Morgunblaðið - 13.10.1964, Blaðsíða 1
28 siður
Bátur frá Flateyri ferst - annars saknað.
VÉLBÁTURINN Mummi ÍS
366 frá Flateyri, sökk undan
Vestfjörðum á laugardag. —
Fjórir menn fórust með skip-
inu, en tveir komust í gúm-
bát, og var þeim bjargað eft-
ir um 30 tíma hrakninga í
kulda og stormi.
Annars báts frá Flateyri,
Sæfells SH 210, hefur verið
saknað síðan á miðnætti að-
faranótt laugardags. Var
hann þá undan Húnaflóa.
Fjórir menn eru á bátnum,
þar af þrír frá Flateyri, að
því er Mbl. bezt veit.
•^ Þessir menn fórust með
•vb. Mumma:
Pálmi Guðmundsson, 57
ára, lætur eftir sig sex börn
©g eitt fósturbarn á aldrinum
10 ára til tvítugs. Hann lætur
einnig eftir sig aldraða móð-
tir. Hann var búsettur á Flat-
eyri.
Martin Tausen, 59 ára, fær-
eyskur, lætur eftir sig börn
í Færeyjum og einn son á
Flateyri, þar sem Martin
hafði verið búsettur í tíu ár.
Þórir Jónsson, 41 árs, lætur
eftir sig unnustu og uppkom-
inn son. Hann átti heima á
Flateyri.
Hreinn Sigurvinsson, Sæ-
hóli, Ingjaldssandi í Önund-
arfirði, 17—18 ára, ógiftur. Á
foreldra á lífi á Ingjaldssandi.
Þessir komust af:
Hannes Oddsson, skipstjóri,
25 ára, kvæntur, barnlaus.
Olav Öyahals, 26 ára,
kvæntur og á fjögur börn.
Olav er Norðmaður, en hefur
átt heima hér sl. 10 ár, þar
af átta ár á Flateyri.
Vb. Mumml fór frá Flateyri
árla á laugardagsmorgun. Skip-
verjar höfðu seinast samband við
Jand um talstöð kl. 12.30 á laugar
dag, er þeir voru staddir um 9
ejómílur V af N frá Barða, sem
er á nesinu milli Önundarfjarð-
■r og Dýrafjarðar.
Síðan heyrðist ekkert til báts-
ins, og k-L hálf-tvö á aðfaranótt
punnudaigs var Slysavarnafélag
íslands beðið um aðstoð við að
huga að bátnum. Mjög vont veð
«r var þarna vestra, haugasjór
og 10 vindstig. Segja má, að öll
Framhald á bls 12
Gúmbátnum skaut upp 10
mín. eftir a5 IMummi sökk
— þá kom sér vel að hafa vasahnífinn
Fréttamaður IVfbl. ræðir við annan, sem af komst
U M það bar öllum saman,
er fréttamenn Mbl. hittu að
máli á Flateyri við Önund-
arfjörð í gærdag, að björg-
un þeirra Hannesar Odds-
sonar, skipstjóra og Olavs
Öyahals, vélstjóra, hafi ver
ið svo einstæð á allan hátt,
að til kraftaverka megi
teljast. En þótt þeim sé
fagnað, sem heimtir hafa
verið úr helju, ríkti skuggi
sorgarinnar yfir Flateyri í
gær og þar blöktu fánar í
hálfa stöng við nær hvert
hús. Það er ekki lítil blóð-
t^ka litlu þorpi, er fjórir
menn farast þaðan. Annars
báts er nú saknað frá Flat-
eyri með þremur heima-
mönnum, og einum að-
komumanni. Segjast verð-
ur að tilviljanirnar séu oft
æði einkennilegar. Þcir
Hannes skipstjóri, sem
bjargaðist af Mumma, og
tengdafaðir hans, Einar
Jóhannesson, voru báðir á
Sæfellinu, sem nú er sakn-
að með f jórum mönnum. —
Hannes hætti um sl. ára-
mót, en Einar ekki fyrr en
nú fyrir skömmu.
Fréttamenn Mbl. heimsóttu
í gaer Olav Öyahals, vélstjóra,
sem talar svo góða íslenzku,
að ekki er hægt að merkja
að hann sé útlendingur. Hann
er 26 ára gamall, kvæntur og
á fjögur ung börn, 6 ára, 3
ára, 2 ára og níu mánaða.
Olav er Norðmaður, fluttist
hingað til lands 1954 og hefur
verið hér síðan, lengst af á
Flateyri. Kona hans, Hulda
Haltemark, er einnig norsk
í aðra ættina. Það sem hér fer
á eftir er frásögn Olavs.
Báturinn fylltist á andartaki
„Klukkan mun hafa verið
Framhald á bls. 3
Fánar blöktu hvarvetna í hálfa stöng á Flateyri við önundarfjörð er frettamenn Mbl. komu þar í gær. (Ljósm. Ol. K. M.)
Þeir sem fórust með mb. Mumma
Blaðinu tókst ekkl að fá mynd af Hreini Sigurvinssyni.
Þórlr Jónssoa Alartin Tausen Pálmi Guðmundsson
Sænsk blö5 styðja
Loftleiðir
Ufanríkisróðherrum Horegs, Danmerkur
og SvíþjóBar afhent mótmœli samtaka
ungra jafnaðarmanna
Stokkhólmi, 12. okt. (NTB)
M Ö R G blöð í Svíþjóð hafa
haldið uppi baráttu fyrir mál-
stað Loftleiða og gagnrýna
harðlega aðgerðir Norður-
landasamsteypunnar SAS og
loftferðayfirvaldanna til tak-
Framihald á bls. 12