Morgunblaðið - 14.11.1964, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 14. nóv. 1S64
— Skógræktarferð
Framhald af bls. 15
dóttur og heimili Knud Ham-
sun.
Hádegisverð borðuðum við í
fjaliahóteli Bessheim sem stend-
ur á fögrum stað við Sjodals-
vatn. Áfast við hótelið er gam-
alt hús, sem nú geymir merki-
legt byggðasafn. Mikið ber þar á
fögrum útskornum munum, sem
eru hrein listaverk. Athyglisverð
ast fannst mér þar stór skápur
af mjög óvenjulegri gerð og
breið umgjörð um dyrnar á hús-
inu, sem var snilldarlega útskor-
in. Járnin á hurðinni voru einn-
ig voldug og mjög skrautleg.
Mjög margt var þar að sjá af
merkilegum hlutum.
Þegar við komum til Klones
■— það var nafn skólans, sem við
bjuggum í — höfðum við aðeins
tíma til að borða kvöldverð, því
nm á messu í VSgö-kirkju, sem
átti að hefjast kl. 8 um kvöldið.
Vágökirkja er mjög forn, eins og
margar kirkjur í Noregi. Hún er
mjög skreytt með útskurði og
giæsilegum litum. Enginn sér-
stakur kirkjukór söng í kirkj-
unni. Leikið var á orgel og svo
sungu kirkjugestirnir. Eitt barn
var skirt í messunni.
Það er einkennilegt með alla
kirkjugarða í Noregi, að hvergi
sást upphlaðið leiði. Garðarnir
eru sléttir grasfletir, ágætlega
hirtir. Mikið er af legsteinum
sem standa í beinum röðum og
sýna að garðarnir eru mjög vel
skipulagðir. Mikið er af skraut-
blómum við legsteinana, mjög
smekklega raðað eftir litum.
Það stingur mjög í stúf við
það sem við eigum að venjast
hér á landi, að sjá hvað Norð-
menn hirða vel sína kirkjugarða.
Aliar kirkjur sem ég sá, voru
með fallegum háum og reisuleg-
um turnum, sem gerðu kirkjurn-
ar svipmiklar og glæsilegar
byggingar. f viðbót við þetta er
svo allt það skraut, sem er inni í
kirkjunum. Þetta á jafnt við um
litiar sveitakirkjur og stórarj
kirkjur í stærri bæjum. Auð-
vitað er hlaðið meira af skrauti
í stærri kirkjurnar, en aiúðin við
kirkjuskreytingar er alls staðar
auðsæ.
Þriðjudaginn 18. ágúst fórum
við alfarin frá Vágö. Við fórum
með bíl til Otta, sem er allstór
bær, ofarlega í Guðbrandsdal. f
Otta skiptum við um farartæki
og fórum þar í hraðlest, sem okk-
ur virtist reyndar fara fremur
hægt. Hún þurfti víða að stanza,
en hvergi nema örlitla stund í
einu. Víða er mikil náttúrufeg-
urð þar sem farið er niður Guð-
brandsdalinn að Lillehammer.
Meðfram Mjösen er mjög
skemmtileg leið, en það var tak-
markað sem hægt var að njóta
útsýnis um glugga lestarinnar.
í Ósló gistum við í stóru skóla-
húsi, en borðuðum á hóteli sem
var alllangt frá skólanum. Seint
um kvöldið kom flokkur ísleifs
frá Rissa og gisti í sama skóla og
við. Eftir það voru báðir hóp-
arnir sameinaðir. Daginn eftir
skoðuðum við Oslóborg. Fyrst
skoðuðum við ráðhús borgar-
innar, sem er glæsileg stórbygg-
ing, skreytt listaverkum, sem
sýna sögu Noregs frá fyrstu tíð
og fram á síðustu ár. Þegar við
komum í ráðhúsið var okkur af-
hent eitt eintak hverju af all-
stórri bók, með myndum af þeim
listaverkum, sem í húsinu eru.
Næst skoðuðum við Vigelands-
garðinn, sem mun eiga fáa sína
líka vegna þeirra listaverka, sem
þar eru, og vegna þess hve
snilldarlega hann er skipulagð-
ur.
