Morgunblaðið - 11.09.1964, Side 14
14
MORCUNBLABIÐ
Fostudagur 11. sept. 1964
Útgefandi:
Framkvæmdast j óri:
Ritstjórar:
Auglýsingar:
Ú tbreiðslus t j óri:
Ritstjórn:
Auglýsingar og afgreiðsla:
Áskriftargjald kr. 90.00
1 lausasölu kr.
Hf. Árvakur, Reykjavík.
Sigfús Jónsson.
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Sverrir Þórðarson.
Aðalstræti 6.
Aðalstræti 6. Sími 22480.
á mánuði innanlands.
5.00 eintakið.
GRIMULA US
KOMMÚNISTA-
FLOKKUR
Malta fær
eftir tvær
F riðsamlegasta „frelsisbarátta“
sem sögur fara af í seinni tíð
London, 9. sept. — (AP)
Thomas A. Reedy.
BRÁTT verður brezki fán-
inn dreginn niður í síðasta
skipti á Miðjarðarhafseyj-
unni Möltu, en þar hefur
hann blaktað við hún und-
anfarin 150 ár.
Fáni Möltu verður dreg-
inn að hún í staðinn.
Hátíðahöldin 21. septem-
ber marka sjálfstæði Möltu
í fyrsta skipti í nokkur
þúsund ár, en þann tíma
hefur landið verið undir
yfirráðum Grikkja, Róm-
verja, Sikileyjarmanna,
Araba, Frakka og Breta.
Philip prins verður fulltrúi
konu sinnar, Elizabetar II.
Bretadrottningar við hátíða-
höldin. Sir Maurice Dorman,
sem verið hefur landsstjóri
Breta, skiptir nú um titil og
verður framvegis fulltrúi
brezku krúnunnar, í samskipt-
um Breta við stjórn Möltu, og
í einstökum tilfellum við
stjórnarandstöðuna. Forsætis-
ráðherra er G. Borg Olivier,
en leiðtogi andstöðunnar, for-
maður Verkamannaflokksins,
Dom Mintoff.
Er Malta fær sjálfstæði
gengur í gildi ný stjórnarskrá,
sem þing landsins samþykkti
í júlí sl. Þar er kveðið á um
sjálfstæði Möltu, sem er 120
þús. fermílur að stærð, með
320 þús. íbúa. Eyjan verður
eitt samveldislandanna, og
Elizabet II. því drottning eyj-
arskeggja. Afstaða Möltu til
Breta verður hliðstæð afstöðu
Kanada, Nýja-Sjálands og
Ástralíu.
Möltubúar hafa ekki verið
einhuga í afstöðu sinni til
sjálfstæðis. Er þjóðaratkvæða-
greiðsla fór fram fyrr á þessu
ári kusu 66.000 með því, 55.000
móti, en 37.000 kjósendur
sátu hjá. Margir óttuðust, að
sjálfstæði eyjarinnar myndi
draga úr efnahagsaðstoð Breta
og efnahagslegur samdráttur
myndi fylgja í kjöifarið.
„Mikið hefur nú dregið úr
þeim ótta“, sagði talsmaður
Möltustjórnar, nú fyrir
skemmstu. „Loforð brezku
stjórnarinnar um 50 millj.
punda aðstoð næstu 10 árin,
hefur róað hugi manna. Marg-
ir, sem ekki hafa látið sjálf-
stæðismálið mikið til sín
taka fram til þessa, sýna nú
aukinn áhuga."
Bretar munu áfram njóta
réttinda til að hafa flota- og
flugstöðvar á eyjunni. Um
10.000 Möltubúar vinna nú
við þessar stöðvar, en vinnu-
færir menn á eyjunni eru tald
ir um 85.000.
Sífellt hefur dregið úr áhrif
um Breta á efnahagslíf eyjar-
skeggja, allt frá lokum síðari
heimsstyrjaldarinnar. Þá hafði
Malta geysiþýðingarmiklu
hlutverki að gegna í barátt-
unni við nazista.
Möltubúar líta þó á Breta
sem verndara sína, og senni-
lega hefur engin frelsis-„bar-
átta“ nútímans verið eins frið-
samleg og laus við tilfinninga-
ofsa.
Fjárlög Möltu nema um 10
millj. punda (1376 miílj. ísl.
kr.) Þjóðartekjurnar eru um
fjórum og hálfum sinnum
hærri, þ.e. um 6000 millj. ísl.
kr. —
Helmingur á opinberum fjár
lögum rennur til menntamála,
heilbrigðismála, almanna-
trygginga og annarra slíkra
útgjalda. Meðalkaup verka-
manna er um 1000 ísl. kr. á
viku, en útgjöld til húsnæðis
og matar eru lág. Veðráttan
er hlý, allt árið, og loftslag
mjög þægilegt.
Nýja stjórnarskráin kveður
á um, að rómversk-kaþólsk
trú sé viðtekin, en algert trú-
frelsi ríkir þó.
