Morgunblaðið - 21.11.1964, Síða 2

Morgunblaðið - 21.11.1964, Síða 2
2 MORGUNBLADID Laugardagur 21. nóv. 1964 Kommúnistalöndin fái að senda fulltrúa til SÞ U Thant lætur í það skína, að slíkt yrði heppilegt m ..... .. r. v Keppt í kajakróðri, teiknað aí Jocqueline Duheme. Eitt af jóla- kortum Sarnahjálparsjóðsins. Jólcakort til ógóðd ffyrir Bscrntahgálp BARNAHJÁLPARSJÓÐUR Sam einuðu þjóðanna gefur í ár eins og að venju út jólakort, sem Þjóðlagokvöld ameríska bókosainsins AMERÍSKA bókasafnið hefur að undanfömu efnt til nokkurra þjóðlagakvölda þar sem kynnt hafa verið ýmiskonar amerísk þjóðlög og um leið skýrt frá sögu þeirra og uppruna. Eru lögin einkum flutt af hljómplötum, en val þeirra og kynningar annast þau Kristín H. Pétursdóttir, aðalbókavörður safnsins, David Nickerson, starfs- maður bandaríska sendiráðins, og Troels Berdtsen, en hann syngúr, sem kunnugt er, í Sav- anna-tríóinu. Þá syngja þeir David og Trœls einnig nokkur lög sjálfir og leika undir á gitar. Þjóðlaigakvöldin eru haldin í húsakynnum safnsins að Haga- torgi 1, og verður hið næsta þeirra næstkomandi þriðjudags- kvöld kl. 8,30. Nefnist það: „Ballades and spirituals", („Söguljóð og sálmar“). Aðgang- ur er ókeypis, en þeir sem áhuga hafa á þátttöku eru beðnir að tilkynna safninu það í síma: 19900 fyrir n.k. mánudaigskvöld. 99 bltu 64 ertgin vopn eftir Eliot Ness og Oscar Fraley KOMIN er út í islenzkri þýð- ingu bók þeirra Elliot Ness og Oscar Fraley „Þá bitu engin vopn“ (The Untouchables). Sagan gerist að miklu leyti í Ohicago á þeim tíma, er glæpa- aldan reis þar sem hæst og hinir svokölluðu „gangsterar“ réðu þar lögum og lofum. Þessi glæpa hlda hjaðnaði smátt og smátt eftir að Roosevelt forseti Iét afnema bannlögin. „Sagan um mennina, sem létu hvorki vopn né mútur á sig bíta, hefur þó verið vakandi í hugum Bandaríkjamanna og annarra manna víða um heim,“ segir á bókarkápu, „ekki sízt vegna sjón varpsþáttar, sem gerður hefur verið um sögu þeirra." Frægastur varð Eliot Nass, er •hann hantók glæpamannafor- ingjann A1 Capone. Bókin er 185 bls. áð stærð, prýdd fjölda mynda úr sjón varpsþættinum. Þýðandi er Her- steinn Pálsson, en útgefandi ísafold. seld eru um allan heim og ágóða varið til matarkaup og maðala- kaupa fyrir börn sem líða skort. Hér hefur Kvenstúdentafélag íslands ávallt séð um sölu á jóla- kortum Barnahjálparsjóðsins, en félög kvenstúdenta hafa víða um lönd gert þetta í sjálfboðavinnu, og eru kortin komin. Fyrir ágóð- ann sem orðið hefur að kortasöl- unni hér hefur venjulega verið keypt lýsi og sent utan. En þörf- in fyrir næringarefni og meðul er víða um lönd mjög brýn. Listamenn teikna venjulega þessi kort og gefa Barnahjálpar- sjóðnum og hafa kunnustu mál- arar heims gefið teikningar til þess. I ár hafa málararnir Roger Duvoisin frá Bandaríkjunum, Sung Vo-Dinh frá Viet-Nam, Irene Delano frá Puerto Rico, Jacqueline Duheme og Jean Couty frá Frakklandi teiknað kortin, sem eru af 11 gerðum. U THANT, aðalrilari Sameinuðu þjóðanna. lét i það skina í dag, að svo kynni að fara, að þeim koirm únistaríkjum, sem ekki eiga að- ild að samtökunum, yrði levít að senda áheymarfulltrúa til S.