Morgunblaðið - 14.11.1964, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 14.11.1964, Blaðsíða 28
4-15 þús. mál síldar brædd á Norðfirði Sild berst enn að Samið um 330 millj.kr. olíukaup frá Sovétríkj. Neskaupstað, 13. nóv. KLUKKAN eitt í dag hafði síldar hraeðslan hér lokið við að bræð.a 414.620 mál af síld. Byrjað var að bræða 19. júní í sumar, og heita má, að síðan hafi verið brætt stanzlaust. Úr öllu þessu magnj hafa komið 10,900 tonn af lýsi og 11.500 tonn af mjöli. Búið j er að afskipa 7.000 tonnum af lýsi og 9.000 tonnum af mjöli. Síldarvinnslan h.f. hefur nú fest kaup á tveimur bátum, sem smíðaðir eru í Þýzkalandi, og verða þeir 240 tonn að stærð hvor. Annar kemur í desember í ár, en hinn í febrúar eða marz næsta ár, að því er framkvæmda stjóri Síldarvinnslunnar, Her- mann Lárusson, tjáði mér. Ekki er síldveiðum fyrir Aust urlandi lokið enn, því að hingað er væntanlegur í kvöld m.s. Sigl- firðingur með 700 mál. Á. L. ( Clay í ( sjúkrahús Kappleiknum á \ mánudag sennilega j frestað j CASSIUS CLAY var í gær- j = kvöldi fluttur í sjúkrabifreiðj i frá hóteli því, er hann hefur; = gist i Boston, á sjúkrahús og = 1 talsmaður sjúkrahússins sagðii E eftir að hann hafði verið skoð; j aður, að hann þjáðist af inni-i 1 lokuðu kviðsliti (incarceratedi = hernia) og vera kyni að hanni = yrði skorinn upp í skyndingu. i = Atvik þetta virðist augljós-i i lega þýða frestun á kappleik = = Clays og Listons um heims-i = meistaratitilinn, sem ákveðinni Í var á mánuda.gskvöld (að i | bandarískum tíma), segir íi i skeyti frá AP. i Fréttamenn segja að Clay i i hafi virzt mjög þjáður, er = É hann kom til sjúkrahússins i l frá „svítunni“ sem hann hefur = = búið í í Sherry Biltmore hótel Í = inu í Boston. Starfsmenn hótelsins neit- 1 uðu að svara nokkrum spurn- i = ingum. j í GÆR var undirritaður samn- ingur milli fulltrúa íslands og Sovétríkjanna um k.aup á olíu- vörum frá Sovétríkjunum árið 1965 fyrir 330—340 millj. kr. Viðræður hafa farið fram í Reykjávík að undafiförnu um þessi kaup í samræmi við við- skiptasamning ríkjanna tveggja frá 1962. Af íslendinga hálfu tóku forstjórar olíufélaganna þátt í viðræðunum, þeir Hallgrímur Fr. Hallgrímsson, Hreinn Pálsson og Vilhjálmur Jónsson, og aðstoðar- menn þeirra. Dr. Oddur Guðjóns son, viðskiptaráðunautur, og Yngvi Ólafsson, deildarstjóri í viðskiptamálaráðuneytinu. Af hálfu Sovétríkjanna tóku A. Graséff, verzlunarfulltrúi; V. Matasjún, aðstoðarmaður hans, og I. Fedoroff, aðstoðarforstjóri V.O. Sojuzneftexport, þátt í við- ræðunum. Samningar hafa nú tekizt. — Magn það, sem um var samið,.er sem hér segir: = Þannig lýtur Surtsey út; = eftir eins árs gos, ailra mynd; = arlegasta eyja með stórum; = glóandi gíg í miðju, se.i; = hraun rennur suður og vestur; = af (upp á myndinni). Hnjúk; = arnir, sinn hvoru megin við; 11 gíginn, eru 174 m. á hæð ogi s heilmikið la-ndslag er komið; j| á, eyna. Þessa mynd tók von j = Linden í gær er hann flaug j = yfir. Þá var heilmikið hi-auni = rennsli og náði lengra austurj j| með ströndinni en hann hafðii = áður séð. Sjá nánar á bls. ? j miiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinmiiimu 210.000 tonn af gasolíu, 100.000 tonn af brennsluolíu 40.000 tonn af benzíni. Verðmæti umsamins vörumagns er um 330—340 millj. kr. Samn- inginn undirrituðu dr. Oddur Guðjónsson og I. Fedoroff. Dr. Sigmundur Guðbjarnarson. íslenzkur visindamabur vinnur ab