Því hefur verið haldið fram
í brezka þinginu, að kirkjan
á Möltu taki opinberlega þátt
í stjórnmálum, og sé í fullri
andstöðu við Verkamanna-
flokkinn.
Því hafa verið felldar niður
tvær greinar úr eldri stjórn-
arskránni. í annarri sagði, að
sérhver ráðstöfun kirkjunnar
til að vinna að framgangi
mála sinna, skuli ekki teljast
brot á mannréttindum. í hinni
sagði, að sérhver verndarráð-
stöfun kirkjunnar sé ekki
mannréttindabrot.
Þessi breytíng þótti eðlileg
til að koma í veg fyrir, að
kirkjan gæti bannað allt sam-
neyti við sósíalista, og flokkað
það undir dauðasynd.
Tíminn einn verður að leiða
I ljós, hvernig kirkjunni tekst
að halda á málum sínum, og
hver verður þáttur hennar í
baráttu þjóðernissinna, sem nú
sitja við völd og sósíalista,
sem vilja ná völdum.
Áhrif kirkjunnar eru mikil
á nær öllum sviðum þjóðlífs-
ins. Þau segja til sín í klæða-
burði manna, jafnt á götum
úti og baðströndum. Margir
halda því fram, að hér standi
kirkjan í vegi fyrir auknum
ferðamannastraum, sem gæti
orðið Möltubúum drjúg tekju-
lind. Á eyjunni eru mjög fall-
egar baðstrendur, og nú er ver
ið að reisa gistihús, til að taka
á móti fleiri ferðamönnum, en
á sl. ári voru þeir 32.000.
Malta bindur miklar vonir
við að aukinn ferðamanna-
straumur fær landsmönnum
þær tekjur, sem nægja til að
brúa bilið milli þeirrar að-
stoðar, sem eyjan fékk frá
Bretum, meðan hún var und-
ir þeirra stjórn, og þeirrar
efnahagsaðstoðar, sem Bretar
ætla að veita þessu nýja, sjálf-
stæða ríki. Víst er, að hvorki
iðnaður né landbúnaður geta
brúað þetta bil á næstunni.
Heyfengur með
mesta móffi í Kjés
T Ttanstefnan til Moskvu er
umræðuefni dagsins, ekki
veg'na þess að þeir, sem vildu
vita, hafi ekki vitað það að
hinn svonefndi Sameiningar-
flokkur alþýðu, Sósíalista-
flokkurinn, var í raun réttri
kommúnistaflokkur, sem
reiðubúinn var til að þjóna
" heimskommúnismanum og
yfirgangsstefnu Rússa, heldur
af hinu, að nú hafa leiðtogar
flokksins komið ógrímu-
klæddir til dyranna og eng-
inn getur lengur haldið því
fram, að þar sé um að ræða
flokk, sem í einu eða neinu
sé frábrugðinn öðrum komm-
únistaflokkum.
Ekki er vitað, hvort frum-
kvæðið að fundinum í
Moskvu kom frá kommúnist-
um hér á landi eða rússnesk-
um kommúnistum. Vafalaust
er þó, að um þetta fundahald
hafa þeir samið félagi Einar
Olgeirsson og ráðamenn í
Kreml, en félagi Einar hefur
dvalið langdvölum austan
járntjalds.
- Aðalatriðið er það, að aðil-
ar hafa verið sammála um
nauðsyn þessa fundahalds og
talið sig hafa þar gagn-
kvæmra hagsmuna að gæta.
Hagsmunir félaga Einars Ol-
geirssonar voru auðvitað fyrst
og fremst að fá rússneska ráða
menn til að reyna að stilla til
friðar innan kommúnista-
flokksins og tryggja áfram-
haldandi völd sín þar. Hags-
munir Rússa voru þeir að
tryggja, að íslenzkir komm-
únistar yrðu á þeirra bandi í
deilunum við Kínverja.
Kommúnistaforingjar hér á
landi hafa auðvitað oftsinnis
farið til Rússlands til að sækja
þangað ráð og styrk, en yfir-
leitt hefur verið reynt að
halda sem mestri leynd yfir
þessum ferðalögum. Nú bregð
ur hins vegar svo við, að gef-
in er út tilkynning um þetta
ferðalag og fundahöldin. Hef-
ur það vafalaust verið vilji
Rússa, því að með því undir-
strika þeir að þessi kommún-
istaflokkur á Vesturlöndum
sé á þeirra bandi. Kommún-
istaforingjarnir hér hafa hins
—vegar sett það skilyrði, að
þeir fengju yfirlýsingarnar
um það, að auka megi sölu ís-
lenzkra afurða til Rússlands,
hver svo sem raunin verður
í því efni. Þá yfirlýsingu ætla
þeir að hafa að yfirvarpi.
