Morgunblaðið - 07.10.1964, Page 10

Morgunblaðið - 07.10.1964, Page 10
10 MORGU NBLAÐIÐ Miðvikudagur 7. okt. 1964 Hvað segja þeir í fréttum? Síldveiöar eystra Fara allir á þorskandt? Línuveiðum hætt? MIKIÐ er nú rætt manna á meðal um nýhafnar haust- síldveiðar fyrir Austurlandi. Við hittum að máli Kristján Ragnarsson, fulltrúa hjá Lands sambandi íslenzkra útvegs- manna, og spurðum hann um álit hans á þessum veiðum. — Jakob Jakobsson, fiski- fræðingur, gerir ráð fyrir því, að síld verði fyrir austan fram eftir hausti, jafnvel fram í desember. Ekki er ástæða til þess að halda annað en hann hafi rétt fyrir sér nú eins og áður. — Útvegsmenn hafa áhuga á því, að skipin haldi áfram veiðum á þessum slóðum. — Fiskiskipaflotinn hefur eflzt mjög á síðari árum, og skipin eru stærri og betur búin en áður, svo að hægt er að halda þeim úti lengri árstíma en fyrr. Stærð og búnaður skip- anna gefur tilefni til þess að stunda veiðar við verri að- stæður en undanfarið hefur verið hægt. — Á hitt verður þó einnig að líta, að leiði sjómanna á að vera fjarri heimilum sínum svo langan tíma er kominn til sögunnar. Úthaldið er þegar orðið fjórir mánuðir, og eigin- lega má segja, að sjómenn- irnir hafi verið í nær stöðugu úthaldi frá áramótum. Þreyta og lúi fara því að gera vart við sig. — Jafnhliða þessu hafa þeir haft miklar tekjur, svo að á- huginn á að afla meiri tekna hefur minnkað. Þar við bæt- ist, að tekjur margra eru orðn- ar svo háar í ár, að þeir eru þegar farnir að kvíða skött- unum. — Fólksfæð á Austfjörðum veldur því og, að erfitt er að ráða við mikið síldarmagn, sem bærist á land. — Þrátt fyrir þetta, þá er hér um svo mikil verðmæti að ræða, að við megum ekki láta þau fara forgörðum. Því er að sjálfsögðu mikill áhugi meðal útvegsmanna á að nýta þau. Eðlilegt er því, að ein- hver hluti síldveiðiflotans verði eystra fram eftir hausti. Skipum hefur nú fjölgað þar undanfarna daga, því að skip, sem komin voru heim, eru nú farin austur aftur. — Er nokkuð fleira, sem þú vilt taka fram um síldveiðarn ar fyrir austan? — Mikil óánægja er ríkj- andi hjá útvegsmönnum með það fyrirkomulag, að síld sú, sem veiðist fyrir Norður- og Austurlandi sé seld eftir máli en ekki eftir vog, eins og gert er alls staðar annars staðar á landinu. í sumar hafa síld- arsaltendur verið kaupendur að stórum hluta af bræðslu- síld, sem stafar af því, að mikið af þeirri síld, sem þeir hafa tekið á móti inn á sölt- unarstöðvarnar, hefur ekki verið hæft til söltunar og greið ist því með bræðslusíldar- verði. Þessa síld kaupa söltun- arstöðvarnar eftir máli, en selja hana síðan til síldar- bræðslanna eftir vog. Talið er, að þar sé um að ræða mismun, er nemi allt að 12%, sem óhag stæðara er að selja síldina eft- ir máli. Síldarverksmiðjur norðanlands og austan, og þar með taldar Síldarverksmiðjur ríkisins, geta ekki verið þekkt ar fyrir það öllu lengur að koma ekki á fót aðstöðu til þess að kaupa alla síld eftir vog og mismuna ekki við- skiptavinum sínum, eins og nú er gert. — Hvað viltu segja um síld- veiðar hér í Flóanum? — Menn vonast til að hér verði einnig síld, svo að flot- inn geti verið dreifður. Með því móti nýtist verkunarað- staðan mun betur en ella. — Þegar hefur verið selt mikið magn af sáltsíld hér suðvestanlands og mun meira en undanfarin ár. Vonir standa til þess, að sala á freð- síld verði með svipuðum hætti og áður. — Þið hafið séð ástæðu til þess í L.f.Ú. að gefa vikulega út síldarskýrslu, eftir að Fiski- félag fslands hætti útgáfu sinni að beiðni sjóslysanefnd- ar? — Já, það var samhljóða dómur útvegsmanna, að á- stæður þær, sem sjóslysanefnd bar fyrir ósk sinni, hafi ekki haft við rök að styðjast. — Allir aðstandendur sjó- manna, og raunar fólk um land allt, hafa svo mikinn á- huga á að fylgjast með síld- veiðunum, að L.f.