Morgunblaðið - 11.09.1964, Page 27

Morgunblaðið - 11.09.1964, Page 27
Fðstudagur 11. sept. 1964 M O RC V N SLABiÐ 27 Ný, portúgölsk net reynast togurunum vel Eru léttari og endingábetri Hallbjörg skemmtir í Sigtúni Á MORGUN, laugardag mun veitingahúsið Sigtún hefja vetrarstarfseml sina. Hall- bjiirg Bjarnadóttir mun skemmta gestum Sigtúns næsta mánuðinn, en hún og maóur hennar eru nýkomin tíl landsins, eins og kunnugt er. I»au hafa dvalizt í Banda- ríkjunum undanfarin ár og komið fram á fjölmörgum skemmtistöðum í Kanada og víðar. Þau koma hingað frá Danmörku þar sem þau hafa skemrnt undanfarnar þrjár vikur. Munu þau hjónin skemmta fólki m. a. með eftir- hermum og söng. Þau hafa haldið eina skemmtun í Há- skólabíói. Hljómsveit Þorsteins Eiríks- sonar hefur verið ráðin til I þess að leika fyrir dansi í Sig- túni í vetur og syngur Jakob Jónsson með hljómsveitinni_ Sigmar Pétursson sagði blaða- mönnum í gær, að húsið yrði AÐFARANÓTT miðviku- dags kom upp eldur í fólksflutn- ingabíl á Dalvík. Bíllinn, sem er í eigu Gunnars Jónssonar sér- leyfishafa á leiðinni Akureyri— Dalvík, kom úr ferð austan af landi kl. 11 um kvöldið og tóku menn þá eftir því, að einn hjól- barðinn var sprunginn. Hafði AKRANESI, 10. sept. — Vélbát- urinn Sigurvon veiddi í nótt 447 tunnur af síld vestur undir Jökli. Mest af síldinni er hraðfryst. — Síldin er sæmilega stór, en vand- meðfarin, því að í henni er áta. Leiðrétting í MINNINGARGREIN um Guð- björgu Guðmundsdóttur í blað- inu í gær varð villa í síðustu línu kvæðis í lok greinarinnar. Síð- asta setning vísunnar átti að vera þannig: „hugsar þér að vakna brátt“. opið á hverju kvöldi, en á- herzla yrði lögð á að leyfa félagssamtökum að halda fundi sína og samkomur í húsinu. Yfirþjónn í Sigtúni er Guðjón Guðmundsson. hjólið hitnað mjög og eitthvað var farið að rjúka úr því. Var vatni skvett á hjólbarðann og slökkvivökva dælt inn um gat á hjólbarðanum, og virtist þá allt vera í lagi. Um eitt-leytið var aftur gengið úr skugga um að eldur væri ekki laus í bílnum og reyndist ekki vera. Skömmu eftir hálffjögur vakn- aði kona í húsi skammt frá bíln- um og kom auga á bjarma og reyk, sem lagði frá honum. — Kviknað hafði í gólfi yfir hjól- barðanum og var bíllinn alelda að innan, er slökkvilið Dalvíkur kom á vettvang skömmu síðar. Réði það skjótt niðurlögum elds- ins. Ekki var talin stafa nein sprengingarhætta af eldinum, því að bíllinn brennir olíu og geym- arnir eru undir honum. Miklar skemmdir urðu á far- þegarými bílsins. Hann hefur ver ið notaður í sumar til ferðalaga um austanvert landið. M A R G I R togaranna hafa nú fengið eða eru að fá ný troll úr portúgölsku gerviefnisgarni, sem reynzt hefur mjög vel, og er létt- ara og sterkara en þau net, sem þeir hafa haft. Hvalfellinu, sem hefur verið með þetta troll síðan í vor, hefur gengið mjög vel með það og fiskaði skipið vel í það við Austur-Grænland. Mbl. ræddi þetta mál við Snæ- björn Ólafsson, skipstjóra og starfsmann hjá Síldar- og fiski- mjölsverksmiðjunni. Hann sagði að hið porúgals'ka troll væri miklu léttara og virtist hafa meira slitþol en hampur. Það væri úr gerviéfni en léttara en nælon. Einkum virtist það betra á hörðum, sárum botni, því það lyfti sér betur frá botninum og entist því betur’T A ÖÐRUM tímanum í fyrri- nótt var ekið á konu á Suður- landsbraut við Múla með þeim afleiðingum að konan brotnaði á báðum fótum og hlaut önnur meiðsli. Hún var fiutt í Lands- sptíalann. Slysið atvikaðist þannig, að leigubíll var á leið austur Suð- urlandsbraut. Segir ökumaður- inn, að er hann var að koma móts við Múla, hafi hann skyndilega