Þ. Taldi U Thant að þetta kynni að verða til þess, að gefa viðkom- andi þjóðum nokkra hugmynd um hversu menn og þjóðir skipt ust á skoðunum innan samtak- anna. U Thant nafngreindi eng- ar þjöðir í þessu sambandi, en i athugasemdum hans í skýrslu ti» Allsherjarþingsins virðist það ljóst, að hann hafi einkum haft í huga A-Þýzkaland, N-Viet Nam og N-Kóreu. Ýir.úr telja, að Thant hafi einnig átt við Kin verja, en það þylcir hinsvegar ljóst, að Kínverjar muni alurei sætta sig við að fá að senda.að- eints áheyrnarfulltrúa til sam- takanna. Vestur-Þýzkgl'iand, S-Kórea og S-Viet Nam hafa þegar áhe.vrn- arfulltrúa hjá SÞ í New York. í skýrslu sinni til Allsherjar- þmgsins ræðir U Thant ýmis heimsmál. Hann telur að margt bendi til þess, að afvopnunár- umræðumar séu á góðri leið, og allt bendi til þess, að friðsam- leg feusn finnist á Kýpurmál- inu, enda þótt vandamálin séu iþar mikil og margvísleg. Aðalritarinn legigur á það ríka áherzl-u, að hættan á frekar: dreifinigu kjarnorkuv'opna, hafi mjög aukizt við að Kinverjar sprengdu sprengju sína og hann endurtekur tillögu sína um aö kjarnorkuveldin fimm ættu að halda með sér fund til að reyna að draga úr hættunni. U. Thant ræðir einnig ástandið í Kongó, og telur að það hafi mjög versn að síðan friðargæzlusveitir SÞ voru fluttar írá larMlinu í sumar. Þá minnist aðalritarinn á fjár hagsvandræði þau, er nú steðja að Sameinuðu þjóðunum. Hann gerir engar ti ilögur um lausn þeirra vandamála í skýrslunni, en talið er hamn muni teggja íram tillögur sínar ef ekki naest samkomulag um þá hluti áður en Allsherjarþingið kemur sam- an 1. desember n.k. Dr. Valtýr Guðmundsson. Dr. Valtýr segir frá Úr bréfum Valtýs Guðmundssonar til móður sinnar og stjúpa 1878—1927 Forstöðumenn Gallery 16 ásamt listamanninum. Frá vinstri: Kristján Guðmundsson, Eystein n Jónsson og Bragi Ásgeirssoa. Fyrsta sjálfstæða mál- verkasýningin í Gallery 16 geirssonar verður opin daglega frá kl. 1-10 næstu viku. „UM síðustu aldamót var nafn Valtýs Guðmundssonar ef til vill kunnara hér á landi en nokkurs annars íslendings, sem þá var uppi. Stjórnmálastefna hans var nefnd Valtýska og fylgismenn hans Valtýingar. Tímarit hans, Eimreiðin, var þekktasta tímarit landsins og átti sinn þátt í að kynna nafn hans“. Svo segir dr. Finnur Sigmundsson, landsbóka- vörður, í formála að nýrri bók, sem hann hefur búið til prent- unar og nefnist „Dr. Valtýr segir frá“. Er það 5. bindið í bóka- flokknum „íslenzk sendibréf", sem Bókfellsútgáfan gefur út, úr bréfum Valtýs Guðmundssonar til móður sinnar og stjúpa 1878— 1927. Dr. Finnur segir ennfremur í formála: „Nú muna aðeins aldr- aðir menn þann styr, sem stóð um þennan nafntogaða mann. En saga hans er forvitnileg á marga lund. Umkomulítill smali úr Húnavatnssýslu ryður sér braut af eigin rammleik, verður há- skólakennari í Kaupmannahöfn, stofnar og gefur út fjöllesnasta tímarit landsins, gerist foringi stjórnmálaflokks og munar litlu, að hann verði fyrstur íslenzkra -manna skipaður ráðherra Islands. Stjórnmálaafskipti Valtýs Guð mundssonar hafa sætt misjöfnum dómum. Því meiri ástæða er til þess að kynna sér manninn með kostum hans og göllum. Hann beið lægri hlut í stjórnmálabar- áttunni og uppskar minna en hann taldi sig eiga rétt á. En vera má, að þjóðin eigi honum á ýmsa lund meira að þakka en almennt hefur verið viðurkennt. Um það dæmir sagan á sínum tíma“. Þá segir einnig í formálanum: .....