Borðað var á hótelinu á Frogn-
ersetereet og um leið sáum við
skiðastökkbrautina á Holmen-
kollen. Næst var farið út á
Bygdöy og víkingaskipin skoð-
uð ásamt öðrum fornminjum sem
þar eru. Næst var Kon Tiki flek-
inn skoðaður. Svo sem kunnugt
er, fór Thor Heyerdahl ásamt 5
félögum sínum þvert yfir Kyrra-
haf um 8000 km og lét vinda og
strauma bera flekann. Nú er
engið svo frá flekanum að lík-
ast er því að hann fljóti á sjón-
um og undir honum er griðar-
stór hákarlategund, sem fylgdi
flekanum eftir og mörg önnur
sjódýr, öll uppstoppuð en þau
hanga á mjóum vírþráðum, svo
ekki verður annað séð í fljótu
bragði, en þau séu á sundi und-
ir flekanum. Neðan í honum
hangir alls konar sjávargróður,
sem búinn var að festa sig við
flekann. Að loknum kvöldverði
fórum við í lokaveizluna sem
Samband ungmennafélaganna
stóð fyrir. Þar voru dansaðir,
þjóðdansar af norsku fólki í þjóð
búningum.
Morguninn eftir vorum við
snemma á fótum og snæddum
morgímverð. Síðan var ekið með
okkur út á Fornebuflugvöllinn.
Þar var flugvél frá Braathen til-
búin að taka okkur. Loftið var
töluvert skýjað, svo ekki sá nið-
ur til jarðar nema á smáblett-
um meðan við flugum vestur yfir
Noreg. Þegar flogið var yfir
Færeyjar, var þar snjór niður
í miðjar hlíðar, og þokuslæð-
ingur yfir hafinu öðru hvoru.
Bjart var yfir suðurströnd ís-
lands, og sást hún mjög vel.
Vélin flaug einn hring yfir
Surtsey svo vel sást niður í gló-
andi eldhafið í gígnum. Öðru
hvoru urðu þar sprengingar, svo
eldhríð stóð hátt í loft upp og
glóandi hraunlækir runnu hér og
þar út í sjó.
Við lentum heilu og höldnu á
Keflavíkurflugvelli og vorum
flutt þaðan á bílum til Reykja-
víkur. Þar skildust leiðir og dá-
samlegu ferðalagi var lokið. Ég
veit að allir bera hlýjan hug til
fararstjóranna fyrir góða farar-
stjórn og til ferðafélaganna fyr-
ir sérstaklega ánægjulega sam-
veru. Einnig veit ég að allir eru
þakklátir Norðmönnum sem tóku
okkur af svo frábærri gestrisni,
og gerðu allt sem í þeirra valdi
stóð, að gera okkur dvölina í
Noregi sem ánægjulegasta og
reyndu að kynna okkur land og
þjóð eins vel og kostur var á, á
svo stuttum tima.
Samband ungra Sjálfstœ&ismanna
boðar til ráðstefnu um landbúnaðarmál á
BLÖNDUOSI
á morgun, sunnudag kl. 3 í félagsheimilinu.
Ráðstefnuna setur Árni G. Finnsson, formaður S. U. S.
Ræðumenn: Dr. Sturla Friðriksson, efnafræðingur.
Pétur Gunnarsson, tilraunastjóri.
Sr. Gunnar Gísláson, alþingismaður.
ÖLLUM HEIMILL AÐGANGUR
Stjórn Iðnaðarmannafélags Keflavíkur. Fremri röð: Sigurður
R. Guðmundsson og I*o» bergur Friðriksson, formaður. Aftari
röð. Ingvar Jóhannsson, Jón H. Jónsson og Eyþór Þórðarson.
ihnaharmannatéÍag
Keflavíkur 30 ára
ÞAÐ eru nú um þessar mundir
liðin 30 ár síðan Iðnaðarmanna-
félag Keflavíkur var stofnað. Það
var á þeim árum lítið þekktur
trésmiður, Þórarinn Ólafsson,
sem tók sér fyrir hendur að safna
saman starfsbræðrum sínum í
hinum ýmsu iðnum, til að mynda
með sér félag, ekki eingöngu
kröfufélag um kaup og kjör, held
ur miklu fremur félag um þroska,
þróun og réttindi hinnar marg-
skiptu iðnaðarmannastéttar.
Frumbýlisárin voru að vissu
leyti nokkuð erfið, en fljótt kom
í ljós, að margir vildu þar leggja
hönd og hugsun að verki og því
tókst að gera iðnaðarmenn að
samfelldri heild, sem hefur með
hverju ári vaxið að vizku og
þroska.
Brautryðjendur Iðnaðarmanna-
félags Keflavíkur eru nú hættir
að standa fyrir forustu þess, þar
hafa ávallt yngri tekið við, gegn
um árin, en hinn gamli forustu-
flokkur stendur traustur að baki.
