Morgunblaðið - 11.09.1964, Blaðsíða 21
Fostudagur 11. sept. 1964
MORGUN BLAÐIÐ
21
f
\
/i
FJÖRUGT atvinnulíf hefur
veriff á Vopnafirði í sumar.
Mbl. talaffi í síma í gær viff
fréttaritara blaffsins á Vopna-
firffi, Sigrurjón Jónsson, og
sagði hann, aff gott hljóff væri
nú í fólki eystra, enda hefffi
atvinna veriff meiri en nóg og
Séff yfir Vopnafjarffakauptún. Myndin er tekin fyrir skömmu
Kornið þurrkað
verksmiðjunni
Gott hljóð í íólki á Vopnafirði
margt affkomufólk viff vinnu.
Á Vopnafirði fara nú fram
endurbætur á höfninni. Er
verið að byggja nýja bryggju
og er heila bryggjan komin
fram, en hún verður síðan
breikkuð í 12 metra með
strengjasteypu. Þá er eftir að
byggja bryggjuhausinn, sem
verður 55 metrar. Er þegar
búið að setja út eitt ker, en
búizt við að hægt verði að
koma út öðru fyrir veturinn.
Kerin eru steypt fyrir austan.
Sigurjón sagði, að þetta yrði
hin mesta lendingarbót og
bætti mjög úr bryggjulþörf á
staðnum.
Aðspurður eftir byggingar-
framkvæmdum, sagði Sigur-
í síldar-
jón, að allt væri fullt af bygg-
ingum í Kauptúninu.
Bændur í Vopnafirði hafa í
ár haft nokkra kornrækt, eins
og í fyrra. Var sáð í u.þ.b. 15
hektara, en það hefur þroskast
illa í haust vegna kuldana.
Byrjað var að slá kornið í gær
og verður farið að þurrka það
í síldarverksmiðjunni á morg-
un, en hún hefur nú hætt
bræðslu í sumar. Kornið var
þurrkað í þurrkurum síldar-
verksmiðjunnar í fyrra með
góðum árangri.
Sigurjón sagði, að þeir
hefðu verið læknislausir á
Vopnafirði í næstum ár, en
nú hefði rætzt úr því. Væri
kominn þar ungur læknir,
Friðþjófur Björnsson.
Á Vopnafirði hefur verið
talsverð síld í sumar. Síldar-
verksmiðjan lauk störfum í
gær, en hún hefur tekið á
móti um 200 þúsund málum
í sumar. Þá hefur talsvert
verið saltað og var söltunin í
gær, sem hér segir: Söitunar-
stöðin Auðbjörg hafði saltað
í 6567 tunnur, Austurborg
2835 tunnur, söltunarstöð
Kristjáns Gíslasonar 1672 og
Hafblik í 2561 tunnur.
Mjög mikið var af aðkomu-
fólki á Vopnafirði í sumar, en
það er nú óðum að týgjast til
heimferðar, sagði Sigurjón að
lokum. Þetta var mikið skóla-
fólk og það fer að losna um
það núna.
Frá hafnarframkvæmdunum á Vopnafirffí. Bryggjan verffur
breikkuff í tólf metra meff strengjasteypu. Tii hægri sést keriff,
sem þegar hefur veriö komið fyrir, en annaff mun steypt og
komið fyrir í haust. Ljósm.: Sigfús Hansen).
Stereófónisk hljómplata
með söng Karlakórs Reykjavíkur
komin d markað í Bandaríkjunum
hægt að segja um að svo stöddu
hvenær slíkt útvarp gæti haf-
izt hér. — Stereófónískt útvarp
er nú á Llraunastigi á Norður-
löndunum en þegar hafið m.a.
í Þýzkalandi, Hollandi og Eng-
landi.
Sverrir Ingóltsson
Minning
„SPOR mannsins eru ákveðin af
drottni, en maðurinn, hvernig
fær hann skynjað veg sinn?“
Það er stundum dálítið erfitt að
sætta sig við rás viðburðanna og
okkur dauðlegum mönnum verð-
ur ærið hugsunarefni, að glíma
við ráðgátur lífs og dauða. Eigum
erfitt með að skilja þá ráðstöfun,
þegar kærum vini og samferða-
manni er allt í einu kippt burt
í blóma lífsins á einu augnabliki.
