Morgunblaðið - 11.09.1964, Síða 2
r
2
MORGUNBLAÐIÐ
r
Föstudagur 11. sept. 1964
Barnsránið;
Faðirínn neitar
ai skila barninu
Móðurbróðir þess nýkominn írá
Þýzkalandi
EINS og menn muna gerðist
það í sl. mánuði að þýzkur
maður, Gert Killisch, sem áður
var kvaentur íslenzkri konu,
Kristínu Hallgrímsson, tók
þriggja ára dóttur þeirra hjóna
án leyfis móðurinnar með sér
til Þýzkalands, Litla stúlkan
heitir Iris Margret Frida.
ísak Hallgrímsson, bróðir
Kristínar, er nýkominn frá
Þýzkalandi þar sem hann hitti
Killisch að máli i heimabae
hans, Elmshorn, skammt frá
Hamborg. Segir ísak að KiII-
isch hafi í alla staði komið vel
fram nema hvað hann neiti
algjörlega að skila barninu
heim til móður þess. Málið er
nú í höndum lögfræðings í
Elmshorn.
Samkvæmt þýzkum lögum
er Iris Margret Frida þýzkur
ríkisborgari, og á þeim for-
sendum mun Killisch ekki
skyldur að hlíta úrskurði ís-
lenzkra yfirvalda um yfirráða-
rétt móðurinnar, en í Þýzka-
landi munu lög og þannig, að
móður sé falin umsjá barns,
svo fremi hún geti séð um það.
Er því nú beðið eftir úrskurði
þýzkra yfirvalda um mál
þetta, en ekki er vitað hvenær
hans mun að vænta.
Gvenjulítið vatn í
Gvendarbrunnum
AÐ UNDANFÖRNU hefur vatn
verið óvenjulítið í Gvendarbrunn
um og þar af leiðandi hefur borið
á vatnsskorti í ýmsum bæjarhlut-
um. Þóroddur Th. Sigurðsson,
vatnsveitustjóri skýrði blaðinu
svo frá í gær, að þessa dagana
væri aðeins hægt að dæla úr
vatnsbólinu í 14 tíma í stað sólar-
hrings undir veniulegum kring-
umstæðum, og því safnaðist lítið
vatn fyrir í geymi. Hefur vatns-
magnið minnkað stöðugt vegna
þurrka, eins og komið hefur fyrir
undanfarin haust. Ástæðurnar
eru fyrst og fremst þær, að eng-
inn snjór var í fjöllum í vor og
jarðvatn hefur því lítið aukizt,
og svo hefur vatnslþörfin aukizt
stöðugt. Á Skólavörðuholti þer
mest á skortinum, því að þar er
engin dælustöð, og einnig er
vatnsskortur á jöðrum dælukerf-
isins.
Sem kunnugt er, stendur nú
yfir smíði á nýjum vatnsgeymi
við Bústaðaveg, og sagði vatns-
veitustjóri að byggingjr hans yrði
lokið eftir u. þ.b. tvo mánuði og
skapast þá betra ástand í vatns-
veitumálum bæjarins. Þörfin á
nýju vatnsbóli er samt aðkall-
andi, og við fyrsta tækifæri verð
ur hafizt handa um virkjun Bull-
augna. Verður það kostnaðar-
samt fyrirtæki og sem stendur er
nægilegt fé til þeirra fram-
kvæmda ekki fyrir hendi. Má t.d.
nefna, að aðalæðar þessarar virkj
unar munu kosta 3% til 4 millj.
á hvern kilómetra.
Nokkrir fulltrúa á iðnþinginu á Akureyri. f fremstu röð frá vinstri: Magnús Ástmarsson, Björgvin
Fredrikesn, Guðmundur H. Guðmundsson, Helgi Hermann Eiríksson, Kristján Jónsson, bakara-
meistarL (Ljósm. Mbl.: Sv. Þ.).
Iðnþingi haldið
dfram á Akureyri
AKUREYRI 10. sept. — 26. iðn-
þing íslendinga var sett á Ak-
ureyri í gær, eins og þegar hef-
ur verið getið í blaðinu. Á síð-
degisfundi í gær fór fram kosn-
ing starfsmanna þingsins. For-
seti var kjörinn Jón H. Þorvaids
son, Akureyri, I. varaforseti
Tómas Vigfússon, Reykjavík og
2. varaforseti Ármann Þorgríms
son, Akureyri. Ritarar voru
kosnir Magnús Ástmarsson,
Reykjavík og Albert Sölvason,
Akureyri. Einnig var kosið í
nefndir.