GEÐLITLIR MENN
TVTÚ er eftir að sjá, hverjar
verða afleiðingar þess, að
upplýst er, að kommúnista-
flokknum hér er stjórnað frá'
Moskvu. Þar eru honum lagð-
ar lífsreglurnar og þar er
reynt að berja saman flokks-
brotin og sjálfur „krónprins
Krúsjeffs“ stjórnar aðgerðun-
um.
í áratugi heíur verið reynt
að dylja það, að Sósíalista-
flokkurinn svonefndi væri
hreinræktaður kommúnista-
flokkur og í skjóli þéss hefur
tekizt að fá ýmsa þá menn,
sem ekki vilja veita heims-
kommúnismanum brautar-
gengi, til stuðnings við þenn-
an flokk, ýmist sem flokks-
menn eða óflokksbundna
fylgjendur, t.d. hið svonefnda
Alþýðubandalag. Hvað gera
nú þeir menn, sem blekktir
hafa verið, eftir að sauðar-
gærunni hefur verið flett af?
Væntanlega fæst þeirri
spurningu að nokkru svarað
á næstunni, en líklegt er þó
að fullnaðarsvar fáist ekki
fyrr en í almennum kosning-
um. Væntanlega verður svar-
ið þá skýrt og ótvírætt.
Það er sannarlega orðið
tímabært, að kommúnistar
verði einangraðir hér á landi
eins og annars staðar í nálæg-
um löndum, þar sem þeir eru
réttilega fyrirlitnir og útilok-
aðir frá öllum áhrifum.
VINDUR UM EYRU
TTm síðustu helgi hélt eitt
útibú kommúnista, sem
nefnt er Samtök hernámsand-
stæðinga, landsfund norður
við Mývatn. Fundarhald þetta
var auglýst með miklu brauki
og bramli, en heimtur voru
þó tregar, þótt fundarhaldið
væri sitjandi, en lið þetta hef-
ur undanfarið verið haldið
harðsperrum og göngumæði.
Þarna gaf að - líta gömlu
kommúnistaandlitin, enda
taktsláttur og veizlustjórn í
þeirra höndum. Nokkrir sér-
vitringar og sakleysingjar
slæddust þó með, en þetta er
fólk, sem virðist haldið þeirri
undarlegu meinloku, að heim-
urinn hafi staðið í stað síðan
1918 eða í tæplega hálfa öld.
Þessir nytsömu sakleysingj-
ar eru aldir stundarkorn á
þjóðsögum og kvæðalestri,
sem út af fyrir sig er góðra
gjalda vert — en síðan er
gauÁað að þeim Moskvusam-
þykkt um, að rétt sé að stíga
hálfa öld aftur í íslandssög-
una til fanga í utanríkisstefnu
íslands á tímum alþjóðasam-
taka og kjarnorkuvopna.
Kommúnistarnir, sem stýra
þessu sjónarspili vita þó bet-
ur. Þeir hafa margoft skipt
um stefnu varðandi hlutleysi
og miða það við hagsmuni
Rússa hverju sinni. Þeir vita,
að hlutleysi er engin vörn og
sízt af öllu vopnlausri smá-
þjóð.
Þessi samtök hernámsand-
stæðinga hafa gengið grýtta
slóð í íslenzkum stjórnmálum
og talað fyrir daufum eyrum.
Utanríkisstefna íslands var
mörkuð á morgni lýðveldisins
og hana styður yfirgnæfandi
meirihluti íslendinga, úr öll-
um stéttum og landshlutum.
Áróður kommúnista og berg-
mál nokkurra villuráfandi
sauða þeirra þýtur sem vind-
ur um eyru íslendinga.
Yaldastöðum, 6. sept.: —
NÚ MUN slætti að mestu lokið
og mun heyfengur að þessu sinni
með mesta móti. En um heygæði
er ekki gott að segja, líklegt er
að töluvert vanti af bætiefnum
í heyið, svo að það geti talizt
gott fóður, einkum af því hve
taðan var sumsgtaðar orðin úr
sér sprottin þegar hún var sleg-
in. Ollu þar mestu um óþurrkarn
ir í júlí sl. Engjaheyskapur var
með minna móti vegna lélegrar
sprettu. Háarspretta er yfirleitt
lítil, en háin hirt í vothey.
Kartöflu-uppspretta misjöfn
Byrjað er að taka upp úr görð
um, og mun uppskera mjög mis
jöfn. Þá er furða hver vöxtur er
sumsstaðar, þar sem kartöflu-
gras féll svo snemma að þessu
sinni. Þó er það dálítið misjafnt
eftir legu garðanna.
Rúmir 1000 laxar úr I.axá.
í Laxá hafa veiðzt rúml. eitt
þúsund laxar, og er það allgott,
þar sem ekki fór að veiðast fyrr
en eftir 20. júní, að heitið gæti.
Um veiði í Bugðu er mér ekki
kunnugt. En hún mun hafa verið
allgóð eftir því sem ég bezt veit.
í Meðalfellsvatni var veiði all-
góð, sérstaklega framan af veiði
tímsmum. — St. G.