Morgunblaðið - 14.11.1964, Blaðsíða 5
Laugardagur 14. nóv. 1964
MORGUNBLADJV
5
Bítla-pabbi snoðar
börnin sín
— Klippa, sagði ungi m.aður
inn, og kom sér fyrir í rakara
stólnum. Hann var méð passíu
Ihiár, svokallað bdtfla'bárr, og
strauk hendinni hinzta sinn
yfir lokkana, >ví að Pétur
rakari var farinn að munda
klippurnar.
Pétur sagði okkur, að hann
hefði haft aldeilis nóg að gera
þennan daginn. Hann hefði
klippt hvorki meira né minna
en átta bítlakolla.
— Þetta er að detta úr tízk
unni, sagði Pétur. Bítlarnir
ganga heldur ekki með svona
mikið hár, Það eru bará Roll-
ing Stones, og ég held a'ð þeir
séu tæpast' til fyrirmyndar.
Þeir eru með hár alveg niður
á herðar, sjáðu til — og svo
þrífa þeir sig varla og ganga í
óhreinum skyrtum . . .
Nú heyrðist hljóð úr horni.
Sveinn ljósmyndari staðhæfði
að þetta væri ekki rétt. Hann
hefði sjálfur kynnzt þeim
persónulega á hótelholu í
Liverpool, þegar hann var að
taka myndir af leiknum milli
K.R. og Liverpool.
— Þeir ei~a alveg áreiðan-
lega nóg af skyrtum sagði
Sveinn, því áð það var heil
skyrtu'hrúga á gólfinu, þegar
ég kom inn til þeirra. Þetta
eru fínir strákar, þessir Roll-
ing Stones, skal ég segja þér,
en óttalegir sprelligosar. Þeir
eru líka miklu- vinsælli en
Bítlarnir í Englandi, enda var
alltaf stór hópur af ungling-
um fyrir utan hótelið þeirra.
Eitt sinn ráku K.R.-ingarnir,
sem voru á þessu sama hóteli
hausana út um gluggann og
var fagnað óskaplega, þar til
í ljós kom, að þeir voru ekki
Rolling Stones.
Hárunum fækkaði óðum á
unga manninnum í rakara-
stólnum, og Pétur beitti stór
bítlagreiðslunni sinni af mik-
iili kunnáttu. Pilturinn í stóln
um var Hafnfirðingur, Sigur-
jón Sigurðsson, kominn alla
leið til Reykjavíkur, því að
hann sagðist trúa Pétri bezt
fyrir hárinu sínu. Hann sagði
ist síðan hafa láti'ð skera hár
sitt 16. júní og aldrei hafa
farið til rakara síðan, fyrr en
nú.
Sigurjón er í 2. bekk Flens
Áður
borgarskóla, og sagði að í
bekknum sínum hefðu þeir
verið 3 með bítlahár. Þegar
hann hefði komið í skólEinn
um morguninn, hefðu hinir
tveir verið orðnir snöggklipt-
ir allt í einu, og þar sem hann
kunni ekki við að vera eini
bítillinn í bekknum, hefði
hann flýtt sér tii Péturs.
Hann sagði, að kennararnir
í Flensborg hefðu að vísu
aldrei villzt á honum og s teipu
en hinsvegar hefði það komið
fyrir í fyrsta bekk, að kenn-
ari áleit pílt einn með bítla-
hár vera stelpu.
Við spurðum hartn, hvort
einhver herra hefði boðið
honum heimfylgd í rökkrinu
eftir skólaball, eh hann kvað
svo ekki vera.
Við spurðum rakarameist-
arann, hvort klipping á bítla-
hári væri kostnaðarsamari en
normal hárklippingar.
Þá sagði Pétur:
— Nei, verðið er hið sama.
En væri þetta reiknáð eftir
uppmælingu og við gerum ráð
fyrir einni klippingu á mán-
uði mundi klipþing á þess-
um kolli kosta 5 sinnum 43
krónur eða samtals 215 krón-
ur.
