Morgunblaðið - 18.10.1964, Qupperneq 25
Sunnudagur 18. okt. 1964
MORCUNBLAÐIÐ
25
Merkjasola
Bliodravinoiél.
í DAjG knýja dyra yðar, ung-
menni þessa bæjar, og bjóða yð-
ur merki dagsins, til hjálpar
blindum börnum, konum og
íkörlum. I>etta er hin árlega fjár-
söfnun félagsins.
Hjálparstarfsemi blindra með-
al annarra þjóða hófst fyrst á
átjándu öld, er Frakkar stofnuðu
iyrsta blindraheimilið í París
1774 og innan 1820 höfðu flestar
Evrópu-þjóðir stofnað slík hæli,
sem jafnframt voru vinnustofur
fyrir blinda. Forgöngumenn
þessarra stofnana voru oftast
áhugasamir einstaklingar eða
félög. Nú verja allar þjóðir hins
r.ienntaða heims miklum fjár-
fúlgum til blindrastarfsemi.
Hér hófst blindrastarfið aðeins
fyrir rúmum þrem áratugum og
er það nærri hálfri annari öld á
eftir öðrum þjóðum Evrópu, Þó
befur nokkuð áunnizt fyrir góð-
ar. skilning almennings á nauð-
f.yn þessa starfs, en mikið er en
ógert, þó félagið hafi frá stoínun
þess starfrækt vinnustofu fyrir
biinda þar, sem þeim hefur verið
íkenndar ýmsar iðngreinar.
Margir hafa útskrifast þaðan og
orðið atvinnulega sjálfstæðir
og hafa fengið nýja trú á lífið
og hafið aftur sína hörðu bar-
áttu. í>á hefur félagið starfrækt
skóla fyrir blind börn og ungl-
inga, allt frá stofnun félagsins,
öll þau ár, sem blind böm hafa
verið i skólaaldri og en er brýn
t>örf fyrir þennan skóla og raun-
ar fyrir alla þá starfsemi, sem
félagið hefur með höndum. t>á
hefur félagið mörg undanfarin
ár haldið heimili fyrir blinda að
Bjarkargötu 8 fyrir þá sem vinna
í vinnustofum félagsins. Nú
keppir félagið að því, að afla
sér fleiri segulbandstækja, svo
flestir blindir geti notað sögu-
spólusafn félagsins, ef svo mætti
að orði kveða.
Blindravinafélag íslands leit-
*r enn á ný til yðar um stuðning
til meiri og betri hjálpar til
handa blindum samborgurum
okkar.
Póstur 0«; sími
býður í frysti-
hús
KEFLAVÍK, 16. okt. — í dag fór
íram stærsta uppboð, .sem hing-
að til hefur farið fram á Suður-
nesjum. Voru eignir fsfélags
Keflavíkur hf. boðnar upp af
bæjarfógetanum í Keflavík og
kom aðeins eitt boð í eignirnar,
frá Sveinbirni Jónssyni, lögfræð-
ingi Póst- og símamálastjórnar-
innar, upp á 7,2 milljónir. Kröfu-
hafar eru margir í eign þessari
og voru 12 lögrfæðingar komnir
til uppboðsins.
Vegna óska annarra kröfuhafa
var ekki endanlega frá uppboð-
inu gengið og mun annað upp-
boð fara fram á miðvikudaginn
kemur kl. 14. — Helgi S.
— Ragnar
Tómasson
Framhald af bís. 8
fyrir þeim vanda sem við er að
etja.
Við verðum að viðurkenna á-
fengið sem vandamál o>g taka á
því sem slíku. Það opinbera verð
ur að þora að ráðast gegn á-
fengistízkunni og hetfja verður
víðtæka fræðslu um áfengis-
vandamálin í skólum og víðar.
Áfengið verður sennilega alltatf
til og það böl sem því fylgir, en
með hhgnýtingu skynseminnar
má minnka það til mikilla
iriuna. Þá er bindindishugsjón-
inani öruggur stuðningur vís, ef
menn láta afstöðu sína ráðast atf
hlutlæigri íhugun og skynsemi,
en forðast sleggjudóma tízkunn-
ar.