séð konu á götunni framundan, en þó ekki nógu snemma, þannig að hann næði að hemla í tíma. Skall bíllinn á konuna, og féll hún í göt- una. Konan slasaðist mikið eins og fyrr getur, en missti þó ekki meðvitund. Sjúkralið kom þeg- ar á vettvang og flutti konuna í Slysavarðstofuna og siðan i Landsspítalann, þar sem búið var um meiðsl hennar. Lögreglan telur, að konan, sem er 42 ára, hafi verið ail- mjög undir áhrifum áfengis, er slysið varð. í vor fengu fyrstu þrjú skipin þessa tegund af trolli, Hvalfellið, Marz og Víkingur. Hvalfellið var með trollið í þrem túrum við A- Grænland og fékk í öllum full- fermi, en varð þá fyrir því ó- happi að festa það og missa. alveg óskemmt. Það er miklu betri end- ing en hægt er að segja um hamp trollið, segir Snæbjörn. Síðan í vor hafa fleiri skip fengið þetta troll og líkað vel. Nú fóru bæði Askur og Hvalfellið út með þau í gær. — Við væntum töluverðs af þessum netum, eftir þá reynslu, sem við höfwm haft, sagði Snæ- björn. Þau eru líka ek^ert eða lítið dýrari en þau sem við höf- um haft, auk þess sem þau fúna ekki. Þeir, sem kynnu að hafa séð til ferða umræddrar konu á Suð prlandsbraut á þessum tíma, eru vinsamlegast beðnir um að gera rannsóknarlögreglunni að- vart, svo og vitni að slysinu sjálfu, ef einhver væru. Hvað -læi Anna María í heimonmond? Kaupmannahöfn, 10. sept. NTB. DANSKA blaðið Aktuelt ségir í dag, að Frederika, drottning, tilvonandi tengda- móðir Önnu-Maríu Danaprin- sessu hafi krafizt þess, að henni verði séð fyrir sjö mik’j ónum danskra króna í hciman mund, þegar hún gengur I það heilaga, 18. september n.k. Blaðíð segir hinsvegar litla ástæðu til þess að verða við þessum kröfum Frederiku og hefur eftir sænska vikublað- inu „Vecko-journalen“ að krafa þessi hafi orðið ágrein- ingsefni milli konungsfjöl- skyldnanna. í Kaupmannahöfn hefur fiogið fyrir sá orðrómur, að foreldrar brúðarinnar hafi fallizt á, að hún fái 10 millj- ónir danskra krónai heiman- mund, en féð verði lagt á banka í Sviss á nafni Önnu Maríu. Af hálfu hirðarinnar dönsku heyrist ekkert um | mál þetta. Dreux, Frakklandi, 10. sept. — AP. í dag voru gefin saman með mikilli viðhöfn franska prins- essan Isabella, elzta dóttir greifans af París, og Carl greifi af Schenborn — Buc- heim. Við brúðkaupið og veizl una á eftir vorú 400 gestir. Bíll brennur á Dalvík Brotnaði á báðum fótum Umíerðaslys á Suðurlandsbraut í fyrrinótt — Jarðvegur Frh. af bls. 28 urkort af öltu Suðurlandshólend inu og Arnarvatnsheiði, all-t firá Hverfisfljóti að austan og norð- ur að Stórasándi, sem eru, sam- tals 17.000 ferkm. og eru jöklar þá frátaldir. Og nú erum við byrjaðir á Þingeysku heiðunum, segir hann. Við vitum hve mik- ið gróðurland er á þessu svæði og hvers konar gróður það er. Þarna er viðhöfð sú nákvæmasta flokkun á gróðri sem okkur er kunnugt um að nokkurs staðar hafi verið framkvæmd í stórum stíl. Ástœðan ea- sú að óvíða í heiminum er eins mikil hætta á gróður- og jarðvegseyðingu og á íslandi. — Og fýkur alltaf jafnmikið upp? — Það er sýnt að uppblástur- inn hefst að marki með land- námi, og svo sterk rök liggja að því að fokið hafi síðan á land- námsöld af sem svarar 40—50 þús. ferkm. svæði á landinu, að ég treysti mér til að taka undir þau, þó ekki liggi fyrir þessu óyggjandi sannanir. — Hverjar eru orsakirnar til uppblástursins í upphafi? Og hefur jarðvegurinn eyðst jafnt og þétt síðan? — Orsakir uppblóstursins eru svo margar. Kannski fyrst og fremst eyðing skóganna eftir Igndnóm. Og líka eflaust versn- anidi veðurfar, því veður versn- Ingvi Þorsteinsson. aði einmitt um það leyti. Hér hefur verið