rannsóknum í jbvi skyni i Detroit Flýtt fyrir lækningu eftir hjartaslag FRÉTTIN hér á eftir birtist í hinu heimsþekkta dagblaði ,JVew York Times“ mánudag- inn 26. október. ATLANTIC CITY, 25. okt. (AP). — Þegar hjarta manns- ins fær „slag“ tekur það þegar í stað upp baráttu til að bæta skaðann. Með tilraunum á hundum hefur vísindamönnum nú tek- izt að finna og þróa aðferð til að aðstoða hjartað í þessari baráttu og flýta lækningu um 50 til 100%. Það er gert með inngjöf vaxt arhormóna, eöa insulins, víta- mína og methionine, sem finnst í eggjahvitufrumum. Þessari aðferð, sem ekki hefur enn verið reynd á mönn um, var lýst hér í dag í lok vísindaráðstefnu bandarísku hjartavarnarsamtakanna (American Heart Association) af dr. Sigmundi Guðbjarnar- syni, dr. Chiyo Chiba, dr. Jiro Yamanaka, og dr. Richard J. Bing frá Detriat. , En það virðist líklegt, að aðferðin muni einnig verða til hjálpar fyrir manninn og stuðla að fljótari lækningu, og jafnvel betri lækningu, á þeim svæðum hjartans, sem skaðazt hafa, sagði dr. Guð- bjarnarson. Hormónarnir auðvelda sam setningu eða myndun eggja- hvítu og kjarnasýra (nucleic acids) að því er vísindamenn- irnir hafa komizt að raun um. Hjaríaslag stafar af hindr- un blóðstraumsins til sjáífs hjaríavöðvans. Við blóðmiss- inn deyja sumar frumur hjarta vefjanna. Lækningin er fólg- 'in í myndun örþykknis (scar tissue) á hinu skaðaða svæði, þ.e. græðandi. Þessi græðing hefst í frumkjarnanum inn- an fárra tíma eftir að hjarta- slag hefur átt sér stað, segja vísindamennirnir. Við tilraunirnar á hundum var skemmd á hjartanu feng- in með því að loka fyrir grein ar af slagæðunum (kransæð- um). Hundar, sem fengu hor- mónagjöf í æð, virtust ekki aöeins fá skjótari Iækningu heldur einnig hafa meira af starfhæfum frumum en þeir hundar, sem ekki höfðu hlotið þessa meðferð, segja þeir. Sökum þess hve lítið er um vaxtarhormóna mun líklega verða notað insulin, vítamín og methionine við tilraunir á mönnum sagði dr. Guðbjarn- arson.“ Dr. Sigmundur Guðbjarnar- son er 33 ára Akurnesingur, Iauk prófi frá Menntaskól- anum á Akureyri 1952, lauk doktorsprófi í lífefnafræði við háskólann í Munchen 1959. Frá árinu 1961 hefur hann kennt og unnið að rannsókn- um við háskóla i Detroit í Bandaríkjunum. Póststofan opnar úti- bú á Laugavegi 176 í DAG verður opnað útibú frá póststofunni í Reykjavík að Laugavegi 176. Mun útibú þetta veifca allar tegundir póstþjónustu aðrar en afhendingu bögglapósts frá útlöndum, sem fer í gegn- um Tollpóststofuna. Póstur verður borinn út frá póstafgreiðslunni innan umdæm is hennar, sem takmarkast af Laugavegi frá nr. 124, Höfðatúni og byggðinni meðfram sjónum, Borgartúni, Otrateig, Laugalæk, Reykjavegi, Suðurlandsbraut að Grensásvegi. Ennfremur Grens- ásvegi að Miklubraut og byggð- inni norðan Miklubrautar og aust Húsakyimi útibúsius á Laugave an Rauðarárstígs. Ætla má að íbúum þessa svæð- is verði mikil hagræðing að því að fá þetta nýja útibú, en það er staðsett í miðju verzlunar- hverfi. Er húsnæði útibúsins eigu Bílasmiðjunnar h.f. í fyrstu verða aðeins átta starfs menn við þetta nýja útibú, 5 bréf berar og 3 póstmenn, en starfsliði verður fjölgað ef þörf krefur. Afgreiðslutími hins nýja úti- bús verður alla virka daga frá kl. 10—17, nema laugardaga frá kl. 10—13. Umsjónarrhaður útibúsins verð ur Björn Björnsson, póstfulltrúi. gi 176.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.