1
Kökur yðar og brauð verða bragðbetri
og tallegri eí bezta tegund aí
lyítiduíti er notuð.
Vinnuskúr óskast
Upplýsingar í síma 37974.
Bílskúr óskast
Vantar rúingóðan bílskúr til geymslu á
einni eða tveimur bifreiðum. — Upplýs-
ingar í síma 35900 í dag og á morgun.
SAMEIGINLEG
ÁRSHÁTÍÐ
Félags blikksmiða, Félags járniðnaðar-
manna og Sveinafélags skipasmiða
verður haldin í Sigtúni laugardaginn 31. okt. 1964
og hefst með kvöldverði kl. 7.00 e.h.
Góð skemmtiatriði. . .
Aðgöngumiðar afhentir í skrifstofu Félags járniðn-
aðarmanna að Skipholti 19.
Skemmtinefndin.
Hárgreiðsludama
Útlærð hárgreiðsludama óskast hálfan eða allan
daginn. Gott kaup. Góð vinnuskilyrði. Tilboð send-
ist Morgunbl. íyrir þriðjudagskvöld merkt: „Útlærð
— 9086“.
Húseigendur
Viljum kaupa 10—20 ferm. færanlegt hús.
Helzt einangrað.
Upplýsingar í síma 16261 eftir kl. 7 e.h.
Drertgur eða stúlka
á aldrinum 14—16 ára óskast til sendi-
ferða, símavörzlu og fleira.
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar.
Bifreiðaverkstæði
Til sölu er bifreiðaverkstæði á góðum stað í bænum.
Vinnupláss er rúmgott og mikið af verkfærum og
tækjum. Til greina kemur að leigja verkstæðið.
Þeir sem hafa áhuga á þessu sendi tilboð til afgr.
Mbl. fyrir 23. þ.m. merkt: „Trúnaðarmál — 9098“.
íbúð í smíðum
á Seltjarnarnesi
4ra herb. íbúð í tvíbýlishúsi um 100 ferm. fokheld
með hitalögn. — Á hæðinni eru 2 stofur, 2 svefn-
herb., eldhús, hol, bað, þvottahús og geymsla, stórar
svalir. — Á jarðhæð er innbyggður bílskúr og hita-
klefi. — Ilagstætt verð.
Einbýlishús fokhelt í Garðahreppi um 135 ferm.
með uppsteyptum bílskúr.
Einbýlishiis, — stórt fokhelt í Kópavogi með bíl-
skúr. — Teikningar á skrifstofunni.
JÓN INGIMARSSON, lögm.
Hafnarstræti 4 — Sími 20555.
Solumaður: Sigurjón Magnússon
Kvöldsími 34940.
Vélritunarstúlka
Vélritunarstúlku með góða menntun vantar. Áhugi
á blaðamennsku ákjósanlegur. Hátt kaup. Svar
sendist Morgunblaðinu auðkennt: „Vélritunarstúlka
— 9094“.
Járniðnaðarmevtn
Nokkra vélvirkja og plötusmiði vantar
nú þegar.
Vélsmiðja EYSTEINS LEIFSSONAR H.F.
Síðumúla 17. — Sími 18662.
50 fermetra
Gott húsnæði óskast sem fyrst.
Rafagnatækni
(EJcctronic) — Sími 12721.
Bifvélavirkjar óskast
eða menn vanir viðgerðum. Einnig viljum við ráða
blikksmið eða mann vanan vatnskassaviðgerðum.
Bifreiðaverkstæðið Stimpill
GRENSÁSVEGI 18.
N Ý SENDING AF
Hollenskum kápum
Enskum apaskinnsjökkum
og ítölskum regnhlífum.
BERNHARÐ LAXDAL
Kjörgarði.
Til sölu
Höfum verið beðnir að selja 5 herbergja íbúð við
Tómasarhaga. íbúðin er sérlega vel með farin, ný
máluð með stórum svölum móti suðri. Tvö herbergi
á ytri forstofu. Bjóðum mjög hagstætt verð og
greiðsluskilmála, ef samið er strax.
FASTEIGNA- OG LÖGFRÆÐISTOFAN
Laugavegi 28 B — Sími 19455.
GÍSLI THEODÓRSSON. Helgasími 18832.