau hjón einn son, Björn viðskipta- fræðing, sem einnig er búsettur í Kaupmannahöfn og er ágætlega menntaður og dugandi maður. Jón Helgason er glæsimenni í sjón og raun. Hann er hár mað- ur vexti, grannur og vel limað- ur. Þótt árin færist nú yfir hann og hann hafi fyrir ári síðan kennt í fyrsta skipti á ævinni nokkurar vanheislu, er hann enn beinn í baki og framkoma hans öll hin hressilegasta og karl- mannlegasta. Líf og starf Jóns Helgasonar er táknrænt dæmi um ævi frábærs atorkumanns. Hann leggur heilsu veill af stað heiman úr sveitinni sinni, hyggst að læknisráði velja sér hægt og átakalítið lífsstarf, en er um tvítugsaldur orðinn einn mesti íþrótta: og afreksmað- ur landsins. Hann nemur ný lönd, verður auðugur, síðan fá- tækur og loks bjargálna maður á ný. Örlögin skáka bonum en þau máta hann aldrei, meðan dagur er á lofti. Þegar við hjónin sátum fyrir skömmu á heimili Jóns Helga- sonar og frú Kristínar eina kvöld stund og ræddum það, sem á daga hans hafði drifið var mér það ljósara en nokkru sinni fyrr, af hvílíkum þrótti og æðrulausri festu lífsbarátta kynslóðar hans hefur mótazt, og hve mikið við eigum að þakka þessari kynslóð, sem brauzt úr allsleysi og fátækt til bjargálna og mannsæmandi lífs. Vinir Jóns Helgasonar þakka honum góð kynni, drengskap og vináttu, um leið og þeir óska honum og fjölskyldu hans til hamingju með áttræðisafmælið og hin efstu ár. S. Bj. Iðnaðarmannafélag Akureyrar 60 ára IÐNÞINGIÐ er haldið á Akur- eyri að þessu sinni vegna sex- tugsafmælis Iðnaðarmannafélags Akureyrar í nóvember n.k. Fé- lagið var stofnað í Templara- húsinu hinn 26. nóv. 1904, og voru stofnendur 36. Undirbún- ingsfundur hafði verið haldinn 12. sama mánaðar og til hans boðað af Trésmiðafélagi Akur- eyrar. Jón Guðmundsson bygg- ingameistari var fundarstjóri á þeim fundi, enda var hann einn helzti hvatamaðurinn um stofnun félagsins. Fundarstjóri á stofn- fundinum var Friðbjörn Steins- son bókbindari, einhver mesti á- hugamaður um félags- og fram- faramál í Akureyrarbæ fyrr og síðar, að öllum öðrum ólöstuð- um. Hann hafði gert tilraun til að stofna handiðnamannafélag á Akureyri og við Eyjafjörð árið 1872, en það varð skammlíft. Fyrstu stjórn Iðnaðarmannafé- lagsins skipuðu þessir menn: Oddur Björnsson prentmeistari, formaður, Sigtryggur Jónsson byggingameistari, ritari og Frið- björn Steinsson, gjaldkeri. Fé- lagsmönnum fjölgaði ört, og margir gengu í félagið, þótt ekki væru iðnaðarmenn. Flestir urðu þeir 1945, 109, en nú eru félags- menn um 80. Frá 1954 geta þó þeir einir orðið félagar, sem iðn- réttindi hafa. Formenn félagsins hafa verið þessir menn: Oddur Björnsson 1905—1906, 1913—1916 og 1922. Jón Guðmundsson 1907—1910, 1917—1919 og 1923. Kristján Nikulásson 1911. Jón J. Borgfjörð 1912. Guðbjörn Björnsson 1920— 1921 og 1937—1939. Óskar Sigurgeirsson 1924— 1927. Einar Jóhannsson 1928—1930. Guðmundur Frímann 1931. Sveinbjörn Jónsson 1932—1936. Indriði Helgason 1940—;1945. Vigfús Friðriksson 1946—1951. Karl Einarsson 1952—1954. Sveinn Tómasson 1955—1963. Jón H. Þorvaldsson 1964. Ritarar hafa lengst verið: Þór- hallur Bjarnarson í 8 ár og í 7 ár hver: Jóhann Frímann, Vig- fús Friðriksson, Guðmundur Magnússon og Jón Björnsson. Gjaldkerar hafa verið lengst: Bjarni Einarsson, Stefán Árna- son og Alfreð Möller. Hagur félagsins hefir jafnan staðið styrkum fótum, þótt stund um hafi verið ráðizt í fjárfrekar framkvæmdir, og eru nú um 400 þús. kr. í félagssjóði. Auk þess eru í vörzlu félagsins ýmsir sér- sjóðir, svo sem Gjafasjóður Magnúsar Jónssonar og Minn- ingarsjóður Davíðs Sigurðssonar, sem báðir eru ætlaðir til fram- haldsnámsstyrkja iðnnemum og iðnaðarmönnum, sem afla vilja sér þekkingar erlendis í iðn sinni, Iðnsýningarsjóður og Útlánasjóð- ur. Einnig átti félagið aðild að stofnun Sparisjóðs Akureyrar ár- ið 1932. Meginverkefni félagsins var I upphafi og lengst af að halda uppi iðnskóla á Akureyri og hvers konar iðnfræðslu. Iðn- skólinn tók til starfa haustið Stjórn félagsins 1964. Jón H. Þorvaldsson form. fyrir miðju, honum til hægri handar Bjarni Jónsson ritari og til vinstri handar Alfreð Möller gjaldkeri. 