Þegar pilturinn í stólnum
var orðinn að manni aftur,
spurðum við hann, hvort hann
sæi eftir hárinu.
— Nei, sagði hann fljótt, en
ég er bara hræddur um, að
mér verði dálítið kalt á háls-
inum.
| Bazar — Keflavík
Hinn árlegi bazar verður
sunnud. 15. nóv. kl. 3 e.h.
Hafnarg. 80 (Vík, uppi). —
Verið velkomnar. Gerið
góð kaup. Systrafél. Alfa.
| Til sölu
sjónvarpstæki, 23 tommu.
Mótatimbur I%x4 og 2x4.
Vinnuskúr, stærð 2,20x3,50
Hagstætt verð. Sími 34076.
iKeflavík — Suðurnes
Bílskúr til, sölu. Færanleg
ur. Stærð 6%x4 m. —
Sími 2310.
Sunnudagaskólar
Sunnudagaskólar K.F.U.M. og
K. eru á sunnudögum í húsum
félaganna í Reykjavík og Hafnar
firði. Hefjast kl. 10:30 og eru öll
börn hjartanlega velkomin.
Minnistexti: Minnst þú Jesú
Krists, hans, sem reis upp frá
dauðum. (2. Tímóteus 2,8).
Pá'll í Korintuborg, Post. 18, 1-11
Fíladelfia
Hátún 2, Hverfisgata 44, R. Hverfis-
gata 8, Hf. Allstaðar kl. 10:30.
VÍSUKORIM
Beiðurs bind þér blóma sveig
blysin yndis kveiktu.
Lífsins mynda úrval eig
öðru í vindinn feiktu.
Benedikt Einarsson, Hálsi,
Fnjóskadal.
Hœgra hornið
Konan mín skilur mig ekki . , .
er Kjarnorkufræðingur.
FRETTIR
K.F.U.M. og K. í Hafnarfirði. Al-
menn samkoma sunnudagskvöld kl.
8:30. Séra Magnús Guðmunds-son fyrrv
prófastur talar.
Kvæðamannafélagið Iðunn hefur
kaffikvöld á Freyjugötu 27 í kvöld
kl. 8.
Æskulýðsfélag Bústaðasóknar. Fund
ur í Réttarholtsskóia mánudagskvöld
kl. 8:30. Stjórnin.
Mæðrastyrksnefnd Hafnarf jarðar
hefur opna skrifstofu alla miðviku-
daga frá kl. 8—10 síðdegis í ALþýðu-
húsinu. Tekið verður á móti fatnaði
og öðrum gjöfum til jóla.
Sjálfstæðiskvennafélagið HVÖT held
ur fund þriðjudagskvöldið 17. þ.m. í
Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll. Rædd
verða félagsmál Kvikmyndasýning og
fleiri skemmtiatriði. Stjórnin.
Kvenfélagskonur í Garða- og Bessa-
staðahreppi. Sýnikennsla á smurðu
brauði verður að Garðaholti sunnu-
daginn 15. nóvember kl. 3 e.h. Félags-
konur fjölmennið og takið með ykkur
gesti. Bíll frá Ásgarði kl. 2:4ö.
Basar verður haldinn í Landakots-
skóla frá kl. 3—8 og á morgun sunnu-
dag kl. 2—6. Allur ágóði rennur til
barnaheimilisins í Riftúni. Samhliða
basarnum er kaffisala. Allir velkomn-
ir.
Kvenfélagið Heimaey heldur sinn
árlega basar mánudaginn 16. nóv. í
Góðtemplarahúsinu kl. 2 og mun þar
verða margt góðra muna.
Bræðrafélag Frikirkjunnar heldur
fund að Kaiffi Höll mánudaginn 16.
nóv. 1964 kl. 8:30.
Fundarefni:
Undirbúningur spila-kvölds og fl. —
Sjórnin.