Svo fór mér, er ég frétti hið svip-
lega fráfall míns góða kunningja
Sverris Ingólfssonar, er dó af
slysförum 5. þ.m.
Hann var fæddur að Selalæk
á Rangárvöllum 1. sept. 1916.
Foreldrar hans eru Ingólfur Sig-
urðsson frá Stórólfshvoli, látinn
fyrir nokkrum árum og Guð-
björg Sigurðardóttir Guðmunds-
sonar bónda á Selalæk, en móðir
Guðbjargar var Ingigerður
Gunnarsdóttir frá Kirkjubæ á
Rangárvöllum. Minnist ég ávalt
fæðingarheimilis Sverris, sem
eins glæsilegasta sveitabýlis er
ég sá á mínum yngri árum.
Árið 1920 fluttist hann að Helli
í Ásahreppi með foreldrum sín-
um, en þar bjuggu þau til ársins
1928 er þau brugðu búi og flutt-
ust til Reykjavíkur. 5. apríl 1947
hvarf Sverrir úr foreldrahúsum,
er hann stofnaði sitt eigið heim-
ili og gekk að eiga eftirlifandi
konu sína, Guðrúnu Júlíusdóttur,
ættaða úr Yatnsdal í Austur-
Húnavatnssýslu, hina ágætustu
konu, sem reyndist honum frá-
bær förunautur til hinstu stund-
ar. Þau hjónin eignuðust einn
son.
Eins og að framan greinir, þá
lifði Sverrir sín bernskuár í hinu
fagra og svipmikla Rangárhér-
aði. Þar mótaðist hann við leiki
sveitabarnsins og lífræn störf
sveitalífsins, hjá ástríkum for-
eldrum og systur, á yndislegu og
glaðværu heimili. Á ég margar
ógleymanlegar stundir frá sam-
vistum við foreldra hans, bæði
sem gestur á heimili þeirra, fyrr
og síðar, eða hvar sem þau urðu
á vegi mínum og fullyrði ég. að
ég mæli þar fyrir munn allra
vina þeirra og samferðamanna.
Mín fyrstu kynni af Sverri eru
frá þeim tíma, er hann kom sem
nemandi minn í barnaskóla um
10 ára aldur. Frá samvistum okk-
ar þar á ég um hann ljúfar minn-
ingar sem góðan nemanda, fjör-
ugan og tápmikinn ungling, sem
var hrókur alls fagnaðar í leik
barnanna, þegar út fyrir skóla-
stofuna kom. Eftir að hann flutti
úr sveitinni sem 12 ára ungling-
ur, hvarf hann mér að mestu þar
til ég sjálfur settist að í Reykja-
vík, þá lágu leiðir okkar saman
að nýju. Og Sverrir var þá sami
góði drengurinn og fyrr, broshýr
og vinsamlegur hvar sem ég
mætti honum, ávalt boðinn og
búinn ef einhver þurfti á hjálp
hans og greiðasemi að halda. Vin-
sæll var hann og vel látinn meðal
starfsfélaga sinna og minnast
þeir haris með hlýju og söknuði.
„Sá sem er góðgjarn, verður
blessaður,“ segir í orðkviðum
Salómons. Já, vissulega er það
eitt af því, sem gefur lífinu gildi,
að njóta hlýju og góðgirni sam-
ferðamannanna. Og minningin
lifir, þó leiðir skilji. Starfsmaður
var Sverrir ágætur, samvizku-
samur og kappsamur að hverju
sem hann gekk, þegar heilsan
leifði. En hann gekk ekki ávalt
heill til skógar. En hann stóð
ekki einn í lífsbaráttunni. Hans
góða kona var honum ávalt hin
ómetanlega stoð og styrkur.
Og nú er komið að leiðarlok-
um. Þú ert horfinn yfir móðuna
miklu, en vinir þíhir og sam-
ferðamenn standa eftir á strönd-
inni, senda þér hlýjar hugsanir
og þakka samfylgdina hér. Sjálf-
ur geymi ég minninguna um góð-
an vin og drengskaparmann.