í þessum bréfum talar hann hispurslaust um eigin hagi og viðfangsefni, baráttu sína í þjóð- málum, sigra og ósigra... . “ Bókin er yfir 280 bls. að stærð, hin vandaðasta að frágangi. I DAG kl. 2 verður opnuð fyrsta sjálfstæða málverkasýningin hinu nýja sýningarhúsnæði, Gallery 16. Er það sýning á mál- verkum^ Braga Ásgeirssonar. Bragi Ásgeirsson er íslending- um að góðu kunnur og þarf ekki að kynna hann nánar hér. Að þessu sinni sýnir hann um 30 málverk, sem hann hefur málað á síðustu árum. Rúmlega helm- ingur málverkanna eru olíu- myndir en auk þeirra sýnir Bragi grafískar myndir. Sex hinna grafísku mynda voru á samsýn- ingu í Osló í vor. Bragi Ásgeirs- son hefur haldið nokkrar sjálf- stæðar sýningar áður Oig tekið þátt í mörgum samsýningum. Hélt hann síðast sjálfstæða sýn- ingu hér á landi fyrir um það bil tveimur árum í Snorrasal. Málverkasýning Braga Ás- Belgiskir Framhald af bls. 1 erlendu mönnum öryggi“. Bandaríska utanríkisráðuneyt- ið upplýsti einnig í kvöld, að á morgun, laugardag, ættu að hefj- ast viðræður í Nairobi, höfuð- borg Kenya, um að hvítir menn í Stanleyville verði látnir lausir. Utanríkisráðuneytið staðfesti og, að Bandaríkin hefðu samvinnu við Belgíu um björgunaraðgerðir, ef með þætti þurfa. Talsmaður Sameinuðu þjóð- anna sagði í kvöld, að U Thant, aðalritari SÞ, væri þeirrar skoð- unar, að mál sem þessi ætti að ræða í Öryggisráðinu, líkt og öll þau mál, sem ógnuðu heimsfriðn- um. f ÁTTUNDU umferð urðu úrslit í A-riðli eftirfarandi: USA 2% — Kanada 1% Holland 3 — ísrael 1 USSR 3% — Spánn Ví Júgóslavía 3% — Pólland V2 Argentína 2 — Búlgaría 2 V-Þýzkaland 1% —Rúmenía IV2 + 1 bið Tékkóslóvakía 1 Vi —Ungverja land 2Yz Pomar gerði jafntefli við heims meistarann Petrosjan, en það var líka það eina sem Spánverjarnir fengu. C-riðilI: Mexico 2Yz — Venezuela IV2 Sviss 3 — Indland 1 Kólumbía 3 — Tyrkland 1 Finnland 2 — ísland 2 íran 2 — Frakkland 2 Portó Ricó 3 — frland 1 f 9. umferð vann ísland fran með 2Yz gegn V2 en ein skák fór í bið. Efstu lið í A-riðli eftir 9 úm- ferðir eru: Rússland með 25 vinn- inga og biðskák, Tékkóslóvakía með 20 vinninga og bið og Argen tína með 20 og biðskák. f B-riðli er Austur-Þýzkaland efst með 23 vinninga og bið, Dan- mörk næst með 22 og bið og Sví- þjóð 21V2 og bið. í C-riðli er Sviss efst með 25Va og bið, Cólombía 25 og 2 biðskák- ir, Finnland 24 V2 og bið og ísland 23 og biðskák. Lægðin suðvestur af landinu hafði í gær grynnzt um 20 mb. frá því í fyrradag. Á Grænlandssundi var þó ennþá norðaustan rok og snjókoma. Nyrzt á Vestfjörðum var líka hvasst og bleytuhríð, en hæg- viðri um mestan hluta lands- ins, hlýtt í veðri, en víða þoka eða lítilsiháttar rigning.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.