Ú. taldi rétt að verða við óskum almenn- ings. Einstök dagblöð reyndu á eigin spýtur að semja afla- skýrslur, en reyndist það að vonum heldur örðugt. Voru þær því ófullnægjandi, en við töldum, að betra væri að birta réttar skýrslur en rangar. Því fórum við að gefa skýrslurnar út og urðum greinilega varir við, að fólk mat þessa þjón- ustu mikíls. — Viltu segja nokkuð um vertíðina nú í vetur? — Ég ber kvíðboga fyrir því, að svo mörg skip muni stunda þorskveiðar með nót, að góðfiskveiðar með línu og veiðar með netum muni minnka til muna og línuveiði jafnvel leggjast niður. Þorsk- nótaveiðar eru mjög áhættu- samar, og svo gæti farið þeg- ar á þessum vetri, að þær brygðust vegna minni fiski- gengdar en var á síðastliðnum vetri, og þá sérstaklega ef veð- urfar yrði óhagstætt. Þorsk- veiðar í nót er ekki hægt að stunda í jafn óhagstæðu veðri og veiðar með línu og net. — Þetta gæti haft þær af- leiðingar, að vertíðin brygð- ist að verulegu leyti, því að ljóst er, að beztu skipin og aflasælustu skipshafnirnar munu stunda þessar veiðar, þ.e. þorskveiðar í nót. — Ástæðan til þess, að línu- veiðar virðast eiga svo í vök að verjast, sem raun ber vitni, þótt þær gefi bezta hráefnið, er, að fiskverð er allt of lágt til þess að útgerð geti borið sig á þeim veiðum. — Hve lengi verða núver- andi kjarasamningar sjó- manna í gildi? — Allir kjarasamningar við sjómenn, bæði undir- og yfir- menn, eru í gildi til áramóta og framlengjast þá um eitt ár, verði þeim ekki sagt upp fyrir 1. nóvember n.k. af öðr- um hvorum aðilanum. Þess ber þó 'að geta, að samningar um skiptakjör á þorskveiðum með nót eru ekki til, vegna Kristján Ragnarsson þess að þessar veiðar eru ný- tilkomnar, en ljóst er, að um þau verður að semja, því að ástandið frá síðustu veftíð má ekki endurtakast, þegar óá- ákveðin kjör giltu á bátun- um. — Útvegsmenn telja ósann- gjarnt, að sjómenn beri meira úr býtum á þorskveiðum með nót en á öðrum þorskveiðum þar sem vinna er bæði lengri og erfiðari miðað við svipuð aflabrögð. Aldrei fleiri nemendur í Háskólanum en n•• KENNSLA er nú ýmist hafin eða í þann mund að hefjast í æðstu menntastofnun ís- lendinga, Háskóla íslands. — Fréttamaður blaðsins fór því á fund háskólaritara, Jóhann- esar L. L. Helgasonar, lögfræð ings, og spurði hann, hve margir hefðu innritazt nú í septembermánuði, en innritun fer fram tvisvar á vetri, í sept- ember og janúar. Innritunar- gjald er 1.000 krónur. — Að þessu sinni innrituð- ust 325 stúdentar, og hafa aldrei innritazt fleiri áður. í fyrra létu 300 skrá sig til náms um haustið. Nemendur nú í vetur verða 930 talsins, og er það hæsta nemendatala í sögu skólans. — Hvernig skiptast hinir nýinnrituðu eftir deildum? — Skiptingin er svipuð og í fyrra, nema hvað mun fleiri innrituðust í læknisfræði nú en í fyrra, þ.e. 53 nú, en 24 þá. Hafa nemendur í læknis- fræði ekki verið fleiri síðan reglugerðinni var breytt á ár- inu 1958. Hinir nýskráðu nem- endur skiptast annars þann- ig eftir námsefni: Guðfræði Læknisfræði Tannlækningar Lyfjafræði Lögfræði Viðskiptafræði íslenzk fræði B.A. Heimspeki (forspjalls- vísindi) íslenzkukennsla fyrir útlendinga Verkfræði 3 53 8 8 33 35 14 90 45 13 20 Jóhannes L. L. Helgason — Þess má geta, að aðsókn að tannlækningadeild er meiri en svo, að unnt sé að taka við öllum, sem í deildina vilja komast. — Er ekki orðið þröngt um háskólann í þessum húsa- kynnum? — Jú, skólinn á við mikil húsnæðisvandræði að etja, víst er um það, og ekki fyrir- sjáanlegt, að við það húsnæði skólans bætist í vetur. Þegar Handritahúsið verður komið upp, fær skólinn þar aukið kennsluhúsnæði. — Enska í B.A.-deild er nú kennd í leiguhúsnæði á Tjarn argötu 44. Þar er kennslu- stofa, bókasafn, upptökuher- bergi o.s.frv. Kennsla í lækn- isfræði og tannlækningum hefur alltaf farið fram að nokkru leyti utan veggja skól- ans. Laga- og viðskiptadeildin hefur lestrarstofur á Aragötu 9. Síðan byggt var ofan á íþróttahús skólans, hafa þar verið kennslustofur í efna- og eðlisfræði. — Koma einhverjir nýlr prófessorar að háskólanum nú í haust? — Nei, en hins vegar nokkr- ir nýir aukakennarar. — Er Happdrætti Háskóla íslands ekki skólanum mikil lyftistöng fjárhagslega? — Jú, en það fullnægir hins vegar hvergi nærri fjárþörf stofnunarinnar. í fyrra var miðafjöldi tvöfaldaður, og hef ur sala nýju miðanna gengið mjög vel. — Hvað er annars fleira i fréttum? — Undirbúningur undir Fé- lagsheimili stúdenta er nú í fullum gangi. Þarf ekki að eyða að því mörgum orðum, hver nauðsyn stúdentum er á því. Það er forsenda þess, að félagslíf stúdenta geti staðið í nokkrum blóma, en hingað til hefur það þótt vera nokkuð dauft. — Alveg á næstunni er von á hinum margumtalaða raf- eindareikni. Honum hefur ver ið valinn staður í hinni nýju Raunvísindastofnun Háskóla íslands, en hús stofnunarinn- ar er nú í smíðum við Dun- haga. MH

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.