tillötlulega jafn upp blástur siðan, en þó hafa kom- ið tímabil, þar sem sýnt er að hann hefur aukizt, einkum þegar hefur kólnað, því í slæmu ár- ferði hefur gróðurinn einfald- lega minna mótstöðuafl gegn veðri og vindum. — Og hvað um uppblóstur- inn í dag? Landeyðing meiri en uppgræðsla. — Uppblósturinn er geysi- mikiH á íslandi og landeyðingin meiri en uppgræðslan. Að vísu hatfa Sandgræðela íslands oig Skógrækt ríkisinis unnið geysi mlkið starf, en uppblásturinn var kominn á það stig þegar þessir aðilar hófu starf, að þeir hafa ekki haft undan. — Hvert er þó sambandið milli nýtingar landsins í dag og uppblástursins? Haft hefur ver- ið eftir þér að afréttir íslands séu ofbitnar og jafnvel að gróð- ur íslands sé verri en gróður annarra landa. — Hér mun vera vitnað í er- indi, sem ég hélt á Laugarvatni fyrir skömmu, en tilvitnanir eru ekki réttar. Sumar afréttir, eink- um á Suðurlandi, einmitt þar sem uppblástur er rnestur, eru ofsetnar og það flýtir geysilega fyrir gróðurskemmdum. Á þess- um afréttum er gróður mjög lé- legur til beitar, en það er önn- ur helzta afleiðing ofbeitar. — Og hver eru ykkar ráð? — Þessar rannsóknir okkar eiga að leysa handahófið í nýt- ingu gróðurlenda af hólmi. Með þessu teljum við okkur fá grund völl til að telja í hvern afrétt, þ.e.a.s. fullnýta landið en ekki ofnýta það. Eins og stendur er ekki viðhlýtandi löggjöf sem tryggir þetta og meðan svo er þar enginn að fara eftir niður- stöðum þessara rannsókna. Hins vegar er þó verið að vinna að samningu nýs frumvarps um hag nýtingu og meðferð beitilanda og landgræðslu almennt og vonandi verður að finna í því frumvarpi þau ákvæði sem bæta úr þessu, því hér er geysimikið í húfi. Andöy ( dregin til IMoregs Seyðisfirði, 9. sept.: — I Bráðabirgðaviðgerð á Andöy | er lokið hér, og norska björg | unarskipið Skomblom II | (slysavarnaskip) er komið | hingað og liggur utan Mæturfrost e MORGUNBLAÐID átti í gær símtöl við Egilsstaði, Möðrudal og Grímsstaði á Fjöllum. Var veður allstaðar gott, en nokkurt næturfrost. Mun allt kartöflugras fallið á Egilsstöðum. Á Egilsstöðum var sólskin og næstum logn í gær. en nætur- frost hafði verið talsvert undanfarnar tvær nætur. Sagði Steindór Eiríksson, að svo til öll kartöflugrös hefðu fallið í frosti þessu, en þau voru þó farin að láta mjög á sjá fyrir. Kristján Sigurðsson á Gríms- stöðum á Fjöllum sagði, að nokk uð hefði dregið úr næturfrostinu nóttina' áður og farið niður í 5 stig, en tvær næturnar þar áður hafði verið 7 stiga frost. Á dag- á Andöy. Skomholm | II dregur Andöy til ; Noregs i kvöld. Mjög miklar | skemmdir urðu á skipinu við | brunann, og m.a. misstu skip | verjar allan fatnað og voru I fataðir upp af norska ræðis- I manninum hér. Sjópróf fór 1 fram sl. sunnudag hjá norska | ræðismanninum. Allt bendir = til, að eldurinn hafi komið frá | rafkerfi, því um leið og reyk | ur fannst fyrst var talstöð i Andöy óvirk. — Sveinn. n gott veður inn hefði verið bjartviðri og sæmilega hlýtt. Engin kartöflu- rækt er á Giímsstöðum, svo að Krisján kvað engan skaða af frostunum. Sagði hann að menn væru að ljúka að ganga frá heyjum sínum. Göngur hefjast frá Grímsstöðum 19. september, en slátrun á Kópaskeri, þar sem Grímsstaðabændur lóga fé sínu. hefst 15. september. Þá sagði Kristján að m,jög væri tekið að draga úr umferð, en hún hefði í sumar verjð meiri en nokkru sinni fyrr. Jón, bóndi í Möðrudal, sagði þar afbragðsveður og glansandi sólskin, en kvað næturfrost hafa verið mikið síðastliðnar þrjár nætur. Þar munu göngur hefjast 20. eða 21. september.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.