Morgunblaðið - 14.11.1964, Blaðsíða 1
28 síður
itnMftfrUr
B1 ár^angw
258. tbl. — Laugardagur 14. nóvember 1964
Prentsmiði^ Morgunblaðsins
5.000 manns forost í ðlóðum
130.000
manns Iicim-
iiislausir —
Veður haml-
ar björgun-
arstarfi —
skæruliðar
vaða uppi —
hætta á drep-
sótt á f lóða -
svæðinu —
mótmæla-
göngur í höf-
uðborginni
Frá flóðunum í S-Viet-nam. Ibú ar borg-arinnar Quang Nai reyna að bjarga einhverju af eigum sínum undan flóðinu. Sums stað-
ar í borginni var vatnið rúmlega þrír og hálfur metri að dýpt.
Saigon, 13. nóv. — (AP-NTB) —
BANDARÍKJAMENN í Suður-Vietnam taka nú höndum
saman við landsmenn til þess að bjarga því sem bjargað
veiði úr flóðunum miklu í miðhéruðum landsins, sem til
þessa hafa orðið að bana 5000 manna og lagt í rústir 50.000
vistarverur 130.000 manna. Óttast er að enn hækki tala
látiona í flóðunum, en símasambandslaust er enn við marga
bæi. Matarskortur hefur gert vart við sig og hætta er á
drepsóttum þar sem vatn hefur víða spillzt.
H'indruðir þúsunda heimilislausra eru nú í Suður-Viet-
nam og hafa skæruliðar Viet Cong notað tækifærið til þess
að komast inn í landið og er óhægt um vik til varnar við
aðstæður þær sem þar eru. Halda skæruliðarnir uppi árás-
um á þyrlur Bandaríkjamanna, sem vinna að björgunar-
störtum á flóðasvæðunum.
Chou En-lai á fie/m/e/ð
Enginn sjáanlegur árangur
viðræðnanna
Moskvu, 13. nóvember,
NTB., AP.
SNJÓR "ar í Moskvu í k'völd, er
Chou En-lai og kínverska sendi-
nefndin kvöddu höfuðborg Rússa
veldis. Á flugvellinum voru
mættir margir landar hans til
aS kveðja hann og af hálfu so-
vézku stjórnarinnar þeir hinir
sömu og tóku á móti honum þar
fyrir viku og var Kosygin fyrir
þeim eins og áður.
1 Saigon á stjórn Tran Van
Huongs í vök að verjast þar
«em að henni ráðast bæði
þeir sem komu henni á lagg-
irnar, andsnúin dagblöðin í
landinu og fjölmennir hópar
stúdenta, sem fóru í mót-
Framhald á bls. 27
JWtynd, er sýnir afstöðu S-Viet-
um. Flóðin ná yfir 13 héruð um
miðbik landsins.
^iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiimmiiimiiiiiiitiiii!
| Síðasta trúnaðarmanni I
Krúsjeffs vikið frá
Moskvu, 13. nóvember,
AP, NTB.
STAÐFEST hefur verið í
Moskvu, að Pavel Satyukov,
ritstjóri Pravda, hafi látið af
störfum við blaðið og við
tekið Alexei M. Rumyantsev.
Áður hafði verið frá því
skýrt, að Satyukov hefði ver-
ið settur af, þegar Krúsjeff
var steypt úr stóli 14. októ-
ber sl. Satyukov var þá í
heimsókn í París og gerði
gys að öllum fréttum um
uppsögn sína, sagði að vest-
rænir blaðamenn vildu mann
orð sitt feigt, þannig væri
ekki hægt að fara með menn
og hélt áfram störfum sínum
við Pravda eins og ekkert
hefði í skorizt eftir heim-
komuna.
Tengdasonur Krúsjeffs,
Alexei Adsjubei, var sá sem
fyrstur varð að víkja úr rit-
stjórastóli Izvestia þegar Krú
sjeff varð frá að fara í októ-
ber, og útvarps- og sjón-
varpsstjórinn í Mosktvu, Mik
hail Kharlamov, fór sömu
leið. Hann var á ferð í Noregi
er honum var tilkynnt frétt-
in um uppsögn hans og tók
hana ámóta vel trúanlega og
Satyukov .fréttina um sína
uppsögn. Við starfi Adsju-
beis, sem nú er sagður hafa
á hendi minniháttar starf við
annað blað í Moskvu, tók
Vladimir Stepakov, en við
starfi Kharlamovs útvtarps-
og sjónvarpsstjóra tók Niko-
lai Mesyatsev.
Valdamest þessara þriggja
embætta er þó embætti rit-
stjóra Pravda, málgagns
kommúnistaflokksins sovézka.
Pravda er gefið út í sex
milljónum eintaka og það er
það sem „gefur línuna'*.
Hinn nýi ritstjóri Pravda,
Rumyantsev, hefur áður ver-
ið ritstjóri tímaritsins „Komm
unist“ í þrjú ár, frá 1955—
58 og síðan 1958 hefur hann
verið ritstjóri tímaritsins
„Vandamál friðar og sósíal-
isma“. Hann ritstýrði fyrst
dagblaðinu „Föstudagur“, að
sögn NTB. Satyukov er sér-
fræðingur í stjórnmálafræði
og sósíalisma og var eitt sinn
menningarmála- og vísinda-
fulltrúi í deild miðstjórnar
kommúnistaflokksins.
Framh. á bls. 27
Viðræður kínverska forsætís-
ráðherrans og sendinefndarinnar
við sovézka ráðamenn hafa nú
staðið síðan lauk hátíðahöldun-
um vegna 47 ára afmælis bylt-
ingarinnar í Rússlandi.
Framh. á þls. 27
1=7.
uiuiuuiiuumuiiiimiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimimii Hiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiii
Hvar er
Suslov?
HELZTI hugmyndasérfræð-
ingur sovézka kommúnista-
flokksins, Mikhail Suslov, sat
ekki fundi sovézku leiðtog-
anna og kínversku sendinefnd
arinnar í Moskvu, þar sem
rædd voru ágreiningsatriði
stórveldanna.
Vakti þetta að vonum
nokkra athygli og ýmsum get
um að því leitt hvað valdið
hefði, en sumir sögðu að Susl
ov væri veikur.
>