Þá flutti framkvæmdastjóri
Landssambands iðnaðarmanna,
Ottó Schopka, skýrslu stjórnar-
innar og las sáðan reikninga
sambandsins fyrir síðasta ár.
í gærkveldi sátu þingfulltrú-
ar kvöldverðarboð bæjarstjórn-
ar Akureyrar og stjórnaði Jón
G. Sólnes, forseti bæjarstjórnar,
hófinu.
í morgun störfuðu nefndir, en
— Chile
Flirg Loftleiða gengoir
eins og frekast verður
á kosið
Framh. af bls. 1.
rekja fyrst og fremst til á-
róðurs andkommúnista, sem
lögðu einkum áherzlu á, að
sigur kommúnista mundi hafa
í för með sér sarns konar
ástand og fylgdi valdatöku
Fidels Castros á Kúbu, sem
sé ógnarstjórn, fj öldaaftökur
og annað þess háttar. Eins
og í kosningunum á Ítalíu,
árið 1948, var það einkum
ótti kvenna í Chiie við blóð-
ugan valdaferil kommúnista,
sem tryggði Frei sigur.
Hann hefur nú loíað þjóð
sinni að koma á margháttuð-
um umbótum, meðal annars að
sjá svo til, að hún fái stærri
skerf en hingað til af hagnaði
koparnámurekstursins, sem er
að miklu leyti í höndum banda
rískra auðfélaga. Hinsvegar er
þess að gæta, að hann naut í
kosningabaráttunni stuðnings
íhaldsaflanna í landinu og
mun eflaust eiga fyrir hönd-
um nokkra erfiðleika, áður en
hann fær hrint áætlunum sín-
um í framkvæmd.
Einnig er þess að gæta, að
verkalýð landsins, sem er
vel skipulagður, bæði til borga
og sveita, er ýmislegt betur
gefið en þolinmæði — og von-
brigðin vegna ósigursins í
kosningunum verða vart til að
gera hann viðráðanlegri. Og
takist Frei ekki að koma til
móts við kröfur verkalýðsins
kann hann sem forseti að eiga
fyrir höndum þungan róður.
NOKKRAR umræður hafa verið
í dönskum blöðum að Loftleiðir
og SAS að undanförnu, og mun
efni þeirra hafa verið á þann veg,
að Norðurlönd hafi í hyggju að
takmarka farþegaflutninga Loft
leiða frá löndunum við það, sem
var upphaflega er Loftleiðir hófu
flug þaðan með Skymastervél-
um.
Mbl. innti Kristján Guðlaugs-
son, formann stjórnar Loftleiða,
eftir máli þessu í gær. Hann
kvaðst ekki vita hvað yfirvöld á
Norðurlöndum hygðust gera, og
Loftleiðir hefðu raunar ekkert
um þetta að segja. Þetta væri
mál fiugmálastjórnanna og síð-
an viðkomandi stjórnarvalda.
Kristján sagði flug Loftleiða
ganga nú eins vel og frekast
yrði á kosið. Sætanýting væri
svipuð að hundraðshluta og áður,
en nokkur sætaaukning hefði orð
ið frá 1. júní, er Rolls Royce-flug
vél félagsins var tekin í notkun.
„Við erum sem sagt ánægðir",
sagði Kristján að lokum.
| NA í5 hnútor I / SVSOhnúlv Snjókoma ? ÚÍ/ V Sivrir Z Þusr.ur Wz, KtMoohH Hihtk* H Hmt\ L Ufi í
síðan buðu S.Í.S. og K.E.A. til
hádegisverðar að Hótel K.E.A.
Jakob Frímannsson, fram-
kvæmdastjóri, stýrði samkvæm
inu og fiutti þar árnaðaróskir
gestgjafanna til þingsins og enn
fremur afmælisóskir til Iðnaðar-
mannafélags Akureyrar
vegna sextugsafmælis þess. For-
seti þingsins, Jón H. Þorvalds-
son, sem jafnframt er formaður
Iðnaðarmannafélags Akureyrar,
þakkaði hlý orð.
Fundur hófst aftur W. 2,15.