1905. Hann starfaði í 2 deild- um með tveggja stunda kennslu á dag fyrstu árin, en síðar, eftir að Jóhann Frímann tók við stjórn skólans og honum tók að vaxa verulega fiskur um hrygg, starfaði hann í fjórum bekkjum. Helztu námsgreinar voru fyrst í stað teiknun, íslenzka, danska, bókfærsla og stærðfræði. Skólinn var ekki eingöngu skipaður iðn- nemum, heldur var jöfnum hönd- um alþýðuskóli lengst af. Gafst þar mörgum kærkomið tækifæri til að afla sér undirstöðuþekk- ingar jafnhliða almennri vinnu, þar sem skólinn starfaði á kvöld- in, þar til nú fyrir einum ára- tug eða svo. Skólastjórar Iðnskólans hafa verið þessir menn: Sr. Jónas Jónasson 1905—1909. Adam Þorgrímsson 1910—1912.' Lúðvík Sigurjónsson 1913— 1917. Sveinbjörn Jónsson 1921— 1924. Haukur Þorleifsson 1925—1926. Halldór Halldórsson 1927. Jóhann Frímann 1928—1939 og 1942—1955. Jón Sigurgeirsson 1939—1941 og frá 1955. Skólinn hefir starfað nokkurn veginn óslitið frá stofnun, nema hvað hann lá niðri árin 1918— 1920 og 1925. Félagið reisti hús yfir skólann við Lundargötu árið 1928. Átti hann þar aðsetur til ársins 1943, er hann fluttist í gagnfræðaskóla húsið, sem þá var nýreist og Iðn- aðarmannafélagið hafði lánað fé til að reisa. Nú starfar skólinn á ýmsum stöðum í bænum, en á næsta ári mun verða hafizt handa um að reisa sérstakt og fullkomið hús yfir hann. Félagið sá um rekstur skólans til 1955, en síðan er hann rekinn af bæ og ríki. Félagið hefir gengizt fyrir tveimur iðnsýningum á Akureyri, og hafa þær þótt takast mjög vel og verið til hins mesta sóma. Fyrri sýningin var árið 1906, þar sem sýndar voru hvers kon- ar smíðar, listiðnaður og hann- yrðir og auk þess matar- og ostagerð, en hin síðari 1955, þar sem 28 einstaklingar og stofnan- ir sýndu varning sinn.. Iðnaðarmannafélag Akureyrar hefir beitt sér fyrir mörgum framfaramálum í bænum og stutt framgang þeirra með ráð- um og dáð. Einnig hefir það unnið að hagsmuna- og réttinda- málum félagsmanna sinna, eins og kostur hefir verið, og stutt að vaxandi hæfni þeirra, verk- kunnáttu og menntun. Félagið hefir alltaf lagt kapp á að vinna Oddur Björnsson að því, að fulltrúar iðnaðar- manna ættu sæti í bæjarstjórn, og 1934 lagði það fram sérstak- an framboðslista og fékk einn mann kjörinn í bæjarstjórnina, Jóhann Frímann, skólastjóra. Núverandi stjórn Iðnaðar- mannafélags Akureyrar skipa: Jón H. Þorvaldsson, bygginga- meistari, formaður, Bjarni Jóns- son, úrsmiður, ritari, og Alfreð Möller, vélsmiðjur, gjaldkeri. — Félagið hefir gefið út bækling um sögu félagsins í tilefni sex- tugsafmælisins, og hefir Gísli Jónsson, menntaskólakennari, tekið hann saman. sv. r. Mjög f jölsótt héraðsmót að Skúlagarði SÍÐASTLIÐINN laugardag efndu Sjálfstæðismenn í Norður- Þingeyjasýslu til héraðsmóts að Skúlagarði. Var mótið mjög fjöl- sótt og sótti það fólk langt og víða að úr sýslunni. Samkomuna setti og stjórnaði Páll Þór Kristinsson, Húsavík. Dagskráin hófst með einsöng Guðmundar Guðjónssonar, óperusöngvara en undirleik ann- aðist Skúli Halldórsson, tón- skáld- Þá flutti Magnús Jónsson, alþingismaður ræðu. Siðan söng Sigurveig Hjaltested, óperu söngkona einsöng. Þessu næst flutti Ingólfur Jónsson, land- búnaðarráðherra ræðu. Að lok- inni ræðu ráðherrans skemmti Ævar Kvaran, leikari. Að síð- ustu sunigu þau Guðmundur Guðjónsson og Sigurveig Hjalte- sted tvisöngva. Ræðumönnum og listafólkinu var mjög vel tek- ið. Að dagsskránni lokinni var stiginn dans fram eftir nóttu. Eins og áður segir var mótið mjöig fjölsótt, en auk þess fór það fram með mestu prýðL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.