Konu þinni og öðrum eftirlif-
andi ástvinum votta ég mina
ynnilegustu samúð og bið þeim
guðs blessunar.
Ó. K
FYRRIHLUTA þessa árs kom
á markað i Bandaríkjunum
fyrsta stereófóníska hljómplat-
•n hljóðrituð á íslandi: Söngv-
•r frá Norðurlöndum, sem Karla
kór Reykjavíkur syngur undir
stjóra Sigurðar Þórðarsonar. I
júlí-hefti bandaríska ritsins High
Fidelity Magazine skrifar O.B.
Brummel um þessa íslenzku
hljómplötu og segir svo: „Banda
risk útgáfufyrirtæki hafa lítið
sinnt hljóðritun norrænnar tón-
- listar til þessa, annaðlhvort
Vegna tungumálaerfiðleika eða
skorts á framtakssemi. Á þess-
ari hljómplötu er mjög athyglis-
vert safn norrænna söngva.
Skiftast þar á gömul þjóðlög og
tónsmíðar tuttugustu aldarinnar.
Lög þessi hafa að geyma sér-
kennilega fegurð, hvort sem er
viðkvæm vögguvísa, Ave Marie
eða gullin ævintýrasvipur Finn-
lands. Söngvarnir eru ágætir
frá tæknilegu sjónarmiði þannig
að hvert lag nýtur sín til fnlls
Þetta er sérstæð og áhrifamikil
hljómplata.“
Plata þessi var hljóðrituð hjá
Ríkísúíjvarpinu í desember 1962
aihdgib
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara aff auglýsa
i Morgunblaffinu en öðrum
blöðum.
og hefur síðan komið út víða
um heim, en útgefandi er Mon-
itor í Bandaríkjunum, en umobð
á íslandi hefur Fálkinn í Reykja
vík. Þetta er önnur hljómplata
Karlakórs Reykjavíkur sem
Monitor gefur út, hin fyrri kom
út 1960. — Þess má geta að
Monitor hefur gefið út plötu
með söngvum frá öllum heims-
hornum sem fyrirtækið sendir
síðan um allan heim, meðal ann
ars til allra útvarpsstöðva. A
þessari plötu syngur Karlakór
Reykjavíkur eitt iag, sænska
þjóðlagið Dómaradansinn, und-
ir stjórn Sigurðar Þórðarsonar.
— Á stereó-fónísku hljómplöt-
unni eru 15 fög, þar af 10 ís-
lenzk. Sigurður Þórðarson lét af
stjórn kórsins í desember 1962
er hann hafði stjórnað söng
hans á þessari hljómplötu. Hún
hefur komið á markað í venju-
legri hljóðritun, auk hinnar
stereófónísku.
Það voru tæknistarfsmenn út
varpsins Haraldur Guðmunds-
son og Sigurður Einarsson sem
sáu um uppsetningu og breyt-
ingar á tækjum útvarpsins fyr-
ir þessa fyrstu stereó-fónísku
hljóðritun sem hlotið hefur hina
ágætustu dóma sérmenntaðra
manna erlendis. Athugaður hef-
ur verið kostnaður við að hefja
stereó-fónískt útvarp hér á
landi, um FM-stöðvarnar hér, og
yrði hann allmikill. Ekki er
Nýir
danslagatextar
jiiimutiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuwi iniiimiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiitiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiitmiiiiiiiiiiiiiiiiiiin,^
Litprentuð forsíðumynd
af Beatles
Sölumaður — Skrifstofustúlka
Fyrirtæki í Reykjavík vantar nú þegar sölumann og
skrifstofustúlku. Upplýsingar um menntun, aldur og
fyrri störf sendist afgr. Mbl. fyrir 16. þ.m., merkt:
„Innflutningur — 4963“.
niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimm
Nýtt
hefti komið 1
með öllum nýjustu íslenzku 1
textunum og nýjum Beatles, |
Rolling Stones, Dave Clark Five I
og Cilla Black-textum. i
Allir danslogatextamir af nýjustu íslenzku plötunum og
nýir Beatles, Dave Clark Five, Rolling Stones og Cilla
Black textor. ....... , og 4. h.fli.