Þar flutti Sveinn Björnsson,
framkvæmdastjóri Iðnaðar-
málastofnunar íslands, erindi
um vinnurannsóknir og vinnu-
hagræðingu og ennfremur voru
nokkur nefndaálit rædd og af-
greidd.
Síðdegis skoðuðu þingfuittrú-
ar verksmiðjur S.Í.S. og K.E.A.
á Akureyri.
Kvöldfundur hófst kl. 8,30.
Þingforseti flutti kveðju, sem
þinginu hafði borizt frá Gunn-
ari J. Friðrikssyni fyrir hönd
Félags ísl. iðnrekenda. Var
kveðjan þökkuð rrifeð lófataki.
Síðan voru rædd álit nefnda um
nokkur mál. Einnig flutti Tóm-
as Vigfússon skýrslu um starf-
semi Iðnlánasjóðs og Bragi
Hannesson, bankastjóri, skýrslu
um starfsemi Iðnaðarbanka ís-
lands.
— Sv. P,
Útför Tuomioja
Helsingfors, 10. sept. — AP.
Stjórn Finnlands hefur ákveð
ið að útför Sakari Tuomioja,
sáttasemjara Sameinuðu þjóð-
anna í Kýpurdeilunni skuli
fara fram á kostnað finnska
ríkisins. Verður útförin gerð
nk. miðvikudag frá dómkirkj-
unni í Helsingfors og meðal
viðstaddra verður Urro Kekk-
onen, forseti.
Guðmundur Halldórsson, forseti
Landssambands iðnaðarmanna
flytur setningarræðu iðnþingsins.
— Krúsjeff
Framh. af bls. 1.
Vesturveldin gerðu sér þá stund
ina ekki fulla grein fyrir ástandi
heimsmálanna. — En tækju
Kinverjar enn á i>ý upp forn-
frSga útþenslustefnu sína, yrðu
ibúar Vesturveldanna því ugg-
laust fegnir að víta skjöld milli
sín og 700 milljóna manna í Kína.
Hafði Krúsjeff bætt því við, að
hann mundi undir öllum kring-
umstæðum koma Frakklandi til
hjálpar gegn hugsanlegum árás-
araðila, hver sem hann væri. Kir
sagðist hafa átt hinar vinsam-
legustu samræður við Krúsjeff
— sem hefði sent sér orð til Var-
sjár í Póllandi, þar sem Kir var
staddur fyrir nokkrum dögum,
og beðið sig koma til Moskvu.
17 _ ára stúlka
barin og rænd
Fólskuárás í fyrrakvöld
Véour var bjart her á landr s
og víða logn, hiti víðast 8—10 =
stig. Næturfrost í innsveitum s
var víðasj hvar 2—5 stig norð =
an lánds, en nálægt frost- E
S ir snöggar breytrngar að sinm. marki sýðra.
diiiiiiiummiúiiMimuiiimiiiitmmmmuitmiuuimuHiiiiiimiuiiiiiiiuiiuuiimiimimiimimimiiiiiiumiiiE
i urvi HaDjsGí r gær var há-
H þrýstisvæði yfir Grænlandi
= og íslands, en aðgerðalitlar
= lægðir fyrir sunnan land og
1 norðaustan. Lítur ekki út fyr
H ir snöggar breytrngar að sinni.
UM miðnætti í fyrrakvöld réðust
tveir ungir menn á 17 ára gamla
stúlku á Borgartúni, börðu hana
og rændu 160 krónum úr veski
hennar.
Stúlkan, sem fyrir árás þessari
varð, hafði farið í heimsókn til
kunningjafólks síns í Hátúni, en
er enginn var heima þar, sneri
hún við heimleiðis, og gekk vest-
ur Borgartún.
Er hún kom móts við Borgar-
þvottahúsið, snöruðust tveir ung-
ir menn að henni, greiddu henni
högg í andlitið og stálu pening-
uuuin. .
Stúlkan segir að maður hafl
verið á gangi á Borgartúni er
þetta gerðist, en hann hafi ekki
veitt eftirtekt hrópum hennar á
hjálp. Er maður þessi vinsamleg-
ast beðinn að gefa sig fram við
rannsóknarlögregluna, svo og
þeir, sem einhverjar upplýsingar
gætu gefið, sem leiddu til hand-
töku árásarmannanna.
Af stúlkunni er það að segja að
hún komst upp á Laugaveg og
gat náð þar í bíl, sem ók henni á
lögreglustöðina. Var hún með
þlóðnasir og illa tiþreika.