Hvað sem um iðnaðarmenn er
sagt, og segja má, þá er það
ómetanlegur styrkur, hverjum
yaxandi bæ, að hafa víðsýna og
skilningsgóða iðnaðarmenn, sem
ekki alltaf hugsa um eigin hag
— og því láni hefur Keflavík
átt að fagna. Iðnaðarmannafélag
Keflavíkur hefur til þessa lagt
mesta áherzlu á að gera félaga
sína hæfa til starfa, þeir komu
iðnskóla á stofn, og hafa beitt
samtökum sínum og félagsvaldi
til að vanda störf sín í hvívetna,
enda þótt ekki séu aliir jafn
ánægðir með iðnaðarmenn i dag
— þá skal það vitað, að við sem
utan stöndum þurfum á sér-
hæfni að halda, gerum kröfu til
hennar, og fáum hana oftast nær.
Það er langt mál að rekia 30
ára starfssögu félags, sem hefur
fengist við að leysa erfiðustu við
fangsefni. Þar hafa margir kom-
ið að stjórnvöl og stýrt vel að
settu marki. enda nýtur Iðnaðar-
mannafélag Keflavíkur viður-
kenningar og virðingar allra sem
til þekkja.
Það eru of staðbundin mál 1
landsblaði eins og Morgunblaðinu
að rekja stjórnarferil og störf
þeirra mörgu manna, sem þar
koma við sögu, enda ekki til
þess ætlazt í stuttri afmælis-
kveðju.
Frá okkur heimamönnum ber-
ast beztu afmælisóskir og þakk-
ir fyrir margháttuð störf Iðnaðar
mannafélags Keflavíkur og við
treystum góðri samvinnu þess
framvegis, sem hingað til, því
við erum allir samverkamenn um
að byggja nýjan og fallegan bæ
— Keflavíkina okkar suður með
sjó.
Iðnaðarmannafélag. Keflavíkur
minnist afmælis síns, nú á laug-
ardaginn með hófi í Ungmenna-
félagsjiúsinu og þangað berast
hlýjar óskir og þakkir fyrir vel
unnin stÖrf á liðnum áratugum.
— hsj.
Starfsfræðsludag-
ur á Suðurlandi
STARFSFRÆÐSLUDAGUR var
haldinn 8. nóv. á Selfossi, Stokks-
eyri, Eyrarbakka og Hveragerði.
Hann hófst með athöfn í Selfoss-
bíói, þar sem Valgarð Runólfs-
son, skólastjóri, setti daginn. Ing-
ólfur Jónsson, ráðherra, og Ólaf-
ur Gunnarsson tóku til máls, en
Lúðrasveit Selfoss og kvartett frá
Hlíðardalsskóla léku og sungu.
Á Selfossi voru unglingar
fræddir um 160 starfsgreinar,
skóla og stofnanir. Um 600 ungl-
ingar nýttu sér fræðsluna, en
alls eru um 700 unglingar í ungl-
inga- og framhaldsskólum á Suð-
urlandi. Áhugi á starfsgreinum
var misjafn, en eins og venju-
lega spurðu flestir um flugmál;
þar af ræddi 91 stúlka við flug-
freyju. Yfirleitt virtust sunn-
lenzkar stúlkur vera duglegri við
að afla sér fróðleiks en almennt
gerist um stúlkur á sama aldurs-
skeiði. Margar spurðu um hjúkr-
unarstörf. Áhugi á garðyrkju er
meiri á Suðurlandi en annars
staðar á landinu.
Fræðslusýningar voru margar.
Á Stokkseyri gengust SH, SÍF og
SSF fyrir sameiginlegum sýn-
ingum, og þar höfðu Eimskipafé-
lag íslands og skipadeild SÍS
sýningu. Á Eyrarbakka höfðu
Fiskmat ríkisins og Fiskideild ís-
lands sýningar. í Hveragerði
höfðu Atvinnudeild háskólans og
Búnaðarsamband Suðurlands
sýningu, svo og SÍS, Veiðimála-
stofnunin og Samvinnuskólinn.
Meðal gesta á starfsfræðslu-
daginn voru auk Ingólfs Jóns-
sonar, ráðherra, Aðalsteinn
Eiríksson, námsstjóri og Sverrir
Júlíusson, alþingismaður, for-
maður Landssambands íslenzkra
útvegsmanna. Framkvæmda-
nefnd dagsins skipuðu Ární
Stefánsson, skólastjóri Gagn-
fræðaskólans á Selfossi, Bjarni
Pálsson, skólastjóri Iðnskólans á
Selfossi, og Valgarð Runólfsson,.
skólastjóri í Hveragerði, sem var
formaður nefndarinnar og aðal-
hvatamaður þess, að starfs-
fræðsla þessi fór fram. Fjáröfl-
unarmaður dagsins var Óskar
Magnússon, kennari á Eyrar-
bakka, en framkvæmdastjóri
Ólafur Gunnarsson.