Hlutavelta Húnvetningafélagsins til |
styrktar byggasafninu verður 15.
nóvember. Þeir sem ætla að gefa
muni komi þeim tU ef tirtalinna:
Þórhildar, Nökkvavog 11, Ólafar,
Nesveg 59, Jósefínu, Amtmannsstíg 1
og Guðrúnar, Skeiðarvog 81.
Fíladelfía. Vakningarsamkomur f |
kvöid og annað kvöld. John Ander-
son frá Glasgow talar. Samikomurnar |
hefjast kl. 8:30.
GAMALT og gott
STEF UM ALKORT
Kóng-ur í veltu kostar tvist,
kemst drottningin af með þrist
Málshœftir
Það er skammgóður vermir að
pissa í skó sinn.
Það þarf meira en montið, til
að sýna mannskapinn.
Það er ekki feitan gölt að flá,
sem flesk er ekkert á.
Laugardagsskrítlan
A. : „Hvað er hættulegast við
bíla?“
B. : „Bílstjórarnir.-
sá HÆSJ bezti
Nokkrir menn voru að ræða blaðagrein um nýjan forsætisráð-
herra í Japan, sem sagður var vera „fæddur stjórnmálamaður.“
Jón: „Ja, ekki hefði ég viljað vera viðstaddur þá fæðingu."
Árni: „Nú, ja. Þetta hefur auðvitað verið þannig fæðing, þegar
höfuðið kemur á eftirl“
Konur — Stúlkur
Vantar heimilisaðstoð á
gott sveitaheimili í Arnes-
sýslu. Nánari upplýsingar
í síma 369'89 kL 11—12 og
6—8.
Vil kaupa
hráolíuofn til upphitunar
bílskúrs. Uppl. í síma 33745
frá kl. 5—7 næstu daga.
ATHUGIÐ
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu eu öðrum
blöðum.
HLUTAVELTA
HÚNVETHINGAFÉLAGSINS
til styrktar Byggðasafninu, verður í húsi félagsins
Laufásvegi 25 á morgun kl. 2 e.h. —
Margt góðra muna. — Kaffisala.
Byggðasafnsnefndin.
N auðungaruppboð
•
sem auglýst var í 85., 87. og 89. tbl. Lögbirtingablaðs-
ins 1964 á hálfri húseigninni nr. 9 við Holtsgötu, hér
í borg, þingl. eign Einars Inga Guðjónssonar, fer fram
eftir kröfu Jóns Sigurðssonar hrl. á eigninni sjálfri
þriðjudaginn 17. nóvember 1964, kl. 3,30 e.h.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 93., 96. og 98. tbl. Lögbirtingablaðs-
ins 1964 á húseigninni nr. 58 við Lindargötu, hér í borg,
þingl. eign Ásgeirs Karlssonar o. fl., fer fram eftir kröfu
Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri fimmtu
daginn 19. nóvember 1964, kl. 3,30 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
N auðungaruppboð
sem auglýst var í 93., 96. og 98. tbl. Lögbirtingablaðs-
ins 1964 á húseigninni nr. 112 við Njálsgötu, hér í borg,
talin eign Jónínu M. Jónsdóttur, o. fl., fer fram eftir
kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík á eigninni sjálfri
föstudaginn 20. nóvember 1964, kl. 3,30 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
Nauðungaruppboð
2. og síðasta uppboð á vb. VILBORGU KE 57, eign
Helga Grétars Helgasonar, fer fram við skipið sjálft
við bryggju í Keflavíkurhöfn, þriðjudaginn 17.
nóv. 1964, kl. 2 e.h.
Bæjarfógetinn í Keflavík.
O. J. OLSEN
flytur erindi í Aðvent-
kirkjunni sunnudaginn 15.
nóv. kl. 5 e.h..
Erindið nefnist:
Hvað verður úr
sameiningu Evrópu?
Guðmundur Jónsson
operusongvari syngur.
Allir velkomnir.